Morgunblaðið - 29.08.1965, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.08.1965, Blaðsíða 6
6 MORG U N BLAÐIÐ Sunnudagur 29. ágúst 1965 ^ N yrkir um húsið sitt Aurien Brezka skáldið W. H. Auden kom hingiað á náms árum sínum ásaimt vini sínum, skáldinu Louis Mac Neice, og skrifuðu þeir saman bók um dvöl sína hér eins og kunnugt er. ís- land hefur ávallt síðan verið ofarlega í huga Aud- ens og gerði hann sér aft- ur ferð hingað fyrir einu og hálfu ári. Þá rifjaði hann upp endurminningar sónar frá Reykjavík og skrapp til ísafjarðar. Þeg- ar blaðamaður spurði hann hversvegna hann hefði farið til ísafjarðar, gaf hann í skyn að það hefði hann gert til þess að komast í nánari tengsl við minninguna um MacNeice 9em þá var dáinn fyrir til- tölulega 9kömmu. Á ísa- firði höfðu þeir átt sam- an góðar stundir. W. H. Auden orti ljóð um þessa síðari íslandsför sína sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins á sínum tíma, en áður hafði ljóð- ið verið prentað í hinu stóra menningartímariti „Encounter". Eins og mörgum er minnisstætt, las Auden ljóð eftir sig í hátíðasal Háskólans og var það ó- gleymanleg stund öllum sem þar voru samankomn- ir. Salurinn var þéttskip- aður. Þarna las Auden meðal annars nokkur ó- birt ljóð og þar á meðal ljóðaflokk um húsið sem hann nú býr í suður í Aust urríki Nú fyTÍr skömmu sendi hann frá sér nýja ljóðabók, er hann kallar „About the House“, og hefur hún að geyma flest þau ljóð, sem hann las hér upp. Bók- menntagagnrýnandi „New York Berald Tribime“ skrif- ar nýLega um þessa bók og fer mjög lofsamlegum orðum um hana og skáldið. Segir hann m.a., að það séu liðin fimm ár frá því að Auden sendi síðast frá sér ljóðabók. Á þeim tíma hafi hann flutzt frá Bandaríkjunum til Aust- urríkis, þar sem hann hafi eignazt nýtt heimili, og því sé ekki nema eðlilegt, að fyrri hluti bókarinnar sé- helgaður nýja húsinu, heim- ilisfólkinu og því hvernig heimilið sé. Síðari hluti bókarinnar, sé aftur á móti óstaðfærður og ótímabundin, sum Ijóðanna séu ort í léttum dúr, önnur ekki annað en hugdettur, sem hann hafi fengið á líðandi stundu og svo lýsi hann í nokkrum reynslu sinni og til- finningum. Það sé kannski fullmikið, en þó ekki út í hött, að ætla, að Auden kom- ist næst allra nútíma ljóð- skálda að líkjast Goethe, því þeir eigi æði margt sameigin- legt. í ritdóminum segir einnig að það sé ekki mjög hag- kvæmt fyrir ljóðskáld að vera gæddir miklum gáfum. Auden hafi öðru hverju ort „tær“ Ijóð, en hugur hans hafi þó alltaf fulla stjóm á hjartanu, og þess vegna beri að íhuga ljóð hans af skyn- semi. Hann hafi til að bera öfundsverða orðsnilld, og það sem hann yrki, sé ætíð það sem hann hafi ætlað sér. Að lokum segir gagnrýn- andinn, að það komi öðru hverju fyrir, að hjartað nái undirtökunum, t.d. þegar hann yrkir lofsöng til Louis MaoNeice, svo og þegar hann komi inn á svið mannlegra tilfinninga, eins og í ljóðinu „Common Life“, sem sé hyggt á stefi því, er birtist í þessum seinustu ljóðlinum: though truth and love can never really differ, Auden fyrir framan hús sitt í Austurríki, sem fyrri hluti hinnar nýju bókar íjallar mn wben they seem to, the subaltern should be truth og þá sýni hann mikla sjálf- stjóm heitra tilfinninga sinna er skipi honum á bekk, ekki aðeins með snjöllustu ljóð- skáldum vorra tíma, heldur einnig með þeim mestu. Eins og oft vill verða, er gagnrýni í erlendum blöðum mjög mismiunandi, t.d. birtir bandaríska tímaritið „Time“ fyrir skömmu ritdóm um bók þessa. Segir þar, að Auden sé eina skáldið í hinum ensku mælandi heimi nú, sem talizt geti öndvegisljóðskáld, en hann hafi því miður staðnað nokkuð á síðustu tíu árum. í>að vanti hina lífsþránna, sem einkenndi ljóð hans hér áður, og sé svo einnig um þessa ljóðabók, í henni verði ekki vart við neina nýja strauma. En það sem sé eðli- legt og lifandi í þessari ljóða- bók, sé hinn eðlilegi tónn, er Auden ræðir um sjálfan sig og það sem gerist innra með honum. Þesisa mynd tók Ól. K. M. af Auden, er hann dvaldist hér á iandi um skeið fyrir einu og hálfu ári. 'Á' Heimssýningin í New York Nú fer að líða að þvi að heimssýningunni í New York Hjúiki. Ég held, að ekiki séu nema tæpir tveir mánuðir þar til loka’ð verður og allir þeir, sem ráðgera að fara vestur um haf á næsturmi, ættu efcki að láta hjá líða að sjá þessa sýn- íngu. Hún hefur ekki fengið aMt of géða umsögn í blöðum í Evrópu. Einíkum hafa þó banda riskir blaðamenn veríð óvin- samlegir í dómum. En ég Jékk sjátfur taekifæri tii þess að skoða hluta sýningarinnar fyrir skömmu og með þá reynzlu í huga mæli ég ein- dregið því að fólk láti ekki hjá líða að kcxma þar við, ef það er á annað borð á ferð um þessar slóðir. Eitt af því, sem fundið hef- ur verið þessari sýningu til foráttu, er, að allt sé þar dýrt. Veitingar og annað á heims- sýningarsrvæðinu eru sjálfsagt ek’ki ódýrari en inni í borg- inni. Hins vegar er aðgangur ókeypis að næx ölllu því, sem eftirsóknarvert er að sjá — og þa'ð er meira en hægt er að komast yfir á notkkrum dög- um. Ekkert stórfyrirtæki Annars er verðilag í New York ails ekki jafnóhagstætt íslendingum og Evrópumönn- um yfirleitt — og það var fyrir nök.krum árum. Þeir, sem á annað borð hafa efni á að bregða sér tiil útlanda, ættu að geta farið vestur um haf eins og til Evrópu. Og sjálft ferða- lagfð er ekki lengur neitt stór- fyrirtæki. í rauninni er sára- látiil munur á að fljúga til New York og til London nú orðið. Mörgum, sem ferðuðust með Sikymaster-flugvélunum áður og fyrr, óx vegademgdin mjög í augum, enda fór hálfur sólarhringur og liðlega það í flugi'ð frá íslandl Nú tekur þetta helmingi styttri tíma og enn á flugtíminn eftir að stytt- ast. Nú er lokið við að steypa Kefflavíkurveginn og er það öMum ánægjuefni. Þetta er merkasta og stærsta skrefið, sem stigið hefur verið til end- umýjunar ístenzikium þjóð- vegi og vonandi verður fram- hald sMkra framkvæmda. Auð- vitað getum við ekki búizt við að vegir ver’ði steyptir um þvert og endilangt landið. Hann er ek'ki beint ódýr, nýi Kefla'víkurvegurinn. En við þurfum að taka í okikar þjón- ustu nýja tækni og stórvirkar véslar á sarna hátt og gert hefur verið við lagningu vegarins til Keflavíkur. — Með áframhald andi fjöigun bifreiða skapast algert vandræðaástand á fjöl förmustu brautunum í nágrenmi Reykjavikur, vandaméi, sem emungis stórfelidar endurbæt- ur á vegunum geta leyst. Þetta vandamáll er þegar oröið áþreifanlegt og ástand þeirra vega, sem um ræðir, fer síversnandi. Eitt dagbtaðanma sagði frá því, að umferðin yfir Elliða- árnar hefði auikizt um helm- ing síðan í fyrra. Þá hefðu áfcta þúsund bílar eki'ð þar um daglega, nú væru þeir tólf þúsúnd. Og yfir Fossvogslæk fara nú átján þúsund bílar á dag, fjórtán þúsumd í fyrra. Hvemig verður það næsta ár? ^ Tekið á móti ráðherra Og hér kemur ioks stutt bréf: „Er dr. Ahti Karjalainen, utamníkisrá'ðherra Finnlands og frú hans komu hinigað í opinbera heimsóikn, var tekið k móti þeim og fyigdarliði þeirra á Reyikj avíkurf lugvel li með viðlhöfn af hálfu íslenzkra stjómarvaida. Fór sú aithöfa hið bezta fram. Viðhafnarbragurinn var hins vegar nokikur annar, er ekið var með hina tignu gesti til ráðherrabústaðarins. Vein- andi lögregluibíll, sem þeytti sírenu sína af krafti, var lát« inn fara í fararbroddi fyrir bílalestinni, og hafa vegfarw endur, sem til heyrðu og sáu, örugglega talið, að þama væri nm eitt slysið enn að ræða en ekki för hinna æðstu emtoætt- ismanna. Lögregluiþjónar á mótorhil'jóum sáust hvergi, Hefði þó farið ólíkt betur á þvi, ef þeir hefðu farið á und- an og á eftir, en lögreglubíll- inn hvergi sézt. Sá háttur, sem á var hafður, getur ekiki ann- að en talizt ósmekklegur í alla staði og fslendingum tai lítila sóma. — Vegfarandi" AEG NÝJUNG TVEGGJA HRAÐA HÖGG- OG SNÚNINGSBORVÉLAR Bræðurnir ORMSSON hi. Vesturgötu 3: — Sími 36820.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.