Morgunblaðið - 04.09.1965, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.09.1965, Qupperneq 8
8 MOHGUNBLAOIÐ Laugardagur 4. sept. 1965 Tvær nýjar AB-bækur „Njósnarinn sem kom inn úr kuldanum" og bók um Kanada ALMENNA bókafélagið hefur sent frá sér tvser nýjar bækur, og eru það fyrstu bækur félags- ins á þessu hausti. Er þar um að ræða metsölubókina „Njósn- arann, sem kom inn úr kuld- anum“ og „Kanada“, tólftu bók- ina í bókaflokknum Lönd og þjóðir. „Njósnarinn, sem kom inn úr John Ie Carré kuldanum, er eftir brezka rit- höfundinn John le Carré, öðru nafni David Cornwell, og er þýdd af Páli Skúlasyni. Höfundurinn hefur skrifað nokkrar bækur, en hlaut heimsfrægð, þegar „Njósn- arinn“ kom út, en bókin var á vinsældarlistanum beggja vegna Atlantshafsins svö mánuðum skiptí, og er í dag mest selda njósnasagan. Hefur bókin hvar- vetna hlotið mjög góða dóma, og sagði t.d. Graham Greene um hana: „Bezta njósnasagan, sem ég hefi nokkru sinni lesið.“ Is- lenzka er 14: tungumálið, sem hún kemur út á. Sögusvið ,,Njósnarans“ er njósn ir og gagnnjósnir stórveldanna á dögum kalda stríðsins og lýsing á sálarlífi þeirra, sem við þær fást. Gerist bókin aðallega í London og í Vestur- og Austur- Berlín. Höfuðpersónan er Alec Lemas, — fimmtugur starfsmað- ur brezku leyniþjónustunnar, sem er orðinn þreyttur á starfi sínu og langar til að „komast inn úr kuldanum," og hætta að lifa hinu tvöfalda lífi njósnarans. — Lýsir sagan síðan hvernig hon- um tekst við síðasta verkefni sitt, sem hann verður að leysa áður en hann dregur sig í hlé. Sögusviðinu kynntist höfund- urinn, þegar hann var starfs- maður brezka utanríkisráðuneyt- isins, en hann starfaði einmitt í Berlín, þegar Múrinn var reist- ur. Bókin er 22 bls. að stærð, prentuð í Prentsmiðju Jóns Helgasonar h.f. Bókband hefur Sveinabókbandið h.f. annazt, en kápu bókarinnar hefur Kristín Þorkelsdóttir teiknáð. „Kanada“ er skrifuð af rithöf- undinum Brian Moore, en Egill Jónasson Stardal hefur íslenzkað hana. Lýsir bókin í máli og mynd um helztu einkennum þessa víð- áttumikla grannríkis okkar, þar sem búa fleiri menn af íslenzk- um ættum, en í nokkru landi öðru, og ef til vill fleiri en í öð/um framandi löndum til sarrl- ans. Kanada er tólfta bókin í hin- um vinsæla bókaflokki Lönd og þjóðir. Eru fjórar fyrstu bæk- urnar úr flokknum þegar upp- seldar og aðrar eru á þrotum. Lesmál bókarinnar er sett í Prentsmiðjunni Odda h.f., en að öðru leyti er bókin unnin í Ver- ona á Ítalíu. Fiéttir iró Akranesi AKRANESI, 31. ágúst. — Ms. Arnarfell kom í morgun með 1200 tonn af gipsi til sementsverk- smiðjunnar. Ms. Jarlinn liggur við bryggju og lestar á 7. hundr- að tonn af sementi og flytur á Austfjarðahafnir, til Fáskrúðs- fjarðar, Reyðarfjarðar, Eskifjarð ar, Norðfjarðar og Seyðisfjarð- ar. Ekki er ákveðið enn, hvort Jarlinn siglir af stað í kvöld eða á morgun. — Oddur. Séð yfir salinn á ráðstefnu guðfræðinga í háskólanum. Rev Niels Haselmann er lengst til vinstri í fremstu röð. (Ljósm. Stúd'íó Gests). Fjölmennt guðfræðiþing í Rvík UNDANFARNA daga hefur stað ið yfir guðfræðingaráðstefna hér í,Reykjavík. Að rástefnu þessari stóðu Lútherska heimssamband- ið og þjóðkirkja íslan'*~>. Fram- kvæmdastjóri undirbúnungsnefnd ar kirkjunnar hefur verið séra Ólafur Skúlason, og fræddi hann okkur um aðdraganda og undir- búning ráðstefnunnar. Um mánaðamótin ágúst-sept. í fyrra hélt stjórnarnefnd Lút- herska heimssambandsins fund sinn hér í Reykjavík og ko.m þá fyrst til tals að efna til ráðstefnu þessarar hér, en slíkar ráðstefn- ur sem þessi eru haldnar í ýms Síídveiðar við Jan Mayen í gœr í GÆR voru um 50 síldars'kip a’ð veiðum við Jan Mayen og fengu nokkurn afla. önnur sikip- in voru út af Langanesi eða á svæðinu milli íslands og Jan Mayen, en fengu þar minni veiði. í fyrrinótt tilkynntu 8 sikip um afla, samtals 6135 máil og tunmur. Yfir 1000 mál höfðu Jón Kjartansson, með 1485 mál. Vigri með 1400 tunnur og Gull- ver með 1400 tunnur. Fréttaritari blaðsins á Eski- fir’ði símaði: Þesisir síldarbátar komu hér imn í dag: Krossanes með 1580 miál af Jan Mayen miðumum og úr Reyðarfjarðardýpi kiomu Is- Laugardaginn 4. september ingunni verða 69 olíumálverk opnar Freymóður Jóhannsson og tvær teikningar. Þessar sýningu á málverkum sínum myndir hefur Freymóður gert í Listamannaskálanum. Á sýn- á tímabilinu frá 1925 og eru það bæði landslagsmyndir og mannamyndir. Sýningin verð- ur opin daglega frá 13-22 næsta hálfan mánuð. leifur 4 með 200 tumnur og Reykjaborg með 600 tunnur, og fer afli þeirra beggja í salt. —■ Gunnar. Letter Irom Iceiand í SÍÐASTA töiluiblaði tímaritsins „The New Morality“, sem gefið er út á ítalíu og fjallar um listir og memnimgarmáil, ritar Thor Villhjálmsson um íslamd. Vitnar hann þar m.a. í brezlka skáldið Audien og viðræður sámar við hann og kallar skrif sím „Letter from Ioelamd“. Thor Skrifar á ensku, en amnars gætir í tímarit- imu ýmissa tumguimála, því aðsemt efmi er jafnan birt á frumimálinu en ekiki þýtt. Sérhvert tölublað „The Morality“ sem nú á að baki fimim ár, er helgað ákveðmu efini og fraimlöig föiluð af mömmum en eikki aðsemd óumbeðin. Thor Villhjálmsson hefur áður ritað í The New Morality“. * I stukcu máli Miami, Florida, 27. ágúst. — AP — * Kúbustjórn hefur tilkynnt, að innan skamms muni verða haldin á Kúbu ráðstefna þjóðfrelsishreyfinga frá ríkj- um Suð.ur-Ameríku, Afríku og Asíu. Er fyrirhugaður fundur í Kaíró í næstu viku til undir- búnings slíkri ráðstefnu, sem væntanlega verður haldin í byrjun næsta árs. London, 27. ágúst. — AP. ♦ Brezka varnarmálaráðuneyt ið tilkynnti í dag að vart hefði orðið smávegis geislunar í sjónum í Holy Loch kafbáta- stöðinni í Skotlandi. Er hún rakin til bandarísku kjarn- ©rkukafbátanna, sem þar hafa bækistöð, en tekið fram að hún sé langt undir því marki er hættiulegt geti talizt. um löndum. Þannig gengst Lút- herska heimssambandið fyrir fimm ráðstefnum á þessu ári. — Biskup íslands og aðrir forustu- menn íslenzkra kirkjumála tóku strax vel undir að efnt yrði til guðfræðingaráðstefnu hér og um síðustu áramót fól biskup sam- bandsnefnd íslenzku kirkjunnar að annast undirbúning. Stjórn Lútherska heimssam- bandsins ákvað sem meginum- ræðuefni þessarar ráðstefnu efn- ið: Lögmál Guðs og manns. Fyrir lesarar voru sex, þrir erlendir, Dr. W. Dantine, prófessor í sam- stæðilegri guðfræði við mótmæl endadeild Wienarháskóla; Dr. B. Gerhardsson, prófessor í Lundi í Svíþjóð, sem gat ekki komið sjálfur, en fyrirlestur hans var fluttur af öðrum, og Rev. N, Hasselmann, aðstoðarframkv.stj. guðfræðideildar Lútherska heims sambandsins. Innlendir fyrirlesar ar voru prófessorarnir Dr. Þórir Kr. Þórðarson og Jóhann Hannes son og séra Jakob Jónsson. Ráðstefnan var sett mánudag- innn 30. ágúst af biskupi íslands, en áður höfðu þátttakendur hlýtt guðsþjónustu í kapellu háskól- ans. Að setningarathöfn lokinni flutti svo Dr. Dantine fyrsta fyrir lestur ráðstefnunnar. Að loknum hverjum fyrirlestri á ráðstefnunni skiptust þátttak- endur í umræðuhópa þar sem tek in voru fyrír nokkur meginat- riði, sem fjallað hafði verið um í fyrirlestrunum. Framsögumenn. umræðuhópanna röktu niðurslöð ur umræðna síðan á sameiginleg um fundi. Á árdegisfundi ráðstefnunnar kl. 10 í gærmorgun voru svo al- mennar umræður og niðurstöð- ur, en að því loknu sleit biskup ráðstefnunni eftir sameiginlega helgistund þátttakenda I kapellu háskólans. Þátttaka íslenzkra guðfræðinga í þessari ráðstefnu var mjög gó3 og voru þátttakendur yfir 40 úr flestum prófastsdæmum landsins. — Sýning Framhald af bls. 6 til orðnar auðsæilega undir á- hrifum frá franska málaranum Soulages. Guðmunda Andrésdótt ir' deilir myndum sínum upp 1 netverk af beinum blýantsstrik- um, horna línur, sem mynda alls kyns flatmyndir. í gegnum þetta net brýst fram fíngerð lit- hrynjandi næstum eins og um teppi væri að ræða. Steinþór Sigurðsson vekur áhuga skoð- anda vegna litmeðferðar og lifandi myndbyggingar, en hon- um er óhætt að skipa á bekk með beztu málurum íslands. Ennfremur gleðst maður yfir hinni glitrandi dýpt í mynd Gunnlaugs Scthevings „Búðin“. Listamaðurinn leiðir okkur beint inn í íslenzka náttúru og raunveruleik. (Frétt frá Félagi íslenzkra myndlistarmanna).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.