Morgunblaðið - 04.09.1965, Page 13

Morgunblaðið - 04.09.1965, Page 13
13 taugardagur 4. sept. 1965 MORGUNBLAÐID i „Ærið er bratt við Ólafsfjörð, ógurieg klettahöllinn; teygist hinn myrki múli fram, minnist við boóaföllinn . . .“ SNJ’ÓR í fjöllum við Eyja- fjörð. Síðustu 'hríðarélin gefa Ólafsfjarðarmúla sitt undir hvorn í vonzfku sinni að s'kiln- aði áður en jþau verða að hopa út í hafsaugað fyrir sunnan- golunni. Höfuðdagsrumban er gengin yfir og spáð er ljúfum laufvind'um. Á að giaka 13 kim utan við Dalví'k n-em ég staðar við skilti á vegarbrúninni. Þar stendur skýrum stöfum, að öll uim- ferða lengra út í Múlann s-é bönhuð vegna slysaihættu. Þarna skildi ég bílinn, eftir, enda er vegurinn utan við óslitið leðjusvað og ófær öll- um farartætkjum nema jepp- um og öðrum öélugum bílum. Ég hafði fengið leyfi verk- stjóra.ns til að skreppa út í Stykki gegn loforði um að fara gætilega. i>egar þangað kom, Skildi ég, að umferðar- bannið var ekki sett að ástæðu lausu. 20 metra hár bergvegg- urinn ofan við vegarsneiðing- Jón Bjarnason, ýtustjóri á vegaremia. Séð niður í Ólafs- fjörð. inn var löðrandi í hálfiausum og hættulegum steinum a£ öllum stærðum, allt frá hnefa- stórum steinvölum upp í heljarstór björg, sem rnola myndi hvern þann 'haus, sem undir yrði. Tólfmenningarnir, sem vinna við að mylja bergið í Múlanum, kalla ekki allt ömmu sína. f>ó urðu þeir að hætta um stund á fimmtu- daiginn af því að ekki sást leng ur út úr au'gum fyrir snjó- kornu. Enn er snjór á vegar- stæðinu og mifcil fönn ofar í fjaUinu. Við Jón Bjarnason í Hátúni gengum í matartímanuim út fyrir Stykkið, en þangað eru þeir komnir lengst Dalví'kur- megin. Hann trítlaði blístr- andi og léttilega með hendiur í vösum eftir losaralegum steinnibbum og rnjúkum mosatóm utan í snarbrattri hlíðinni eftir að ýtuslóðinni sleppti, nam st'aðar á dálítilli nöif og beið eftir mér, sem kom skríðandi á fjórum fótum á eftir eins og bundur, laf- hræddiur og skjáifandi, gat hvergi fundið trausta fótfestu og því síður handfestu. Mér fannst fjalilið vera að hvolfast fram yfir sig og taka að hring snúast um leið með vaxandi hraða. Fyrir neðan mig var 200 metra hengiflug ofan í sjó og ofan við mig eittihvað annað eins þverhnípi. Hnén voru að bila og jafnvægis- skynið var orðið óvirkt. Ég hélt ég slyppi aldirei lifandi úr þessum voðalega stað. Og hérna segja þeir, að göimul kerling hafi gengið alta leið til Ólafsfjarðar og prjón- að sokik á leiðinni! í>að er víst langt siðan. Hún hlýtur að hafa verið orðin sjónlaus og elliær, kerlingarhróið, og ekkert vitað hvað hún var að rangia. En bölvuð skömm er þetta. Þú ert varla aumari en kerl- ingin með prjónana. Berðu þig nú að herða upp hugann, drengur minn. f»ú sleppur jafnlifandi og aðrir. Gættu þess bara að líta ekki ofan fyrir. Hailtu þér svo fast í þetta grjótrusl og vittu hvar þú stíg'ur fætinum! — Með þessum fortölum yfir sjélfum mér tókst mér að rifa mig út á nöfina til Jóns og nú sáum við ofan í byggð i ólafsfirði. — Blessaður vertu, ég var engu burðugri, þegar ég kom hingað fyrst, segir Jón, — og þeir hafa ekki allir verið boru brattir, verkfræðingarnir sem hingað hafa komið. Svo venst maður þessu og veit ekki leng ur annað en maður standi á jafnsléttu. Eg hef oft séð Drang sigla undir ýtutönnina hjá mér hérna fyrir neðan. — En grjótflugið? — Það er alltaf eitthvað að hrynja hérna úr brúninni og fjalilinu. Ýtustjóri fékk um daginn á sig stein, sem lenti utan í lærinu á honum, reif þrennar buxur og marði hann svo, að hann hefur verið frá verkum síðan. Síðast í morg- un braut steinn framrúðuna á ýtunni, sem ég stjórna. Verst er grjóthrunið í rign- ingum og leysingum. Annars hafa engin veruleg slys orðið. Svo stigur Jón upp í ýtuna og fer að ryðja árangri síð- ustu sprengingar fram úr sneiðingnum í Flaginu. Taug- arnar eru í góðu jafnvægi í manninum þeim. Stórgrýtið fleygðist með óhugnanlegu glamri og gný ofan stand- brattar skriðurnar í sjó fram. Við og við heyrðist rísl i smá steinum, sem eru á leið niðub úr hömrunum fýrir ofan og skella niður á vegarstæðið. En það er aldrei að vita, hve stórir þessir steinar eru eða hvar þeir koma niður. >eir eru nú að koma úr mat, hinir, og með þeim Sveinn Brynjólfsson, verk- stjóri. Allir eru með stál- hjálma á höfði. Fimm hverfa út sneiðinginn og einn þeirra heldur á trékassa með sprengi efni eins og ungbarni í fang- inu. Tveir verða eftir hjá stóra bornum, sem er í sambandi víð geysiöfluga loftþjöppu, og taka að bora holur fyrir sprengiefni ofan við Flagið en þar þarf vegurinn enn að lækka á parti um 2 metra. — Borinn er kraftmikill og hrað virkur og . er ekki svipstund að spinna sig nokkra metra niður í bergið. — Springur bergið vel, Svéinn? — spyr ég verkstjór- ann. — Það er nú misjafnt. Við höfum notað Kjarnaáburð dá- lítið, og hann hefur gefið nokk uð góðan árangur og er miklu ódýrari, en gefur verri raun í mjög sprungnu og lausu bergi, vill leita meira út i sprungurnar. — Hvernig sækist verkið annars? Sveinn Brynjólfsson, verkstjóri. — Svona eftir áætlun. Við eigum eftir 200—250 metra til þess að endarnir nái saman, en það er líka unnið Ólafs- fjarðarmegin. Svo er verið að brúa Brimnesá í Ólafsfirði. Eg vona, að við getum tengt veg- inn í haust. Annars verður harin ekki opnaður til umferð ar gtrax, það er svp margt eft ir að gera, áður en það verð- ur, þó ekki væri nema að bera ofan i. Sv. P. (*■ Sementsverksmiðjan byggir stóran leðjugeymi Akraniesi, 1. septerniber. NÚ ER verið að steypa risavax- inn leðjugeymi í Sementsverk- •miðjunini, 4500 rúmmetra að ®tærð, 25 m. í þvermál og 10 m. á hæð. Verksimiðjan á fjóra geyma fyrir, sem hiver fyrir sig taka 400 rúmmetra að leðj'U, og hráefnið úr þeim endist til tveggja sólaihringa bræðslu í einu. Hve mikið mannvirki nýi geymirinn verður, sésf bezt á því, að hanin tekur nærri því þrisvar sinnum leðjuimagn geym- •rina fjögurra, sem fyrir eru. f honium verður miklu hæigara að hræra saman hráefnunum, sem •ementið er búið til úr, blandað 30% vatni en i gömllu geymun- um, og þeissi sementsleðja endist tti ; brennrilu í emuin ofni' í tíu daga og nægir sem leðjuforða- búr, þótt öðrum brennsluofni yrði bætt við. Búið er að steypa umdirstöður stóra geymisins, sem steyptur verður í Skriðmótum. Notuð er forspyrnt steinsteypa, ékikert steypustyrktarjárn en í þess stað stálvír lagður í steyp- una í sérstökum hólkum, og þeg- ar steypan er hörð orðin að ákveðnu marki er strekt á vírn- uim. Þetta er í fyrsta skipti sem hyggt er úr forspyrntri steypu á iandi hér. Hún er stórum sterk- ari en venjuleg steypa. Veitir ðklki af, því eðlisþungi leðjunnar er óhemju mikill, og þó er for- spyrnta steypan aðeins 22 cm. á þyk'tot. Semenits'veiksmiðjan nýbuir verikfræðil'egrar aðstoðar Aáoienina byggingarfélagsins og tvoggja til þrigigja sérfræðinga dansks verkfræðifirma, sem reynslu hefir um forspyrnta steinsteypu. — Oddur. Nánisstyrkir Kvenstúdenta- félap;siiis KVENSTÚDBNTAFÉLAG ís- lands hefur nýlega vei'tt náms- styrki, að upphæð kr. 60.000.00, sem skiptast þannig: Guðfinna Ragnarsdóittir, kr. 20,000.00 til náms í jarðfræði. Þorgerður Ingólfsdóttir, kr. 20,000.00, til náms í tónivísindum. Blín Ólafsdóttir, kr. 10,000.00, til náms í lífefnafræði. María Þorgeirsdóttir, kr. 10,000.00, til félagsráðgjafanáms. (Frébtatiikynning frá Kven- stúdentafélagi íslandis). BRIDGE VETRARSTARFSEMI Tafl- og bridgeklúbbsins mun- hefjast að þessu sinni 13. sept. Spilað verð- ur á mánudögum í hinum mjög vitslegu húsakynnum Lindarbæ, byrjað verður á tvímennings- keppni. Lögð verður á það mikil á- herzla að aðstoða og leiðbeina byrjendum og þeim, sem minna eru keppnisvanir. Þá er einnig í athugun að fá góðan bridgespil- ara til að annast kennslu ef næg þátttaka fæst. Ákveðið ér að íjúka eftirtöldum keppnum fyr- ir áramót: tvímenningskepprii, sveitahraðkeppni, ’ barómetirs- keppni og firmakeppni. Á fjölmennum aðalfundi klúbbsins, sem haldinn var fyr- ir nókkrú, kom fram mikili á- hugi fyrir þvi að efla húsabygg- ingarsjóð klúbbsins, svo að draumar allra bridgespilara um, að geta spilað í eigin húsnæði mætti rætast sem fyrst. Þá er í undirbúningi stofnun sjóðs, sem á að vera til styrktár þeim klúbbmeðlimum, sem fara vildu í keppnisferðalag, hvort sem væri innan lands eða utan. Áhugi var mikill fyrir því að koma á keppnum við önnur fé- lög minnst einu sinni á ári við hvert félag. Stjórn T.B.K. er nú þannig skipuð: Form.: Björn Benediktsson, póstmaður. Ritari: Bernhard Guðmundss- son, verkstjóri. Gjaldkeri: Haraldur Snorrason, málarameistari. Aðrir í stjórn og varastjóm éru: Hákon Þorkelsson, Ólafur Ingvarsson, Ingólfur Böðvarsson, Torfi Ásgeirsson, Tryggvi Gísla- son, Zophonías Benediktsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.