Morgunblaðið - 04.09.1965, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.09.1965, Qupperneq 14
MORCUNBLAÐIÐ Laugardasrur 4. sept. 1965 T4 Maðurinn minn, HELGI JÓNSSON Drápuhlíð 3, lézt að' heimili okkar 2. september sl. — Fyrir mína hönd, barna okkar og tengdabarna. Ólöf Jónsdóttir. Móðir mín, ANNA SIGMUNDSDÓTTIR Seyðisfirði andaðist að heimili sínu á Seyðisfirði fimmtudaginn 2. september sl. — Jarðarförin verður tilkynnt siðar. — Fvrir hönd vandamanna. Jónas Jónsson. Bróðir okkar, BJARNISTEFÁNSSON andaðist að heimili sínu Fjölnisvegi 4, 26. ágúst sl. — Jarðarförin hefur farið fram. — Þökkum innilega sýnda samúð. Matthea G. Stefánsdóttir, Helga Stefánsdóttir. Eiginmaður minn, JÓN A. ÓLAFSSON vélstjóri, Holtsgötu 23, sem lézt 25. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Kópavogs- kirkju mánudaginn 6. september kl 10,30 f.h. -— . Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Blóm vinsam- legast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir. — Fyrir mína hönd, dætra, foreldra, systkina og annarra vandamanna. Sigurlína G. Stefánsdóttir. Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir, SIGURÐUR GUÐMUNDSSSON fró Kirkjubóli í Arnarfirði, sem andaðist í Landsspítalanum sunnudaginn 29. ágúst sL verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudag- inn 7. september kl. 1,30 e.h. Jóna Kr. Símonardóttir, börn og tengdabörn. Þökkum innlega samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför JÓNASARJÓNASSONAR frá Hofdölum. Dætur, tengdabörn og barnabörn. Hjartans þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, GUÐMUNDÍNU KRISTÍNU INGIMUNDARDÓTTUR Sérstaklega þökkum við forstöðukonu og starfsfólki Elliheimilis Akraness þeirra hlýju umönnun henni veitta þann tíma er hún dvaldi þar. Þórunn Ágústsdóttir, Samúel Guðmundsson, Þórunn Jóhannesdóttir, Olgeir Gíslason, Þorgerður Halldórsdóttir, Gísli Jón Gíslason, Ólafur Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum bæði fjær og nær, er auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðaiför eigin- manns míns og föður okkar, STEFÁNS BACHMANNS HALLGRÍMSSONAR Vilborg Þorvaldsdóttir, Þóra Stefánsdóttir, Sveinn Viggó Stefánsson, Sússanna Bachmann. Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og út- för móður minnar, MÁLFRÍÐAR HANSDÓTTUR Narfeyri. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Hjörtur Ogmundsson. Innilegar þakkir færum við öllum, bæði fjær og nær, er auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðarför eig- inkonu minnar, móður, og tengdamóður, HANSÍNU SIGURÐARDÓTTUR frá Hnífsdal. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Finnbogason, Gísli Gíslason, Ingibjörg Eggertsdóttir, Garðar Sigurgeirsson, Ragnheiður Gísladóttir, Tómas Sigurðsson, Steinunn Gísladóttir. Sigurður Sigurðsson og Sigríður Jóhannesdóftir SIGURÐUR er fæddur að Fossi á Skaga, sonUr hinna merku hjóna Sigríðar Gísladóttur, ætt- aðri úr Svartárdal í Húnavatns- sýslu, og Sigurðar Gunnarsson af Skíðastaðaætt. Hann var eitt 12 barna er þau áttu. Stórt heimili kallar strax á fólk til starfs, sonurinn reyndjst strax drjúgur til starfa og efni- legt bóndaefni, en jarðir voru þá ekki lausar til ábúðar eins og nú, leið hans lá því til Reykjavíkur. Skagfirðingurinn átti erfitt með að gleima sveitinni og hestunum. Átti hann því reiðhesta sér til indisauka og kunni vel með þá að fara. Hér í Reykjavíkurborg varð ævistarf hans verkstjórn og vöru afgreiðsla við höfnina, hjá Eim- skip og síðar Ríkisskip. í starfi sínu kynntist hann mörgum góð- um dreng, er kunni að meta góða fyrirgreiðslu og minnast hans með hlýhug og þakklæti síðan. Árið 1916 kvæntist hann konu sinni, Sigríði Jóhannesdóttur frá Brekkukoti við Bræðraborgar- stíg, ágætis konu og að hans sjálfs sögn, honum fremri á öll- um sviðum. Þessi hógværa hæfi- leika kona naut sín bezt á heim- ili þeirra. Það duldist engum sem kynnt- ust Sigríði, konu hans, að hún var búin meiri búskaparhæfileik- um en fólk er flest, og vökul móðuraugu fylgdust vel með, að allir á heimilinu væru hreinir, saddir og ánægðir. Þessi lífsheppni Sigurðar varð til þess, að hann átti fallegt heim ili, sem var eðli hans og upp- vexti samkvæmt, þar sem gest- risni, greiðasemi og lúð var í hávegum höfð. Þar gátu ungir og gamlir notið þess bezta, sem heimiii getur veitt, allir jafn velkomnir í mat og kaffi. í frístundum var tekið lagið með orgelspili, söngogdansú Slíkar dvalarstundir með hjón- um þessum og börnum verður mörgum gesti kær ylur í minn- ingunum um þau, sem seint gleymist. Börn þeirra eru sjö: Bryndís, Bergljót, Guðbjörg, Erla, Aðal- heiður, Berta og Jóhannes, bú- sett í Reykjavík, nema Guðbjörg í USA. Þau áttu þrjár fósturdætur, Jóhönnu, búsett í Kópavogi, Bryndísi, í Reykjavík, og Hildi, búsett í USA. Að endingu óska allir börnum og barnabörnum þessara mætu hjóna góðs gengis og greiða göt- una fram eftir veg. Sig. Sig. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vínáttu á sextíu ára afmæli mínu. Anna Matthíasdóttir. Hjartanlega þakka ég öllum nær og fjær, sem minnt- ust mín með hugljúfri vinsemd, gjöfum og góðum ósk um á áttatíu ára afmæli mínu 28. ágúst sl. — Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Björnsdóttir, Stykkishólmi. Hjartanlega þakka ég öllum skyldum og vandalausum er sýndu mér vinsemd með gjöfum og skeytum á 80 ára afmæli mínu 29. ágúst sl. — Lifið heil. Hanries Júlíusson, Laugalæk 1. Þakkir sendi ég öllum skyldum og vandalausum, sem minntust mín á sjötugs afmæli mínu 1. ágúst sl. Sigfús Á. Guðnason. Öllum þeim er glöddu mig' á mínu 85 ára afmæli sendi ég mínar ástarkveðjur og þakklæti. María R. Ólafsdótti.. Kæru frændur og vinir, hjartans þakkir fyrir allar gjafir og gleði, sem þið veittuð mér á níræðisafmæli mínu, 18. ágúst sl. — Guð blessi ykkur öll. — Kær kveðja. Kristín Njarðvík. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í skóverzlun. — Upplýs- ingar um aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr. Mbl. fyrir 7. þ.m. merkt: „Skóverzlun — 6396“. Hef opnaö lækningastofu á Háteigsvegi 1. — Sími 103-80. — Viðtalstími kl. 1—2 alla virka daga. — Símaviðtalstími kl. 12—1 í heimasíma 37207. Þorgeir Gestsson, læknir. Afgreiðslumaður Viljum ráða nú þegar karlmann vanan afgreiðslu- störfum í matvöruverzlun. — Þarf að hafa bílpróf. Mikil vinna. Hátt kaup. Upplýsingar á skrifstofu vorri. Kaupfélag Hafnfirðinga Strahdgötu 28. — Simi 50-224. Aðalfundur Fél. ísl. leikrita- liöfunda AÐALFUNDUR Félags íslenzkra leikritahöfunda . var haldinn 31. maí sl. Félagið var stofnað hinn 15. nóvember 1964 og í skýrslu stjórnarinnar fyrir þetta fyrsta starfstímabil félagsins, var þess getið, að félagið væri komið í samband við félög leikritahöf- unda á hinum Norðurlöndunum, og hefðu þau heitið samvinnu og stuðningi í sameiginlegum hags- muna- og menningarmálum. Full trúi frá _ félaginu hefur setið fundi í Islandsdeild Alþjóðlega leikhúsdagsins og mun félagið væntanlegh gerast aðili að þeirri stofnun. — Rætt var um hags- munamál og réttindi leikritahöf- unda og hafinn undirbúningur að samningum fyrir félagsins hönd við leikhús og Ríkisútvarpið. Nefnd var kosin til þess að at- huga vissa þætti í leikhúsrekstri hérlendis. Fulltrúi félagsins við samningagerðir og lögfræðilegur ráðunautur er Jón Arnalds, hér- aðsdómslögmaður. — Stjórnin var öll endurkjörin og skipa hana: Gunnar M. Magnúss for- maður, Jökull Jakobsson ritari og Oddur Björnsson gjaldkeri. End- urskoðendur voru einnig endur- kjörnir: Sigurður Róbertsson og Erlingur E. Halldórsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.