Morgunblaðið - 15.10.1965, Blaðsíða 2
MORCUNBLAÐIÐ
FSstudagur 15. október Í955
; Jóhannes S. Kjarval
<
( Afmæliskveðja frá Bandalagi
’ íslenzkra listamanna
( ÞVÍ hefir verið haldið fram,
< að myndlist standi nú með
( . meiri blóma á ^íslandi en
I nokkur önnur listgrein. Ef
I svo er, mun mega þakka það
því, áð þar tóku snemma upp
merkið fáeinar óvenjugáfaðir
1 ungir menn, sem buðu byrg-
I inn heilbrigðri skynsemi sinn-
j ar samtíðar til að afla sér full-
, 1 kominnar menntunar á þessu
1 sviði og helguðu sig síðan list
I sinni allshugar og af nærri
l ofstækisfullu skeytingárleysi
um eigin hag. Af fyrstu braut-
ryðjendunum er Jóhannes S.
( Kjarval nú einn eftir á meðal
Reinhard Lárus-
son látinn
ÞANN 13. október síðastlið-
inn lézt í Landakotsspítala
Reinhard Lárusson forstjóri.
Reinhard var kunnur athafna-
maður hér í borg bg hafði m. a.
veitt fyrirtækinu Columbus h/f
forstöðu um 25 ára skeið. Hann
starfaði einnig mikið í þágu
Lyonsklúbbanna og var varaum-
dæmisstjóri þeirra hér á landi.
Auk þess gegndi hann ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir hesta-
mannafélagið Fák, var formaður
fjáröflunarnefndar félagsins og
hafði vega og vanda af firma-
keppni þess.
Reinhard var tvígiftur og hét
seinni kona hans Kristín Jóns-
dóttir og varð þeim hjónum
þriggja barna auðið auk þess
sem Reinhard lét eftir sig þrjú
börn af fyrra hjónabandi.
Reinhard Lárusson var fæddur
11. október 1918 og var því ný-
orðinn 47 ára er hann lézt.
vor og er í dag hylltur átt-
ræður.
Sút þakkarskuld, sem allir
Islendingar eiga honum að
gjalda, hvílir þyngsf á þeim,
sem telja sig bræður hans í /
listinni í hverri grein sem er. !
Þeir hafa eins og aðrir þegið í
þá gjöf, sém hann hefir fært |
þjóð sinni á löngum starfs- /
degi. Og hans vegna er meira J
um: verf . að vera lUíamaður \
en ella væri. - 4
Bandalag íslenzkra lista- /
manna vottar hinum síunga /
snilíingl aðdáun sína, virð- S
ingu og þökk. 4
Jón Þórarinsson.
Aitna Steph-
ensen 50 ára
f GÆR, 14. október átti Anna
Stephensen, sendiráðsritari í
Kaupmannahöfn, fimmtíu ára
afmæli. Þeir eru orðnir margir
fslendingarnir, sem hafa leitað
til hennar og notið fyrirgreiðslu,
því hún hefur starfa'ð í yfir 35
ár í sendiráði íslands í Kaup-
mannahöfnf byrjaði þar sem rit-
ari 1. desember 1929.
Anna er fædd 14. október 1905
á ísafirði, dóttir Páls Stephen-
sens prest í Kirkjubólsþingum
og síðar í Holti í Önundarfirði
og konu hans, Helgu Þorvalds-
dóttur. Hún stundaði nám í
verzlunarskóla í Kaupmanna-
höfn 1923—1924 og var síðan
hraðritari hjá inn- og útflutn-
ingsfirma í Höfn til 1929, er
hún var ráðin ritari í Sendiráði
íslands. Árið 1954 var Anna
skipuð attaohé við sendiráðið og
sendiráðsritari 1. janúar 1961.
Afmæli kunnra
Vestur-Islend-
inga
DR. Sveinn E. Björnsson, fyrrum
læknir í Árborg Man. Canada,
varð áttræður 13. þ.m., og kona
hans María fædd Laxdal varð
74 ára í gær 14. okt. Vinir þeirra
í Vancou /er og nágrenni, munu
halda upp á afmælin með hófi
á morgun, laugardag.
Heimilisfang þessarar vinsælu
hjóna er, Ste 201 — 225 W.
Vancouver B. C. Canada.
ÞAÐ sem af er þessum mán-
uði hefur verið hlýtt og gott
haustveður hér á landi. í gær
skipti svo um. Djúp og nokk-
uð kröpp lægð fór í fyrrinótt
austur með suðurströndinni
og gekk til N-áttar. Víða var
hvasst í gær og kl. 15 var
hiti á frostmarki á Vestfjörð-
um. Þar var þá snjókoma á
Láglendi og sömuleiðist um
vestanvert Norðurlandið, en
kalsarigning austar. Sunnan-
lands var bjart og svalt, 2—5
stig.
Jóhannes Kjarval ásamt Ásu Lökken, dóttur sinni, og syni sin jm Sveini.
Fagnafiarfundur í
Listamannnaskála
VIÐ opnun sýningarinnar á verk
um Jóhannesar S. Kjarvals í gær
dag gekk afmælisbarníð áttræða
um salinn og spjallaði við vini
og kunningja. Virtist listamaður-
inn leika við hvern sinn fingur
og alls ekki á því að láta síga
undan Elli kerlingu.
Þegar nokkuð Var liðið á sýn-
inguna heyrðu gestir fagnaðar-
hróp og gleðihlátra. Þar var
Kjarval að fagna Ásu dóttur
sinni, sem hafði óvænt komið
frá Danmörku til að vera við-
stödd opnun sýningarinnar.
Nokkrir nánustu vinir lista-
mannsins höfðu boðið henni til
Reykjavíkur í tilefni afmælis
föður hennar.
Ása hafði komið kvöldið áður
til íslands og dvalizt hjá Sveini
bróður sínum. Vissi Kjarval ekki
um komu hennar fyrr en hún
gekk í salinn.
Ása er gift danska blaðamann-
inum og rithöfundinum Jacob
Lökken. Er hún fædd og upp-
alin í Danmörku, en hefur oft
komið til íslands áður, síðast á
liðnu vori.
Þau Ása og Jacob Lökken eiga
eina dóttur, Mette, sem er list-
málari eins og afi hennár.
Ekkert virtist skyggja á gleði
Jóhannesar Kjarvals er hann
gekk um Listamannaskálann,
spjalláði og gerði að gamni sínu
við sýningargesti.
, En alvöruglampa brá fyrir í
augum hans, er hann sagði:
„Það eina sem skiptir mig
máli áttræðan er að fá að sjá
blómin og skynja sjálfa náttúr-
una“.
Prófessor Marco Scovazzi
Kynningin á
Dante er í dag
ÞAU LEIÐU mistök urðu hér í
blaðinu í gær, að rangt var
skýrt frá tíma þeim, sem fyrir-
lestur ítalska prófessorsins
Marco Scovazzis um skáldið
Dante átti að fara fram á. —
Fyrirlestur þessi á að fara fram
kl. 17,30 í dag, föstudag, í 1.
kennslustofu Háskóla íslands.
Biður blaðið velvirðingar á þess
um mistökum.
Prófessor Scovazzi mun flytja
fyrirlestur sinn á snæsku og er
öllum heimill aðgangur að fyrir
lestri þessa naerka fræðunatms.
Áætlunarferðum
Eimskips frá út-
löndum
FRÁ næstu mánaðamótum fjölg
ar áætlunarferðum skipa Eim-
skipafélags íslands frá megin-
landshöfnum og Englandi og
ver'ða þá vikulegar ferðir frá
Hamiborg, Rotterdam, Antwerp-
en og Hull en þrjár ferðir í
mánuði frá London. Er hér um
mjög verulega fjölgun ferða að
ræða þar sem áætlunarferðir
frá Hamborg, Rotterdam, Ant-
werpen og Hull hafa að undan-
förnu verfð á 10—12 daga fresti,
en á 3ja vikna fresti frá Lond-
on.
Svo sem kunnugt er hefur
félagið eignast tvö ný skip á
þessu ári, m.s. „SKÓGAFOSS“ er
var afhentur félaginu í maí og
m.s. „REYKJAFOSS" nú í byrj-
un þessa mánaðar. Auk þess
hefur félagið tekið m.s. ,,ÖSKJU“
á tímaleigu hjá Eimskipafélagi
Reykjavikur. Með þessari aukn-
ingu skipastólsins verður mögú-
egt að koma á tfðari ferðum frá
hinum þýðingarmestu viðskipta-
löndum íslendinga.
Þá er um að ræða verulega
fjölgun ferða frá New York þar
sem Fjallfoss verður framvegis
stö'ðugt í ferðum á milli New
York og íslands auk hinna
þriggja skipa, Brúarfoss, Selfoss
og Dettifoss, sem ferma á rösk-
lega þriggja vikna fresti í New
York til Reykjavíkur eins og að
undanförnu. Fjallfoss mun fara
u.þ.b. 10 ferðir á ári frá New
York, eða á 5 vikna fresti, og
mun losa í Reykjavík, á Isafirði,
Akureyri og Reyðarfirði.
Þrjú skip verða í förum á milli
fjölgar
Belgíu, Englands og íslands í
sta'ð tveggja áður. Fimm skip
munu anna flutningum frá Rott-
erdam og Hamborg í stað fjög-
urra áður, en þrjú þeirra, þ.e.
a.s. Brúarfoss, Sefoss og Detti-
foss sigla jafnframt til Ameríku
í annarri hyorri ferð eins og að
undanförnu. Askja mun verða í
ferðum frá Rotterdam og Ham-
borg til Reykjavíkur, ísafjarðar,
Akureyrar og Reýðarfjarðar, en
Mánafoss mun lesta í Antwerpen
og Hull til sömu aðalhafna á Is-
landi. Öpnur skip munu fyrst og
fremst ferma vörur til Reykja-
víkur og nálægra staða.
Gullfoss verður í ferðum fré
Kaupmannahöfn og Leith á
þriggja vikna fresti yfir vetrar-
tímann eins og áður og auk þess
er gert ráð fyrir að aukaskip
fermi vörur í Kaupmannahöfn
effcir þörfum. Önnur skip félags-
ins munu lesta með u.þ.b. þriggja
vikna millibili í Finnlandi, Rúss-
landi, Pólandi, Gautaborg og
Kristiansand.
Þess er vænzt, að hin aukna
þjónusta 'með svo tíðum ferðum
frá útöndurp geti 0/510 viðskipta
vinum félagsins til verulegra
hag9bóta, og þá eigi sízt innflytj-
endum utan - Reykjavíkur, sem
eiga þess nú kost að fá vörur
sínar fluttar frá útlöndum án
þess að til umhleðslu í Reykja-
vík þurfi að koma. Þá skal þess
og getið, að skipin geta losa'ð á
aukahöfnum á ströndinni þegar
um nægilegt flutningsmagn er
t að ræða og um flutningana er
I samið fyrirfram. (Frá E.Í.),