Morgunblaðið - 15.10.1965, Síða 3
! Föstudagur 15. ofctóber 1965
MORCUNBLADIÐ
3
ÓNEITANLEGA er )>að þægi
leg tilfinning og vekur örygg |
iskennd — eftir að hafa ekið '
svarta anelana norður á Kili
— þegar rauður ljósvitinn á
hinni nýju athugunarstöð
Veðurstofunnar á Hveravöll-:
um birtist í fjarska.
Veðurathuganir hafa farið
fram á Hveravöllum undan-
farin sumur, en nú í íyrsta
sinn búast athugunarmenn tiJ
vetursetu þar. Eru það hjónin
Ingibjörg G-uðmundsdóttir,
sem unnið hefur á Veðurstof-
unni um skeið og Björgvin
Ólafsson prentari.
Athugunarstöðin stendur á
Veðurathugunarstöðin á Hvervöllum
Yið veðurathugun á Hveravöllum
Ingibjörg færir athuganirnar
inn í bækur.
háum mel vestur af sseluhúsi
Ferðafélagsins með víðum
sjóndeildarhring, sem tak-
markast að vísu nokkuð af
jöklum og fjöllum, en til norð
urs sést allt til Skagafjarðar-
fjalla. Þarna hefur Veðurstof-
an reist ágætt íbúðarhús með
hitaveitu úr nærliggjandi
hver — og athugunartækjum
komið fyrir skammt frá hús-
inu.
Margir álíta ef til vill að þar
verði einmanalegt inn í regv.i-
óbyggðum, iþegar vetur geng-
ur í garð, en óneitanlega er
eitthvað heillandi við það. Og
að athuguðum ölluom búnaði
er sýnt að ekki mun væsa
um íbúana.
Þegar við heimsóttum þau
Ingibjörgu og Björgvin um
síðustu helgi létu þau hið
bezta yfir sér. Þau kváðust
að vísu lítið hafa verið ein
fram til þessa. Hópur manna
frá Veðurstofunni var t. d.
nýfarinn þaðan. Unnu þeir
veðurstofumenn að því að
koma fyrir tækjum og ljúka
ýmsu öðru, er gera þurfti
fyrir veturinn. ,,Það eru allir
að tala um einbúana á Hvera-
völlum“, sagði Ingibjörg, „en
mér hefur fundizt þetta Íík-
ara hóteli hingað til. Það
breytist nú líklega, þegar fer
að snjóa“.
Þau Ingibjörg og Björgvin
teljast nú til búenda í Svína-
vatnshreppi í Húnaþingi.
Tveir af fyrirsvarsmönnum
hreppsins heimsóttu þau í
fyrri göngum og greiddu þau
þá m.a. sjúkrasamlagsgjald.
Þórður Þorsteinsson á Grund
sendi þeim síðan kvittaðar
sjúkrasamlagsbækur með
seinni gangnamönnum og lét
þessa vísu, sem „varð til eina
nóttina í göngunum um dag-
inn“ fylgja:
„Reist er bú til reginfjalla,
rekkum finnst það skrítið
— öllum.
Eyvindur og önnur Halla
aftur búa á Hveravöllum".
Ekki verður þó annað sagt,
þegar rústir af hreysi Eyvind-
ar og Höllu eru skoðaðar, en
að mikill hefur munurinn ver-
ið á hýbýlum þeirra og hinna
nýju Hveravallabúa.
Veðurathuganir eru gerðar
á Hveravöllum á þriggja tíma
fresti allan sólarhringinn. Það
var fróðlegt að fylgjast með
Björgvin, þegar hann fór til
athugunar kl. 9 á sunnudags-
morguninn. í fyrsta skýlinu,
sem hann gekk að, voru einir
fimm hitamælar, „þurr“ mæl-
ir og „votur", mælir, sem sýndi
hámarkshita og annar lámarks
hita frá síðustu athugun. Þá
er og samanburðarmælir í
„enska skýlinu" svonefnda.
Næst athugaði hann úrkomu-
mæla, eina þrjá eða fjóra
Einn þeirra er sjálfritandi og
annar af alþjóðlegri gerð
eru til þess gerðir og sýnis-
hornum haldið til haga.
Athugunarmaðurinn verður
hverju sinni að meta vindátt-
ina og skyggnið og styðst þar
við fjarlægð fjallanna. Einnig
verður hann að segja til um,
hvaða tegund skýja er á iofti.
Athugun er þó ekki lokið
með þessu. Inni í húsinu eru
m.a. loftvogir, sem lesa þarf
af og síritandi vindmælir.
Loks eru svo allar tölur færð-
ar inn í bækur.
Ekki er óliklegt að stund-
um næði naprir vindar um
veðurathugunarstöðina á
Hveravöllum i vetur. Þau Ingi
björg og Björgvin segjast að
vísu ekki vita enniþá, hversu
vond vetrarveðrin geta orðið
þar — en þau kvíða engu. Til
Bjorgvin athugar einn úrkomumælinn.
Björgvln Olafsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir.
(„Skotapilsið" kallaði Björg-
vin hann). Úrkomumagnið í
hverjum fyrir sig er mælt og
sýnishornum, sem síðar verða
rannsökuð, haldið til haga. I
frostum og snjó verður að
taka mælana inn og þýða í
þeim og „vota“ hitamælirinn
verður að þýða áður en lesið
er af honum. Þarna eru og
mælar, sem mæla jarðhitann
í 2 sm., 10 sm. og 20 sm. dýpt
og inni í vélahúsinu er lesið
af tveimur sjálfritandi jarð-
hitamælum — og er annar
þeirra í eins metra dýpt.
Komið hefur verið fyrir 25
stikum og verður að mæla
snjódýptina við hverja iþeirra,
þegar byrjar að snjóa. Einnig
fara þá fram snjómælingar
með hólkum, sem sérstaklega
öry'ggis munu þau strengja
línu frá húsinu út að athug-
unartækjunum — staðráðin í
þvi að láta athugun ekki falla
niður vegna veðurofsa fyrr en
í fulla hnefa.
S T\ K S T H\ \ lí
Sóun á forsíðu
Forsiða Timans i, gær var tll
þrifalítil. Henni var sóað i að
birta kafla úr „ræðu“, sem Ey-
steinn Jónsson, formaður Fram
sóknarflokksins flutti á Alþingi
í fyrradag, þegar forsætisráð-
herrá hafði birt yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar, sem getið var um i
Morgunblaðinu í gær. Þessi
„ræða“ aðalforustumanns stjórn
! arandstöðunnar á íslandi er
þannig úr garði gerð, að full
ástæða væri til þess að gefa hana
út sérprentaða og dreifa á öll
heimöli Islands, hún er bezta
beimild, sem til er um það, að
Framsóknarflokkurinn hefur ná
kvæmlega ekkert fram að færa í
þjóðmálabaráttunni. „Ræða" Ey-
steins Jónssonar var svo einstak
lega ómerkileg og lágkúruleg, a9
sjaldgæft er, að forsiða dagblaðe
sé lögð undir slik skrif.
Hvex er „Hin leiðin"?
Að svo miklu leyti, sem hægt
er að fá einhverja meiningu út
úr því, sem Eysteinn Jónsson
sagði á þingfundj í fyrradag, virff
ist það einna helzt vera það, aff
hann boði eitthvað, sem hann
kallar „hin leiðin“. En greinilegt
er að „hin leiðin“ er meira en
litið þokukennd
í huga Eysteins.
Hann segir að
„til þess að átta
sig ofurlítið á
þessu er kann-
ski nauðsynlegt
að spyrja sjálfan
sig örfárra
spurninga, ef
það gæti orffið
til þess aff blása þokunni eitt-
hvaff frá, ef mönnum finnst þess
þurfa“.
Og Eysteinn spyr sjálfan sig
margra spurninga, en greinilegt
er, aff hann getur ekki blásið þok
unni úr sinum eigin huga, því
að engin svör hefur hann við
þessum spurningum. Þó eru þess
ar spurningar Eysteins afskap-
lega einfaldar og auffvelt að
svara þeim. Hann spyr t.d.: „á
að efla menntun og gera þaff sem
þarf til þess, aff byggja skóla og
annaff í sömú átt“. Auffvitaff á að
géra þetta. Og það sem meira er,
rikisstjórnin er einmitt aff vinna
aff þessu, og hefur þegar fram-
kvæmt stórvirki í þessum mál-
um. En Ijóst er, aff Eysteinn veit
ekki sjálfur hver „hin leiffin“ er,
og þaff er heldur ekki von. Greini
legt er af „ræffu“ þessa stjórn-
málaforingja, aff hann er svo
fullkomlega staffnaffur í þröng-
sýni og afturhaldi, aff honum er
fyrirmunað aff marka nokkra
nýja stefnu andstæða stefnu rík-
menn aff vera feimnir við að
geti valiff á milli um.
* -
Ovinsældir Eysteins
skiljanlegax
Eftir aff þessi endemis „ræða‘
Eysteins hefur verið birt á for
síffu Tímans, skilst mönnum bet
ur, hvers vegna óánægjan me<
flokksforustu hans er orffin sv<
mögnuð. Sannast sagna liljót;
samþingsmenn hans og flokks
menn aff vera feimnir viff aí
lúta forustu manns, sem flytui
jafn þokukennt þrugl um mikili
vert mál eins og forustumaðui
Framsóknarflokksins gerði á A1
þingi í fyrradag. Það hefði verií
hyggilegt af Tímanum að láti
svo sem þessi „ræða“ hefði aldre
verið flutt.