Morgunblaðið - 10.11.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.11.1965, Blaðsíða 1
28 svður mtlrtaMð 52. firgangtir. 257. tbl. — Miðvikudagur 10. nóvembor 1965 frtnismiJja Morgunblaðsins. CJNCINNATI, OHIO, 9. nóv. — AP. — Björgunarmenn við stél Boeing 727 þotunnar, sem fórst hér í gærkvöldi. Flugvélin skali á hæö er hún var að koma inn til lentlingar í mikilli rignángu. 58 MANNS FÖRUST i FLUGSIYSINU Fjérir komusf af er Boeing 727 skall á hæéardragi skammt frá flugvellinum við Cirvcinuati Cincinnati, 9. nóv, (AP-NTB) 58 MANNS fórust og fjórir homust af er þota af gerð- inni Boeing 727 frá flugfélag- inu American Airlines raksf á hæðardrag við Ohio-ána í gærkvöldi. Var þotan að koma inn til lendingar á flugvellin- um, er slysið varð. Aköf rign- ing var og segja vitni, að þot- sn hafi komið niður úr skýj- tim, og stefnt beint á hæðina. Tvær sprengingar urðu er vélin skall í jörðina. Um or- sakir slyssins er enn ekki vit- Síomstvíburar aðshlldir Ohapel Hill, N-Carolina, 9. nóv.—NTB. SKURÐLÆKNAR i sjúkra- húsi einu hér aðskildu með skurffaðgerð á mánudag sí- amstvíhura, tvær sjö mánaða gamlar stúlkur. Voru telpurn- ar vaxnar saman á mjöðmun- um. Þeim líður háðum vel eftir atvikum, og læknar telja allar líkur á að báðar muni lifa. Hiínverjar kaupa Melbourne 9 nóv. — NTB. ÁSTRAL.ÍA hefur selt Kínverj- um 500.000 tonn af hveiti fyrir 18 milljónir sterlingspunda, að því er upplýst var í Mel'bourne á mánudag. að, en rannsókn á tildrögum þess er þegar hafin. Hæðin, sem fiugvéiin rakst á, er aðeins 2'/z km frá enda flug- brautar þeirrar, sem fiugmaður- inn hugðist nota. Bóndabær er skammt frá slys- staðnum, og hljóp bóndinn þeg- ar á staðinn. Hann fann mann og konu í einkennisklæðum iif- andi fyrir utan flakið. Bóndinn spurði manninn hvað gerzt hefði, og svaraði hann þá: „Okkur tókst það ekki“ — og síðan missti hann meðvitund. Ekki er vitað enn hvort eitthvað hefur bilað í vélinni áður en hún rakst á hæðina. Björgunarmenn komu þegar á staðinn, en hafa orðið að biða þess að eldurinn í flokinu slokkni. Vitað er að einn benzín- geyma þotunnar er ósprunginn í flakinu, og stafar mikil hætta af honum. Eins og fyrr getur komust fjór ir af, tveir farþegar, ein flug- freyja og brytinn. lndánesía: Miklar mótmælaaðgerðir kommúnistum gegn Jakarta, 9. nóv. NTB-AP MEIKA en hálf milljón manna tóku í dag þátt í gíf- urlegu mmótmælaaögerðum í Indónesíu, sem heindust gegn kommúnistaflokki landsins, og krafðist mann- fjöldinn þess að kommúnist- ar yrðu reknir úr ríkisstjórn Sukarnos, og flokkur þeirra bannaður. Jafnframt lýsti mannfjöldinn stuðningi við Sukarno forseta og Indónesíu her. Yfirvöld um gjörvalla Indónesíu gerðu í dag ýmsar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að kommúnistar, sem eru 3 milljónir í land- inu, grípi til skemmdarverka og annarra aðgerða á mið- vikudag, en þá er sérstakur hátíðisdagur í landinu, sem nefnist „Hetjudagurinn.“ Ótti yfirvalda um uppreisn kommúnista byggist einkum á því, að fyrir skömmu fundust lauk milli brezkra hermanna og leyniskjöl kommúnista, þar sem fram kom að efnt yrði til æs- inga 10. nóvember, en þá verða 20 ár liðin frá því að bardögum indónesiskra þjóðernissinna, sem elduðu grátt silfur eftir heimsstyrjöldina síðari. Framh. á bls. 27 — Kiflegar kosningar á Fslippseyjuni Manila 9. nóv. — AP, NTB. TALNING atkvæða er nú< hafin á Filippseyjum, en þar hafa farið fram forsetakosn- ingar. Ekki er þó buizt við, að talningu Ijúki fyrr en eft ir tvo eða jafnvel þr.iá daga, enda er það ærinn siai íi að safna saman og telja at- kvæði frá 2,000 eyjum. Fyrsíu tölur virðast þó benda lil þess, að Ferdinand E. Mar- cos, forseti öldungardeildar- þingsins, muni fara með sig- ur af hólmi ,en hann bauð sig fram gegn Diosdatdo Ma- capagal, núverandi forseta landsins. Mikið hefur gePgið á vegna kosninga þessara og hafa alls 46 manns verið ráðnir af dögum í sambandi við þær. Stjórnmálamenn í landinu saka hverjir aðra um að hafa í frammi atkvæðakaup og hryðjuverk á kjörstöðum. Ferdinand Marcos sagði í dag að hann hefði heyrt að andstæðingar hans, Frjáls- lyndi flokkun'inn, sem nú er við völd, hafi haft í hygigju að leigja flugvél tili að dreifa fregnmiðum um að ha..a, Marcos, væri dauður. Annar meðlimiur Þjóðlega flokiksins sagðí í dag að stigamenn með Framh. á bls. 27 Eisenhower. Eisenhower í súrefnistjaldi Fékk hann aðkenningu að hjartaslagi ? Fort Gordon, Georgia, 9. nóvember — AP. DWIGIIT D. EISENHOWER, fyrrum forseti Bandaríkjanna var í dag settur í súrefnis- tjald í hersjúkrahúsinu í Fort Gordon eftir að hann hafði fengið verki fyrir hjarta. Hjartasérfræðingar voru kvaddir að sjúkraheffi Eisen- howers, sem nú er 75 ára gamall. Dr. Thomas W. Matt- ingly, sem var læknir Eisen- howers eftir aff hann fékk hjartaáfall 1955, og flaug nú í skyndi frá W'ashington á vettvang, sagffi í dag aff verk7 ir fyrir hjarta þurfi ekki allt- af að benda til hjartasiags, en hann bætti viff: „Aff sjálf- sögðu er þetta hiff fyrsta, sem maður hugsar um, þegar vitaff er aff maðurinn hefur fengiff hjartasilag áður, en þetta þarf alls ekki aff vera svo“. Eisenhower kenndi verkja Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.