Morgunblaðið - 10.11.1965, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.11.1965, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 10. nóv. 1965 Slys á Winnipegvatni VESTURTSLENZKA blaðið Lög- berg-Heirnr.kringla skýrir frá stærsta og hörmulegasta slysi, sem komið hefur fyrir á Winni- pegvatni síðan gufubáturinn Princess fórst fyrir meir en hálfri öld. Stýrimaðurinn einn komst af eftir miklar þrenging- ar, en hann náði landi á fleka raeð líkið af skipstjóranum og bar að í nánd við fiskver Páls H. Paulsson og Fjólu konu hans, sem hjúkruðú honum. Meða! þeirra niu, sem fórust var Björgvin Ágúst Hólm, vélstjóri 58 ára og frá Winnipeg. iáturinn Suzanna E var á leið norður vatnið að sækja fisk og kominn úr skjóli eyjanna þegar snjóbylur og ofsaveður skall á. Segir stýrimaðurinn, Clifford Everett, að skipstjórinn hafi reynt að snúa til baka, en þá hafi veðrið og risaháar bylgjur skollið á hlið bátsins og hvolft honum. Flestir bátsverjar voru í káetum sínum, en strax og bátn um hvolfdi brotnaði hann í tvennt og sökk á nokkrum augna blikum. Komust skipstjórinn, stýrimaður og tvitugur piltur á flekj af stýrishúsinu. Þetta gerð- ist kl. 10 á föstudagskvöld. Hrakti mennina þrjá á flekan- um lengi, þar til þeir komu ná- læg; Deerey. Sleppti pilturinn þá flekanum og reyndi að synda þangað, en fannst ekki aftur. Hina tvo hrakti á flekanum fram undir morgun súður til Black- eyjar, en klukkustund áður en þeir náðu iandi dó kapteinninn. Everett dró líkið á land og haltr- aði á sokkaleistunum yfir grjót og snjó, þar til hann kom að fiskiðjuveri Páls H. Paulson. Fjóia, kona hans hlynnti að hin- um þjakaða manni, en Páll fór á fiskibáti sínum til að síma og tilkynna slysið. Stýrimaðurinn, sem er 24 ára gamall, var svo hraustur, að hann neitaði að fara í sjú.krahús eftir þessar 8—10 tíma þrengingar og volk í köldu vatninu. SiprSur Ólais- son í Hornn- firði lútinn í FYRRADAG lézt í Landspital- anum Sijurftur Ólafsson, fyrrum útgerðarmaftur í Höfn i Horna- firfti, 76 ára aft aldri. Sigurður Ólafsson stundaði sjó sókn og útgerð frá Hornafirði um áratuga skeið, og frá árinu 1942 til dauðadags hafði hann með höndum afgreiðslu Flugfélags ís- lands í Hornafirði, hin síðari ár í félagi við Þorbjörn son sinn. Sigurður var Jandskunnur sjó maður á árum fyrr, en hin sið- ari ár varð hann að dveljast að mestu innan húss vegna veikinda í fótum. Hann var með afbrigð- um vinsaell maður og gestrisinn, og áttu fáir svo leið um Horna- fjörð, að þeir ekki kæmu við á heimili hans. Spilakvöld i Garðaholti SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Garða- og Bessastaðahrepps heldur spila kvöld fimmtudagskvöldið 11. nóv. kl. 8,30 í Garðaholti. Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti! — Stjórnin. Sorpbreiuislu- stöð veröur reist ú Akureyri AKUREYRI, 9. nóv. BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam þykkti á fundi sínum í dag bók- un bæjarráðs, þar sem bæjar- ráð ákveður, að nú þegar verði hafinn undirbúningur að bygg- ingu fullkominnar sqrpbrennslu- stöðvar í bænum, og felur bæjar stjóra og bæjarverkfræðingi að vinna að nauðsynlegum athug- unum í því sambandi. Skal að því stefnt, að framkvæmdir geti hafizt á næsta ári. — Sv. P. Dægurvísa saga úr Reykjavtkurlilinti Ný skdldsaga eftir Jakobínu Sigurðardóttur KOMIN er út ný skáldsaga eft ir Jakobínu Sigurðardóttur, Daegurvísa — saga úr Reykja- víkurlífinu. í kynningu á sög- unni segír að þetta sé nútíma- Umræður um embættisveitingu í bæjurstjdrn Hufnorljarðnr Á FUNDI bæjarstjórnar Hafn- frá með fjórum atkvæðum gegn arfjarðar í gær (undir dagskrár- lið um umfeiðarmál) bar Kristján Andrésson, bæjarfull- trúi kommúnista, fram tillögu um að mótmaela veitingu á bæj- arfógetaembaettinu í Hafnar- firði. Var tillögu þessari vísað í GÆR var lægðarsvæðið suðvestur af íslandi hreyfing arlítið og sömuleiðis hæðin við strönd Norðaustur-Græn- laads. Þess vegna eru horfur á suðaustlægri átt og þíð- viðri áfram. Hiýjast var í Síðumúla í Hvítársíðu, 10 stiga hiti, og víða sunnan- lands var átta til níu stiga hiti. Þoka var við austur- ströndina, en vindur hægur, svo að veioiveður hefur verið þar og ætti að haldast í dag. tveimur eftir nokkrar umræður. Þá er þess að geta, að Jón Finnsson, fulltrúi hjá embætti bæjarfógeta í Hafnarfirði og sýslumannsins í Gullbringu- og Kjósarsýslu. hefur nú sagt starfi sínu lausu. Mbl. hafði samband við Jón í gær og kvaðst hann segja af sér í mótmælaskyni við ný- afstaðna veitingu embættisins. Enn fremur hefði Guðni Guðna- son, fulltrúi, sagt upp starfi sínu svo og sex aðrir starfsmenn við embættið. „Frimerkí“ komið út NÝLEGA er komið út nýtt hefti af FRÍMERKI, tímariti fyrir frí- merkjasafnara. Þar er m.a. grein um póststimpla í Reykjavíte eftir Sigurð H. Þorsteinsson og Þáttur úr póstsögu íslands eftir Magna R. Magnússon. Margar fréttakla'usur og smágreiaar um frímerki og frímerkjasöfnun eru i ritinu. saga úr Reykjavík, sem fjalli svo til eingöngu um íbúa Iítils húss við lítið áberandi götu í Reykjavík, jafnt þá sem í kjall- aranum og risinu búa eins og húseigendur og þeirra skyiduljð á miðhæðinni, gamalmenni mið» aldra fóik, fólk í blóma aldurs síns og loks unglinga og börn — fólk af misjafnri gerð og við misjáfnar aðstæður, með mis- jöfn lifsviðhorf. „Þarna er engin sérstök sögu- hetja“, segir ennfremur, „en allt á þetta fólte sín vandamál, sínar minningar, sínar vonir sína drauma og þrár. Þar er enginn fullkomitm @g enginn syndasel- ur, en allar persónur náttúrleg- ar, mannlegar, enda mun kjarni bókarinnar vera sá, að sjálft lífsundrið sé dásamtegt og í rauninni dýrlegt að lifa og vera til.“ Fyrsta bók Jakobínu Sigurðar dóttur, „Kvæði“, kom út 1960, og á síðastliðnu ári kom út e€t- ir hana smásagnasafn, „Punkt- ar á skökkum stað“. Bókin er 176 bls. að stærð. Útgefandi er Skuggsjá. f s.I. viku var framkvæmdur óvenjulegur uppskurftur í Saigon, er 8 cm. sprengja, ó- sprungin, var fjariægð úr baki bónda eins, Nguyen Van Ctiinh. Hér sjást læknar aft- stoða hann eftir uppskurðinn Heppinn í happ- drætti Akranesi, 8. nóvember. NÚNA nýlega vapn maður einn hér í bæ í Happdrætti DAS nýjan bíl, að minnsta kosti 200 þús. króna virði. Þetta er ekki í fyrsta sinni, sem hann hlýtur happdrættisvinning. í vor vann hann 100 þúsund krónur í Happ- drætti Háskóians. Sá hefur nú aldeilis sagnar- anda. — Oddur. Líðan hinna slösuðu MORGUNBLAÐIÐ aflaði sér l gær upplýsinga um líðan þeirra, sem slösuðust í umferðarslysum, í Reykjavík og Kópavogi á mánu dag. Líðan Ágústu Jónsdóttur, 81 árs, sem varð fyrir bíl í Álfheim um, var sögð óbreytt. Hún vac með meðvitund, en hefur hlotið mikla áverka og beinbrot. Báðir fætur hennar brotnuðu fyrir neð an hné, sprunga er í öðrum læc leggnum, og senniiega. hefuc mjaðmagrindin brotnað. Þá hiaufc hún einnig áverka á höfði. Líðan Bjarna Bjarnasonar, sem slasaðist í árekstri á gatnamót- um Skipasunds og Holtavegar, var sögð eftir atvikum. Hanu fékte mikið bögg á höfuðið, ent var með fullri rænu í gær. — Oddgeir Þórarinsson, 72ja ára gamall maður, sem varð fyrir bíl á Kópavogsbraut, var sagðuc mikið slasaður, en hano mun hafa meiðzt alvarlega á höfði. Felgnhringor... ekhi felga í MBL. í gær var skýrt frá dauða slysi í Siglufirði og sagt, að felga hefði hrokkið í höftið Björns Ólafssonar og orðið homim að bana. Hið rétta var, að fetgu- hringur hrötek. í Jaöfuð honutn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.