Morgunblaðið - 10.11.1965, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.11.1965, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 10. nóv. 1965 3 mm +%*%**** ** M iS K %3 4J *% 1 A m* MJ ám á*k iJ iD Í GÆR var tekinn í notkun nýr íþróttasalur í Breiðagerð- isskóla, hinn stærsti hér í Reykjavík, þar til íþróttahöll- in í Laugardal verður tekin í notkun. Meðal gesta sem við- staddir voru opnunina, var Geir Hallgrímsson borgar- stjóri. Salurinn er 18x33 metrar að stærð, en honum má svo skipta í tvennt með tvöföldu plasttjaldi, þannig að hægt er að hafa tvo bekki í leikfimi á sama tíma. Er þetta tjald hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi, en þau eru nú mikið notuð á hinurrf Norður- löndunum. Áhaldaherbergi eru tvö og eru þau í sitt hvor- um salarhelming. Þá eru fjög- ur búningsherbergi og ItVÖ böð. Séð yfir nýja íþróttasalinn í Réttarholsskóla. Stærsti íþrdttasalur borg- arinnar tekinn í notkun fyrir augum, að einnig skapist þar aðstaða fyrir íþróttafé- lögin til æfinga, en eins og kunnugt er, eru flestir salir hér í borg of litlir til þess. Skiptingin á salnum verður þannig í framtíðinni, að frá morgni til kl. 6 síðdegis verða Réttarholtsskóli, Breiðagerðis skóli og Álftamýrarskóli með leikfimiskennslu í salnum, en síðan fá íþróttafélögin salinn til afnota. Öll Reykjavíkuríþróttafélög in fá þarna tíma en hverfis- félagið Víkingur þó flesta eða 24 tíma. Þá fær H.S.Í. þarna tvo tíma fyrir landsliðið, því að með tilkomu þessa vallar, eru ferðir landsliðsins óþarfar í . íþróttahúsið á Keflavíkiur- flugvelli. Stefán Kristjánsson, sem ráðinn er íþróttafulltrúi íþróttahús þetta er fyrsti íþróttasalir skólanna verði liðurinn í þeirri áætlun, að eftirleiðis byggðir með það Leikfimikennararnir Árni Njálsson og Kristín Helgadóttir ásamt Ástráði Sigursteinsdórssyni skólastjóra. Reykjavíkur, mun verða milli göngumaður skólanna og íþróttafélaganna, varðandi notkun á salnum. Hann skýrði fréttamönnum frá því í gær, að nú væri annað slíkt íþrótta hús á teikniborðinu og ætti það að rísa við Vogaskóla. Yrði það jafnstórt og þetta, en yrði þrískipt í stað tví- skipta, eins og væri hér. Teikninguna af hinu nýja íþróttahúsi gerði Skarhéðinn Jóhannesson, sem einnig teikn aði Réttarholtsskólann, í sam- vinnu við Þorstein Einarsson íþróttafulltrúa, verktaki var Ármann Guðmundsson, en Byggingardeild borgarverk- fræðings hafði umsjón með verkinu fyrir hönd Reykja- víkurborgar; Bygging skólans hófst 1963 og er byggingar- kostnaður við það 14,25 millj. króna. „Iceland Review44 ísl. frímerkjum NÉTT heftl af ICELAND REVIEW er komið út, mjög vandað að efni og útliti eins og áður. Að þessu sinni er það helgað íslenzkum frímerkjum . að nokkru, birtir viðtal við póst ©g símamálastjóra, Gunnlaug Briem, flytur grein um íslenzk frímerki — fyrr og nú, eftir Jónas Hallgrimsson, stutt viðtal við bandarískan frímerkjakaup- xnann um íslenzk frimerki og segir frá frímerkjasölu póst- þjónustunnar. Ennfremur birt- ist í ritinu heil síða litmynda af fslenzkum frimerkjum, m.a. Surtseyjarseriunni, og mun það i fyrsta sinn að slík litprentun birtist í blaði útgefnu á íslandi. Hefur þetta hefti þegar vakið mikla athygli islenzkra frí. merkjasafnara — og er ICE- LAND REVIEW eina .ritið, sem gefið er út á ensku — og birtir reglulega þátt um islenzk frí- merki. Þá er í ritinu grein um Slysa- varnafélag íslands og hið giftu- drjúga starf þess eftir Elínu Pálmadóttur, blaðakonu. Nefn- ist greinin á ensku ,,On the Stormy Atlantic“, og fylgja henni myndir af björgun áhafn- arinnar af brezka togaranum Sargon frá Grimsby, ■ teknar úr kvikmyndinni um björgunaraf- rekið við Látrabjarg. Fram- ganga íslenzkra björgunarsveita hefur oft vakið athygli erlendis og er hér brugðið upp glöggri mynd af sögu og starfi Slysa- varnafélagsins í máli og mynd- um. 1 heftinu er einnig grein um stærsta jökul Evrópu, Vatnajök- ul, prýdd fjölda góðra mynda eftir Magnús Jóhannsson og Mats Wibe Lund jr. Viðtal er við bandaríska sendi- herrann, James K. Penfield, um ferðalög hans á íslandi, en hann hefur ferðazt um landið þvert og endilangt, meira en þorri íslend- inga. Þar se.gir sendiherrann frá því, sem hann hefur séð athyglis verðast á ferðalögum sínum. Heimsókn bandarísku geimfar- anna og ferð þeirra að Ösikju er einnig gerð góð skil í þessu hefti ICELAND REVIEW — með helgað myndum eftir Ól. K. Magniússon, Kára Jónsson og Kjartan Thors. Og ennfresmur er viðtal við Hjálmar R. Bárðarson, skipaskoð unarstjóra, um ljósmyndun á íslandi og möguleikana, sem land ið gefur til þeirrar iðju. í þessu hefti er einnig íslenzkt fréttayfirlit síðustu mánaða í dag 'blaðsformi, en þessi þábtur, sem hófst í næst-síðasta hefti rits- ins, hefur hlotið góðar móttökur erlendra lesenda. Björgvin Guð- mundsson skrifar ýtarlega grein Akureyri, 9. nóv. LAUGARDAGINN 6. þ.m. var haldinn á Akureyri fundur full- trúa kaupstaða og stærri kaup- túna á Norðurlandi. Var fundur þessi í framhaldi af ráðstefnu um atvinnumál Norðurlands, sem haldinn var á Akureyri 29. og 30. maí í vor. Á fundinum mætti Bjarni Ein- arsson sem fulltrúi Efnahags- Um utanríkisviðskipti íslendinga og fylgir henni tölulegt yfirlit yfir viðskipti landsins við hin ýmsu ríki, einikum með tiilliti til EFTA. Peter Strong, fram- kvæmdastjóri American-Scandi- navian Foundation í New York, ritar grein um minningarsjóð Thors Thors og framtíðarverk- efni sjóðsins, grein er um SIM- RAD, sem ekki á hvað minmstan iþótt í byRingu þeirri, sem orð- ið hefur í síldveiðum Islendinga Á kápusíðu, þessa heftis ICE- LAND REVIEW er mynd af frí- merki þvi, sem gefið var út í til efni 20 ára afmælis lýðveldisins. Ritið er prentað á góðan mynda- pappír, útlit og frágangur til fyriirmyndar. stofnunarinnar, er falið hefur verið að vinna að framkvæmda- áætlana. Einnig mættu á fund- inum fulltrúar frá Alþýðusam- bandi Norðurlands. Fundurinn fól undirbúnings- nefnd að starfa áfram í sam- vinnu við Efnahagsstofnunina við gerð framkvæmdaáætlunar fyrir Norðurland. — Sv. P. Fundur um atvinnumál Norðurlands á Akureyri K í\ K S1M \ \ I! Viðskiptin við Rússa Nú í vikunni fara fram viS- ræður í Moskvu milli fulltrúa is- lenzku og sovézku ríkisstjórn- -r anna um nýjan viðskiptasamn- ing milli landanna, en þær við- ræður stöðvuðust í sumar eins og men',i muna, þar sem tilboð Sov- étríkjanna þá var gersamlega jóaðgengilegt fyrir Islendinga. Nú benda líkur til að hægt verði að ná hagstæðum sanmingum, þar sem Sovétríkin hafa svarað tilboði, sem íslenzka ríkisstjórn- in gerði í október en í þessu svartilboði Sovétstjórnarinnar er gengið mjög til móts við óskir islendinga í þessum efnum. Það eru vissulega ánægjuleg. tíðindi, ef samningar nást nú um áfram- haldandi viðskipti við Sovétrík- in. Þau hafa verið okkur hag- kvæm á undanförnum árum og vafalaust munu alUr sammála um það hér á landi, að æskilegt sé að halda þeim viðskiptum á- fram. Engum getum skal að þvi leitt, hvað olli stirfni Sovétstjórn arinnar í sumar, en ljóst er, að það tilboð, sem hún nú hefur gert, er miklu meira í samræml við óskir íslendinga heldur en þær tillögur, sem hún gerði fyrr í sumar. Þess vegna hljóta menn að vona, að nú takist samning- ar, og áframhald verði á við- skiptum islands og Sovétrikj- anna. Þáttur kommúnista En þótt betur horfi nú um við- skipti við Sovétríkjn en fyrir nokkru, hefur hlutur kommún- ista hér á landi í þessum málum ekki batnað, og óskhyggja ein hjá þeiin að halda, að þeir getí á nokkurn hátt breytt yfir þá niðurlægingu, sem þeir hafa orð- ið fyrir í sambandi við viðskipta- mál þessara tveggja landa. — Kommúnistar komu heim í fyrra sumar af fundi í Moskvu og boð- uðu „stóran nýjan viðskipta- samning“ við Sovétríkin, sögðu að hægt væri að selja niðursuðu- Yörur fyrir 200 milljónir króna, og sendu áróðursdindla sína um Norðurland vestra, þar sem at- vinnuástand hefur verið erfitt, og lofuðu þar gulli og grænum skógum. Þrátt fyrir mikla eftír- gangsmuni af íslands hálfu, stóð á efndum á þessu loforði komm- únista austur í Moskvu, og í samningaviðræðunum í Moskvu í sumar kom greinilega í ljós, að hér var aðeins um áróðursblekk- ingar einar að ræða, sem ekkl virtust eiga sér nokkra stoð á veruleikanum. Urðu að athlægi Hinn ábyrgðarlausi leikur kommúnista hér á landi með þessi mikilvægu hagsmunamál íslenzkrar þjóðar er auðvitað al- varlegt mál, og sýnir glögglega hversu langt þeir ganga í póli- tískum áróðrí sínum. En þótt samningar takist nú í Moskvu, hafa kommúnistar orðið að al- geru athlægi. Boðskapur þeirra um „stóran, -ýjan viðskipta- samning" við Sovétríkin hefur reynzt orðin tóm, og slíkir érfið- leikar hafa orðið á samningum við Sovétríkin að þessu sinni, að með ólikindum er, miðað við Ioforð félaga Einars fyrir rúmu ári. Menn munu fagna því, ef viðskipti takast við Sovétríkin á ný, en við höfum einnig lært nokkuð af öllu þessu máli, sér- staklega það, að ekkert mark er takandi á boðum flokksdeildar- innar hér á landi. Hún situr eftir með sárt ennið og í framtíðinni verður ekki á hana hlustað, þeg- ar hún talar um aukin viðskiptí austur á bóginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.