Morgunblaðið - 10.11.1965, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.11.1965, Qupperneq 14
14 MORCU N BLAÐIÐ Miðvikudagur 10. nóv. 1965 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. I Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. ÍAskriftargjald kf. 90.00 á mánuði innanlands. t lausasölu kr. 5.00 eintakið. VIÐSKIPTASAMNING- AR VIÐ RÚSSA • k stæða er til þess að fagna því að betrj horfur eru nú á að viðskiptasamningar tak- ist við Rússa um kaup á ís- lenzkum afurðum. Um skeið leit út fyrir að mjög hefði dregið úr áhuga Rússa á við- skiptum við íslendinga. Stakk það mjög í stúf við fullyrð- ingar íslenzkra kommúnista- leiðtoga í fyrrahaust, sem fullyrtu að Rússar væru reiðubúnir til þess að kaupa stóraukið magn af íslenzkum sjávarafurðum. Á samkomu, sem haldin var í tilefni af afmæli rúss- nesku byltingarinnar síðast- liðinn laugardag í einu af kvikmyndahúsum höfuðborg- arinnar, - skýrði rússneski sendiherrann hér frá því, að Rússar hefðu nú sent ís- lenzku ríkisstjórninni nýtt til boð um viðskiptasamning. Væru Rússar albúnir að gera nýjan þriggja ára viðskipta- samning, sem gerði ráð fyrir kaupum á allmiklu magni af frystum fiskflökum, heilfryst um fiski, freðsíld, saltsíld og niðursuðuvörum. Mun sam- kvæmt þessu tilboði verða um að ræða svipuð viðskipti og verið hafa síðustu árin milli Sovétríkjanna og íslands. Af hálfu íslenzkra stjórnar valda hefur verið stefnt að því að halda við viðskiptum okkar við Sovétríkin. Enda þótt þessi viðskipti hafi að verulegu leyti byggzt á vöru- skiptum, hafa þau að ýmsu leyti verið íslendingum gagn- leg. f>að er mjög þýðingar- mikið fyrir íslenzkan sjávar- útveg, sem stendur að mestu leyti undir útflutningsfram- leiðslu okkar að eiga markaði sem síðast fyrir afurðir sínar. Það er meginstefna íslend- inga í viðskiptamálum, að vilja kaupa við alla sem við okkur vilja verzla, með skap- legum og eðlilegum hætti. Hin mikla framleiðsluaukn- ing sem orðið hefur hér á landi síðustu árin skapar ekki sízt nauðsyn þess að unnið sé að því af fullri festu að treysta eldri markaði og vinna nýja. Ýmislegt bendir líka til þess að kommúnistaríkin muni brátt fúsari til frjálsra viðskipta en áður, og vissu- lega væru viðskipti við þau ánægjulegri þegar vöruskipt- um væri hætt. EMBÆTTIS- VEITING j tilefni af því að Einari Ingi- mundarsyni, bæjarfógeta á Siglufirði, hefur verið veitt sýslumannsembættið í Gull- bringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógetaembættið í Hafn- arfirði, rekur Tíminn upp mikið óp í gær og segir, að hér sé um að ræða „gróft pólitískt hneyksli“. Segir blaðið að öll sýslunefnd Gullbringu- og Kjósarsýslu hafi skorað á dómsmálaráð- herra að veita Birni Svein- björnssyni embættið, og þar á meðal hafi verið margir framámenn Sjálfstæðisflokks ins. Engu að síður er veiting- in að dómi Tímans pólitísk, og gerð í flokksþágu Sjálf- stæðisflokksins. Að sjálfsögðu eru skoðanir alltaf meira og minna skiptar um það hverjum veita beri embætti, þegar fleiri en einn sækja. Um embættaveitingar eru engar fastar reglur, held- ur er það ein af embættis- skyldum viðkomandi ráð- herra að meta það, hverjum veita beri embættin, og hlýt- ur hann þá að verða að gera upp við sig, hverjum hann treystir bezt til að gegna því vel, jafnvel þótt hann kunni að treysta öllum umsækjend- um. Oft er að vísu höfð hlið- ( sjón af embættisaldri, og að því er hann varðar, þá var Einar Ingimundarson skipað- ur bæjarfógeti á Siglufirði 1952, en Björn Sveinbjörns- son settur sýslumaður í Gull- bringu- og Kjósarsýslu 1956. Um þriðja umsækjandann er það að segja, að hann hefur lengstan embættisaldur, en hins vegar eru ekki nema fá ár þangað til hann er kom- inn yfir aldurshámark em- bættismanna og af þeirri ástæðu auðvitað nokkuð vafa samt að velja hann til að taka við einu af erfiðustu em- bættum landsins, þótt hann sé góður embættismaður, enda telur Tíminn ekki að sá umsækjandi hefði átt að fá embættið heldur Björn Svein- björnsson. Annars er aðalatriði máls- ins auðvitað það, að enginn efast um, að Einar Ingimund- arson muni gegna vel þessu embætti. Til þess hefur hann bæði nægan dugnað og aðra hæfileika. * SLYSAALDAN FÆRIST í AUKANA CJlysaaldan hækkar enn. Má ^ segja að um og eftir síð- ustu helgi hafi keyrt um Sukarno, Indónesiuforseti, ásamt dr. Subandrio, fyrsta varaf orsætisráðherra og utanríkisráð- herra sínum. Báðir eiga nú í vök að verjast vegna þeirrar ák vörðunar indónesiska hersins að uppræta kommúnistaflokk lan dsins, og virðist Sovéstjórnin nú styðja herinn i þeirri viðleitni! USSR styður herinn gegn kommúnistum — telur rétt, að dregið verði úr áhrifum kínverskra kommúnista í Indónesíu Djakarta, 2l2. október — AP SOVÉTSTJÓRNIN mun hafa beint þeim tilmælum til ráða- manna indónesíska hersins, að hann vinni að því að uppræta áhrif kommúnistaflokks landsins. Flokkurinn styður, eins og kunn- i ugt er, Pekingstjórnina. Segist ) fréttamaður AP-fréttastofunnar, Antoine Yared ,hafa þessar fregnir eftir áreiðanlegum heim- ildum. Munu starfsmenn sovézka sendiráðsins í Djakarta hafa gengið á fund æðstu manna hers ins, og lýst því yfir, að Sovét- stjórnin styðji þá í baráttunni gegn kínverskum kommúnistum, sem reynt hafi að steypa stjórn landsins með byltingu, fyrir nokkrum vikum. Tveir heimildamanna Yared segjast sjálfir hafa verið við- staddir, er sovézku sendiráðs- mennirnir skýrðu frá því, að þeir þættust hafa vissu fyrir því, að byltingartilrauninni hefði ver ið stjórnað frá Peking. Her Indónesíu hefur haldið áfram handtökum kommúnista, eftir byltinguna, þrátt fyrir mót- mæli Sukarnó, forseta. Fundur sá, sém að ofan getur, mun hafa verið haldinn að beiðni æðstu manna hersins, en þeir munu hafa efast um, hvort Sov- étstjórnin myndi halda áfram hernaðaraðstoð við Indónesíu, ef gengið væri milli bols og höfuða á kommúnistaflokk landsins. Undanfarið hefur verið á lofti orðrómur, þess efnis, að Sukarno hafi í hyggju að stofna nýjan kommúnistaflokk í Indónesíu, sem ekki styðji neitt erlent ríki umfram annað. Átök á landamærum Chile og Argentínu Santiago, Ohile, 8. nóv. NTB—AP. • UM helgina kom til átaka milli landamæravarða frá Chile og Argentínu í landamærahér- aðinu Laguna del Desierto syðst í S-Ameríku. Sakar hvort ríkið hitt um að eiga upptök að átök- unum og AP — fregnir frá Chile herma, að flugvélar hafi verið sendar á vettvang með nokkur hundruð hermanna liðstyrk. Verða flugvélarnar að lenda í hafnarbænum Puerto Asien, sem er um 300 km. norður af átaka- svæðinu, þar sem engir flugvellir eru nær. Frá Puerto Asien munu herr.iennirnir halda áfram með flutningabifreiðum og á hest- baki. Er yfir hrjóstrug og illfær fjöll að fara mestan part leið- arinnar. Landsvæði þetta hefur lengi verið um deilt og hafa Bretar •iengzt af reynt að miðla málum milli ríkjanna, al'lt frá því þess var farið á leit við Viktoríu drottningu. árið 1896. Ekki alls fyrir löngu var fjallað um mál- ið fyrir brezkum dómstólum. Á laugardag urðu stjórnir Chile og Argentínu ásáttar um að senda sameiginlega nefnd til átakasvæðisins og skyldi hún kanna ástandið og reyna á staðn- um að athuga, hvort ekki væri hægt að draga skýrari marka- línur árekstrarlaust. Höfðu þeir Arturo Illio, forseti Argentínu og Eduardo Frei, forseti Chile, haldið fund um mál þetta í sl. mánuði og þá orðið á eitt sáttir, að mál þetta yrði að leysa ann- aðhvort með dómsúrskurði eða gagnkvæmum samningi ríkj- anna. í NTB frétt í kvöld segir, að u.þ.b. 1000 manns hafi gert að- súg að sendiráði Argentínu í Santiago í dag og brotið þar ( Framhald á bls. 17 þverbak í þessum efnum. Fjögur dauðaslys urðu á ör- fáum dögum, þar af þrjú umferðarslys. En auk þess urðu mörg önnur umferðar- slys, sem kunna að leiða til örkumla eða dauða. Þetta er svo- alvarlegt ástand að það jaðrar við al- gert öngþveiti. Þrátt fyrir þá hörmulegu atburði sem gerzt hafa undanfarnar vikur lítur ekki út fyrir nein þáttaskil í þessum efnum. Slysin verða aðeins tíðari. Óvarkárnin og ábyrgðarleysið heldur áfram. Börn og gamalmenni verða ósköpunum að bráð. Það væri rangt að kenna þeim, sem ökutækjum stjórna einum það öryggis- leysi sem nú setur svip sinn á umferðarmálin hér. Gang- andi fólk á sinn þátt í því. Fjöldi fólks virðir engar um- ferðarreglur. Það lítur hvorki til hægri né vinstri þegar það gengur yfir götu. Úr ríkjandi öngþveitis- ástandi verður ekki bætt nema með stóru og alvarlegu átaki alls almennings. Þjóðin verður að leggja það á sig að virða og læra umferðarregl- ur. Þetta gildir jafnt um þá sem ökutækjum stjórna, og hina sem fótgangandi ferðast. Það ástand sem nú ríkir 1 þessum efnum hér á landi er ekki samboðið siðmenntuðu fólki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.