Morgunblaðið - 29.12.1965, Page 20

Morgunblaðið - 29.12.1965, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 29. des. 1965 Langt yfir skammt effir Laurence Payne — Já, fulltrúi, ég varð að gera það, því að hún var svo veik. Svo varð ég bókstaflega að bera hana út í bílinn . . . . en hún var að minnsta kosti hætt að gráta........það var svo hræði legt þegar hún grét .... þegar ég komst heim með hana, lá hún á gólfinu í bílnum, saman- hnipruð og öll snúin og skökk. Ég héit fyrst, að hún væri sof- andi, en svo sá ég, að hún var dáin.......... >að var þögn í stofunni. Ég stalst til að líta á Herter. Hann sat aftur á bak í stólnum og starði út í eitt hornið á lofinu, og augun vom algjörlega svip- laus. Ég seildist eftir vindlinga- veskinu mínu, fékk mér einn og bauð Miguel. — Verið þér bara rólegur, sagði ég. — Fáið yður sígarettu. Hönd hans skalf er hann tók hana og ég sá að litlar „vita- perlur voru á enninu á honum. En hann hefði ekki þurft að hafa neinar áhyggjur — ég trúði allri sögunni. — Og hvað gerðist svo? spurði ég • þegar við höfðum jafnað okkur dálitið. — Lengi gat ég ekki komizt að neinni niðurstöðu um, hvað ég ætti að gera. Hvað gat ég gert?........skilið hana eftir fyrir utan húsið? .... farið með hana aftur í klúbbinn. Þá datt mér í hug, að ég ætti að fara til lögreglunnar . . . . en þá mundi ég eftir þessari sprautu, sem ég hafði gefið henni, og því lengur sem ég hugsaði um það, því vissari varð ég um, að það væri ég, sem hefði drepið hana . . . . að lög- reglan mundi aldrei trúa mér . . Og þá greip auðvitað hræðsl- an hann, svo að hann vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Hann fleygði frakkanum sínum yfir líkið, steig aftur upp í bílinn, og að því er virtist hafði hann svo ek- ið klukkustundunum saman, til þess að ákvarða, Tivað gera skyldi. En þá hafði hann loks- ins séð múrinn með skarðinu í .... Mer datt fyrst 1 hug að skilja hana eftir inni í garðin- um fyrir innan múrinn . . . .en . . . Augun fylltust aftur af tár um oð það var einkennileg með aumkun í röddinni, er hann sagði: . . . . en það var rign- ing..........ég hefði ekki vilj að láta hana liggja úti í rigning- unni. Ég bar hana inn í húsið og niður í kjallara. f>ar var svo dimmt og hljótt .... alveg eins og í gröf.........Ég var svo hræddur og svo gaf ég henni róðukrossinn minn.......... — Já, og fóruð síðan að stela af henni, bætti ég við, harð- neskjulega. — Já, ég stal af henni. Ég veit ekki hversvegna ég gerði það, en ég gerði það nú samt. Allt, sem ég tók af henni, hef ég enn. Blaöburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Skerjaf. sunnan Ingólfsstræti flugvallar Tjarnargata Háteigsvegur Aðalstræti Snorrabraut Túngata Vesturgata, 44-68 Laufásvegur 58-79 Austurbrún Þingholtsstr. Freyjugata Skipholt II Lambastaðahverfi Akurgerði Bræðraborgarstígur Tunguvegur Kerrur undir blöðin fylgja hverfunum WL tfimi tn hl sy * !hí SÍMI 22 -4-80 Ég skal skila yður því. Eg sat andaríak og horfði þegjandi á hann. Gagnvart svona hreinskilnislegri játn- ingu var ég einhvernveginn al- veg máttlaus. Ég gat vel skilið þessa ofsahræðslu hans. Ég gat meina að segja skilið freisting- una, sem hann hlaut að hafa fundið, þegar hann festi róðu- krossmn við kaldan únliðinn og tók þá eftir glitrandi hringunum á fingrum hennar. Ég tók mig saman. — Og þegar þér leynduð lög- reglunni þessum upplýsingum, var það þá af því einu, að þér voruð hræddur? — Já. Augu mín störðu á Herter. — Yður var ekki á neinn hátt ógnað til að þegja? — Ógnað? Herter fór að hreifa sig. — Fulltrúinn á við, hvort ég hafi hrætt þig til þess að þegja. Hót- aði ég þér einhverju verra en diauðanum ef þú segðir sann- leikann? — Nei, svaraði Miguel. — Hvernig fenguð þér þenn- an marblett á ennið? spurði ég. Hann leit undan. — Ég rak mig á. — Ég vil fá sannleikann! mmnti ég hann á. 62 Augun litu upp og beint á Herter. Herter sagði: — Ég er hrædd- ur um, að ég eigi sök á því. Hann dró út skúffu og tók eitt- hvað upp úr henni, og ýtti því síðan yfir borðið. í»að var gull- vindlingaveski Yvonne. — Ég vissi ekkert um þetta fyrr en í gær, að ég varð þess var, að hann hafði þetta í vörzlum sín- um. Hann var ekki líkt því eins málhress þá og hann hefur ver- ið við yður. Ég starði kuldalega á hann. Hann yppti öxlum. — Ég er dálítið uppstökkur, skal ég segja yður. Ég fann viðureignina í dimmu götunni eins og koma nær mér, og mig verkjaði aftur í höfuðið. Ég tók upp þenna þunga gull- grip og strauk hann. Yvonne hafði farið klaufalega að þessu sjálfsmorði — hugsa fyrst og fremst um sjálfa sig og skilið Miguel eftir í slæmri klípu. Ég fann til meðaumkunar með hon- um. — I>ér komið með okkur, sagði ég. — Og svo viljum við fá þessa skartgripi. Þá getum við ákveðið, hvað við gerum við yður. Ég sneri aftur að Herter, sem var býsna fúll á svipinn, og sagði: — Ég held, að ég geti vel skilið afstöðu Miguels en ég á bágara með að skilja yð- ar viðbrögð við þessu. Hversu lengi ætluðuð þér að halda þess- um upplýsingum fyrir lögregl- unni? — Það var nú samvizkunnar hans Miguels að ákveða það, en ekki mitt. Hann hefur átt bágt — það sjáið þér jafnvel ■ Jæja, jæja, það er þá allt í lagi að þú fáir þér einn vindil eftir miðdegismatinn. sjálfur. Fyrr eða seinna hefði hann komið til yðar. .— Og lofað yður í millitíð- inni að skemmta yður við að berja hann? — Ég legg það ekki í vana minn að berja fólk, sagði hann hvasst. — Ég var reiður, og það getið þér væntanlega skilið. Ég benti á vindlingaveskið. — Og hvenær ætluðuð þér að skila þessum dýrgrip? — Þegar ég fengi tíma til þess, svaraði hann kuldalega. Vissulega ekki fyrr en Miguel hefði ákvarðað, hvað hann ætl- aði að gera. — Og hefði hann ætlað að selja gripina og koma sér út úr landinu, þá hefðuð þér bara veifað til hans í kveðjuskyni og þar með hefði málinu verið lok- ið? Hann yppti öxlum. — Já, það er nú víst varla hægt að kalla mig góðan borgana. Ég er hrædd ur um, að ef Miguel hefði á- kveðið að stinga af úr landinu, hefði ég ekki sagt við því ann- að en já og amen. Ég seildist eftir umslagi, sem var í vasa mínum. — Lofið mér aðeins að líta á hægri buxna- skálmina yðar, Miguel. Hann varð hissa, en nálgaðist mig, eins og í vafa og setti fót- inn upp á stólinn minn. Svo sem spönn neðan frá, uppi á skálminni var ofurlítil rifa. Ég tók þrjá bláa kambgarnsþræði úr umslaginu og bar þá að rif- unni. — Ég er feginn, að þér skyld- uð ekki reyna það, sagði ég ró- lega. — Þér hefðuð aldrei kom- izt langt. — Þetta var laglega af sér vik ið, fulltrúi, sagði Rodney Hert- er. Við tókum Miguel með okkur í lögreglustöðina í Chelsea, þar sem hann undirritaði skýrslu og sagði okkur, hvar skartgripina væri að finna — það var í lok- aðri ferðatösku í klæðaskápn- um í herbergi sem hann hafði leigt í Earl’s Court. — Þér eruð trúaður maður, Miguel, sagði ég og tók róðu- krosinn upp úr vasa mínum. Hann yppti öxlum dauflega. Áramótaheftið kemur í hókaverzlanir í dag lceland Review flytur nýárskveðjur til vina yðar og viðskiptamanna erlendis í þessu hefti er m.a. safn einstakra fallegra vetrarmynda af íslandi, lýsing Elínar Pálmadóttur. blaðakonu, á ferðalagi út í Surtsey ásamt fjölmörgum nýjum og stórfeng- legum myndum teknum í Surtsey og af Syrtlingi, rétt áður en hann hvarf í djúpið. ICELAND REVIEW KYNNIR ÍSLAND IIM VÍÐA VERÖLD — Ég er kaþólskur, en víst ekki mjög staðfastur í trúnni, sagði hann. Ég starði á litlu silfurmynd- ina og sagði: — Enginn kaþólsk- ur er óstaðfiastur í trúnni, þó að þeir geti verið misjafnlega góðir. Ég fékk honum róðukross inn aftur. — Þér ættuð að varð- veita hann vel, sagði ég. Áður en ég yfirgaf stöðina, hringdi ég í Jim Blackwell. Gi- useppe lá enn bundinn, Jordan Barker var þiar um borð og virt- ist ekkert ferðasnið á honum enn. — Annars var ég að tala við Tilbury áðan. sagði Jim. —- Peruslavia kemur inn á næsta flóði, og er nú á leið upp eftir ánni. Ég leit á úrið mitt. Klukkan var rúmlega fimm. — A hvaða tíma heldurðu, að það verði? — Það er háflóð klukkan 11.30. Ef Barker er á útleið, býst ég við, að hann fari að hreyfa sig eftir sólarlagið, sem er klukkan rúmlega sjö. — Jæja, líklega er hann ekki að hanga þarna sér til heilsu- bótar, sagði ég. — Hann hlýtur að vera eitthvað að brugga. Það er víst bezt, að ég komi. Ef hann er búinn að leysa áður en ég kem, skildu þá eftir boð, en farðu á eftir honum, hvað sem öðru líður, en ég held áfram, hvað sem veltist, til Tilbury og þú getur náð í mig á lögreglu- stöðinni þar. — Þú veizt, að okkur er efcki ætlað að fara lengra niður eftir en til Erith. — Hvers vegna það? — Af því að okkar lögsagnar- umdæmi nær ekki iengrta. Þá taka við Kent og Essex. Og þeir þar verða móðgaðir ef við för- um að gera okkur heimakomna á þeirra svæði. — Gott og \rel, við segjum þeim þá hvernig á standi- Ef þú þarft að fara lengra en til Tilbury, skildu þá mann eftir, til að láta mig vita, og ég doka við á stöðinni þangað til ég heyri frá þér. Síðan átti ég nokkrar viðræð- ur við yfirmann minn. Hann hafði lesið skýrsluna mína og látið hana ganga boðleið til sins yfirmanns og það virtist ríkja almenn ánægja með hana. Hann klappaði mér á öxlina og sagði, að ég hefði staðið mig vel, og héldi vonandi þannig áfram. Hvað sem á daginn kynni að koma, skyldi ég halda áfram að beita mér að Peruslaviumálinu þangað til ég vissi vissu mína ■ um það. Ég skyldi fá að vera í friði við þetta, hvað sem velt- ist, þangað til ég segði til sjálf- ur. — Náðirðu í Hammond Bark- er? spurði hann. — Nei. — Hversvegna ek:ki? — Hann er stunginn af. — Hversvegna það? — Konan hans varaði hann við. — Mér getur ekki annað en fundizt þú hafa sagt henni full- mikið. — O, það hefur bara sparað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.