Morgunblaðið - 26.01.1966, Síða 6
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 26. ianúar 1966
Indira Gandhi
tekur til starfa
— Samkomulag við Pakistan um brott-
flutninga liðs — Hefur viðræður við
NAGA-uppreisnarmenn í A-Indlandi
Nýju Delhi, 24. jan. NTB-AP.
★ FBÚ INDIRA Gandhi hef-
ur nú hafið störf sem forsætis-
ráðherra Indlands. Ráðherralista
sinn lagði hún fyrir forseta
landsins, Sarvapalli Radhakr-
ishnan, í gærkveldi og í dag
vann hún embættiseið ásamt
öðrum ráðherrum — fimmtán
talsins. Flestir ráðherranna eru
hinir sömu og voru í stjórn
Shastris.
Ekki gekk stjórnarmyndunin
eins greiðlega og vænzt hafði
verið. Er haft fyrir satt, að
nokkur ágreiningur hafi verið
um stöðu þeirra Gurzar i Lal
Nanda og Swaran Singhs, í
stjórninni. Mun frú Indira hafa
kosið að hafa sjálf á hendi em-
bætti utanríkisráðherra, svo sem
faðir hennar jafnan hafði á
stjórnarárum sínum, — ennfrem
ur mun hún hafa æskt þess, að
Singh tæki við embætti innan-
ríkisráðherra en Nanda yrði ráð
herra án ráðuneytis. Svo fór þó,
að Singh heldur áfram í embætti
utanríkisróðherra og Nanda em-
bætti innanríkisráðherra eins og
í stjórn Shastris. Landvarnaráð-
herra verður eftir sem áður Y»3.
Chavan og landbúnaðarráðherra
C. Subramaniam, sem af mörg-
um er talinn einn hæfasti mað-
urinn í stjórninni. Er hann 56
ára að aldri og hefur vakið
mikla athygli með nýlokinni á-
ætlun sinni um lausn á land-
búnaðarvandræðum og matvæla
skortinum í landinu. Fjármála-
ráðherra verður Sachin Chaudh-
uri, sem þekktur er að alknikilli
íhaldssemi en hefur ekki haft á
hendi ráðherraembætti fyrr en
í síðasta mánuði, er Shastri skip
aði hann í stjórnina.
★
Fi II Indira Gandhi sagði í
ræðu í dag, að Indverjar myndu
leggja allt kapp á að bæta sam-
búðina við Pakistan á grundvelli
samkomulagsins, sem þeir Ayub
Khan, forseti Pakistan og
Shastri undirrituðu í Tashkent.
Tilkynnt var í Nýju Delhi í dag,
að stjórnir landanna hefðu þegar
orðið ásáttar um frest til þess
að flytja á brott hermenn hvors
um sig af landi hins. Verður
það gert í þremur áföngum, 1.
30. janúar verða herirnir fiuttir
1000 metra frá þeim stöðvum,
sem þeir nú hafa, nema í fjalla-
héruðunum — þar verða her-
imir aðeins færðir sundur á
þeim stöðum, þar sem þeir telj-
ast hættulega nærstæðir.
2. 20. febrúar skulu báðir að-
ilar afhenda landvarnatæki á
hernumdu svæðL
3. 25. febrúar skulu herir
beggja komnir til þeirra stöðva,
er þeir höfðu, áður en vopna-
viðskipti hófust.
Loks er ákvæði um, að hem-
aðarfulltrúar Sameinuðu Þjóð-
anna hafi eftirlit með því, að á-
kvæðum þessum sé framfylgt.
Fréttii’ frá Karachi í Pakistan
herma, að ýmsum stjórnmála-
leiðtogum þarlendum þyki lítið
til Tashkent-samkomulagsins
koma og telji það ósigur fyrir
Ayub Khan. Fyrrverandi and-
stæðingur Ayub Khans úr for-
setakosningunum síðustu, Fat-
ima Jinnah réðist á hann hörku-
lega í dag í ávarpi til þjóðar-
inna. Sagði hún blóði hinna
hugrökku sona þjóðarinnar hafa
verið fórnað til einskis — það
sem þeim hefði áunnizt hefði
forseti landsins að engu gert 1
Tashkent.
★
í>á var einnig frá því skýrt f
Nýju Delhi í dag, að eitt fyrsta
viðfangsefni frú Indiru Gandhi
í embætti forsætisráðherra yrði
að hefja samningaviðræður við
hina herskáu NAGA uppreisn-
armenn, sem valdið hafa mikl-
um usla í Assam og öðrum hér-
uðum Austur-Indlands. Hefur
Ymislegt til
gamans gert
á Húsavík
Húsavík, 24. janúar: —
HÉR VAR ýmislegt gert sér til
skemmtunar um helgina. Á laug
ardag var hin árlega svokallaða
sjúkrahússkemmtun, hvar hin
þekktustu þingeyzku skáld kváð
ust á. Og skemmt var með kvart
ettsöng og fleiru.
Á sunnudag hélt kirkjukór
Húsavíkur söngskemmtun í sam
Indlandsstjórn smám saman
orðð að binda þar mikið lið til
þess að halda þeim niðri.
Shastri hafði ákveðið að hefja
viðræður við foringja NAGA 18.
MIG setti hljóða er ég heyrði
lát frú Soffíu Claessen. Því
þrátt fyrir háan aldur var hún
enn þá sístarfandi að áihuga-
málum sínum.
Okkar kynni hófust fyrir tæp
um 14 árum og dáðist ég þá þeg
ar að vakandi áhuga hennar á
félagsmálum og tilverunni yfir-
leitt.
Það var líka eins og vildi hún
laða yngri konur að áhugamál-
um sínum, en fannst samt að
fjölskyldan og heimilið ættu
fyrsta tilkall til konunnar.
Er mér varð á sbundum hugs-
að til frú Soffíu, komu mér í
komuhúsinu við góða aðsókn og
mjög gó'ðar undirtektir. Stjórn-
andi var Reynir Jónasson, organ-
isti, en undirleikari Björg Frið-
riksdóttir og einsöngvari Aldís
Friðriksdóttir.
Á sunnudag komu 5 íþrótta-
flokkar frá íþróttafélaginu Þór á
Akureyri og kepptu við Völs-
unga í handknattleik. Þór vann
í fjórða flokki drengja með 13:10
og jafntefli varð í 1. fl. karla,
26:26. En Völsungur vann 3. fl.
stúlkna með 22:7, 3. fl. drengja
37:30 og 2. fl. stúlkna 11:10.
Áformúð var bridgekeppni við
Mývetninga, en henni varð að
fresta vegna ófærðar á vegum.
janúar s.l. — og Indira Gandhi
hefur lýst því yfir, að hún muni
halda fast við ákvörðun hans og
hefjast handa um lausn þessa
máls þegar í stað.
huga orð skáldsins er sagði:
Hvar sem önd þín unir
andrúmsloft mun fyllast
sannleiks-ástar eldi
ekkert skrum mun gyllast
aumu yfirskini
andleysis og hroka.
Þannig var frú Soffía í mín«
um augum — yndisleg eldri
kona, miðlandi gæðum sínum
í orðum og gjörðum. Það var
eins og birti yfir öllu, er hún
gekk í stofu eða sal. Ég þakka
henni hlýjan hug til min og
fjölskyldu minnar og sendi ást-
vinum hennar samúðarkveðjur,
G. Sn,
Soffía Jónsdóttir
Claessen Minning
'A Sjónvarpið
Ég leit inn hjá þeim i
sjónvarpinu fyrir helgina. Þar
er allt á tjá og tundri og erfitt
áð sjá, hverjir voru smiðir —
og hverjir ekki. Bílasmiðjan er
að breytast smám saman og
taka á sig nýja mynd. Enn er
gert við bíla í hluta af hús-
næðinu, en ekki líður á löngu
þar til öllu bíladóti verður kast
að út og nýju bíladóti komið
fyrir.
En varla byrja þeir að sjón-
varpa í vor, e. t. v. í haust, en
vel má undirbúningsstarfið
ganga svo að sjónvarpið hefjist
löngu áður en árið veröur á
enda.
Ég sá þarna teikningar að
innréttingum — og allir fá þar
sinn bás, en ekki meira. Ef sjón
varpið vex í hlutfalli við aðra
innlenda starfsemi verður þess
ekki langt áð bíða að þessi húsa
kynni verði allt of lítil.
^ Hárkolludeildin
Tækniútbúnaðurinn er
að byrja að berast sjónvarpinu,
m. a. það, sem vinir okkar á
Norðurlöndum eru búnir að
leggja til hliðar og ætla að lána.
Eitthvað verður líka keypt nýtt.
Vonandi á það ekki eftir að
koma á daginn, að ódýrast hefði
verið þrátt fyrir allt að kaupa
allt nýtt. Á þetta er ekki kom-
in nein reynsla og því ekki rétt
að spá neinu, en gaman er að
sjá þessa nýjung fæðast hjá okk
ur.
Væntanlegir starfsmenn eru
flestir erlendis við þjálfun,
skilst mér, sumir þó nýkomnir,
aðrir rétt ófarnir. Ég hitti á dög
unum föður eins hinna ungu
manna, sem nú eru við þjálf-
un hjá danska sjónvarpinu.
Hann hafði nýlega fengið bréf
frá syni sínum, sem var að
segja honum hitt og þetta um
starfið — og það m.a. að í hár-
kolludeildinni hjá þeim dönsku
væru tíu manns. Ég veit ekki
hve margir verða í hárkollu-
deild íslenzka sjónvarpsins, en
bezt gæti ég trúað, að væntan-
legum flytjendum á islenzka
skerminum verði sagt að greiða
sér vel — þar við látiö sitja
fyrst í stað.
Lítill hópur
Þegar rætt er um vænt-
anlegt íslenzkt sjónvarp manna
á meðal, skiptist fólk oftast í 2
hópa. Annar hópurinn telur, að
hér verði um óyfirstíganlega
tæknilega örðugleika að ræða.
íslendingar muni aldrei geta
komið á fót neinu, sem talizt
gæti sjónvarp. Hinn hópurinn
heldur, að íslenzka sjónvarps-
liði'ð muni stökkva fullskapað
fram á sviðið eins og það hefði
starfað við sjónvarp frá ferm-
ingu.
Ég held að hvorugur hafi á
réttu að standa. Við getum ekki
krafizt of mikils fyrst í stað, en
við hljótum samt að gera ein-
hverjar kröfur úr því að á þessu
verður byrjað á annað borð.
Hér verða tómir viðvaningar að
verki, bæði tæknimenn og
flytjendur. Hann er ekki ákaf-
lega stór, hópurinn, sem sjón-
varpið verður áð treysta á til
flutnings og framleiðslu á inn-
lendu sjónvarpsefni, en þetta
ævintýri á að geta orðið þeim
mun skemmtilegra.
Breytir mörgu
Sjónvarp mun breyta
ótrúlega mörgu í íslenzku þjóð-
félagi - — strax fyrstu árín.
Næstu þingkosningar verða t. d.
áð líkindum undirbúnar að
töluverðu leyti með hliðsjón af
sjónvarpi, þótt það muni þá
ekki ná til annarra en þeirra,
sem búa hér sunnanlands. Eftir
fyrsta starfsár sjónvarpsins
verður það búið að fá ákveðinn
sess í þjóðfélaginu. Ekkert verð
ur fullyrt um það, hvort sá sess
verður hár eða lágur, en þá
verður ekki gengið framhjá
þeirri staðreynd, að sjónvarpið
er hér — með allt sitt áhrifa-
vald.
I»eir stela ekki
Ég sá í brezku blaði stór-
brotnustu þjófnaðarfrétt, sem
ég hefi lengi séð. Einn af yfir-
mönnum brezku lögreglunnar
hvatti lögreglumenn til þess að
beita sér af öllu afli gegn alvar-
legri þjófnaðaröldu: Plastösku-
bakkarnir á lögreglustöðvum á
Bretlandi hafa horfið í þvílík-
um mæli, að lögreglan hefur
ekki við að kaupa nýjar birgðir
af öskubökkum. Voru lögreglu-
menn beðnir að hafa andvara
á sér í baráttunni gegn þjófum
þessum.
Þetta minnir mig á viðtal,
sem ég sá fyrir skemmstu í
bandarísku ferðamálablaði. Þar
var franskur hóteleigandi
spurður að því hvaða gesti hann
vildi sízt fá.
— Bandarísk börn, svaraði
hann. Þau rífa allt og tæta —
og ekki stendur steinn yfir
steini í hótelinu, þegar banda-
rísk barnafjölskylda hefur
dvalizt hér í viku.
Hann var þá spurður að þvi,
hvort hann kysi ekki (af tvennu
illu) fremur að fá bandarísk
börn en hunda, sem mörgum
hóteleigendum stendur stuggur
af. Ferðmenn með hunda fá
jafnvel ekki herbergi í sumum
hótelum.
En sá franski sagði: — Nei,
ég vil miklu fremur hafa hunda
1 hótelinu. Og hundarnir hafa
líka eitt fram yfir aðra hótel-
gesti, bæði bandaríska og ann-
arra þjóða: Þeir stela ekki ösku
bökkunum.
^ Ekki útgengilegir?
Einn af bezku bítunuml,
sem nefndur er Harrison, var
áð kvænast á dögunum. Mun
þá aðeins einn bítlanna ókvænt
ur, en hann verður sennilega
ekki í vandræðum.
Ekkert heyrizt minnst á
hjónabönd íslenzku bítlanna.
Hvernig er það, ganga þeir ekki
út?
í gær lagði ég til hér í dálk-
unum, að öryggishemill yrði
settur á benzíngjöfina í strætis-
vögnunum. Prentvillupúkinn
var greinilega ekki á sama málL
Ég sá, áð hann hafði breytt
þessu í öryggisljós. Það væri
e. t. v. ágætt að hafa hvort
tveggja, en ekki hef ég trú á
að ljósið mundi nægja.
Höfum flutt verzlun vora og
verkstæði að
LÁGMÚLA 9
Símar:
38820 (KI. 9—17)
38821 (Verzlunin)
38822 (Verkstæðið)
38823 (Skrifstofan)
Bræðurnir Ormsson hf.
Vesturgötu 3, Lágmúla 9.
Sími 38820.