Morgunblaðið - 26.01.1966, Síða 10

Morgunblaðið - 26.01.1966, Síða 10
10 MORGU NBLAÐIÐ Miðvikudagur 26. janúar 1966 * ÞAR sem ísafjarðarkaupstað- ur stendur var áður prest- setrið að Eyri við Skutuls- fjörð. Þegar verzlun á ís- landi var gefin frjáls við alla þegna Danakonungs, var sex verzlunarstöðum veitt kaup- staðarréttindi, og var ' ísa- fjörður meðal þeirra. Réttindi þessara kaupstaða voru nánar tiltekin í tilskip- un frá 17. nóv. 1786. Kaupstaðarlóðin var mæld og kortlögð árið eftir og var stærð hennar talið 400725 fer- álnir. Prestinum á Eyri var goldin kaupstaðarlóðin með jörðinni Brekku á Ingjalds- sandi við Önundarfjörð og voru bréf um þessi maka- skipti lesin upp á Alþingi ár- ið 1791. Með konunglegri tilskipun ár- ið 1816 er ísafjarðarkaupstaður felldur í tign og gerður að því sem kallað var „udliggersted" eða „simpelt Handelssted." Árið 1863 var lögð fram á Al- þingi bænaskrá ísfirðinga um kaupstaðarréttindi Skutulsfjarð- areyrar“ og rituðu 34 nöfn sín undir þessa bænaskrá. Alþingi samþykkti á þessu þingi „bæna- skrá til konungs í málinu um kaupstaðarréttindi Skutulsfjarð- areyrar". Á næsta Alþingi, sem haldið var sumarið 1865, var málið lagt fyrir sem „konung- legt frumvarp til reglugerðar um að gera verzlunarstaðinn fsa- fjörð að kaupstað og um stjórn bæjarmálefna þar“ og „konung- legt frumvarp til opins bréfs um að stofna bygginganefnd á kaup- staðnum ísafirði“. Bæði þessi frumvörp voru samþykkt á þessu Nýr barnaskóli í smíðum. þingi og hlutu þau staðfestingu Kristjáns konungs níunda, sem reglugerð og opið bréf þann 26. janúar 1866. Með því fær ísa- fjörður uppreisn eftir fimmtíu ár. Þá er verzlunarstaðurinn og prestsetrið á Eyri gert að sér- stöku lögsagnarumdæmi og þar með slitið sambandi því, sem verið hafði á milii ísafjarðar verzlunarstaðar og Eyrar- hrepps. Fyrstu bæjarstjórnar- kosningarnar Fyrstu bæjarstjórnarkosning- arnar fara fram 16. júlí 1866, og voru þá kosnir fimm bæjarfull- trúar til þess að stjórna mál- efnum kaupstaðarins ásamt bæj- arfógeta, sem var samkvæmt reglugerðinni sjálfkjörinn odda- maður. í fyrstu kosningum til bæjarstjórnar var 21 kjósandi á kjörskrá og jafnframt voru þeir allir kjörgengir til bæjarstjórnar. Úrslit þeirra kosninga urðu þau ísaf jarðarkirkja að kjörnir voru: Brynjólfur Oddsson bókbindari með 15 atkvæðum. Þorvaldur Jónsson héraðs- læknir með 15 atkv. Lárus Á Snorrason verzlunar- fulltrúi með 14 atkv. William T. Thostrup verzlun- arfulltrúi með 13 atkv. Guðbjartur Jónsson skipherra með 8 atkv. Þetta ár voru íbúar kaupstað- arins 220. Árið 1901 eru íbúarnir orðnir 1085, og er ísafjörður þá þriðji stærsti kaupstaðurinn á landinu. Reykjavík hafði það_ ár 6321 íbúa. Flestir voru íbúar ísa- fjarðar 2919, en það var árið 1945. Undanfarin ár hefur íbúa- talan verið um 2700. Alls hefur verið kosið til bæj- arstjórnar í 65 skipti, 28 sinnum fyrir aldamót og 37 sinnum á þessari öld. En frá stofnun kaup- staðarins og fram til ársins 1930 voru kosningar næstum á hverju ári og lengst af þennan tíma gekk einn bæjarfulltrúi úr í einu. Árið 1930 er bæjarstjórnin kjör- in öll í einu til fjögurra ára og hefur það kosningafyrirkomul,ag verið í gildi síðan, að því und- anskildu að aukakosning fór fram á árinu 1935. Samtals hafa 181 bæjarfulltrú- ar og varafulltrúar setið fundi bæjarstjórnar frá byrjun og til þessa dags. Bæjarfógetinn í ísafjarðar- kaupstað, sem jafnframt er sýslu maður í ísafjarðarsýslu, var frá stofnun kaupstaðarins sjálfkjör- inn oddviti bæjarstjórnar og helzt sú skipan til 29. janúar 1930, en það ár var kjörinn for- Framhald á bls. 11

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.