Morgunblaðið - 26.01.1966, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 26.01.1966, Qupperneq 18
18 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 26. janúar 1966 BÆJARSTJÚRN ÍSAF J ARÐ ARK AUPST AÐAR j DAG Bæjarráðsmenn: Bjarni Guðbjörnsson banka- stjóri hefur átt sæti í bæjar- stjórn fyrir Framsóknarflokkinn frá 1954, fyrst sem varafulltrúi, Bjami Guðbjömsson, banka- stjóri, forseti bæjarstjómar. en sem aðalfulltrúi frá 1955 Hann var varaforseti bæjarstjórnar 1958—1962 og hefur verið for- seti bæjarstjórnar frá 1963. Hann hefur átt sæti í bæjarráði frá írá 1955, setið í hafnarnefnd og fræðsluráði og verið formað- ur þess frá 1964. Björgvin Sighvatsson, skóla- stjóri. 1. varaforseti. Björgvin Sighvatsson skóla- stjóri hefur átt sæti í bæjarstjórn fyrir Alþýðuflokkinn frá 1950, fyrst sem varafulltrúi, en sem aðalfulltrúi frá 1954. Hann hefur verið aðalfulltrúi í bæjarráði frá 1963, en hafði áður verið vara- fulltrúi. Hann átti sæti í fræðslu ráði frá 1950 og var formaður þess 1951—64. Einnig hefur hann setið í framfærslunefnd. Ilalldór Ólafsson, bókavörð- ur, 2. varaforseti. Halldór Ólafsson bókavörður var varabæjarfulltrúi 1934—35, en hefur verið aðalfulltrúi fyrir Alþýðubandalagið frá 1958 og átt sæti í bæjarréði frá sama tíma. Hann hefur starfað m.a. I fræðsluráði og framtalsnefnd. Högni Þórðarson, bankagjaldkeri. Högni Þórðarson bankagjald- keri hefur átt sæti í bæjarstjórn frá 1954 fyrir Sjálfstæðisflokk- inn og verið í bæjarráði frá 1958, í rafveitustjórn 1954—62 og í fræðsluráði 1954.—58. Matthias Bjarnason, alþingismaður. Matthías Bjamason alþingis- maður hefur átt sæti í bæjar- stjórn frá 1946, fyrst sem vara- fulltrúi, en frá 1950 hefur hann skipað efsta sætið á framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins. Hann var 1. varaforseti bæjarstjórn- ar 1949, forseti bæjarstjórnar 1950—52, bæjarráðsmaður frá 1950, eða í 10 ár og hefur eng- inn bæjarfulltrúi verið jafn lengi í bæjarráði. Hann var formaður rafveitustjórnar 1946—52 og í hafnarnefnd hefur hann verið í mörg ár. Verið fulltrúi Isafjarð ar á þingum Sambands ísl. sveit- arfél. og var um nokkurt ára- bil í fulltrúaráði þess. Fulltrúi á fundum samtaka kaupstaðanna á Vestur-, Norður, og Austurlandi um hríð. Aðrir bæjarfulltrúar: Birgir Finnsson alþingismaður hefur átt sæti í bæjarstjórn fyrir Alþýðuflokkinn frá 1942, eða Birgir Finnsson, alþingismaður. lengur en nokkur annar. Hann var forseti bæjarstjórnar 1952— 62. Hann hefur átt sæti í flestum nefndum bæjarstjórnar: bæjar- ráði, fræðsluráði, rafveitustjórn, Þrlr bæjar fógetar á ísafirbi hafnarnefnd, framfærslunefnd; verið fulltrúi á þingum Sam- bands ísl. sveitarfél. og á sæti í fulltrúaráði þess. Marzellius Bemharðsson, skipasmiðameistari. Brynjólfur Oddsson, bókbindarL Lárus Árni Snorrason, verzlunarstjóri. Kristján Jónsson, skii>stjórL Kristján Jónsson stýrimaður hefur átt sæti í bæjarstjórn frá 1962 fyrir S j álfstæðisf lokkinn. Hann er nú varamaður í bæjar- ráði og á sæti í framfærslunefnd. Jón Guðjónsson, núverandi bæjarstjóri. Hann hefur ver- ið bæjarstjóri á ísafirði um 18 ára skeið. stjóri, Guðbjartur Jónsson skip- stjóri, Brynjólfur Oddsson bók- bindari og Lárus Árni Snorra- son verzlunarstjórL Þorvaldur Jónsson, læknir, oddviti bæjarfulltrúanna. Marzellíus Bernharðsson skipa- smíðameistari hefur verið bæj- arfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokk- inn frá 1946. Hann hefur átt sæti í hafnarnefnd og bygging- arnefnd í rúma tvo áratugi. Hann var í bæjarráði ísafjarðar- kaupstaðar 1946—1950, en er nú varamaður í bæjarráðL Sigurður Jóhannsson, bankaritari. Sigurður Jóhannsson banka- ritari hefur verið varafulltrúi fyrir Alþýðuflokkinn frá 1958 og aðalfulltrúi frá 1964. Hann á sæti í framfærslunefnd og er vara- maður í bæjarráðL Fyrstu bæjarstjórn ísafjarðar skipuðu þessir menn: Þorvaldur Jónsson héraðslæknir, William Theobald Thostrup verzlunar- Bæjarfógetar ísafjarðarkaup- staðar voru oddvitar bæjarstjórn ar frá stofnun kaupstaðarins 1866 og allt til ársins 1930, er fyrsti forseti bæjarstjómar var kjörinn úr hópi bæjarfulltrúa, Þessir bæjarfógetar voru oddvit- ar bæjarstjórnar: Stefán Bjarnason 1886—1879, William Theobald Thostrup, verzlunarstjóri. Guðbjarur Jónsson, skipstjóri. Jóhann Gunnar Ólafsson, núverandi bæjarfógetL Carl E.A. Fensmark 1879—1884, Skúli J. Thoroddsen 1884—189^, Sigurður E. Briem 1892—1894, Lárus H. Bja-mason 1892—94, Hannes Hafstein 1896—1904, Magnús Torfason 1904—1921 og Oddur G. Gíslason 1921—1930. Forsetar bæjarstjórnar ísa- fjarðarkaupstaðar hafa verið þessir: Finnur Jónsson alþingis- maður 1930—33, Sigurjón Þ. Jóns son, bankastjóri 1933—34. Guð- mundur G. Hagalín rithöfundur 1935—46, Sigurður Bjarnason aLþingismaður 1946—50, Matt-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.