Morgunblaðið - 06.05.1966, Side 6

Morgunblaðið - 06.05.1966, Side 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Föstudagur 6. maí 1964 Grundvallarstefna verkalýössamtak- anna að hagnýta auðlindir landsins 9 Stefnt að stórkostlegri uppbyggingu atvinnulífsins Ræða Péturs Sigurðssonar I UMRÆÐUNUM nú í kvöld og einnief í gaerkvöldi hefur ber- lega komið í ljós að stóriðjumálið svonefnda er mesta deilumál þessa kjörtímabils. Stuðningsmenn ríkisstjórnar- innar ásamt stjórnarandstöðunni, hafa haft langan tíma til að fylgj ast með og koma fram athuga- semdum sínum við álsamninginn. Hafa fá mál fengið jafn góðan undirbúning og þetta og iíklega aldrei að stjórnarandstaða hafi haft jafn gott tækifæri til að kynna sér mál einnar ríkisstjórn- ar sem þetta. Stjórnarflokkarnir hafa vegið og metið málið í heild og komizt að þeirri niðurstöðu að allt benti til, að samningurinn um ál- bræðslu í Straumsvík myndi leiða til mikils þjóðhagslegs á- vinnings. Stjórnarandstaðan hefur haft annan hátt á. Hún tekur eitt og eitt atriði út úr samningnum, gagnrýnir það — og finnur hon- um allt til foráttu á grundvelli þessa. I>ó er skylt að geta þess, að við afgreiðslu málsins í Neðri deild gerði einn gáfaðasti þing- maður Framsóknarflokksins, grein fyrir atkvæði sínu á þann veg, að með samþykki samnings- ins væru um þjóðhagslegan á- vinning að ræða. En handjárnin héldu. Við afgreiðslu málsins sat hann hjá. Sama er að segja um um háttvirtan þingmann Jón Skaftason. Er hann gerði grein fyrir atkvæði sínu taldi hann mál ið til hagsbóta fyrir kjördæmi sitt. Staðbundin föðurlandsást En það sem ég hefi kallað hjá Framsóknarmönnum staðbundna föðurlandsást, togaðist á í hátt- virtum þingmanni við hnapp- heldu sjálfs hnappasmiðsins, Ey steins Jónssonar og það varð jafn tefli. Þrátt fyrir mat sjálfs þing- mannsins á ótvíræðum hag Reykjaneskjördæmis af ál- bræðslu í Straumsvík, vildi hann vísa frv. til ríkisstjórnarinnar á einu stigi þess, en sat hjá við endanlega afgreiðslu málsins. Sú skoðun hefur heyrzt frá þingmönnum Framsóknarflokks- ins úr Norðurlandskjördæmi eystra, að málið hefði litið allt öðru vísi út, ef verksmiðjan hefði verið staðsett í þeirra eigin kjör dæmi. Er þetta í samræmi við afstöðu fyrsta þingmanns Framsóknar í þessu kjördæmi, til frumvarps ríkisstjórnarinnar um breytingu á lögum um kísilgúrverksmiðju við Mývatn. Margt af því, sem Framsóknar menn gagnrýna hvað mest í ál- samningnum á sínar hliðstæður í væntanlegum samning við bandaríska fyrirtækið um vinnslu og sölu kísilgúrs. Framsóknarþingmenn Norður- landskjördæmis eystra ættu sam- Pétur Sigurðsson. vizku sinnar vegna — og sam- ræmis, að greiða atkvæði gegn kísilgúrfrumvarpinu og beygja sig þar með að fullu undir hand- járnapólitík Eysteins Jónssonar. Háttvirtur þingmaður Ingvar Gislason sagði um álsamninginn fyrir skömmu, að með honum dyndu yfir okkur allir ókostir samskipta við erlenda stóriðju- hölda. Þeir myndu fá allan ávinn inginn en við ekkert nema óhag- ræðið og skömmina, og slíkum samningi bæri auðvitað að hafna. Hvað verður ofaná hjá þessum háttvirta þingmanni er kísilgúr- frumvarpið kemur til afgreiðslu í neðri deild? Ætlar hann að standa við stóru orðin og greiða atkvæði gegn því á þeirri forsendu að ríkisstjórn sem gert hefur annan eins samn- ing og álsamninginn sé ekki treystandi til frekari samninga við erlenda aðila. Eða ætlar hann að hafa sama hátt á og lærifaðir hans háttyirtur þingmaður Karl Kristjánsson að láta sína stað- bundnu föðurlandsást ráða af- stöðu sinni til málsins og greiða því atkvæði? Úr því fæst skorið næstu daga. Gagnrýni svarað Fjögur atriði hafa aðalalega verið gagnrýnd í álsamningnum: 1. Orkuverðið. 2. Gerðardómurinn. 3. Samningstíminn. 4. Staðsetning verksmiðjunn- ar. Þrem fyrstu atriðunum hefur þegar verið svarað og reyndar því síðasta einnig a. m. k. hvað viðkemur vinnuaflsþörf verk- srhiðjunnar og annarra atvinnu- vega og áhrifum á þensluna í þjóðfélaginu. Eins og fram hefur komið í skýrslu ríkisstjórnarinnar var ýt- arlega rannsakað hvar helzt kæmi til greina að reisa væntan- lega ólverksmiðju. Ríkisstjprnin og stuðnings- menn hennar allir sem einn voru sammála um að æskilegast væri að staðsetja verksmiðjuna þann ig að hún stuðli að auknu byggða jafnvægi Auk Faxaflóasvæðisins kom Eyjafjörður helzt til greina. En það kom í ljós að á þessu voru alvarlegir f járhagslegir annmark- ar. f viðræðunum um staðsetning- una lýstu hinir erlendu samn- ingsaðilar því yfir að þeir yrðu að fá verulega hagstæðara ráf- orkuverð, ef verksmiðjan yrði staðsett ,við Eyjafjörð vegna hærri stofn- og reksturskostnað- ar. En vegna hærri stofnkostnaðar raforkukerfisins hefðum við orð ið að selja raforkuna hærra verði til verksmiðju við Eyjafjörð og var áætlað að stofn- og reksturs- kostnaður okkar, vegna staðsetn ingarinnar þar, hefði verið, með 6% vöxtum til 1983 — 700 mill- jónum krónum hærri. Auk þessa kom fram ótti Sviss lendinganna vegna hafíshættunn ar fyrir norðan, ekki sízt eftir að ísinn kom hér að landi á sl. vetri og vori. Þetta er skiljanlegt þegar þess er gætt, að áætluð flutninga- þörf 60 þús. tonna verksmiðju til og frá landinu sé í kringum 240 tonn á ári, eða hátt í það sama og flutt var til og frá landinu með öllum skipum Eimskipafélagsins á næstliðnu ári. Atvinnujöfnunarsjóður til eflingar Iandsbyggðinni Af hálfu þeirra sem styðja mál þetta er m.a. bent á stórfelldar gjaldeyristekjur og lægra raf- orkuverð til innlendra neytenda. Hluti skattteknanna rennur til Hafnarfjarðarkaupstaðar, en eng inn vafi er á því að verksmiðj- an og hafnargerðin í Straumsvík eiga eftir að verða mikil lyfti- stöng fyrir allt byggðarlagið eins og reyndar háttvirtur þingmaður Jón Skaftason hefur komizt að þótt hann vilji ekki styðja mál- ið. Enda verður að viðurkenna þörf þeirra ekki síður en margra annarra staða, hafandi í huga að helzti atvinnuvegur þeirra um áratugaskeið, togaraútgerðin, hef ur ekki borið sitt barr nú um langt árabil m.a. vegna þeirra fórna, sem togaraútgerðin hefur fært, svo lífOænlegra væri á fram leiðslustöðum sjávarafurða kring um allt land. Stærsti þáttur skattteknanna fer í atvinnujöfnunarsjóð til upp byggingar atvinnulífi úti um land. Stofnfé þessa sjóðs er hátt í 400 milljónir króna og verður þegar til ráðstöfunar á þessu ári um 36 millj. króna, 50 millj. kr. á næsta ári og að fáum árum liðnum á annað hundrað mill- jónir. Þá eru heimildir fyrir sjóðinn að taka innlend lán og allt að 300 millj. króna erlend lán. í þessu sama skyni liggur nú fyrir heimild fyrir atvinnuleysis tryggingasjóð að ráðstafa fjórða hluta vaxtatekna sjóðsins, um 15 millj. króna á þessu ári í vaxta- laus lón til langs tíma. Sami sjóður hefur nú í ár orðið við tilmælum ríkisstjórnarinnar um stórhækkuð lán til hafnar- framkvæmda úti um land eða ur 16—17 milljónum á sl. ári í 40 milljónir á þessu ári. Auk þessa hafa allir aðrir fjár festingarsjóðir verið stórefldir og aldrei verið öflugri en nú. Þeir munu einnig nýtast bet- ur og koma að betra gagni, vegna þeirra breytinga sem ríkisstjórn- in hefur beitt sér fyrir að gerð væri á skipulagi þeirra á þessu þingi. Það er því með öllu óskiljan- legt þegar bæði háttvirtir þing- menn Eysteinn Jónsson og Ragn ar Arnalds og reyndar fleiri, leyfa sér að tala um þessar ráð- stafanir ríkisstjórnarinnar til at vinnuuppbyggingar úti um land, sem ekki meiri en svo, áð nema muni andvirði eins vélbáts á ári. En háttvirtúr þingmaður, Ragri ar Arnalds kom víðar við. Hann ræddi um þá sérstöku vá, að hér á íslandi fyndist þéttbýli. Þessi ungi maður gerir sér auð sjáanlega enga grein fyrir því, að það er þéttbýlið á Suð-Vest- urlandi, sem er undirstaða þess að hægt er að gera það stóra átak, sem nú er hafizt handa um. Þessi sami þingmaður sagði i gærkvöldi — og bergmál þess heyrðum við hér áðan — að Al- þýðubandalagið væri forystu- afl í íslenzkri verkalýðshreyf- ingu. Fleirum en mér kemur ókunn uglega fyrir sjónir að þessi skóla piltur hafi komizt til forystu í verkalýðshreyfingunni, þetta er ekki annað en óskhyggja eins og hjá „meistara Jóni“ háttvirt- um 3. þingmanni Reykvíkinga, sem hér var að tala áðan. Þetta er álíka fullyrðing og þegar þingnefnd hélt því fram fyrir nokkru að heimur hefði skolfið og stóveldin hefðu gert með sér samninga um bann við kjarnorkutilraunum, vegna þess að hann og lítill hópur kommún- ista ásamt meðreiðarmönnum hefðu farið í gönguferð milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Afstaða verkalýðs- hreyfingarinnar Hitt er svoaftur satt að örfáir forystumenn verkalýðshreyfingar innar telja sig Alþýðubandalags- menn, en þeir telja sig líka sósial ista, þjóðvarnarmenn, vinstri jafnaðarmenn og framsóknar- menn og vegna þessara manna ráða kommúnistar lögum og lof um í stjórn Alþýðusambandsins, og þeirra vegna er álsamningn- um mótmælt en ekki vegna þess að íslenzk verkalýðshreyfing standi þar að baki. Það eru ill örlög háttvirts þingmanns, Hannibals Valdimars sonar, sem hér talaði í gærkvöldi en hann hættir forsetastörfum A. S. f. næsta haust, en það verð ur hann að gera vegna laga sam takanna, þar sem hann hefur gerzt bóndi vestur á fjörðum og er þar leiguliði ríkisstjórnarinnar. að hafa á sitt eindæmi breytt stefnu Alþýðusambandsins í land búnaðarmálum, þótt engin sam- þingum þess, vitandi þó að breyt þykkt hafi verið gerð þar um á ingarnar draga úr víxlhækkunum kaupgjalds og verðlags. Og það er furðulegt að hann og (félagar hans í stjórn A. S. í. skuli í afstöðu sinni til álsamn ingsins ganga í berhög við eina af grundvallarstefnum verkalýðs samtakanna að auðlindir lands- ins Verði nýttar og öllum lands- mönnum tryggð næg atvinna, eins og sá samnefndi mun ómót- mælanlega stuðla að. Ég veit að stór hluti íslenzkn verkalýðshreyfingarinnar er þess fullviss, að með virkjun jökul- fljóta okkar sem runnið hafa til sjávar frá ómunatíð, engum til gagns, en mörgum til skaða með samningunum um ál- og kísil- gúrverksmiðju, með byggingu nýrra víldarverksmiðja á Aust- landi, auknum flutningamögu- leikum á hráefni okkar til ann- arra staða, endurskipulagningu fjárfestingarsjóðanna og tilkomu avinnujöfnunasjóðs — er verið að renna styrkari stoðum en nokkru sinni fyrr undir áfram- haldandi og styrkari stoðum en nokkru sinni fyrr undir áfram- haidandi og stórkostlegri upp- byggingu atvinnulífsins um land alit en gert hefur verið til þessa. GikVh nótt, — gleðitegt swmar. Kosníngaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins SJÁLFSTÆÐISFUOKKURINN hefur kosningaskrifstofur utan Reykjavíkur á eftirtöldum stöðum: AKRANESI Vesturgötu 47, sími: 224« opin kl. 10—12 og 14—22. ÍSAFIRÐI Sjálfstæðishúsinu II. hæð, sími 537 og 232 opin kl. 10—19. SAUÐÁRKRÓKI Aðalgötu 5, sími 23 — opin kl. 10—18. SIGLUFIRÐI Sjálfstæðishúsinu, sími 71154 opin kl. 13—19. AKUREYRI Hafnarstræti 101, sími 11578 opin kl. 10—12,14—18 og 20—22. VESTMANNAEYJUM Samkomuhúsinu, Vestmannabraut 19, sími 2233 opin kl. 10—22. SELFOSSI Hafnartúni, sími 291 opin kl. 9—17 og 19,30—21. KEFLAVÍK Sjálfstæðishúsinu, simi 2021 opin kl. 10—19. HAFNARFIRÐI Sjálfstæðishúsinu, sími 50228 opin kl. 9—22. GARÐAHREPPI Lyngási 8, sími: 51690 — 52340 — 52341 opin kl. 15—18 og 20—22, laugardaga og sunnudaga kl. 14—18. KÓPAVOGI Sjálfstæðishúsinu, sími: 40708 opin kl. 9—22.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.