Morgunblaðið - 09.07.1966, Síða 10

Morgunblaðið - 09.07.1966, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 9. júlí 1966 OBSERVER: HVERS VEGNfl? Eftir Gavin Voung Reyksúlan eftir árásina á oliubirgðastöðvarnar við Hanoi steig 35000 fet til himins. HINAR HÖRBU sprengjuárásir Bandaríkjamanna á N-Vietnam í síðustu viku hafa óhjákvæmi- lega vakið spurningar meðal manna, beggja vegna Atlants- hafsins, varðandi hernaðaráætl- un þeirra og stjórnmálaleg markmið. Gavin Young, sem verið hefur fréttaritari Observer í Vietnam sl. ár, en e^nú nýkominn aftur til Bretlanus, svarar nokkrum þessara spurninga í viðtaii sem hér fer á eftir. — Hvers vegna hafa Banda- ríkjamenn skyndilega gert sprengjuárásir á Hanoi og Haiphong núna? Við höfðum verið vanir að heyra að sprengju árásir á N-Vietnam hefðu enga þýðingu. — Bandaríkjamenn hafa í raun og veru aldrei viðurkennt þá staðhæfingu. Þegar þeir hófu sprengjuárásirnar réttlættu þeir þá ákvörðun með því að það væri eina leiðin til að stöðva liðs- og hergagnaflutninga frá N-Vetnam til S-Vietnam, og einnig vonuðu þeir að tiltölu- lega litlar árásir gætu skert efna hag Iandsins nægilega mikið til að landslýður snerist gegn stjórn Ho Chi Minhs, en sem kunnugt er stendur fjárhagur N-Viet- nam miklu hallari fæti en fjár- hagur S-Vietnam. í hvorugu tilfelli hefur sú raun reynst rétt. Þrátt fyrir það neitar mikill fjöldi Bandaríkjamanna að yið- urkenna mistökin með þessum sprengjuárásum, þeir segja að- eins að þetta sanni að árásirnnr hafi ekki verið nógu harðar. — Eru Bandarikjamenn í Saigon ekkert hræddir um að aðgerðir sem þessar kunni að neyða Kínverja og Rússa til meiri íhlutunar? — Raunverulega ekki, og þar held éig að þeir hafi rétt f.yrir sér. Þeir hafa ekki varpað sprengjum á miðbik Hanoi og Haiphong. Þessar olfubirgða- stöðvar eru í tveggja til þriggja mílna fjarlægð frá miðbiki borganna, og maður hlýtur að álykta að Rússar og Kínverjar geri sér greip fyrir því. Hvað sem því liður þá sé ég ekki hvað þeir gætu gert nema senda her- sveitir til hjálpar, og hersveitir geta varla hjálpað N-Vietnam, því að þeim er ekki ógnað með innrás á landi, heldur úr lofti. — Hvað veldur þá öllu þessu umtali og látum? — Að mínu áliti er það aðal- lega hin magnaða setning: „Ger- um sprengjuárásir á Hanoi og Haiphong". Slíkum áráum er al- mennt líkt við loftárásirnar á London og Dresden í seinni heimsstyrjöldinni. En þegar tal- að er um árásir á Hanoi er í raun og veru alls ekki átt við borgina sjálfa. — Heldur þú, að að því geti komið? — Nei, ég held ekki. Burtséð frá því, að slíkar árásir væru hroðalegt siðleysi, þá myndu þær ekki þjóna neinum hernað- arlegum tilgangi. Það sem Bandaríkjamenn eru að gera, er eins og Johnson forseti sagði í ræðu fyrir skömmu „að hækka hernaðarútgjöld kommúnista" þar til efnahagur þeirra stendur ekki lengur undir þeim. í stuttu máli, þeir stefna að því að eyði- leggja efnahag N-Vietnam. Eyðilegging olíubirgða N-Viet- nam mun vissulega hafa alvar- leg áhrif á framleiðslu landsins og allar samgöngur. Á hinn bóg- inn dreg ég mjög í efa að árás- irnar muni draga úr liðsflutn- ingum kommúnista til S-Viet- nam. Hingað til hafa sprengju- árásirnar ekki náð tilgangi hvað það snertir, heldur öfugt, að því er Westmoreland hers- höfðingi alls herafla Banda- ríkjamanna í Vietnam segir. ,,Nú koma helmingi fleiri her- menn frá N-Vietnam yfir landa- mærin í hverjum mánuði, en þegar sprengjuárásirnar hófust. — Ef það er svo mikilvægt fyrir Bandaríkjamenn að stöðva liðsflutningar, munu þeir þá ekki grípa til annarra ráða? — Það er ekki auðvelt að gera sér grein fyrir til hvaða ráða þeir geta gripið. Það er hugsan- legt að þeir gætu fært stríðið út til Kína, eins og hörðustu æsinga mennirnir í Saigon vilja að þeir geri, þó að æðstu mönnunurn undanteknum. Burtséð frá því, þá er fyrir hendi fjöldi augljósra skotmarka í N-Vietnam, sem árásir hafa enn ekki verið gerð- ar á. T. d. höfnin í Haiphong og flugvellir. Og eitt mikilvægt skotmark er ótalið, þar sem eru stíflurnar í Rauðárdalnum. Ef þæir yrðu sprengdar í loft upp, mundi það valda gífurlegri eyði- leggingu. En í slíkri árás myndi mikill fjöldi n-vietnamískra smábænda týna lífinu og flóð myndu gereyða þúsundum jarða. Innrás í N-Vietnam er útilokuð, því að ráðamenn í Saigon álíta að það myndi neyða Kínverja til þátttöku og þar með væri skoil- in á III. heimsstyrjöldin. — Maður hefur það á tiifinn- ingunni, að hinir miklu liðs- og hergagnaflutningar Bandaríkja- manna á síðustu mánuðum hafi á engan hátt aukið sigurmögu- leika þeirra í styrjöldinni. Þeir virðast aðeins hafa hleypt endur nýjuðum styrk í óvininn. — Rétt er það, en Bandaríkja- menn, bæði í Washington og Saigom virðast álíta að nú sé raunverulega grundvöllur fyrir ,,Kóreulausn“ á Vietnamstríð- inu. Það er að segja hernaðar- legur sigur og friður á þeim grundvelli að stofnað verði tvö ríki og landamæra þeirra gætt af henrjum beggja aðila. Hængur- inn á þessari tillögu er sá. að Vietnam er ekki Kórea. í fyrsta lagi þurfa skæruliðar Vietcong ekki að treysta á stórhernað til þess að vinna S-Vietnam. Þeir geta treyst á, í orðsins fyllstu merkingu, vandlega skipulagða hermdar- og hryðjuverkastarf- semi, sem næði um allt landið, og sem gæti hafið aðgerðir á verstu tímum, en þetta gátu n-Kóreúbúar aldrei. Vietnam- stríðið er miklu líkara Búastríð- inu en Kóreustyrjöldinni. Þ.e.a.s. stórt og svifaseint herlið, sem snarpir og hreyfanlegir herflokk ar hrekja fram og tilbaka. — Ef við nú gerum ráð fyrir að Bandaríkjamenn aðhyllist „Kóreulausn", hvernig vinna þeir að henrii? — Hernaðarlega séð virðist stefna þeirra vera að koma sér upp 500 þús. manna herliði fyr- ir haustið og síðan hefja stór- sókn með fjölmennum hersveit- um á héndur stærri hersveitum Vietcong, reyna að finna frum- skógarstöðvar þeirra og ef til vill reyna að loka Ho Chi Minh- leiðinni frá Laos til S-Vietnam. Á þessum aðgerðum og auknum sprengjuárásum byggja Banda- ríkjamenn vonir og trúa á að þeir geti þvingað Vietcong að samningaborðinu. — Hverju halda þeir að þeir fái atorkað þar? — Það virðist vera almennt álit manna, að Vietcong muni vinna sigur í hvaða samninga- viðræðum sem er. Það er ólík- legt að Vietcong viðurkenni samkomulag, sem ekki veitir þeim sanngjarnt stjórnmála- frelsi að vissu marki í S-Viet- nam, og slíkt samkomulag myndi verða þeim geysimikill ávinningur, ef tekð er tillit til að þeir ráða yfir skipulögðustu stjórnmálahreyfingu landsins, auk þess, sem þeir íhafa bylting- arstefnu á stefnuskrá sinni. Það eina sem Bandaríkjamenn hafa umfram skæruliða á sviði stjórn mála í S-Vietnam, sem þeir þó ekki geta raunvorulega haft áhrif á, er gildi bandarískra vopna, og það gildi er ekki raun- hæft. — En geta Bandaríkjamenn ekki byggt upp trausta and- kommúnistíska stjórn í Saigon, sem sjálf væri fær um að halda kommúnistískum byltingarmönn um í skefjum? Hvað sem öllu öðru líður, þá ræður S-Vietnam nú yfir 300 þús. manna her. — Jú, þetta er möguleiki, ef öllum andkommúnistískum —■ U Thant Framhald af bls. 8. stjórinn, hversu langur flug- tíminn væri frá Reykjavík til New York. Hannes Kjartans- son, sendiherra, tjáði honum, að hann væri aðeins um 6% tími og flygju Rolls Royce 400 vélar Loftleiðar þangað dag- lega og stundum tvisvar á dag. U Thant virtist alveg for- viða og sagði að það væri fár- ánlegt að fara fyrst til Glasgow í Skotlandi og bíða þar í 5 klukkustundir eftir því að fara með þotu til New York. Var honum gefin sú skýr- ing af aðstoðarmönnuriV sín- um, að þetta væru mistök hjá skrifstofu SÞ í New York. Því samkvæmt upplýsingum henn ar tæki 14 klst. að fljúga milli Reykjavíkur og New York. U Thant spurði þá, hvort ekki yæri unnt að breyta áætluninni, en var sagt að það væri ekki unnt, því brezku ríkisstjórninni hefði verið til- kynnt um komu hans til Glasgow og þar yrði hann gestur hennar. Framkvæmdastjórinn virtist eiga erfitt með að átta sig á þessum mistökum, en sagði loks að þetta myndi ekki koma fyrir næst er hann kæmi til íslands. Ekið yfir Varmá Frá gróðurhúsinu var hald- ið upp í Reykjadal við Hvera- gerði til að skoða þar gufugos. Brúin yfir Varmá var brotin og þurfti því að aka yfir ána. í fyrstu var óttast að ekki yrði unnt að aka yfir hana vegna vatnavaxta í rigning- unni, en það tókst samt, þótt litlu munaði að vatnið flæddi inn í bifreiðarnar. Sk.vfall og Grýtugos Á meðan U Thant virti gufu- gosið fyrir sér gerði skýfall og urðu menn að hlaupa inn í bifreiðarnar, en flestir renn- blotnuðu samt. Á bakaleiðinni var stanzað stutta stund við Grýtu, sem sápa hafði verið sett í. Úr henni kom aðeins lítið gos, enda hafði Grýta gosið hressi- lega um hálfri klukkustund áður en gestinn bar að. Loks var ekið til Reykjavíkur og var komið þangað um kl. 4 síðdegis. Ánægður meí ferðina ívar Guðmuindsson sagði Morgunblaðinu, að U Thant væri mjög ánægður með ferð- ina. Bjart hefði verið er hann fór á fætur um morguninn og þá hefði hann haft gott útsýni frá Hótel Sögu. En ívar kvað því ekki að leyna, að veðrið hefði sett svip sinn á heimsóknina. Úrslit úr Breiðo- víkurhreppi Hellnum, 4. júlí. VIÐ sveitarstjórnarkosningarnar mönnnum í S-Vietnam yrði gert kleift að taka þátt í kosningum, mynda þjóðþing og ríkisstjórn, sem nyti stuðnings meiri hluta þjóðarinnar, og sem að lokum gæti komið fram með eigin stjórnmálalega „byltingarstefnu skrá“. — Vinna Bandaríkjamenn að þessu? — Þeir segjast gpra það. En aðal hneykslunarefnið er staða Kys, sem forsætisráðherra, en en hann er í raun og veru full- trúi mjög fárra manna. Ky krefst þess að fá að hafa yfir- umsjón með kosningunum I september. Eigi kosningarnar að hafa gildi í augum S-Vietnam- búa verða þær að ná til allra, að Vietcong undanskildum. Hin- ir stríðandi Búddamunkar, hafa hótað að hafa kosningamar að engu, verði Ky ennþá við völd. Þeir treysta honum ekki, og án þessarra Búddamunka er ekki hægt að mynda trausta, löglega og gilda stjórn, sem gæti sett fram þá stefnu, er við áður höf- um nefnt. — Bandaríkjamenn virðast því álíta að auknar sprengju- árásir auki friðarlíkurnar. — Já, en hætta sú, sem fylgir þessum aðgerðum er möguleik- inn á því að þær nái ekki til- gangi sínum. Sérhverju sinni. er ekki tekst með áhrifamiklum sprengjuárásum að breyta gangi styrjaldarinnar Bandaríkjamönn um í hag, verða raddir stríðs- æsingamannanna æ háværari. Westemoreland hershöfðingi hefur oftar en einu sinni sagt, að ekki sé hægt að búast við skjót- um sigri í Vietnam. Bandarískir ráðgjafar í Viet- nam leggja áherzlu á að allt þurfi sinn tíma og segja að „bar- áttan um hjörtu manna og hugi“ mjakist hægt og sígandi. Þeir tala um að 5-10 ár þurfi til að „ná sambandi“ við smábænd- uma. Það er aftur á móti álita- mál, hvort íbúar Vietnam eru undir það búnir að halda bar- áttunni áfram svo lengi. Hættan er því sú, að aðþrengd- ur Bandaríkjaforseti, óviss um valdastyrk stjórnarinnar í S- Vietnam og umsetinn óþolin- móðum stjórnmálamönnum heima fyrir, sjái sér ekki aðra leið færa en að herða sprengju- árásirnar æ ofan í æ — jafnvel að gera loftárásir á Kína, sem er hálfu uggvænlegra en allt sem skeð hefur til þessa — i þeim tilgangi að styttg sér leið- ina til friðar. En staðreyndin er sú, að sprengjur geta ekki barið niður hugsjónalega sannfæringu manna né baráttuvilja. Þessi mál verð- ur að fjalla um á sviði stjórn- mála, og það er vandamálið sem Bandaríkjamenn hafa mestar áhyggjur af í Vietnam. (Observer — öll réttindi áskilin.) ' 26. júní 8.1., voru óhlutbundnar kosningar í Breiðavíkurhreppi. Á kjörskrá voru 80. Kosningu hlutu: Kristinn Kristjánsson Bárðarbúð 36 atkv., Haraldur Jónsson Gröf 35 atkv., Karl Magnússon Knerri 35 atkv., Ing- ólfur Guðmundsson Litla Kambi 33 aktv. og Finnbogi Lárusson .Laugarbrekku 24 atkv. Vara- menn: Bjarni Kristinsson Ytri Tungu, Guðbjartur Karlsson Eyri, Örn Hjörleifsson Brekku- bæ, Ingjaldur Indriðason Stóra Kambi og Kristgeir Kristinsson Felli. Sýslunefndarmaður var kos- inn Karl Magnússon Knerri. — K. K. ,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.