Morgunblaðið - 27.07.1966, Page 17

Morgunblaðið - 27.07.1966, Page 17
Miðvikudagur 27. julí 196Í MORGUNBLAÐIÐ 17 póststimplm í TIBFNI 100 ára afmaelis ísa- fjarðar lét Frímerkjamiðstöðin í Reykjavík gera sérstök umslög, sem stimpluð voru á ísafirði dag- inn sem hátíðahöldin hófust og eru þau til sölu á Týsgötu 1. Upplagið var mjög takmarkað, en þetta er tækifæri fyrir þá sem safna umslögum með sér- stimplum, Einnig er notaður smekklegur sérs' impill á pósthúsinu á skáta- mótinu að Hreðavatni, sem byrj- eði í gær og stendur yfi” til 1. ágúst og vilja eflaust margir frí- inerkjasafnarar eignast stimpil þennan á bréfi. Hussein Jórdaníukonungur og hin brezka eiginkona hans, Muna prinsessa, komu í opin- bera heimsdkn til Bretlands sl. þriðjudag. Myndin var tek- in á tröppunum í Buckingham höll eftir að þau höfðu ekið um borgina frá flugvellinum í opinni bifreið. Má s'á hverja útreið þau fengu á leiðinni, gegnblotnuðu af grenjandi rigningu. í gærmorgun fóru þau flugleiðis til Edinborgar, þar sem þau dveljast fram yf- ir helgi. Þetta er í fyrsta sinn, sem Jórdaniukonungur kemur I opinbera heimsókn til Bret- lands. SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM mennta- Jónas Snæbjörnsson skólakennari - Minning í dag er til moldar borinn í Reykjavík Jónas Snæbjörnsson, fyrrum kennari við Menntaskól ann á Akureyri. Með honum er genginn einn hinn síðasti þeirra, er kenndu í gamla Gagnfræða- skólanum á Akureyri, sem þá var pnn ekki orðinn menntaskóli, vorið 1022, er ég kom fyrst í þann skóla. Aðeins einn lifir eftir, Áskell Snorrason, söng- kennari og tónskáld. Hinir allir, Sigurður Guðmundsson, Árni Þorvaldsson, Guðmundur Bárð- arson, Lárus Bjarnason, Bryn- leifur Tobiasson og Lárus Rist, eru horfnir yfir móðuna miklu. Og nú hefir Jónas Snæbjörnsson bætzt í hópinn. í þessari sveit finnast mér þeir einnig eiga heima, Vernharður Þorsteinsson og Björgvin Guðmundsson, þó að þeir kæmu litlu seinna að skól- anum. Allir þessir, sem áður gengu um göng og stofur með Iheitu blóði og mannlegum yl, hafa srnám saman á undanförn- urn árum orðið að myndum á veggjum skólans. í>egar komið er saman „á Sal“, verður mér það löngum að virða fyrir mér svipi þeirra, og enn finnast mér þeir verma gamla húsið á brekku brúninni yfir fagurskyggndum Pollinum. Og blessuð sé minn- ing þeirra. Ég ætla, að þeir séu fáir af nemendum skólans frá þessum árum, sem minnast ekki þessara mætu manna með ljúf- sárum trega og hlýrri þökk. Og senn munum við, sem einu sinni vorum ungir og nutum leiðsögu þeirra og umhyggju, troða þá stigu, er þeir hafa þegar troð- ið. Jónas Snæbjörnsson var fædd ur 21. marz 1890 í Svefneyjum á Breiðafirði. Hann var af kjark- miklum breiðfirzkum ættum. Faðir hans var Snæbjörn í Herg ilsey, þjóðkunnur maður og mik ið þrekmenni, hreppstjóri um hálfrar aldar skeið og talinn einn helztur sjósóknari og for- maður við Breiðafjörð á sinni tíð. En móðir Jónasar var Guð- rún Hafliðadóttir úr . Svefneyj- um, og voru þeir Svefneyjar- feðgar, Hafliði og Eyjólfur, sem nefndur var Eyjajarl, miklir höfðingjar og héraðsríkir, að sögn. Jónas átti því ekki til neinna aukvisa að telja, enda var hann vel að manni. Vera má, að hann hafi verið öllu gæf- lyndari en sumir frændur hans þar vestra, en æðruleysi karl- mennskunnar var honum gefið. Jónas lærði ungur trésmíðar í Reykjavík og sigldi síðan til Kaupmannahafnar, þar sem hann lagði stund á teikninám Árið 1914 gerðist hann smíða- og teiknikennari við Gagnfræða skólann á Akureyri og var það alla tíð síðan til ársins 1960, að hann lét af embætti fyrir aldurs sakir. í nær hálfa öld, eða 46 ár óslitið, var hann kenn- ari skólans, lengur en nokkur annar fyrr eða síðar við þann skóla, og stóð af sér umrót tveggja heimsstyrjalda. Nemend ur hans voru því orðnir margir og dreifðir víðs vegar um land. Hin síðari ár var það stundum svo, að allir kennarar Mennta- skólans á Akureyri voru gaml- ir nemendur hans. í hinni sund- urleitu sveit nemenda voru þeir eðlilega ekki svo fáir, sem hvorki voru drátthagir né áttu sér smiðshendur, svo að geta hlaut að vera harla misjöfn og áhugi eftir þvi. Hér reyndi því mjög á þolinmæði kennarans og lip- urð, en þeim kostum var Jónas ríkulega búinn, og munu margir minnast þess með þakklæti. Árum saman hafði Jónas hlut- verk að veita forstöðu skreyti- nefnd nemenda á hátíðum skól- ans. Skyldu húsakynni skólans skreytt eftir föngum og þó við hóf. Aldrei þraut nemendur hugmyndir, og var bæði fróð- legt og ánægjulegt að kynnast frjógnótt þeirra og hugarflugi. Hitt var vandi forystumannsins að stilla öllu í hóf, svo að eklci yrði færzt meira í fang en ráðið varð við. Var hér áreiðanlega oft vandi á höndum, því að hver hópur vildi gjarna gera betur og meira en sá, sem á und- an hafði farið. Hér var Jónas hinn ráðholli leiðbeinandi, sem með stillingu og lagni tókst að sveigja óstýrilátan æskuhug inn á færar leiðir. Efast ég ekki um, að margir listhneigðir nemendur muni minnast með ánægju sam- vinnunnar við Jónas stundum. Á sumrum vann Jónas löng- um að alls konar smíðum, lengst og oftast að brúarsmíð fyrir vegamálastjórn. Hafði hann þá oft skólapilta í þjónustu sinni. Hefi ég heyrt ýmsa þeirra róma vistina hjá Jónasi. Hann var þeim ekki aðeins nærgætinn húsbóndi, hgldur einnig góður félagi, jafningjalegur og nota- legur, og lét eitt ganga yfir sig og menn sína. Voru oft hinir áömú hjá honum sumar eftir sumar, og segir það sína sögu. Brúarsmíði hélt Jónas enn áfram, eftir að hann hafði látið af kennslu. Þær skipta því ef- laust mörgum tugum, brýrnar, sem Jónas annaðist smiði á, svo að víða sér stað verka hans í þjónustu við landsins börn. Árið 1913 kvæntist Jónas Her- dísi Símonardóttur, borgfirzkri að ætt, hinni ágætustu konu, greindri og glaðværri. Á heimili þeirra var gott að koma. Ró húsbóndans og léttleiki húsfreyj unnar virtust eiga fullkomna sam leið. Andrúmsloftið var nota- legt. Ef til vill er það einn af leyndardómum lífshamingjunn- ar að kunna að sameina kyrrð og líf. Það ætla ég, að þau hafi kunnað, Jónas og Herdís. Og þau voru hamingjusöm, stundum eins og ung hjón, að mér fannst, og höfðu þá búið saman í meira en hálfa öld. Frú Herdís lifir mann sinn ásamt þremur börn- um þeirra hjóna. Þau eru: Brjánn, skrifstofumaður, Val- borg, húsfreyja og Snæbjörn, verkfræðingur, öll búsett í Reykjavík. Að leiðarlokum er mér Ijúft að færa Jónasi Snæbjörnssyni þakkir Mentaskólans á Akureyri fyrir langa þjónustu, um leið og ég flyt honum persónulega þökk fyrir elskuleg kynni bæði sem gömlum kennara mínum og síð- an samstarfsmanni. Frú Herdísi og börnum hennar votta ég ein- læga samúð. Minningin um góðan dreng og elskuríkan eiginmann og föður verður þeim dýrmæt eign á veginn fram. Þórarinn Björnsson. Póststimpillinn SérsioL'r Ensk mynd, eftir samnefndri sögu Ian Flemmings. Framleiðendur: Harry Saltz- man -— Albert K. Broccoli. Leikstjóri: Terence Young. Að 'eikendur: Sean Connery Danila Bianchi og fl. Mörg kvikmyndahús okkar hafa um þessar mundir lagt sér- staða áherzlu á að sýna ævin- týralegar kynjamyndir, hraðar, spennandi, hasarfengnar, með „happy end“, en ekki allt of trú- verðugar. Meðal þessara mynda má nefna „Pardusfélagið“ í Kópa vogsbiói, „Manninn frá Istanbul“ í Laugarásbíói og mynd þá, sem nú er búið áð sýna á annan mánuð í Tónabíói við mikla að- sókn, þ.e. „Með ástarkveðju frá Rússlandi". hættulegasta andstæðingi glæpa hringsins og komast yfir rúss- nesku dulmálsvélina. Brezka leyniþjónustan tekur áhættuna, énda þótt hún viti, að hér er verið að búa henni gildru. Hún veit af reynslunni, að Bond er ekki auðdræpur, og auk þess er til mikils að vinna. Bond heldur' til Istanbul og •nær þar sambandi vi'ð rúss- nesku leyniþjónstustúlkuna, sem •leikin er af hinni fögru, ítölsku kvikmyndadís Danielu Bianchi. •Hún reynist hin altillegasta við •hann, og sofa þau saman um nætur, til að reyna hvort annað, því að ekki er trútt um, að hann a.m.k. gruni hana um sviksemi. En glæpahringurinn „Spectre“ fylgist með rúmförum þeirra í leynum og hyggur gott til glóð- í mynd þessari fer brezkur leynilögreglumaður, James Bond að nafni, með aðalhetjuhlutverk ið, en margir hérlendis munu kannast við þann mann af orð- spori. Hann á í höggi við al- þjóðl^gan glæpahring, sem nefn ir sig „Spectre", afskaplega um- fangsmikið og vel skipulagt fyrirtæki, byggt upp með ströngum aga, og liggur ekki minna en líflát við, ef einhver meðlimur hringsins getur ekki leyst af hendi þau verkefni, sem honum eru falin, jafnvel þótt sá sami leggi sig allan fram. Þeir seku eru drepnir með eitri, sem verkar á 12 sekúndum. Hvort sem um er að ræða til- viljun eður eigi, þá verður Istan bul í Tyrklandi (Konstantínópel) aðalstarfsvettvangur Bonds í 'þessari mynd, eins og Tonys hins sterka í Laugarásbíói. í rú- sneska sendiráðinu þar í borg er geymdur kjörgripur mikill, vél, sem les dulmálsskeyti, og er brezku leyniþjónustunni mik ið í mun að komast yfir vél þessa, því að með því móti yrði henni kleift að lesa dulmálsskeyti rússnesku leyniþjónustunnar. Nú fær James Bond það hlut- verk að reyna að ná vél þessari frá Rússum. I lei'ðinni á hann að taka með sér unga stúlku þar í borg, sem verið hefur í leyni- þjónustu Rússa, en er sagt fýsa að komast til Englands. Á hún að hjálpa honum til að komast yfir dulmálsvélina. Það er glæpahringurinn „Spectre", sem upphaflega laum aði þessari hugmynd inn í heila bú brezku leyniþjónustunnar, í miður góðum tilgangi þó. Ætlun in er sem sé, að slá tvær flugur í einu höggi: kála James Bond, arinnar........ Hin mikla aðsókn að mynd þessari sýnir, að þetta er ein af þeim myndum, sem stórir hópar fólks hafa gaman af að sjá og þá líklega helzt ungt fólk. Loftur Guðmundsson hefur gert allvand aðan íslenzkan texta við mynd- ina og hefur það vafalaust enn aukið á vinsældir hennar. Hitt leiðir af sjálfu sér, að myndir. sem þessi skilja ekki mikfð eftir, menn verða að láta sér nægja það stundargaman, sem þær veita. Ég fæ ekki greint dýpri rök að baki mynda sem þessarar en þau, að gefa fólki kost á að sjá ævintýralega og spennandi, uppdiktaða atburðarás, og að sjálfsögðu býr hagnaðarvonin að baki, eins og raunin er með flestar eða allar aðrar kvikmynd ir. Ég get t.d. ekki séð, eins og kvikmyndagagnrýrandi eins dag blaðs borgarinnar virðist gera, að kvikmynd þessi sé að yfirlögðu ráði sviðsett til að flekka b,;na hreinu ',,áru“ Rússa í alþjóðleg- um samskiptum. Ef svo væri mundi svo opinská mynd sem þessi vafalaust geyma merkjan- legri áróður. Til dæmis aðal-- fegurðargyðjan í myndinni, mjög hugþekk stúlka, látin vera rússnesk, og glæpahringurinn „Spectre" er ekki rússneskari en svo, að hann heldur uppi harðri samkeppni um njósnir við Rússa og reynir að draga til sín menn úr þeirra liði. Og harðsvíraðasti glæpamaðurinn í myndinni og sá sem gengur næst lífi Bonds, er irskur. Því er að vísu ekki að neita, að starf rússnesku leyniþjón- ustunnar ber þarna nokkuð- á góma. Er það efni að sjálfsögðu nærtækt Bretum, því að þeir hafa alloft orðið fyrir barðinu á rússneskum njósnurum eftir stríð, eins og raunar fleiri þjóð- ir. En þrátt fyrir það, ber mynd- in þess ekki merki, eins og drep ið var á áðan, að vera upphugs- uð sem áróðursmynd, heldur fyrst og fremst sem skemmti- mynd, og tel ég víst, að ýmsir Rússar hefðu gaman af að leiða hana sjónum sér til afslönpun- ar, þrátt fyrir áhyggjur \ mra sjálfskiptðra haggæzlumanna sinna hérlendra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.