Morgunblaðið - 27.07.1966, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.07.1966, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 27. jélí 1966 Vinum mínum nær og fjær sendi ég alúðarfyllstu þakk ir fyrir hlýhug, heimsóknir, skeyti og gjafir á áttræðis- afmæli mínu, 4. júlí sl. Elskulegum börnum mínum, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarnabörnum þakka ég alveg sérstaklega fyrir allan þann sóma er þau sýndu mér og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Ég bið ykkur blessunar drottins. Lára Guðjónsdóttir, Kirkjulandi, Vestmannaeyjum. Hjartans þakkir til ykkar allra fjær og nær, sem glöddu mig á sextugsafmælinu, með heimsóknum, gjöf- um og skeytum. — Guð blessi ykkur. Guðveig Stefánsdóttir, Meðalholti 13. Hjartans þakkir öllum þeim, sem glöddu mig með heimsófenum og gjöfum á 70 ára aímæli mínu. Guðmundur Kr. Sigurjónsson. Irvert sem þer farið hvenær sem þer farið hvemig sem þérferöisf " —> ferðaslysatrygging Móðir okkar, JÓSEFINA LEIFSDÓTTIR HANSF.N frá Vöglum, Vatnsdal, sem lézt þann 21. þ. m. verður jarðsett frá Fossvogs- kirkju, fimmtudaginn 28. þ. m. kl. 1,30 e.h. Dætur hinnar látnu. Útför mannsins míns, föður og tengdaföður, FRIÐGEIRS BJARNARSONAR fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28. júlí kl. 10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað. Blóm vinsamlega afbeðin. Soffía E. Ingólfsdóttir, Sigvaldi og Annie-Jo Friðgeirsson. Móðurbróðir okkar, GUÐMUNDUR JÓSEFSSON fyrrv. hreppstjóri frá Staðarhóli í Höfnum, verður jarðsunginn frá Kirkjuvogskirkju í Höfnum fimmtudaginn 28. þ.m. kl. 14.00. Blóm vinsamlega afþökkuð. — Þeim, sem vildu minn- ast hins látna er bent á líknarstofnanir. Guðrún Magnúsdóttir, Þóra Magnúsdóttir. Eiginmaður minn, EINAR S. JÓHANNESSON vélstjóri, Ásvallagötu 10A, verður jarðsettur frá Fossvogskir'kju föstudaginn 29. júlí kl. 1,30 e.h. — Blóm og kransai vinsamlegast afbeðin. Karólína Guðmundsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför TRAUSTA ÁRNASONAR Ólafsfirði. Sigríður Þorsteinsdóttir, Lovísa Friðriksdóttir, Jörundur Traustason. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR BENEDIKTSSONAR Njálsgötu 81. Margrét Einarsdóltir, Einar Guðmundsson, Birgir Guðmundsson, Bcnedikt Guðmundsson, Bergdís Ottósdóttir og barnabörn. Hjartans þakkir við andlát og útför móður okkar, GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR Bjargarstíg 3. Lilja Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson. 75 ára í dag: Haraldur Björnsson, leikari HARALDUR Björnsson leikari er 75 ára í dag, og gerði ég mér ekki ljóst fyrr en á dögunum að hann er afmælisbróðir dó'ttur minnar og tengdaföður. Harald- ur er búinn að eiga svo mörg merkisafmæli undanfarinn áratug að það er næstum að bera í bakkafullan lækinn að fjölyrða um hann við þessi tímamót. Á fimmtíu ára leikafmæli hans í fyrravor var hann hylltur og margt um hann skrifað, auk þess sem hann hefur flett rækilega ofan af lífi sínu í ævisögunni ,Sá svarti senu-þjófur" sem út kom 1963. Haraldur Björnsson er enn í fullu fjöri, gáskafullur og spræk- ur eins og unglingur, sífelldlega með nýjar hugmyndir á prjónun- um, svo vís-ast er honum lítt að skapi að farið sé að minna hann á hraðgengi tímans og misbrigði áranna. Hann ætti samkvæmt öllum venjulegum mennskum lögmálum að vera löngu setztur í helgan stein, enda búinn að vera á eftirlaunum í fimrn ár, en hann hefur að eigin sögn aldrei haft meira að gera en einmitt síðustu árin. Er það til marks um síungan anda hans, að hann tók af miklum áhuga þátt í sýningum ungra áhugamanna í Grímu fyrir þremur árum, auk þess sem hann hefur verið önn- um hlaðinn hjá Leikfélagi Reykjavíkur síðan hann lét af störfum í Þjóðl-eikhúsinu 1961. Hafa mörg hlutverk hans á þess- um síðustu árum verið einkar sk-emmtilega af hendi leyst, ekki hvað sízt í nýstárlegum verku-m eins og þeim sem Gríma og Leik félag Reykjavíkur sýndu eftir Odd Björnsson, Dúrrenmatt, Dario Fo og Halldór Laxness. Um rúmlega 50 ára leikferil Haralds Björnssonar er ég ekki bær að ræða, en hef fyrir satt að hann hafi 1-eikið yfir 150 hlut- verk á sviði, stjórnað 50 leiksýn- ingurn og farið með yfir 320 hlut- verk í útvarpi, að ógleymdu hlutverki hans í „79 af stöð- inni“. Segja þessar tölur sína sögu um þátt Haralds í þróun ís- lenzkrar leik-menntar, enda er varla ofsagt að saga leiklistar- innar hérlendis síðustu aldarhelft sé samofin ævisögu hans. Við þetta bætist, að Haraldur gaf út tímarit um leikhúsmál í heilan áratug, og hefur enginn fslend- ingur leikið það eftir. Ennfrem- ur stundaði hann um langt skeið kennslu í leiklist. Ég kynntist Haraldi fyrst fyr- ir örfáum árum, og eru mér í fersku minni þau skipti sem ég hef sótt hann og hina indælu konu hans, Júlíönu Friðriksdótt- ur, seim, því bæði eru þau höfð- ingjar að fornum sið og jafnan ánægjulegt að eiga nveð þeim kvöldstund í glaðra vina hópi. Haraldur er að jafnaði viðmóts- þýður maður, opinskár og góð- látlega hæðinn, orðheppinn með afbrigðum og mátulega sjálfhæl- inn. Njóta þessir skemmtilegu eiginleikar sín bezt þegar hann heldur tækifærisræður, en í veirri listgrein á hann fáa sína jafnoka hérlendis. Hann er gæddur þeim fremur fágæta hæfileika að geta látið allt flakka án þess að hneyksla nokkurn eða særa, og ádeila hans er einatt blandin glitrandi skopi. Yfirleitt held ég að lognmolla haldist ekki þar sem Haraldur er nærrL Úr samskiptum okkar eru mér minnisstæðastar þrjár vikur á liðnu hausti, þegar hann tók sig upp frá margvíslegum önnum og hélt með mér suður til Grikk- lands ásamt hópi íslendinga. Hann var okkar elztur að árum, en það veit hamingjan, að enginn var yngri í andánum, fjörmeiri, glensgjarnari eða áhugasamari um allt sem fyrir okkur bar. í þrjár vikur samfleytt lét hann fyndninni rigna yfir okkur, á hverju sem gekk, og margar voru hlátursrokurnar sem ráðsettar konur og háttvísir borgarar ráku upp í návist hans. Öllum verður okkur ferðafélög um Haralds hugsað til þeirra stunda, þegar þessi elzti sér- menntaði leikari íslands kom í leikhúsin fornu þar sem vagga vesturlenzkrar leiklistar stóð í árdaga: Knossos, Delfí, Epída- vros og Efesus. Þar tók hann sér stöðu á miðju leiksviði og þrum- aði fræga kafla úr ljóðum og leikbókmenntum yfir nokkrum ísl-endmgum, furðu lostnum er- lendum ferðamönnum og auðum bekkjaröðum. Ætli það sé ekki í eina skiptið sem íslenzk tunga hefur hljómað frá leiksviðum Hellena? Eða barnsleg hrifning hans á sögustöðum eins og Akrópólis, Kórintu, Ródos, Delos og Mikla- garði. Það var eins og hann vakn aði á ný til tilveru, sem var hon- um gamalkær, því hann hafði lesið Grimberg sinn vendilega og kunni skil á flestu sem fyrir augun bar. Þá varð hann í bók- staflegum skilningi ungur í ann- að sinn, þar sem hann sprang- aði hálfnakinn í sólarbreiskjunni, með griska leikgrímu á brjóst- inu, fullur af lífsgleði og leik- araskap. í dag er þessi káti ferðafélagi búinn að hlaupa yfir þrjá aidar- fjórðunga, svo ótrúlegt sem það er, en við sem sáum til hans i Grikklandi í fyrra trúum því fastlega að hann eigi enn ófar- inn að minnsta kosti heilan ald- arfjórðung frjórrar lífsnautnar. Ég færi Haraldi Björnssyni og konu hans, Júlíö-nu, hjartanlegar árnaðaróskir á þessum tímamot- um, og sömuleiðis óska ég börn- um hans þremur, Stefáni lækni í Svíþjóð, Dóru húsfreyju í Noregi og Jóni arkítekti, til ham ingju m-eð síungan föður og fé- laga. Sigurður A. Magnússon * Erlendur her verði á burt frá Vietnam segir De Gaulle; „barizt þar til yfir lýkur", segir Ho Chi Minh 1 bréfi til Frakklandsforseta París, 20. júlí — NTB FORSETI N-Vietnam, Ho Chi Minh, hefur lýst því yfir í bréfi til De Gaulle, Frakklandsforseta, að alþýða manna í N-Vietnam sé þess reiðubúin að berjast, þar til yfir lýkur. Bréf N-Vietnamforsta var fært De Gaulle siðdegis í dag, og var það franski stjórnmálamað- urinn Jean Saintenay, sem ann- aðist bréfburðinn. Er bann ný- komin úr ferðalagi um SA- Asiu. Bréfið er svar við bréfi því, sem Frakklandsforseti sendi Ho Nýtt götufcort ol Reykjavik Offsetprentsmiðjan Litbrá hefur sent á markaðinn lit- prentað kort af Reykjavík, sem skreytt er ljósmyndum úr borg- inni og teikningum af helztu styttum og byggingu-m. Kort þetta sem aðallega er ætlað erlendum ferðamönnum og utanbæjarfólki, er nýstárlegt fyrir það að hótelin, ferðaskrif- stofurnar, söfnin o.fl., sem ferða fólk hefur áhuga fyrir, er merkt með númerum inn á kortið og er því auðfundið í borginni. Aftan á kortinu eru svo heirn- ilisföng og símanúmerum yfir þau helztu fyrirtæki er veita ferðafólki þjónustu, hótelin, bankarnir, ferðaskrifstofurnar, bílaleigurnar, flugfélögin, minja gripaverzlanir, skipafélögin, bif- reiðastöðvarnar og veitingastað Kort þetta sem er smekklega úr garði gert, hefur Torfi Jóns- son sett upp og teiknað. Chi Minh. í svarinu segir m.a„ að Saintenay hafi verið gerS grein fyrir því, er hann heim- sótti Hanoi, að N-Vietnam væri fórnardýr árásarafla í Bandaríkj unum, og myndi alþýða manna í N-Vietnam berjast við árásar- seggina, þar til fullur sigur hefði unnizt. „Við erum ánægðir yfir því“, segir Ho Chi Minh í bréf- inu, „að Frakkland, sem átti aðild að Genfarsanikomulaginu 1954, er eitt þeirra landa, sem reynir að koma á friði, í anda þess samkomulags". Fyrr í dag hafði De Gaulle lýst því yfir á ríkisráðsfundi, að skoðun Frakka á ástandinu i Vietnam væri óbreytt. Það, sem mestu máli skipti, og yrði að vera undanfari friðarumleitana, vær, að allur erlendur her héldi á burt frá Vietnam, þannig að hægt yrði að vinna að lausn í anda Genfarsáttmálans. a# auglýsing í útbreiddasta blaðinu borgar sig bezt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.