Morgunblaðið - 27.07.1966, Blaðsíða 21
Miðvikudagur 27 JúTí 1968
MORGUNBLADIÐ
21
j' — /Jbröffír
^ Framhald af bls. 26.
liðið var mjög í vörn og áhorf-
endur stóðu á öndinni. Hver
sóknarlotan af annarri dundi á
IBnglendingum — og á siðustu
mín náði hún hámarki er Coluna
útherj i átti þrumuskot að marki
lem straukst yfir þverslá eftir
að Baniks markvörður hafði að-
eins breytt stefnu knattarins
með bláfingurgómunum. Meiri
gat spennan ekki orðið.
■ Leikurinn var mjög vel leik-
inn sem fyrr segir og sem til
marks um hversu prúður hann
var er að 8 aukaspyrnur voru
dæmdar á Englendinga en 3 á
portúganlska liðið — einhver
hreinasti leikur keppninnar.
Eusibio var sem fyrr driffjoð-
wr Portúgala en hann barði
hausnum við steininn þar sem
enska vörnin var — og nú er
spurningin: Hvað tekst þjóðverj
um gegn Englendingum.
’ Á __________________________
— Stublar, strik
Framh. af bls. 15
færi til þess að leika með nær
hundrað manna hljómsveit,
læra hljómsveitaraga og hljóta
tilsögn tilkvaddra hæfileika-
manna og engu síður áhuga-
samra en þau eru sjálf.
M Tónlistarstjóri hljómsveitar-
innar var Sten Áke Axelsson,
sem er „direktör musices“
við háskólann í Lundi og hafði
®ér til aðstoðar hljómsveitar-
stjórana Otto Kern frá Maímö
og Kjell Áke Bjerming. Einnig
komu þar við sögu Bengt Aulin,
sem veitti tilsögn í kammer-
músík, og Anna Lena Isacson-
Norlander, konsertmeistari.
Nokkuð hefur verið gagnrýnt
hversu mikið var leikið af nor-
rænum verkum á tónleikum
æskulýðshljómsveitarinnar nú,
og söknuðu sumir þess að hafa
þar ekki meira af Beebhoven,
Mozart og öðrum öndvegis-
mönnum tónlistarinnar. I>ví
svara til forráðamenn hljóm-
■veitarinnar, að hvorttveggja
»é að hljómsveitin eigi að
heita norræn og því ekki frá-
leitt að hún hafi töluvert af
norrænum verkum á tónleik-
um sínum og einnig sé þess að
gæta, að auðveldara sé yfir-
leitt að fá norrænu verkin en
hin, t.d. hafi músikforlag eitt
í Osló gefið allar nótur, sem
hljómsveitin falaði af því til
kaups, en slíkt örlæti sé ekki
títt. Einnig sé reynt að hafa
jafnan verk frá Norðurlönd-
unum á tónleikunum og
stundum sé það vandkvæðum
bundið, nú hafi t.d. verið leikn
ir íslenzkir dansar eftir Jón
Leifs á einum tónleikanna og
aðeins fengizt fyrir milligöngu
sendiráðsins íslenzka. Til gam
ans gátu forráðamenn þess að
samtals væri nótnabunkinn
sem notaður hefði verið um
500 kíló að þyngd.
Norræna æskulýðshljómsveit
in í Lundi er skemmtilegur
þáttur í norrænu samstarfi og
ber góðan ávöxt ef dæma má
eftir reynslu undangenginna
ára. Fjöldi þátttakenda kemur
þar ár eftir ár og sumir loks
sem stjórnendur eða aðstoðar-
inenn við tónleika hljómsveit-
arinnar (eins og t.d. Kjell Áke
Bjerming nú) og sægur tón-
listarmanna sem nú starfa við
ýmsar hljómsveitir víða á
Norðurlöndum hafa einhverju
sinni, er þeir voru ungir og
óreyndir sótt þangað fróðleik
og skemmtan.
— Samkomulag
Framhald af bls. 14
futtar landbúnaðarafurðir frá
ríkj^m utan Efnahagsbandalags
ins.
Enn er eftir að semja um ýms
ar vörur, svo sem fiskafurðir,
tóbak, kindakjöt og blóm, en
þogar hafa verið lagðar fram
tillögur þair að lútandi
I tilefni af 100 ára afmæli
ísafjarðarkaupstaðar gáfu
börn og tengdabörn Sigur-
vins Kristjánssonar og Bjarn-
eyjar Einarsdóttur Isafjarð-
arkirkju nýjan hökul til
minningar um foreldra sána.
Þennan hökul notaði séra Sig
urður Kristjánsson á ísafirði
í fyrsta skipti við messu sl.
sunnudag, þar sem voru m.a.
við messu konur á aðlfundi
Sambands vestfirzkra kvenna
sem haldinn var á Isafirði.
— KR vann
Framhald af bls. 26
urðu þeir Baldvin og Þórður að
yfirgefa leikvöllinn, en vara-
menn komu í þeirra stað.
Skömmu fyrir leikslok var
Gunnar Felixson kominn frír inn
á vítateig SC-07, er varnarmað-
ur tók það ráð að hindra hann
með höndum. Óskar Sigurðsson
skoraði örugglega úr vítaspyrn-
unni, sem Hannes réttilega
dæmdi. Lauk lciknum svo með
sigri íslandsmeistaranna KR, 4
mörk gegn 1.
„Það er djúpt á íslendingnum
hjá Suðurnesiamönnum“, varð
einum áhorfenda að orði, er hann
yfirgaf leikvöllinn. Það er orð
að sönnu, því baul áhorfenda á
KR liðið var í hæsta máta smekk
laust, þar sem hér var um ís-
landsmeistarana að ræða í
keppni við erlent lið. Það var
vandalaust að sýna hinum þýzku
gestum fuila samúð, án þess að
sýna íslenzka liðinu ókurteisi.
Þjóðverjar eru manna þjóðholl-
asti og munu því áreiðanlega
ekki hafa skilið „íþróttaandann",
sem sveif yfir Njarðvíkurvellin-
um á mánudagskvöldið.
— Tjöld fuku
Framhald af bls. 28
ar sinnar. Taldi Valtýr, að þeir
hafi komið að Skarði kl. 2—3.
Höfðu verið send skilaboð þang-
að og var til reiðu beini, handa
fólkinu, þegar þangað kom.
Sandurinn skóf bílana.
Þá átti Mbl. tal við Árna
Kjartansson, kaupmann, sem
kom í Jökulheima í laugardags-
kvöld, en þar gistu 96 manns þá
nótt. Hafði Árni farið úr bæn-
um í lauggrdag og voru 6 jeppar
í samfloti þar af 3 nýir Bronco
bílar. Fóru þeir yfir Tungnaá á
ferjunni og Búðaháls inn úr. Á
leiðinni fengu þeir rokið og san
bylinn. Frá Þórisósi og inn í
Jökulheima var sandbylurinn svo
svartur að ekki sá út úr augum.
Voru bílarnir mikið sandblásn-
ir og lakk á þeim skemmt. Mættu
þeir félagar Landroverbíl og var
fólkið í honum villt í sandbyln-
um. í öðrum bíl hímdi fólkið alla
nóttina og var afturrúða í hon-
um eins og matt gler um morg-
uninn. Sagði Arni að varla hefði
sézt slóðin nema öðru hverju og
ekki milli vegvísa í sandbilnum.
1 Jökuiíheimum fór vel um
fólkið. Pétur Sumarliðason, sem
þar er veðurathugunarmaður og
húsráðandi, átti fimmtugsaf-
mæli og voru hjá honum 15 gest-
ir. Hann tók þó öðrum gestum
vel, kallaði til sín 50 Akureyr-
inga, sem voru á ferð á söndun-
um auk þeirra sem komu aðvíf-
andi. Var opnuð snjóbílaskemm-
an og lágu þar Árni Kjartans-
son og félagar hans. Og í nýju
skálabyggingunni var legið svo
þétt á gólfi að ekki var hægt að
' opna hurð. Gistu 96 manns í
húsakynnum Jöklarannsóknar-
félagsins.
Upp úr hádegi á sunnudag
lægði og héldu menn þá frá
Jökulheimum. Ferðafélag Akur-
eyrar lagði af stað norður yfir.
Hímdu 5 klst. á bílþaki í Tungna
á.
Bílinn, sem festist í Tungnaá
var af Dodge Cariol gerð. Voru
10 karlmenn í honum og fóru
einbíla í vaðið við Hófinn. Það
er mjög vandralað, og fóru þeir
eitthvað skakkt í eð þræða brot-
ið. Sat bíllinn fastur og var svo
djúpt á honum að sætin flutu
upp. En árbotninn er traustur
þó grýttur sé, og fóru mennirn-
ir upp á þakið á bílnum, þar
sem þeir máttu híma i 5 klukku
stundir, þar til annan bíl bar að,
sem bjargaði þeim úr ánni.
- íþróttir
Framhald af bls. 27
4x100 metra boðhlaup:
1. Sveit KR 44,0 sek.
2. Sveit ÍR 45,4 sek.
3. Sveit ííSk 45,9 sek.
KVENNAGREINAR
100 m. hlaup:
Þuríður Jónsdóttir HSK 13,2
Olga Snorradóttir, HSk 13,4
Halldóra Helgadóttir, KR 13,5
Kúluvarp:
Berghildur Reynisd. HSk 9,33
Ólöf Halldórsd., HSk ^ 9,20
Ragnheiður Ríkharðsd. ÍA 8,08
Spjótkast:
Valgerður Guðmundsd. FH 36,26
Arndís Björnsdóttir UMSK 32,07
Birna Ágústsdóttir UMSK 27,49
Hástökk:
Sigurlína Guðmundsd., HSk 1,40
Unnur Stefánsdóttir HSK 1,35
Rakel Ingadóttir, HSK 1,35
4x100 m. boðhlaup:
1. Sveit HSK 54,6 sek
Kynþátta átök
í Clevelanþ
Cleveland 21. júlí. NTB—AP
TIL kynþáttaátaka kom í Cleve-
land í morgun með þeim afleið-
ingum að fjögurra ára blökku-
drengur slasaðist alvarlega á
höfði og liggur nú þungt hald-
inn í sjúkrahúsi. Einnig móðir
drengsins og sjö mánaða bráðir
slösuðust, svo og tólf ára þlökku
drengur og hvítur lögreglumað-
ur, en sár þeirra allra voru miuni
og ekki hættuleg.
Fólk þetta slasaðist í nágrenni
blökkumannahverfisins Hough.
Bar svo við að það kviknaði
í danshúsi og skautahöil þar
skammt frá og var lögreglan
þeirrar skoðunar að um íkveikju
hefði verið að ræða og skaut
á bíl er ók burt frá höllinni og
hlýddi ekki stöðvunarmerkjum
lögreglunnar. í bílnum reyndist
vera konan með drengina tvo,
fjögurra og sjö mánaða.
Gleður mig að kynnast yður. — Nash. Somerset. — Þú kannt að hafa áhuga sprengd í loft upp“! Þannig hefndu synir
Þetta er stúlkan, sem ferðast sem frú á þessu, Bond. „Rússnesk skrifstofa Kerim Bomb sín á föður sínum.
JÚMBÖ
K— K—
Teiknari; J. M O R A
Gamli einbúinn álítur, að ekki sé til
neins að reyna að gripa þorparana. —
Áður en þið komizt svo Iangt verða
hinar ævagömlu ófreskjur, sem búa hér
í héraðinu, búnar að éta ykkur, — segir
haun.
— Heyrðirðu þetta? hvislar Spori ó-
styrkur að skipstjóranum. Ófreskjur!
Meira að segja ævagamlar! Við skulum
koma okkur burtu og það á stundinni!
En svo margt hefur drifið á daga skip-
stjórans að hann er ekkert hræddur.
Júmbó hleypur á eftir öldungnum til að
spyrja hann nánar út í þetta. Hvernig
getur staðið á því, að þessar grimmu
ófreskjur hafa ekki gert honum og for-
feðrum hans neitt til niiska?
— Við höfum vanizt þeim, er svarið.