Morgunblaðið - 27.07.1966, Síða 19

Morgunblaðið - 27.07.1966, Síða 19
MiSvikucIagur 27. 1966 MORGU N BLAÐIÐ 19 RÍKISÚTVARPIÐ er sú stofnun sem nær til flestra landsmanna. Það mun leitun á fjölskyldum sem ekki hafa útvarpstæki, eitt eða fleiri. í flestum bifreiðum og Ibátum eru hlustunartæki og víða á vinnustöðum glymur í útvarpi, sýknt og heilagt, einfcum hávær músik, mörgum til leiðínda og, jafnvel heilsutjóns. Á kvölddag- skrána hlustar fólk mikið, eink- um |þó aldraðir menn og iþeir er ekki eiga mjög heimangengt. Þetta er óneitanleg dægrastytt- ing og skemmtun fyrir þúsundir manna. Það er því hreint ekki lítiis vert, að vel sé vandað til útvarpsefnis, af þekkingu, alúð og nærgætni með tilliti til hins mismunandi smekks hlustenda. Mér finnst hafa tekizt furðu- vel að gera hið íslenzka útvarp sæmilega úr garði. Þetta var og er mikið vandaverk. Það vildi svo heppilega til að nokkrir vel færir menn komu að útvarpinu í byrjun og settu það á laggirnar. Vil ég þar aðeins nefna þrjá menn, Jónas Þorebrgsson, Jón Ey þórsson og Helga Hjörvar, þótt fleiri mætti geta. Síðan mætti nefna marga ágæta og færa menn, sem hafa lagt hæfileika tíma og krafta í stjórn útvarps- ins og rekstur þess. Ríkisútvarpið er vel þess vert, að þess sé getið og um það fjall- að, stuttlega, í stærsta blaði lands ins og víðlesnasta, iþá einkum til lofs, því er vel þykir gert en þó einnig til aðfinnslu og ábend- inga, þar sem miður þykir fara. Mig langar til að byrja með því, að minnast lítils háttár á þulina. Það gleður alla útvarps- hlustendur að bezti þulurinn, Jón Múli Árnason, er nú aftur kominn og tekinn til starfa. Ósk- um við honum góðrar heilsu. Mér þykir alltaf ánægjulegt að heyra hann bjóða okkur velkom- in á fætur klukkan sjö á morgnana og rabba svo við okk- ur stuttá stund, um veðrið, fuglana, skýin, sólina og skipin á sinn góðlátlega og greindarlega hátt. — Ragnheiður Ásta Péturs- dóttir talar áheyrilega og skýrt. Jóhannes Arason er duglegur þulur en talar stundum of (eða óþarflega) hart. Leifur Þórarins- son hefur góða rödd, en málfær- ið mætti laga, t. d. sleppa ekki aftan af oröum. Sjálfsagt gæti hann vanið sig af þessari hroð- virkni, sem virðist alveg óþörf, en er til iýta. Aðrir er sjaldanar tala sem þulir eða viðtalsmenn eru sumir ágætir en aðrir lakari. Mér finnst að útvarpið ætti ekki að láta tala í síma utan af landi eða frá útlöndum, það heyrist oft illa, heldur senda skeyti og láta þul lesa. Þetta á, sjálfsagt, að vera eitthvað „persónulegra" en nær sjaldnast tilgangi sínum. Sverrir Kristjánsson flytur nú ágæta þætti um kafla úr sögu Þýzkalands. Er mikill fengur að þessum fróðleik um hina þýzku þjóð sem var svo undarlega sundruð í fjölda smáríkja um langa hríð, að fádæmum sætti. Bismarck júnkari, síðari fursti, stofnaði hið prússneska keisara- dæmi, voldugt ríki, samsett úr mörgum ríkjum, konungsríkjum, stórfursta, fursta, hertogadœmum og fríborgum en járnkanslarinn vildi það aldrei, eða vildi ekki skilja, að sameining allra þýzkra manna í Mið-Evrópu með lýð- ræðislegu stjórnarfyrirkomulagi var eina vonin um viðgang og veldi Þýzkalands og Austur- ríkis. Bismarck dó 1895. Ég vona að Sverrir Kristjánsson haldi áfram sagnfræðilegum útvarps- fyrirlestrum sem lengst. — Gunn ar Bergmann flytur erindi um ferðalag í Sovét-Rússlandi, all- fróðleg en kryddar þau með alltof mikilli músik. Að vísu er músikin góð, en ætti betur heima í sérstökum þætti. Þórleifur Bjarnason flutti á mánudag tutt- ugasta lestur skáldsögu sinnar „Hvað sagði tröllið“. Eins og mörgum er kunnugt er saga þessi um hrjúft fólk í hrikalegu umhverfi, gerist á Hornströnd- um á síðari hluta nítjándu aldar. Það var á þeim tímum er lýsis- lampar voru enn notaðir, rímur kveðnar, fólk og fénaður dó úr hor og harðrétti í harðindum. Þá var annað hvort að duga eða drepast á þeim slóðum. Kraft- mikil saga og góð lýsing á fólki og umhverfi. „Á höfuðbólum landsins" nefn- ist þáttur er nú gengur í útvarp- inu. Er þetta fróðlegur þáttur, er vel tekst. Prófessor Magnús Már Lárusson talaði á þriðju- dag um höfuðbólin Laugarnes, Reykjavík og Nes við Seltjörn. Hann er mjög vel að sér í sögu þessara býla, sem höfuðborgin hefur nú lagt undir sig að mestu leyti. Vitnaði hann í mörg rit og marga fræðimenn. Dr. Ólafur Lárusson, sem líklega er fróðast- ur maður í byggðasögu landsins á sinni tíð, telur að Seltjarnar- nes takmarkist við Fossvogsbotn og Elliðaárvog, eða nálægt því. Þetta getur verið rétt, en þó hygg ég að nesin hafi upphaflega verið þrjú, Digranes, Laugarnes og svo Seltjarnarnes. Byggi ég þá skoðun á því, að Seltjörnin sést ekki fyrr en komið er alveg að henni að austan og setur því engan svip á landið er komið er austan að. — Það er líklega rétt, sem prófessor Magnús sagði, að fyrsta kirkjan, hér hefur staðið nálægt því sem minnisvarði Skúla fógeta nú stendur, en þó er líklegt að bærinn Reykjavík hafi í fyrstu verið austan við lækinn, í eina til hálfa aðra öld en þá verið færður vestur fyrir tjörnina, en þetta verður aldrei sannað. Þýðingarlaust að pexa um það, aðalatriðið er, að fyrsti landnámsmaðurinn Ingólfur Arn arson byggði fyrstur bæ sinn í Reykjavík er síðar varð svo höf- uðborg landsins. Á miðvikudag var lesin stutt saga eftir Unni Eiríksdóttur. Virtist mér þessi örstutta saga athyglisverð og nýstárleg en flutningur var þannig, að oft féllu orð alveg niður í enda setn- inga. Er leitt að spilla góðu efni með flausturslegum og óná- kvæmum lestri. Alveg mótsetn- ing var lestur Ingibjargar Step- hensen á sögu Gunnars Bene- diktssonar „Gekk ég í gljúfrinu dökku“. Þar var prýðilega með efni farið, hverju orði skilað á þann hátt, sem bezt varð á 'kosið. Gunnar hefur að undanförnu flutt í útvarpi erindi um konur nokkrar á Sturlungaöld af mifcl- um fróðleik enda munu fáir bet- ur að sér í sögu þeirra tíma en hann. Hann skrifar kröftugt og mjög vandað mál, svo að af ber. Að mörgu leyti fannst mér sag- an umhugsunarverð og vildi gjarnan lesa hana til nánari at- hugunar. — Á föstudagskvöld las Guðbjörg Þorbjarnardóttir nokkur kvæði eftir Snorra Hjart- arson, ágætur lestur góðra kvæða hins snjalla skálds. Að lokum í þetta sinn: Sumir halda því fram, að konur séu lakari í útvarpi en karlar. Ég held ekki að svo sé. Margar kon- ur lesa ágætlega. Hitt er satt að stjórn útvarpsins ætti ekki að hleypa þeim í útvarpið sem hvorki kunna að lesa né hafa málfæri til þess. Þorsteinn Jónsson. Hleðslutæki fyrir rafgeyma 6, 12 og 24 volt. Start-tæki fyrir bifreiðar og vélar 6, 12 og 24 volt. Vinsamlegast pantið í tíma þessi nauðsynlegu áhöld. Garðar Gíslason hf. bifreiðaverzlun. Hvað verður uns mig í ellinni? Vandamálin eru mörg hjá fá- mennri þjóð í stóru og erfiðu landi. Um þau er rætt og ritað og eru menn oft ekki á einu máli um úrlausn þeirra. En eitt vinnst þó við umræður og blaða greinar: menn sýna áhuga á þeim og ýmislegt nytsamt kem- ur fram. Þess vegna er enn einu sinni lagt út í það að rita blaða- grein um málefni aldraða fólks- ins, sem gleymist venjulega, nema þá helzt rétt fyrir kosn- ingar. Eitt skal þó 'strax tekið fram, að löggjöfin um ellilaun og ríkisframfærslu sjúkra er ó- metanleg. Líklega verður nú þessum mál um meiri gaumur gefinn en áð- ur, einfaldlega vegna þess, að nú eru fleiri og fleiri að verða persónulega varir við, hvað van ræksla og skeytingarleysi und- anfarna áratugi í þessum efn- um leiðir af sér. Vandræðin eru farin að gera alvarlega vart við sig. Fjöldi manns í landinu veit bókstaflega ekkert, hvað það á að gera í vandræðum sínum. Afi, amma, tengdapabbi, tengda mamma, aldraða fólkið þarf um- önnun, aðhlynningu og hjúkrun og svo auðvitað fyrst og fremst húsaskjól, og allt þetta vantar víða. „Hvert eigum við að snúa okkur?“, er mjög oft spurt. Það kemur til okkar, sem að þessum málum starfa, og við getum svo raunalega lítið gert. Að vísu 'höfum við á Grund og í Ásun- um í Hveragerði 410 vistpláss, en þau eru öll fullsetin, og sama sagan er á Hrafnistu með 280 og Sólvangi með 130 vlstpláss og á öllum öðrum elliheimilum í landinu. Alls staðar allt ’full- setið og reyndar meira en það — þrengslin meiri en góðu hófi gegnir oft og einatt. Já, hvert á fólkið að fara? hver á að leysa vandræði þess? Ég er farinn að benda því á að tala við alþingismann sinn, borg arstjórann í Reykjavík eða lilið- stæða embættismenn úti á landi. Ennfremur landlækni, borgar- lækni í Reykjavík og síðast en ekki sízt heilbrigðismálaráð- herra og félagsmálaráðherra. Það er enginn vafi á því, að all- ir þessir menn vita ekki nægi- lega vel, hvernig málum er kom ið, annars væru vandræðin ekki svona mikil. Að vísu fær fólkið ekki neina úrlausn mála sinna 'hjá þeim. Það tekur tíma að bæta fyrir það, sem vanrækt hefur verið, en líklega verða heimsóknir, bréf, skeyti, fundahöld og áskoranir til þess að koma einhverri hreyf- ingu á mál, sem svo fáir skipta sér af — en snertir þó ótal marga á einn eða annan hátt, fyrr eða síðar. „Hvað verður um mig í ell- inni?“, verður spurt af fjölda manns. í dag er sumt af þessu fólki á bezta aldri, og ellin virð- ist óralangt í burtu, en alltaf færist hún nær og þá fer spurn- ingin að gerast nærgöngul. — Hvað verður um mig í ellinni? — Hvert skal snúa sér? — Börn in, ættingjamir, vinirnir, flest hafa þau nóg með sig. Tímarnir hafa breytzt svo mikið og reynd ar 'hugsunarhátturinn líka. Margt er hægt að gera, þegar fólkið fer að hugsa um fram- tíð sína 1 ellinni, en ráð er ekki nema í tíma sé tekið. Oft hef ég skrifað um þetta mál. Stund- um hef ég beinlínis beðið fólk að koma til mín og ræða þessi mál, í von um, að hægt sé að skapa áhuga og samstarf, en enginn hefur komið. Hinir eru margir, sem koma daglega og sækja um vistpláss fyrir sig eða sína. Sumir halda því fram, að bezt sé blessað gamla fólkið verði sem lengst í heimahúsum. Þar uni það sér bezt og að gamla heimilið sé bezta heimilið. Þetta þekki ég nokkuð og hef aðra skoðun á því. Oft getur fólkið sökum las- leika og veikinda ekki verið í heimaihúsum, en vegna aldurs fær það erfiðlega sjúkrapláss — æskan er framtíðin — ellin er fortíðin. Einmana er það oft, góðhjartað fólk lítur inn við og við, hjálpar eftir getu — stund- um —, allir hafa svo mikið að gera, og við þurfum líka ein- hvern tíma að hafa frí — hvers vegna fer þetta blessað fólk ekki á spítala eða elliheimili? Elliheimilin þurfa að verða fleiri í landinu. Ekki lítil heim- ili með 15-25 vistmönnum, eins og þeir lögðu til á Alþingi einu sinni, heldur myndarlegar stofn- anir með 50-100 vistmönnum, þar sem imnt er að veita vist- fólkinu alls kyns þjónustu, ekki aðeins fæði og húsnæði. Við verðum að reyna að gera elli- heimilin þannig úr garði, að þau verði fegursta heimilið fyrir margra, því að oftast eru þau síðasta heimilið. „Hver á að hafa forystuna í þessum málum?“ er spurt. Svar- ið verður: Þeir, sem skilja, hversu alvarlegt vandamálið er og hafa vilja og áhuga á að reyna að hjálpa til að leysa úr vandanum. En eru þeir margir? Líklega ekki svo mjög, en þeim mun fjölga, held ég, annars verð ur ekkert gamanmál að verða 80 ára 1980. Ágætur borgari spurði mig ný lega, hvort ekki væri rétt að stofna áhugamannafélag um vandamál ellinnar. Agæt tillaga. Áhugamannafélag vegna ellinn ar kemur, en hvenær? Líklega þegar við erum komnir í gröf- ina eða bíðum eftir vistplássi á elliheimili sem reisa á einhvern tíma. Gísli Sigurbjörnsson. Hnlldóro Jósefs- dóttir—Minning Liðinn er þinn lífsins dagur, ljúfa kæra vina mín. Yfir þínum ævisporum, auðna góðrar konu skín. Gulli dýrri auð þú áttir, ást og mildi kærleikans. Vannst í kyrrþey, virt af öllum, veittir heill til náungans. Okkar kynni aldrei gleymast, elskulega vina mín. Átti ég um áraraðir, ótal mörgu gæðin þín. Vel ég þekkti .hjartað hlýja, hér sem aldrei vinum brást. Göfugleikans gullið dýra, glöggt í hverju verki sást. ' Veittir styrk, og varst mér ætíð vina sönn í gleði og þraut. Grandvör kona, glöð í lundu gekkstu þína ævibraut. ! Liðnar stundir þér ég þakka, þína tryggð og gæðafjöld. Hjá mér býr þín bjarta minning, blessuð fram á hinztu stund. Frá vinkonu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.