Morgunblaðið - 28.08.1966, Síða 2

Morgunblaðið - 28.08.1966, Síða 2
2 NORGUNBLADIÐ Sunnudagur 28. Sgúst 1966 Framleiöslu „Egils sterka" hætt — Bruggun „Polar Beer" of kostnaðarsöm vegna álagðs tappagjalds — Framleiðslan ber sig ekki BLAÐIÐ hafði af því spurnir í gær að hætt væri viS fram- leiðslu „Egils sterka“, eins og sterki bjórinn, sem hér hefur verið framleiddur til útflutnings, málið. — Ástæðan til t>ess að við hættum að framleiða þennan bjór, er svokallað tappagjald, sem gildir ekki síður fyrir út- flutningsvöru, en Það sem neytt er hér innanlands. f>etta gjald var 30 aurar ,en hefur verið hækkað upp í 60 aura, eða um 100%. Eftir að svo er komið, er ekki lengur hægt að keppa við er- lent öl í sama gæðaflokki og okkar. Sama gildir um gosdrykk ina. Þeir eru ekki lengur keypt- ir af íslenzkum skipum, sem til útlanda, sigla, sökum þess, að hinir útlendu gosdrykkir eru mun ódýrari. Sterki bjórinn okkar hefir verið framleiddur fyrir sendi- ráðin hér i borg og fluttur til Keflavikurflugvallar, til varnar- liðsins og ennfremur hefir hann verið keyptur af skipum, sem | sigla milli landa. Að sönnu hefir þessi framleiðsla ekki verið stór þáttur í heildarframleiðslu fyr- irtækisins og breytir þar af leið- ' andi ekki miklu. Annað veldur og, að vinnu- laun hafa stöðugt farið hækk- andi og hefir það einnig haft sitt að segja, svo að bjórinn okk- ar hefir átt erfiðara með að keppa við erlenda bjórinn. Við þurfum líka að flytja allt inn til okkar bjórgerðar, nema vatnið, sagði Tómas. Myndin var tekin í Borgartúni sl. föstudagskvöld, en þar vari roskinn maður fyrir bifreið og fótbrotnaði. (Ljósm. Sv. Þorm. hefur verið nefndur. Vörumerki bjórsins er „Polar-Beer“. Við brugðum okkur til Tómasar Tómassonar, ölgerðarmanns, eig- anda Ölgerðarinnar Egill Skalla- grimsson og spurðum hann um N.Y.H.T, Framhald af bls. 1 h.u „The World Journal Trib- une.“ Blað þetta átti að koma út fyrir fjórum mánuðum, en út- gáfan strandaði á deilum við tíu verkalýðsfélög er mótmæltu því að blöðin yrðu sameinuð. Þó tókst að komast að sam- komulagi við níu félög en eftir voru prentarar. Var tilkynnt fyr ir nokkru, að ekkert yrði af út- gáfunni og hörmuðu menn al- mennt, að New York Tribune skyldi þar með úr sögunni. — Sjá nánar í Utan úr heimi — en á það er bent, að sú grein '<%ar komin inn í blaðið, áður en ofangreind frétt barst. — De Gaulle Framhald af bls. 1 ekkert upplýst fyrirfram um ferðir forsetans. í Addis Abeba tók á móti de Gaulle mikill mannfjöldi u.þ.b. 30.000 manns segir NTB og var honum vel fagnað. Um 15.000 lög reglumenn og hermenn gættu reglu og öryggis. í NTB frétt segir, að forsetinn hafi verið föl- ur mjög og þreytulegur, er hann kom til Addis Abeba. Frá flug- vellinum var í fyrstu ekið með forsetann í venjulegri bifreið, en er um það bil helmingur leiðar- innar var eftir, var skipt yfir í gylltan vagn, sem sex hvítir fák- ar drógu. Fylgdu vagninum sveit ir úr rittaraliði Eþíopiukeisara, og var þetta, að sögn frétta- manna hin fríðasta skrúðfylk- ing. Eftir helgina heldur de Gaulle áfram ferðinni til Asíulanda. Ný vinnsluaöferð á mjólk geymist í 3 mánuði án kælingar NÝ vinnsluaðferð á mjólk ryður sér nú til rúms í Ev- rópu en hún gerir það að verk um, að mjólk geymist sem ný í þrjá mánuði án þess að vera í kæli. Framleiðslan á þess- ari mjólk er hafinn af fullum krafti í Englandi og Svíþjóð til útflutnings en heilbrigðis- yfirvöld í Danmörku og Nor- egi hafa enn ekki samþykkt framleiðslu slíkrar mjólkar í þessum löndum og telja ó- sannað, að mjólkin missi ekki mikilvæg fjörefni í vinnsl- unni. Þessi nýja vinnsluaðferð á mjólk er í því fólgin, að mjólk- in er hituð snögglega með gufu, sem hleypt er í gegnum hana og síðan kæld snögglega aftur. Enskur sérfræðingur telur, að mjólk þessi missi í engu þau fjörefni, sem í henni eru við þessa vinnsluaðferð og hafa Bretar hafið umfangsmikinn út- flutning á þessari mjólk t. d. til Gíbraltar, sem ekki hefur fengið nýmjólk í aldarfjórðung, svo og Ameríku, Afríku, Evrópu og Austurlanda. Skipafélög hafa einnig hafið notkun á þessari tnjólk og er hún t.d. notuð á öllum olíuskipaflota Shell-oliu- félagsins. Mjólk þessi er seld í Tetra Pak hyrnum eins og þeim sem hér eru notaðar, en Bretar hafa í hyggju að selja hana einnig i smærri umbúðum svo og stærri, sem taki allt að 25 lítra. Dönsk mjólkursamlög hafa mikinn áhuga á að hefja framleiðslu mjólkur, sem geym- ist í þrjá mánuði óskemmd og hafa þá fyrst og fremst í huga sölu til skipa og sjómanna svo Og útflutning, en dönsk heilbrigðis- yfirvöld hafa enn ekki veitt leyfi til þessarar framleiðslu af fyrr- greindum orsökum. Danski mjólkurframleiðendur telja hins vegar, að Danir missi mikilvæga útflutningsmarkaði vegna tregðu heilbrigðisyfirvalda við að veita framleiðsluleyfi. Mbl. sneri sér í gær til Stef- áns Björnssonar, forstjóra Mjóik ursamsölunnar og sagði hann, að Mjólkursamsalan fylgdist vand- lega með þróuninni á þessu sviði. Enn sem komið er, væri fram- leiðsla á þessari mjólk dýr, en fylgst yrði með þróuninni á þessu sviði í von um að takast mætti að lækka framleiðslukostn aðinn. Stefán kvað íslendinga hafa náið samband við danska mjólkuriðnaðinn og teldi hann óhætt að hefja slíka framleiðslu, þegar dönsk yfirvöld hefðu veitt samþ. til þess í Danmörku. Fram leiðsla mjólkur, sem hægt er að geyma svo lengi á vissulega rétt á sér, þegar um er að ræða staði, sem erfitt er að koma nýmjólk til daglega, sagði Stefán Björnsson. Þess má að lokum geta, að í Bretlandi er fullyrt að einungis einn af hverjum tíu geti fundið mun á nýmjólk og mjólk, sem unnin er með hinni nýju aðferð. Sjaldgæft fyrirbrigði olli móttöku skilyrðum fyrir sænskt sjónvarp t GÆB var hér í Mbl.-frétt um að sænsk sjónvarpsending hefði sézt í Beykjavik í a.m.k. tveimur húsum. Þar eð slíkt er óalgengt hafði Mbl. samband við tæknifróðan mann, Sæmund Óskarsson verkfræðing hjá Landssímanum, en hann hefur mikið unnið fyrir sjónvarpið í sumar við mætingar á útbreiðslu sjónvarps, og spurði hann um, hvaða skilyrði þurfi að vera til þess að slíkt komi fyrir. Sæmundur sagði að orsakir þessa væru þær að í háloftun- um mynduðust svokölluð spor- adic-E inosferulög, sem væru frekar sjaligæf og endurvörp- uðu hátíðnibylgjum eins og sjón varpsbylgjum. í Danmörku og Noregi hafi t.d. komið fyrir að íslandsmótið útkljáð í dag? Spennandi leikir í 1. 2. 3. deild tslandsmótið 66 TVEIB afar þýðingarmiklir leikir í 1. deild verða leiknir um helgina og jafnframt fer fram annar tveggja úrslitaleikja í 2. ^deild, sá sem raunar er beðið með miklu meiri spennu en að- al-úrslitaleikurinn. í 1. deil leika Akureyringar og Valsmenn á Akureyri í dag klukk an 4 síðd. Bæði liðin hafa sigui- möguleika í mótinu. Valsmenn hafa sem kunnugt er forystu 1. deilct með 11 stigum, Kefi- víkingar hafa 10, Akureyringar 9, KR 8 og AkUrnesingar 7. Svo ó’talmargir eru sigurmöguleikarn ir að hugsanlegt er — með mjóg mörgum EF-um — að Akurnes- ingar geti, eftir umkeppni þó, hreppt bikarinn. En vonir allra liða — annars en Vals — eru bundnar sigri Akureyringa yfir Val fyrir norð an í dag. Fari svo, að Akureyr- ingar vinni er mótið „eins opið“ og hugsast getur. En svo kann líka að fara að endir verði bund- inn á spenningi mótsins í dag. Það verður ef Valur vinnur á Akureyri og Akurnesingar vinni Keflvíkinga, en það er hinn leik- ur mótsins í dag. 2. deild. Ekki er spennan minni varð- andi leik Fram og Vestmanna- éyinga, sem fram fer á Melavell- inum í dag kl. 7 síðdegis (Ekki kl. 16.30 eins og kom fram í Mibl. í gær vegna alvarlegra línu brengla). Nægir Vestmannaey- ingum jafntefli í þeirri baráttu til að tryggja sig í úrslitaleikinn gegn Breiðablik, sem fyrir löngu hefur unnið hinn riðilinn í 2. deild. Telja þeir „sérfróðu" að þáð lið er vinni eigi örugga vi3t fyrir höndum í 1. deild næsta Loks er leikur á Sauðrárkróki í 3. deild sem er annar tveggja úrslitaleikja um það hvaða lið vinnur sér sæti í 2. deild 1 stað FH sem fallið hefur niður í 3. deild ásamt suðurnesjamönnum. Á Sauðárkróki eigast við UMSK Skagafjarðar og Skallagrímur ur BorgarnesL ítalskar stöðvar hafi komið fram á sjónvarpsskermum þar og vær-i það helzt á rás 2 eða 3, en myndirnar, sepi sáust í Reykja- vík voru einmitt á þessum bylgjum. Sæmundur kvaðst sjálfur hafa orðið var við þessa sænsku stöð, þótt hann hafi ekki haft eins gott loftnet og æskilegt hafi verið. Aðspurður um iþað hvort það svaraði kostnaði að magna þessar bylgjur upp sagði Sæ- mundur, að bylgjurnar væru of stopular til bess að slíkt gæti átt sér stað. Hann kvað hátíðni- bylgjur lítið beygja, varla meira en ljósleisU. Sæmundur kvað sporadic-E lag myndast á hverjum degi, en eigi það að hafa þessa eiginleika að geta endurvarpað sjónvarps- bylgjum verður ionasamsetriing þess að vera með sérstökum hætti. Verijulegost fara sjón- varpsbylgjur í gegnum loft- hjúpinn og út ,í geiminn. Hann kvað þetta fyrirbæri verða tíðara er liði að hámarki sólbletta- tímabilsins, sem væri 11 ár. Lág- mark sólblettann? er nýlega liðið, þannig að eftir svo sem 4 —5 ár mætti búast við að tíðni þessa fyrirbæris aukist. Leltað að 3 mönnum - fundust við talstöð ADFABANÓTT föstudags var Slysavarnafélag íslands beðið um aðstoð ,þar eð þrír ísfirðing- ar, er verið höfðu á ferð í Aðal- vík komu ekki til báts, sem sendur hafði verið eftir þeim að Sæbóli í víkinni. Hina sömu nótt fundust síðan mennirnir sofandi í skipbrots- mannaskýli í Höfn í Hornvík. Höfðu áður fundizt skilaboð frá þeim, þar sem þeir sögðust ætla að ganga til Hornbjargsvita. Á Látrum í Aðalvík er skip- brotsmanxxaskýli með talstöð Einnig er talstöð í skipbrots mannaskýli í Fljótavík og fór mennirnir því fram hjá tveimu talstöðvum unz þeir sofnuðu hj hinni þriðju, án þess að lát vita af sér. Þá höfðu þeir o ekki komið til bátsins, þrátt fyri tilkynningu, sem þeim var sen gegnum útvarp. Aðfaranótt laugardags vx sendur bátur frá ísafirði að leri mannanna og farm þá eft nokkra mæðu sofandi hjá ta stöðinni i Hornvík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.