Morgunblaðið - 28.08.1966, Page 10

Morgunblaðið - 28.08.1966, Page 10
10 MORGU NBLAÐIÐ Sunnudagur 28. ágúst 1866 Það skriðu skýjaskuggar yfir Grímsstaðamúlann í vest urátt þegar við komum á hlaðið í Svignaskarði í Borg- arfirði en það var ekki hægt að sjá jökulinn (Snæfells- jökul) í fjarskanum fyrir enda múlans; mistrið hafði speglað sig í Faxaflóanum, stigið upp og hulið hvítan skalla hans með grámóðu sinni. Það var heitt. Fjöllin í austurátt teygðu sig upp á móti lágskýjunum sem sigla hægt suður þennan dag; nær handan Gljúfurár og Norður- ár mátti sjá Arnarholt, Hamr enda, og fleiri bæi með sæti úti og breitt yfir. Það er fallegt í Borgarfirðinum, og þar heyrist hanagal á sunnu- dagsmorgnum og jarm heim- Skúli, Guðmundur, Vaskur og NútíS, framtíff og voff voff á Kastalahói. A kastalarústum fra' dögum Snorra leika sér nú lítil börn Komið við í Svignaskarði í Borgarfirði alninga áður en búið er að mjólka og þeir fá á pelann sinn. Heimalningarnir í Svigna- skarði eru fjórir og halda sig jafnan við íbúðarhúsið því enginn garður er um- hverfis það eða á bak við það og því engin jarðarber til að stela og engin blóma- beð til að traðka yfir, en slíkt eins og allir vita sem verið hafa í sveit, er mesta unun öllum heimalningum. Þessir heimalningar eru lat- ir, nafnlausir þótt undarlegt megi virðast, og liggja helzt við olíutankinn sem stendur við þá hlið hússins sem snýr að þjóðveginum. Okkur datt í hug að skíra þá eftir fjöl- skyldu Bandaríkjaforseta. Þeir hafa nefnilega velt sér upp úr olíunni. Bóndinn, leiguliðinn, á Svignaskarði heitir Skúli Kristjánsson, og kona hans Rósa Guðmundsdóttir. Þau búa í húsi, sem byggt var árið 1909 og þótti þá (og er enn) mjög reisuleg bygging, enda þar boðin lengi nætur- gisting og greiðasala. Skúli er búfræðikandidat frá Hvanneyri, rauðskeggjaður maður með yfirlit bóndans, sem vinnur vel að sínu búi og hefur gaman af því. Hann á þrjá traktora, 550 kindur, kýr einnig og góðhesta. Og til að reka úr túninu eru á bænum tveir hundar, Lappi : ■ - - og Kátur. Vaskur er sá þriðji og var í heimsókn þennan dag frá öðrum bæ. Hann gerði lítið, sat rólegur meðan- vinir hans ráku féð úr tún- inu, niður með ánni og út á engjar, spókaði sig upp á hólnum þar sem eru kastala- rústir frá dögum Snorra Sturlusonar, sperrti annað eyrað og reigði skottið hátt. Uppi á Kastalahól, til hlið- ar við rústirnar, er heima- grafreitur, girtur dröfnóttum hlöðnum steinvegg. Þar hvíla hjón, sem keyptu Svigna- skarð 1903 og gerðu jörðina að stórbýli fyrir dauða sinn. Fyrir gafli leiðanna stendur Guðmundur Daníelsson, óðals bóndi, f.2. júlí 1873. d. 27. marz 1939, og kona hans Guð björg Sæmundsdóttir, f. 29.8, 1873 — d. 29.9. 1958. Á grafreit þeirra hefur ekki gróið gras, heldur prýða mold ina lítil blóm og fögur. Þarna á hól fortíðarinnar leikur sér lítill drengur, Guðmund- ur Skúlason, fimm ára hnokki sem er ljóshærður, rauður í kinnum og stingur putta upp í sig af feimni, þegar ókunnugir spyrja hann spurn inga. Samt á hann þrjá hesta, tvær hryssur, eitt folald, og vonast til að eignast fleiri. Systir hans heitir Guðbjörg sex ára og gerir sér það helzt til gaman að fara á bak Bleik gamla og láta hann ganga niður að hliði og heim að bæ, skokka stundum, aldrei stökkva. — Þú heitir Skyrhámur, fullyrðir hún við gestkom- anda. — Skyrháááá—mur!!!! Lítil stúlka með ljóst hár, blá augu, og ljósbláan borða á höfðinu, sem ríður niður — Þykir þér ekki gaman að hrossum? Það lifnaði yfir honum. Hann strauk á sér rautt hökuskeggið, og fékk sér sígarettu og svaraði. — Jú, ég fékkst töluvert við hesta þegar ég var á Hanneyri. Svo hef ég haldið þessu áfram og átt nokkra hesta, sem hafa staðið sig vel, sumir ágætlega. Hryss- an mín, Ljónslöpp, sem nú er orðin 14 vetra, fékk Faxa- skeifuna í fjórðungsmóti hestamanna hér. Tilberi, 13 vetra, hefur staðið sig anzi vel í 300 metra stökki. Ann- ars er hann nú farinn að eldast, greyið. Móri minn er 11 vetra, en á síðasta fjórð- ungsmóti varð hann samt efstur á tölti. Annars, ef þú spyrðir mig, þá mundi ég ekki vita hvað ég á marga hesta nú orðið — það er frekar erfitt að fylgj- ast með því — ætli þeir séu ekki eitthvað yfir 20 tals- ins. — Er ekki erfitt fyrir einn mann að heyja fyrir svo mik inn búpening. — Ja, ég er nú ekki einn á sumrin. Við heyskapinn hef ég alltaf stráka og vinnu- menn, sem hjálpa mér við að koma heyinu í hlöður. Svo er nú aðstaðan heldur erfiðari vegna þess að ég hef afnot af eyðibýli handan Gljúfurár, auk þess sem ég nýti Svignaskarðið og Fróð- hús, eyðibýlið niður með ánni. Nú kemur kaffi og heima- tilbúið brauð á borðið. A meðan við étum, verður Skúli að bregða sér frá. Við sjáum hann út um gluggann þar sem hann tengir eina dráttarvélina við heyvagn- inn. Kátur stendur hjá, sperrt - ■ Heimagrafreiturinn á Svignaskarði. Hér hvila hjón, sem ekki vildu yfirgefa jörðina sem þau gáfu alla sina krafta. að hliði á gamla Bleik með- an við göngum í bæinn og þiggjum kaffi. í stofunni blasa við á veggjum myndir frá skóladögum húsbóndans, fjölskyldumyndir, tvö mál- verk af Svignaskarði, og eft- irprentun af Stóðhrossum Jóns Stefánssonar. Húsgögn- in eru greinilega frá eldri tímanum, hafa yfir sér virðu legan blæ, auðsjáanlega smíð uð undir áhrifum gamallar danskrar húsgagnagerðarlist- ar. Það voru stóðhross Jóns sem komu mér til að spyrja Skúla: ur að vanda. Svo gengur hann undir vagninn og beyg ir sig næstum niður að jörðu þótt vagninn sé undir stoð tvær hans hæðir. Kátur á Svignaskarði er með manna- læti. Bóndinn Skúli Kristj- ánsson ætlar að hirða í dag. Glóhærð Guðbjörg fer á Bleik niður að hliði í næst- síðasta sinn. Úti á hlaði stendur Guðmundur Skúla- son og tekur puttann úr munni sér. Gestirnir eru farn ir. — Brandur ■ÍL . " ^ T~ < >- * - "4' Ig^'V ■* Guóbjörg á gamla Bleik: Þú heitir Skyrhámur ÍBÚÐ ÓSKAST Óskum eftir 3ja — 5 lierb. íbúð. — Uppl. í dag og næstu daga kl. 9—12 og 13,30—17. Prentsmiðja JÓNS HELGASONAR Síðumúla 8 — Sími 38740. (iuðjón Styrkársson hæstaréttarlögmaður Austurstræti 6. — Sími 18354. Schannongs minnisvarðar Biðjið um ókeypis verðskrá 0. Farimagsgade 42 Kþbenhavn 0. BÖÐVAR BRAGASON héraðsdómslögmaður Skólavörðustíg 30. Simi 14600.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.