Morgunblaðið - 26.11.1966, Page 2

Morgunblaðið - 26.11.1966, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 26. nóv. 1966 Kommar og Framsóknarmenn höfnuðu samstarfi um stjórn ASI HANNIBAL Valdimarsson varsonar. Hann taldi það sjálfsagt Sjálfkjörinn forseti ASÍ á þingi sambandsins í fyrrinótt. Rétt áður en kosning stjórnar fór fram hafði þingið fellt tillögu hans um samstarf innan mið- stjórnarinnar á breiðari grund- velli til hagsbóta fyrir alla laun- þega, og neitaði hann því að gefa kost á sér nema samkomulag um grundvöll í anda tillögunn- ar yrði í miðstjóm fyrir næsta kjörtímabil. Eftir þinghlé og fundi í eld- húsi samkomuhússins var því gengið til stjórnarkjörs. Lýsti Hannibal tillögum miðstjórnar og gerði hann ráð fyrir að hann sjálfur yrði kjörinn forseti, Eð- varð Sigurðsson, varaforseti og Snorri Jónsson ritari. í tillögu sinni um meðstjórnendur stakk hann upp á eftirtöldum mönn Gamalíelssyni, Óðni Rögnvalds- syni, Jóni Sigurðssyni, Guð- mundi H. Garðarssyni og Krist- jáni Jónssyni, Þá tók til máls Pétur Sigurðs- son og sagði hann, að minni hlutinn á þinginu hefði ákveðið að bjóða ekki fram í forsetaem- bættið, en hins vegar myndu þeir síðar gera tillögu um menn í önnur embætti. Þá spurði hann um það hvort Hannibal Valdi- marsson væri kjörgengur í mið- stjórnina, þar eð í lögum ASI væri kveðið svo á um að for- seti eða aðrir miðstjórnarmenn skyldu vera búsettir í Reykja- vík, Hafnarfirði, Kópavogi, Garðahreppi eða Seltjarnarnesi. Óskaði hann úrskurðar þingfor- seta um þetta mál, eins og al- kunna er býr Hannibal nú í Selárdal vestur. Björn Jónsson þingforseti sagði miðstjórnina hafa leitað til lögfræðings síns, Egils Sigur- geirssonar og beðið um lögskýr- ingu á þessu atriði. Hefði hann lýst því yfir að ekki væri átt við lögheimili, heldur hvernig menn háttuðu búsetu sinni. All- ir vissu, að Hannibal væri meiri hluta ársins í Reykjavík og því úrskurðaði hann Hannibal kjör- gengan til forseta. Þá tók til máls Óskar Hall- grímsson og lýsti sig samþykkan því, að ekki sé boðið fram á móti Hannibal, en minnihlutinn myndi síðar bjóða fram í önnur embætti. Sverrir Hermannsson gerði athugasemd við fundarsköp. Hann sagði það ekki nóg, að lögskýr- ing eins lögfræðings lægi til grundvallar úrskurði um kjör- gengi Hannibals og sagði hann að framboðið væri brot á lögum ASÍ, en Björn Jónsson sagðist þrátt fyrir þetta halda fast við úrskurð sinn. Síðan var Hannibal Valdimars son kjörinn forseti samhljóða. í>á var lýst framboðum til varaforseta og lýsti Óskar Hall- grímsson framboði Jóns Sigurðs að þar eð meirihluti hefði lýst sig samþykkan samstarfi á breið ari grundvelli, væri sanngirnis- mál, að minnihluti fengi vara- forseta. Eór nú kosning fram og hlaut Eðvarð Sigurðsson 189 atkvæði, en Jón Sigurðsson 155, þrír seðl- ar voru auðir og ógildir tveir, Tóku nú til máls Óskar Hall- grímsson og Pétur Sigurðsson og hörmuðu að þingið hefði hafnað því góða samstarfi, sem grundvöllur hefði virzt fyrir. Sagði óskar m.a.: „Ég fullyrði, að þessi úrslit þjóna ekki hags- munum íslenzkrar verkalýðs- hreyfingar, og á þessu þingi hvíl ir mi'kil ábyrgð, að hafa hafnað því“. Síðan lýstu þeir báðir yfir því að minnihlutinn á þinginu myndi ekki gera tillögu um fleiri framboð. Snorri Jónsson var því sjálf kjörinn ritari, en er kom að kosningu meðstjórnenda, stóð upp Jón Sigurðsson og lýsti því yfir að ekki hefði verið haft sam ráð við sig um framboð og mót- mælti hann því framboði á sér, enda myndi hann ekki taka þátt í störfum sambandsstjórnar. Hins vegar sagði Guðmundur H. Garðarsson, að hann harmaði, að þingið gæti ekki náð sam- stöðu um víðtækt samstarf, en forsenda þess hefði verið að þingið hefði ekki hafnað tillögu Hannibals. Hann sagðist mót- mæla uppástungu á sér, á þeirri forsendu að ekki hefði verið tal- að við sig áður, en hins vegar vildi hann ekki skorast undan þeirri skyldu að sitja í stjórn. Verið væri að reyna að halda á lofti lýðræði hér og yrðu menn því að breyta eftir því. f>á tók til máls Sverrir Her- mannsson og sagði hann Guð- mund ekki hafa stuðning Lands- sambands íslenzkra verzlunar- manna, en Magnús L. Sveinsson mótmælti því og sagði Sverri ekki hafa umboð til að gefa slíka yfirlýsingu. Voru síðan þeir sem stillt hafði verið upp kjörnir meðstjórnend- Eftirtaldir 4 menn vom kjörnir sem varamenn í miðstjórn: Hulda Ottesen, Pétur Kristjónsson, Jóna Guðjónsdóttir og Guðjón Jóns- son. í>á fór fram kjör tveggja aðal- manna og varamanna fyrir f jórð- unga og voru allir sjálfkjörnir. Björgvin Sighvatsson stóð þá upp og tók sömu afstöðu til kjörs síns og Jón Sigurðsson hafði áð- ur gert. Lýsti hann því yfir að ekki hefði verið haft samráð við sig og því myndi hann ekki taka oátt í störfum stjórnarinnar. Þessir voru kjörnir: Björgvin Sighvatsson og Karvel Pálmason fyrir Vestfirði og til vara Pétur Pétursson og Jón Magnússon. Fyrir Norðurland Björn Jóns- son og Valdimar Sigtryggsson og til vara Óskar Garibaldason og Sigurður Jóhannesson. Fyrir Austurland Alfreð Guðnason og Hrafn Sveinbjarnarson og til vara Davíð Vigfússon og Einar Hálfdánarson .Fyrir Suðurland Sigurður Stefánsson og Herdís Ólafsdóttir og til vara Björgvin Sigurðsson og Óskar Jónsson. Þinghaldi var frestað kl. 4 að- faranótt föstudags og mun það koma saman aftur eigi síðar en 15. nóvember 1967 og taka á- kvörðun um skipulagsmál sam- bandsins. Garðahieppui SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Garða- og Bessastaðaihrepps hefur spila- kvöld mánudaginn 28. þ. m. Spilað verður í sa-mkomuhús- inu á Garðaholti. Byrjað verður að spila stundrvíslega kl. 9. KEFLAVÍX Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn, heldur bazar í Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn 1. des. kl. 5. Margt ágætra muna. Allur ágóði rennur til góðgerðastarfsemi fyrir jólin. Fundur um skipuBagsmál í Hveragerði Sjálfstæðisfélagið Þorsteinn Ing- ól-fsson, Kjósarsýslu, heldur fund um skípulagsmál í Hlégarði, þriðjudaginn 29. þ.m. kl. 9 s.d. Zophonias Pálsson, skipulags- stjóri ríkisins og oddvitar hrepp anna mæta. — Allir héraðsbúar velkomnir meðan húsrúm leyfir. Hinn árlegi haustfagnaður fé- lagsins verður föstudaginn 2. des. í Hlégarði. Fjölbreytt skemmti- atriði sem verða nánar auglýst síðar. Fram I Hafnarfirði FUNDUR verður haldinn í fé- laginu n.k. mánudag 28. þ.m. — Á fundinum mun Ingölfur Jóns- son, samgöngumálaráðh. ræða stjórnmálaviðhorfið; ennfremur mun fara fram kjör fulltrúa í Fulltrúaráð Sj álfstæðisfélaganna. Fundurinn verður í Sjálfstæðis- húsinu og hefst kl. 8,30. Skorað er á Sjálfstæðisfólk að fjölmenna á fundinn. Kópavogur LÆGÐIN, sem sézt á kort- að hún færðist ANA. Ætti inu út af Snæfellsnesi var hún nú að vera komin norð- ekki sjáanleg á kortinu í austur fyrir land og vindur fyrradag. Hún myndaðist á hér vestlægur með kólnandi Grænlandi og fór jafnt og veðri. þétt vaxandi jafnframt því, NORRÆNA félagið í Kópavogi efnir til kynningarkvölds sunn-u- daginn 27. þ. m. kl. 20,30 í fé- lagsheimili Kópavogs (neðri saln um). Þar sýnir Sigurður Geirdal, fyrrverandi formaður Umf. Breiðabliks, sýna myndir og flytj-a ferðaspjall úr utanför þeirra félaga í sumar til Þránd- heims, vinabæjar Kópavogs. Tvö- faldur kvartett syngur og spiluð vedður félagsvist. Þess er vænzt að félagsmenn mæti stundvíslega. Þá er og tekið á móti nýjum félog-um og eru Kópavogsibúar velkomnir meðan húsr-úm leyfir. Johnson Bandaríkjaforseti var nýlega skorinn upp eins og kunn- ugt er af fréttum. Á meSan hann dvaldi á spítalanum átti hann þrjátíu og tveggja ára brúðkaups afmæli. Myndin sýnir hann skera afmælistertuna. Við hiið hans stendur frú Johnson, en fyrir aftan hann dóttir hans og tengdasonur Luci og Pat Nugent og varaforseti Bandaríkjanna Humphrey (til hægri). Hundafárið í rénun BLAÐHD hafði samband við Pál Agnar Pálsson yfirdýralækn í gær og spurðist fyrir um hunda fárið, sem geisað hefir bæði í Arnessýslu og Vestur-Skaftafells sýslu. Hann kvað það vera í rénum, Ópera IVIixa um Fjalla- Eyvind A ÞESSU hausti barst hingað ópera eftir Franz Mixa tónlistarmann í Munch- en en hann var sem kunnugt er um skeið búsettur hér á landi. Ópera þessi er byggð á skáldverki Jóhanns Sigur- jónssonar, Fjalla-Eyvindi. Er þétta að sögn mikiff verk og fullkomin ópera, hin fyrsta fullkomna ópera, sem samin er við íslenzkt skáldverk. Óperan er byggð að miklu Ieyti á íslenzkum þjóðlögum og fylgir leikritinu algerlega aff efni til með hinum drama tíska endi. Þjóðlögin eru und irtónn verksins, eins og Guð laugur Rósinkranz Þjóðleik- hússstjóri sagði í samtali við blaffið í gær, en verk þetta liggur nú hjá leikhúsinu og er þar til athugunar. Franz Mixa er væntanlegur hingaff til lands í janúarmánuði n.k. og þá munu koma til um- ræðu frekari afskipti af verki þessu og jafnframt hvort það verði tekiff til flutnings. Franz Mixa hefir undan- farin ár unniff mjög mikið að verki þessu. síðasta dæmið um sýkingu, sem hann vissi um, kom fyrir um það bil hálfum mánuði. Yfir- dýralæknir sagði að fárið myndi ganga yfir og því fyrr, sem bændur bættu betur hunda sinna. Hótelmálið á Akranesi Akranesi, 25. nóv. MIKILL áhugi ríkir hér á byggingu félagsheimilis og hó- tels. Starfandi nefnd í málinu hefir nú þegar sótt um bygg- ingarlóð á Langasandsbökkum, en þar er ein glæsilegasta bað- strönd á landinu sem hefir upp á marga kosti að bjóða við hótel rekstur. Almennur borgarafund ur um málið verður haldinn í bíóhöllinni á sunnudaginn þann 27. nóv. Þar verður málið skýrt og myndir og uppdrættir sýndir. H.J.Þ. Bozor og kaffi sola Hringsins NÚ er ár liðið síðan barnaspít- ali Hringsins tók til starfa í hinuim nýju húsakynnum sínúm. Eins og kunnugt er hafa Hrings- konur látið 10 milljónir króna renna til byggingar barnaspítal- ans og halda þær áfram fjár- söfnun sinni, meðal annars til styrktar barnaspítalanum og hjálpar sjúkum börnum. Nú þann 4. desember hafa Hringskonur ákveðið að efna til basars og kaffisölu á Hótel Borg og Almennum Trygging- um, og er ekki að efa að al- menningur muni styrkja þetta starf nú eins og áður. Ogæftir hjá togurunum HÉR í Reykjavík hafa þrír tog- arar landað í vikunni. Víkingur kom af Grænlandsmiðum með 210 tonn, mestmegnis karfa. Þá landaði Jón Þorláksson 60 tonn- um af blönduðum fiski af heima miðum og Egill Skallagrknsson tæpum 90 tonnum, einnig af blönduðum fiski, sem hann fékk á heimamiðum. Togararnir hafa flestir verið á miðum hér við land að undanförnu, en gæííir hafa verið mjög slæmar og hafa skipin ekki getað verið við veið- ar nema um helming þess t.ima, er þeim er ætlaður í hverja veiði för. Tveir togarar eru nú við Aust- firði að taka þar síld til viðbót- ar eigin fiskafla og flytja síðan til Þýzkalands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.