Morgunblaðið - 26.11.1966, Side 15

Morgunblaðið - 26.11.1966, Side 15
1 Laugardagur 26. nðv. 1966 MORG U N BLAÐIÐ 15 Oæsnarsks'á 63 rithoffirBfla eff ©pið bréf fII Sbele- Ecevs sýna aé þisaigf er s sevézk&im rifhöfundtiBH vegna démansia yfir PanleB og Sinyavsky LEIÐTOGARNIR í Kreml hafa verið varaðir við því af hópi sovézkra rithöfunda að réttarhöldin yfir rithöf- undunum Juli Daniel og Andrei Sinyavsky, sem fyrr á þessu ári voru dæmdir til þrælkunarvinnu fyrir að hafa gagnrýnt Sovétstjórn- ina, „sé gífurlega hættulegt fordæmi“. Jí bænarskrá, sem samin var í marzmánuði sl., og fyrir nokkrum dögum kom fyrir sjónir almenn- ings á Vesturlöndum, buðu 63 sovézkir rithöfundar, þeirra á meðal IIja Ehren- burg, sig fram sem trygg- ingu“ fyrir þá Daniel og Sinyavsky Enda þótt, að í bænarskránni sjálfri sé „trygging“ þessi ekki nán- ar skilgreind, er talið að með þessu sé átt við að þeir, sem undir skjalið skrifa, hafi haft í hyggju að tryggja framkomu rithöf- undanna tveggja. Bænarskráin var stíluð tii flokksþings kommúnistaflokks Sovétríkjanna, sem þá sat á fundi í Mosfevu, og ýmissa annarra háttsettra stofnana, en henni var gjörsamlega stung ið undir stól og enginn gaum- ur gefinn. Bænarskrá þessi, svo og ým- is skjöl önnur hafa borizt til V esturlanda ef tir leynilegum leiðum, en enginn vafi leikur á, að gögn þessi eru ófölsuð. Meðal skjalanna er opið bréf, sem bókmenntagagnrýnandinn Lidiya K. Chukovskaya skrif- aði til rithöfundarins Mikhail Sholokovs, þar sem hún ræðst harðlega að honum fyrir af- «töðu hans til málanna. Sholo- kov sagði í ræðu á 23. flokks- þingi Kommúnistaflokks Sovét ríkjanna, að dómurinn yfir Sinyavsky og Daniel hefði yerið of vægur. | Ungfrú Chukovskaya er dóttir Mikhail Sholokov — tekinn til bæna. rithöfundarins Kornei I. Chuk ovsky, sem nú er 84 ára gam- all, kunns barnabókahöfundur gagnrýnanda og þýðanda. Chukovsky er einn virtasti rithöfundur og gagnrýnandi Sovétríkjanna, og er nafn hans efst þeirra, sem rita undir bænarskrána. Sl. laugardag birtist bænar- skráin, svo og hið opna bréf ungfrú Chugovskaya í hinu virta stórblaði New York Tim es, og birtist hvorttveggja hér. New York Times getur þess, að bænarskráin, opna bréfið, svo og margvísleg skjöl önn- ur um mál rithöfundanna tveggja, verði bráðlega gefin út af bókaforlögunum Harper & Row í New York og Harvill Press í London. Bænarskráin Til forsætisnefndar 23. flokks þings Kommúnistaflokks Sov- étríkjanna. Til forsætisnefndar Æðsta ráðs Sovétríkj anna Til forsætisnefndar Æðsta ráðs rússneska Sovétlýðveldis- ins. Félagar: Við undirritaðir rithöfund- ar í Moskvu förum þess á leit, að okkur verði veitt heimld til þess að setja okkur sem trygg- ingu fyrir rithöfundana And- rei Sinyavsky og Juli Daniel, sem nýverið voru dæmdir. Við teljum, að slíkt mundi skyn- samlegt og mannúðlegt. Enda þótt við mælum ekki með þeim aðferðum, sem þess- ir rithöfundar beittu til þess að gefa verk sín út erlendis, getum við ekki fallist á af tilgangur þeirra hafi verið I. A. Akhmadulina skrifaði and-sovézkur, en slíkt hefði eitt get.að réttlætt svo þungan dóm. Ákæruvaldinu tókst ekki að sanna að slíkur hafi verið tilgangur þeirra. Jafnframt skapar fordæming rithöfunda fyrir að skrifa á- deilurit, ákaflega alvarlegt for dæmi og slíkt ógnar framför- um í sovézku menningarlífi. Hvorki lærdómur né list geta þrifist ef ekki er hægt að láta 1 ljós þverstæðar hugmyndir eða beita ýktum táknúm sem listbragði. Á þessum flóknu tímum þurfum við meira frelsi til listrænna tilrauna en alls ekki fordæmingu slíks. Séð frá þessum sjónarhóli hafa rétt arhöldin yfir Daniel og Siny- aVsky valdið meira tjóni en nokkur mistök, sem þeim kunna að hafa orðið á. Sinyavsky og Daniel eru hæfileikamenn og gefa ætti þeim kost á að bæta fyrir skort þeirra á pólitískri skyn- semi og háttvísi. Væru þeir látnir lausir gegn tryggingu okkar og yrðu áfram í sam- bandi við sovézkt þjóðfélag, myndu þeir þrátt gera sér grein fyrir mistökum sínum og bæta fyrir þau með bók- mennta- og hugmyndafræði- legu gildi ritverka þeirra, sem þeir myndu skapa. Við biðjum ykkur því að láta Andrei Sinyavsky og Juli Daniel lausa gegn tryggingu okkar. Slíkt mundi vera í þágu lands okkar í þágu heimsins og í þágu kommúnismans. Juli Daniel í fangabúðunum. Opna bréfið Til stjórnar Rostov-við-Don deildar Rithöfundasamtakanna. Til stjórnar rithöfundasam- taka Rússneska Sovétlýðveldis ins. Til ritstjóra Pravda. Til ritstjóra Literaturnaya Gazeta. Til ritstjóra Literaturnaya Rossiya. Til ritstjóra Molot. (dag- blaðs). Til Mikhail Sholkovs, höfund ar „Lygn streymir Don.“ Þegar þú, Mikhail Alexand rovich, talaðir á 23. flokks- þinginu steigst þú ekki í ræðu stólinn sem einstaklingur held ur sem „talsmaður sovézkra bókmennta. Þess vegna getur sérhver rit höfundur, þar á meðal ég, fellt Ilya Ehrenburg — skrifaði dóm um það, sem þú segir í nafni allra okkar. Ræða þín á þinginu getur vissulega kall- ast „söguleg". f allri sögu rúss neskrar menningar er mér ekki kunnugt um dæmi þess, að rithöfundur hafi opinber- lega harmað, líkt og þú hefur gert, að dómur væri of mildur fremur en að hann væri of Andrei Sinyavsky og Juli Daniel í réttarsalnum, harður. með meðferð málsins í réttar- Og þér var ekki nóg að vera Daniel og Sinyavsky. Þér fund óánægður með dóminn — held ust þau of smásmuguleg, o£ ur varstu einnig óánægður Framhald á bls. 16 Þau skrifuðu undir HÉR fer á eftir listi yfir nöfn þeirra 63 rithöfunda í Moskvu, sem rituðu undir hænarskrána, þar sem farið er fram á að Daniel og Sinyavsky verði látnir laus ir. Nöfnin eru í þeirri röð, sem var á bænarskránni. Fyrstir koma sjö mjög kunnir rithöfundar, síðan hinir eftir rússneskri staf rófsröð. Á upprunalega listanum eru aðeins upp- hafstafir og síðasta nafns hvers rithöfundar, en skírn arnafninu hefur verið bætt við víðast hér, ef vitað var með fullri vissu um við- komandi rithöfund. Kornei I. Chukovsky, rit- höfundur og þýðandi. Ilya G. Ehrenburg, rithöf. Viktor B. Shklivsky, rit- höf. og gagnrýnandi Pavel G. Antoklsky, skáld og þýðandi. Lev I. Slavin, rithöfundur. Veniamin A. Kaverin, rit- höfundur. Yefin Y. Dorosh, rithöf. Arkadi N. Anastasyev, leik ritagagnrýnandi. Alexander A. Anikst, bó(k- menntafræðingur. L.A. Anninsky. I. A. (Bella) Akhmadulina skáldlkona. Serra E. Babenysheva, gagnrýnandi. Valentin D. Berestov, skáld. Pyotr G. Bogatyrev, gagnrýnandi. Zoya B. Boguslavskaya, gagnrýnandi. Yuri B. Borev, gagnrýn- andi. Vladimir N. Voinovieh, rithöf. og skáld. Yuri O. Dombrovsky, rithöfundur. Anatoli V. Zhigulin, skáld. Avraam G. Zak, leikrita- Skáld. L. A. Zania. Leonid G. Zorin, leikrita- skáld. N. M. Zorkaa. Tamara V. Ivanova, þýð- andi. Kamill A. Ikramov, rit- höfundur. Lyubov R. Kabo, rithöf. T. I. Kim. Lev Z. Kopelev, gagnrýn- andi og þýðandi. V. N. Kornilov. Ilya N. Krupnik, rithöf. Isai K. Kuznetsoiv, leik- ritaskáld. Yuri D. Levitansky, skáld. L. A. Levitsky. L. Z. Lungina. Semyon L. Lungin, leik- ritaskáld. S. P. Markish. Vladimir Z. Mass, leikrita höfundur og skáld. Oleg N. Mikhailov, gagn- rýnandi. Yunna P. Moritz, skáld. Yuri M. Nagibin, rithöf. Ilya I. Nusinov, leikrita- skáld. Vladimir F. Ognev, gagn- rýnandi. Bulat S. Okudzhava, sfcáld og rithöfundur. Raisa D. Oriova, gagnrýn- andi. Lev S. Ospovat, gagn- rýnandi. Nikolai V. Panchenko, skáld. Mark' A. Popovsky, rithöf. D. Y. Pinsky. Stanislav B. Rassadin, gagnrýnandi. Nadezhda V. Reformat- skaya, bókmenntafræð- ingur. Vladimir M. Rossels, þýðandi. David S. Samilov, skáld og þýðandi. Benedikt M. Sarnov, gagn rýnandi. Feliks G. Svetov, gagn- rýnandi. A. Y. Sergeyev. R. S. Sef. Inna N. Solovyeva, gagn- rýnandi. Arseni A. Tarkovsky, skáld og þýðandi. Andrei M. Turkov, gagn- rýnandi. Lidiya N. Tynyaneva, rit- höfundur. Radi G. Fish, gagn- rýnandi og þýðandi. Lidiya K. Chukovskaya, gagnrýnandi. Mikhail F. Shatrov, leik- ritaskáld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.