Morgunblaðið - 26.11.1966, Síða 27

Morgunblaðið - 26.11.1966, Síða 27
Laugardagar 26. nóv. 1966 MORGU NBLAÐIÐ 27 vilS i' yfir Norður-Atlantshaf Vill fá samþykki IATA fyrir I0-l7°/o fækkun Osló, 25. nóv. NTB. TILKYNNT var af hálfu SAS- flug-félag-sins í dag, að félagið muni vinna að því að fá IATA til þess að samþykkja, að far- g-jald á flugleiðum yfir Norður- Atlantshaf verði ákveðið eftir hinni raunverulegu lengd flug- leiðarinnar. Verði þetta sam- þykkt mun það hafa í för með sér, að núverandi fargjald fé- lagsins milli Skandinavíu og Norður-Ameríku lækkar frá 10—17%. Frá þessu var skýrt með til- liti tU fréttar þeirrar, sem áður hefur verið skýrt frá, að flujg- félagið Pan American ætlar frá og með 1. janúar næstkomandi að taka upp afsláttarfargjöld fyr- ir minnst 10 manna hópa, sem ferðast yfir Atlantshaf á „inclusi Vín, 25. nóv. (AP—NTB). ENN hafa aðeins óljósar fregn- ir borizt af flugslysinu í Tékkó- slóvakíu í gær, þegar Ilyushin- 18 farþegarflugvél frá búlgarska flugfélaginu TABSO steyptist til jarðar skammt frá Bratislava. Talið er að 76 farþegar og átta xnannaáhöfn hafi farizt með vél- inni. Samkvæmt upplýsingum flugturnsins í Bratislava virðist flugstjóri vélarinnar ekki hafa heyrt aðvörun um að vélin væri í rangri hæð og stefnu skömmu áður en slysið varð. Flugvélin var á leið frá Sofíu, Fullveldishátíð að Ferstikiu Akranesi, 25. nóv. STÚDENTAFÉLAG Akraness hefir ákveðið að halda hina ár- legu fullveldishátíð sína að Fer- Btiklu á Hvalfjarðarströnd mið- vikudaginn 30. nóv., þar sem Hótel Akraness er enn lokað Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 7.30. Þar mun séra Þorgrím- ur Sigurðsson prófastur á Staðar stað flytja ávarp, Sigurveig Hjaltested óperusöngkona syng- ur með undirleik Skúla Hall- dórssonar tónskálds. Einnig verða gluntasöngvar og rökkur- sögur og síðan dansað með und- irleik Skafta Ólafssonar og Jó- hannesar Péturssonar. Akranes- apótek sér um aðgöngumiðasölu á mánudag og þriðjudag, en Þ. Þ.Þ. annast fólksflutninga að og frá skemmtistað. H.J.Þ. EINS og áður hefur verið sagt frá í fréttum, var i maí sl. gerð fyrsta tilraun til flutninga á ósekkjuðu korni til landsins, þegar m/s „Brúarfoss“ kom frá Philadelphia í Bandaríkjunum með farm af korm, sem flutt var laust í lest skipsins. Nú hafa þrír slíkir kornfarm- ar verið fluttir til landsins af skipum Eimskipafélagsins, allir frá Bandaríkjunum, samtals 1025 tonn og fjórði farmurinn nýlega 500 tonn er væntanlegur til landsins í desember. Má því segja að nokkur reynsla sé þeg- ar fengin í þessum flutningum. ve tours“ frá 14 og upp í 21 dag. Það verður 23% lægra verð en það, sem nú er í gildi hjá Pan Am. 1 tilkynningu SAS er bent á það, að félagið hafi á ráðstefnu IATA á Honululu fyrir skömmu lagt fram tillögur um, að fyrir öll fargjöld á flugleiðum yfir Norður-Atlantshaf ættu að til grundvallar þá leið, sem farin hefði verið, en afleiðing þess yrði veruleg lækkun á fargjöld- um á þeim flugleiðum, er flogið væri í stórum boga frá Norður- Ameríku til Skandinavíu. í tilkynningunni segir, „að SAS taki því mjög jákvæða af- stöðu til uppástungunnar um lækkuð fargjöld fyrir leyfishópa og lýsir ánægju sinni yfir, að tillagan er í samræmi við þau höfuðborg Búlgaríu, til Austur- Berlínar, og átti að koma við í Búdapest og Prag. Slæmt flug- veður var á leiðinni, og varð vélin af þeim sökum að lenda í Bratislava. Þegar svo rofaði til átti vélin að halda áfram flug- inu, en fórst stuttu eftir flugtak í fjalllendi skammt frá Brati- slava. Rannsóknarnefnd var þegar send á vettvang, en átti erfitt um vik, ekki eingöngu vegna snjókomu, heldur einnig geisla- virkni á slysstaðnum, sem stafar frá ísótópum, er flugvélin flutti. Allstórt svæði umhverfis slys- staðinn er afgirt meðan sérstak- ar björgunarsveitir reyna að draga úr geislavirkninni. Erfitt er að afla frétta af flugslysinu, því fréttamönnum er meinaður aðgangur að öllum uppiýsingum. Hafa flugmálayfir- völd viðkomandi landa neitað að gefa nokkrar upplýsingar. Þó er vitað að meðal farþega var sendi herra Búigaríu í Austur Berlín, Ivan Batschvarov, og hafa yfir- völdin þar í borg sent stjórn- inni í Sofíu samúðarskeyti. Meðal farþeganna var einnig franskur maður, Jean-Maurice Hermann, sem er formaður þeirra alþjóðasamtaka blaða- manna, sem kommúnistar ráða. Hann var einn þeirra fáu, sem vitað er að hafi komizt lífs af, og stendur þannig á því að hann fór úr vélinni í Bratislava, þegar hún kom þar óvænt við vegna veðurs, og ákvað að fara með járnbráutarlest til Prag. Af öðrurn farþegum, sem með Innflytjendur hafa hingað til ekki haft aðstæður til þess að taka á móti nema um 3OO-5C0 tonnum í einu, og losun hefur farið fram til þessa með krönum (crab), en með vaxandi innflutn ingi verður vörunni dælt upp úr skipunum. Til fróðleiks má geta þess, að skip á stærð við m/s „Reykjafoss" getur iestað allt að 3200 tonnum af lausu korrn í einni ferð. Sú reynsla, sem Eimskipa- félagið hefur fengið af þessum flutningum lofar góðu um fram tíðina. grundvallarsjónarmið, sem felast í tillögu SAS“. SAS telur hinsvegar, að sú lækfcun fargjalda, sem verður afleiðing þess, að þau verða mið uð við hina raunverulegu vega- lengd eigi ekki einungis að ná til leyfishópa ,heldur til annarra farþega einnig. Til þess að mis- muna farþegum ekki, hvernig svo sem ferðalagi þeirra er farið, þá mun SAS vinna að því að hið nýja sjónarmið verði sam- þykkt, er fargjöld flugfélaga inn an IATA verða ákveðin. Á ráðstefnunni í Honululu náð ist samkomulag um fargjaldið fyrir sumar vegalengdir, en frest að var að taka ákvarðanir um fargjald á flugleiðum yfir Norður Atlantshaf og verða þau mál rædd á ráðstefnu IATA, sem halda á í Róm í byrjun des. vélinni voru, fórust fjórir af er- lendum fréttariturum kommún- ista-tímaritsins „Vandamál frið- ar og sósíalisma“, sem gefið er út í Prag. Voru þeir frá Japan, Brasilíu, Argentínu og Hond- uras. Einnig fórust búlgarska óperusöngkonan N. Popova og Jenos Benedek, framkvæmda- stjóri ungverska lögfræðinga- sambandsins. Kunnugt er um einn mann, sem varð sjónarvottur að slys- inu, og kom hann á slysstaðinn skömmu eftir að flugvélin steypt ist þar niður. Segir hann svo frá að honum hafi strax verið ljóst að hann gæti enga aðstoð veitt, því limlest líkin hafi legið þar á víð og dreif. Seint í kvöld skýrðu starfs- menn við flugturninn í Brati- slava fréttamönnum frá því að sennilega hafi slysið að ein- hverju leyti orðið af mistökum. Rannsókn hefur leitt í ljós að skömmu eftir flugtak urðu starfsmenn flugturnsins veirir við að vélin var hvorki í réttri hæð né stefnu. Tilkynnti flugturninn flugstjóranum þetta, en hann sinnti þeim upplýsingum ekki, ef hann þá hefur heyrt þær. Meimtimarþarfir fiskiðnaðarins í DAG kl. 2 efnir rannsóknar- og upplýsingastofnun ungra Sjálfstæðismanna til fundar um menntunarþarfir fiskiðnaðarins. Er þessi fundur liður í athugun stofnunarinnar á menntunarþörf um atvinnuveganna með tillUi til þeirra breytinga á fræðslu- kerfinu, sem menn eru nú al- mennt sammála um að gera þurfi í þjóðfélagi í framþróun. Tilhugun fundarins er sú, að hringborðsumræður fara fram og taka þátt í þeim ýmsir for- ystumenn í fiskiðnaði ásamt ein um skólamanni. Umræðustjóri er Jóhannes Einarsson, verlr- fræðingur. Allir áhugamenn um fræðslu- mál og fiskiðnað eru velkon\nir á fundinn til að hlýða á hring- borðsumræðurnar og mun gef- ast tækifæri til að bera fram fyrirspurnir til umræðuhópsins. Vegahs’éfsáriiun afjinanin í Jngó- sSaviu 1967 Belgrad, 25. nóv. — NTB ÞJÓÐÞINGIÐ í Júgóslavíu sam- þykkti í dag lög, þar sem kraf- an um vegabréfsáritun verður afnumin á hinu „alþjóðlega ferðamannaári 1967“. Ráðherra sá, sem fer með ferðamál, Joze Brilej, skýrði frá því í þinginu, að ráðstöfun þessi myndi ná til allra ríkja án tillits til þess hvort þau veittu gagnkvæm fríð indi á þessu sviði eða hvort Júgóslavía hefði stjórnmálasam- band við þau eða ekki. Samkvæmt upplýsingum ráð- herrans vonast Júgóslavar til þess að hið alþjóðlega ferða- mannaár 1967 ihafi í för mieð sér um 200 millj. dollara hagnað fyr- ir iþá og um 400 millj. dollara árið 1970. Á næsta ári er gert ráð fyrir, að um 14 millj. út- lendinga komi til Júgóslavíu, en árið 1957 voru þeir 700.000. — Samkv. hinum nýju lögum eiga útlendingar að fá rétt til þess áð koma til landsins eftir 1. jan. 1967 samkv. venjúlegu vegabrétfi og fá að dvelja þannig í land- inu í þrjá mánuði. — Sæúlfur Framhald af bls. 28 Er skipið kastaðist á hliðina hjá okkur sendum við út neyð- arkall og var þá Vonin rétt hjá okkur, einnig mörg önnur skip skammt undan. Fórum við skipsmenn í gúmmbátana og komumst fljótt um borð í Von- ina. Ársæll skipstjóri biður um sérstakt þakklæti fyrir góðar móttökur þar um borð. Við nánari eftirgrennslan um slysið sagði Ársæll að skipið hefði kastast í stjór. Enginn um um borð hefði náð neinu mark- verðu af eignum sínum og sum- ir yfirgefið skipið á sokkaleist- unum einum. Þá gat Ársæll skipstjóri þess, að afli sá, er skipið var með hefði fengizt í 4 köstum og hefðu þau verið tekin frá því kl. 6 í fyrrakvöld og þar til kl. 8 í gær- morgun. Loks gat hann þess að skips- menn hefðu misst fyrsta björgun arbátinn, og hefði línan slitnað, en þeir farið í næstu tvo báta. Við náðum í gær í skipstjór- ann á Voninni, Gunnlaug Karls- son úr Keflavík. Hann sagði að þeir hefðu ver- ið á landleið með síld, 120 tonn og hefðu þeir ætlað til Fáskrúðs- fjarðar, sem væri hálfgerð heima höfn þeirra fyrir austan. Sigldu þeir fyrst upp undir land og ætluðu síðan suður með. Voru þeir því rétt hjá Sæúlfi er slys- ið bar að. Gunnlaugur sagði: Það er mikil ánægja að fá að bjarga félögum sínum svona. Það er oft að skaparinn gefur okkur góðan afla, en aldrei hef ég lent í því að fá tvo fulla skipsbáta af góðum félögum! Við spurðum Gunnlaug hvern ig það 'hefði verið hjá honum að sjá er Sæúlfur sökk. — Við sáum hann síga niður að af tan og hverfa í ölduna, hall andi á stjórnborða. — Buðu ungum Framhald af bls. 28 menn aðeins ökuskírteini til reynslu í eitt ár, en eftir árið er kannaður ökumannsferill við- komandi ökumanns, og ef hann reynist hafa brotið alvarlega af sér, verður hann að undirgang- ast athugun áður en hann fær ökuskírteini sitt framlengt. Lögreglan telur nauðsyn, að vekja athygli ungra ökumanna á þessu og ðkki síður þykir lög- reglunni vœnt um, að fá tæki- færi til að kynnast unga fólk- inu í umferðinni og ræða við þáð, án þess að vera með um- vandanir eða refsivönd á lofti.“ - Handritin Framhald af bls. 1 Poul Andersen grein sinni með yfirlýsingu um að hann sé per- sónulega andvígur afhendingu handritanna. Chr. Wéstergaard Nielsen, for- maður Árnasafnsnefndar, hefur lýst því yfir í sjónvarpsviðtali að meta megi verðmæti handritanna á einn milljarð danskra króna. í Berlingske Aftenavis ritar Niels Alkjær,' safnvörður við Konunglegu bókhlöðuna, um það til hvers mætti nota þá skaða- bótaupphæð. Bendir hann á að átta dómarar í Hæstarétti hafi slegið því föstu að ekki hafi í málflutningi komið fram ástæða til að ætla að stofnunin biði það tjón, sem unnt væri að byggja skaðabótakröfuna á. En gæti sú ástæða komið í ljós við ný mála- ferli, spyr hann. Má þrátt fyrir allt segja að tjónið hafi metanlegt gildi, til dæmis með hliðsjón af bóta- kröfu setm stofnunin gæti lagt fram í ’ þeim tilgangi að endur- heimta það, sem tapað er. Alkjær bendir á að tilgangur • Árnastofnunarinnar sé ekki að- eins könnun íslenzkri tungu og menningu, heldur rannsókn á norrænni menningarsögu. Nafn Árnastofnunarinnar er: Dánar- gjöf Árna Magnússonar til stuðn ings rannsóknum á forn-norræn um bókmenntum, tungu og sögu. Með tilliti til þess telur Alkjær að unnt ætti að vera að útvega handrit, ekki eingöngu frá Norð urlöndum, heldur einnig frá öðrum Evrópulöndum, í stað ís- lenzku handritanna, ef þau að- eins fjalla um norrænt efni. í stofnskránni er rætt um kaup á, og afnot af norrænum eða er- lendum bókum. Þessvegna er í rauninni unnt að bæta upp missi handritanna íslenzku og þar með meta þau til að grundvallar á skaðabótakröfu, segir Alkjær að lokum. Blaðið Politiken ræðir þá ákvörðun Árnasafnsnefndar að bera fram skaðabótakröfu, og segir að með kröfunni rýri nefnd in álit sitt, þar sem hæstiréttur hafi tekið fram að engin von væri um að krafan bæri árang- ur. Segir blaðið í lok greinar- innar. „Við vorkennum nefnd- inni, sem frekar ætti að beita sér fyrir því að stofnaður væri dansk-íslenzkur sjóður til stuðnings nauðsynlegra rann- sókna í Kaupmannahöfn og Reykjavík." — Jórdania Framhald af bls. 1 í ríkisstjórninni nema tveir tek- ið þá ákvörðun að segja af sér í morgun. Bar „Miðaustur“- fréttastofan fyrir sig heimildir, sem eru í nánum tengslum við hreyfingu þá í Kairo, sem berst fyrir „frelsun“ Palestinu. Sýrland hefur hafið mikla á- róðursherferð gegn Jórdaníu fyrir að halda aftur af fólki í því að snúast gegn ísraelsmönn- um og framangreind hreyfing, sem berst fyrir frelsun Pale- stínu hefur krafizt þess, að her- sveitir hennar fái heimild til þess að starfa í Jórdaníu og hefur hvatt til frekari leyniár- ása skæruliða inn í ísrael. ísraelsmenn víttir af öryggis- ráðinu. Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna vítti í dag ísraelsmenn fyrir hernaðaraðgerðir þeirra gegn Jórdaníu 13. nóv. s.l. í samþykkt ráðsins eru ennfremur ísraesl- menn varaðir við því, að ráðið muni íhuga refsiaðgerðir, ef árásir af þessu tagi verði endur- teknar. Taipei, 25. nóv. — AP. ÞING kínverskra þjóðernissinna á Formósu hefur samþykkt álykt un, þar sem skorað er á ríkis- stjórnina að berjast eindregið gegn því, að tvö kínversk ríki fái að eiga fulltrúa hjá Sam- einuðu þjóðunum. Ollu mistök flugslysinu? Flugstjórinn sinnti ekki aðvörun um ranga hæð og stefnu Eimskipofélagið hefnr flutt 3 ósekkjoða kornfarma til íslands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.