Morgunblaðið - 22.12.1966, Side 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 22. des. 1966
Þorsteinn
Þorsteinn Gíslason: Skáld-
skapur og stjórnmál, 313 bls.
Guðmundur G. Hagalín tók
saman til minningar um ald-
arafmæli höfundar. Almenna
bókafélagið, desember 1966.
í’OftSTBINN Gíslason var án
nokkurs vafa einn af svip-
mestu mönnum sinnar samtíð-
ar og brá stórum svip yfir ís-
lenzkt menningarlíf á fyrsta
fjórðungi þessarar aldar. I>að er
því fagnaðarefni að Almenna
bókafglagið skyldi finna hjá sér
hrvöt að minnast þessa merka
manns á veglegan hátt, nú þeg-
ar liðin eru hundrað ár frá faeð-
ingu hans. >ví er ekki að leyna,
að minningarrit geta verið dá-
lítið tvíeggjuð fyrirhæri. Oft
vill svo verða, að slík rit nái ekki
eyrum þeirrar kynslóðar, er bók-
in er ætluð, og verða þá einungis
dauft og harla hljómlítið berg-
mál horfinnar tiðar. Höfundur-
inn á þá blátt áfram ekki lengur
erindi fram í dagsljós hins nýja
táma.
Hið sama gildir vitaskuld um
einstaka þætti á ritíhöfundar-
ferli horfinna rithöfunda. I>að
er afar sjaldgæft að heildarút-
giáfa á verkum slíkra manna sé
réttlætanleg frá sjónarmiði hins
almenna lesanda. Nægir í' því
sambandi að minna á Matthías
Jochumsson, sem án efa hefur
tapað á þvi að vera getfin aftur
eg aftur út í heildarútgáfum.
Þetta táknar, að á herðum út-
gefandans hvílir þung skylda.
Hans er að velja og velja rétt,
og það er mikið vandaverk.
IÞegar val Guðmundar Haga-
líns á verkum Þorsteins Gísla-
sonar er athugað, verður ekki
annað séð en hann geri sér þetta
Gíslason
vandamál Ijóst, enda gerir hann
góða grein fyrir erfiðleikunum
í formála. En ekki get ég verið
honum sammiála í öllum grein-
um, enda það svo að sibt sýnist
ihverjum. Einsýnt var að birta
Þætti úr stjórnmálasögu íslands
árin 1896-1918 í heild sinni. >að
hefði blátt áfram verið óvinn-
andi vegur að velja hluta úr
þeim til birtingar og óverjandi
með öllu, svo merk sem þessi
stjórnmálasaga er. Satt að segja
eigum við ekki ýkjamargt á
prenti um stjórnmálasögu lands-
ins á hinum örlagarfku tveim
fyrstu tugum aldarinnar, og enn
færra af því er merkilegt. >ví
er mikill fengur að endurútgáfu
þessa rits. Hinu er ekki að leyna,
að það hefði að sumu leyti verið
ákjósanlegra að gefa stjórnmála-
þættina út sérstaklega, og mér
dettur þá í hug vetbvangur eins
og smábækur Menningarsjóðs.
Og raunar má segja, að aldar-
afmælis >orsteins Gíslasonar
hefði verið vel minnzt með slíkri
útgáfu einni saman. En útgáfu-
félagið hefur viljað bregða upp
alhliða mynd af ritverkum
Þorsteins Gíslasonar í þessu
minningarriti, og er það bæði
skiljanlegt og virðingarvert. En
stjórnmálaþættirnir eru þunga-
miðja þessarar bókar, og þeir
bera höfundi sínum verðugt
vitni. >etta yfirlit stjórnmála
sögunnar einkennist af yfirsýn
og kunnugleika, sem þó verður
höfundi aldrei átylla til að
sökkva sér niður í smáatriði.
Hann tapar aldrei þræðinum,
heldur rekur hina raunverulegu
abburðarás af undraverðu ör-
yggi út úr flækju flókinna
deilna og flokkadrátta. Og líkt
og Sturlu >órðarsyni forum
tekst >orsteini að greina hleypi-
dómalaust og sannferðuglega
frá viðburðum, sem hann hefur
sjálfur átti hlut í að skapa og
leysa. Hygg ég að erfibt verði að
núa honum um nasir að hafa
dregið um of hlut eins á kostnað
annars. >að er skaði, að >or-
steinn Gíslason skyldi ekki rita
meira um íslenzk stjórnmál á
þennan hátt, auk blaðagreina
sinna.
>á er einnig fróðlegt að kynn-
ast hluta skáldsögunnar Tíma-
mót, og segir útgefandi réttilega,
að kaflinn Fólkið í Selkoti
bregði upp „forvitnilegri mynd
úr lífinu í Reykjavik á mörkum
gamals og nýs tíma“. Kaflinn er
ritaður á vönduðu máli, sem
virðist einkenna öll rit hans,
lýsingar í anda raunsæisstefn-
unnar, traustar og heillegar. Og
þótt ekki verði sagt um þennan
bókarkafla, að hann sé neitt
stórbrotið listaverk, er auðséð að
það er enginn viðvaningur, sem
heldur á pennanum. Enn sem
fyrr er það hófsemi og samúð
sem ólíkum sjónarmiðum, sem
setja svip sinn á verkið.
Sömu sögu er að segja um
þáttinn Skáldaminni, 5 greirtar
um jafrnmörg skáld, Sigurð
Breiðfjörð, Grím Thomsen,
Pál Ólafsson og Matthícis Joch-
umsson. Allir þættirnir markast
af því, hversu góða hæfileika
höfundurinn hefur til að birta
heildarmynd, en að vísu fjallar
hann fremur um æviatriði skáld-
anna en sjálfan skáldskapinn,
þótt að sjálfsögðu sé einnig tölu-
vert að honum vikið. >að er hins
vegar galli á verki útgefandans,
að ekki skuli sjást, hvaðan hver
þáttur er tekinn né hvenær
þeir eru skrifaðir. Slíkt á að
telja til sjálfsagðra vinnubragða.
Þennan galla er einnig að finna
í útgáfu Ijóðannaj þau eru
hvergi merkt. Raunar þykja
mér ljóðin sízt af því, sem í
þessari bók stendur. Með því er
ég engan hátt að segja, að ljóð
>orsteins Gíslasonar séu ómerki-
leg. >au hafa á sínum tíma án
efa verið mjög svo framíbærileg-
ur skáldskapur, þótt Þorsteinn
hafi vissulega ekki staðið í fylk-
ingarbrjósti sem ljóðskáld. Hins
vegar eiga þau að minni hyggju
minna erindi til nútímamanna
en aðrir hlutdr bókarinnar.
Ljóðagerð hefur tekið svo mikl-
um stakkaskiptum á þessari öld,
ljóðasmekkurinn hefur breytzt
mjög og að mínu viti til batn-
aðar. Þar að auki þykir mér
meira koma til Þorsteins Gísla-
sonar sem ljóðaþýðanda en
ljóðskálds.
Ég er þess vegna ekki sam-
mála Guðmundi Hagalín, þegar
hann segir í formála að einsýnt
hafi verið, „að ganga fram hjá
skrifunum um dægurmálin“, af
því að stjórnmálaþættirnir tóku
svo mikið rúm í bókinni. Ég geri
mér ljósa þá erfiðleika, sem því
eru samfara að reyna að gefa
rétta heildarmynd af ritstörfum
svo afkastamikils höfundar í
einu bindi. En ég hefði persónu-
lega kosið að sleppa hluta ljóð-
anna og taka meira af blaðagrein
um. >ví má ekki gleyma, að >or-
steinn Gíslason var kannski
fyrst og fremst blaðamaður og
ritstjóri og þess gætir of lítið í
þessari bók. Hann var ritstjóri
hvorki meira né minna en sex
blaða um ævina: Sunnanfara,
íslands, Bjarka, Óðins, Lögréttu
og Morgunblaðsins. >að er því
harla lítið að birta í minningar-
ritinu aðeins fiimm blaðagreinar,
auk skáldaþáttanna. Ekki hvað
sízt vegna þess að Þorsteinn var
óvenju ritfimur blaðamaður, og
gætu núverandi blaðamenn mik-
ið af honum lært, ekki hvað sízt
hvað viðkemur meðferð tung-
unnar. >ar kemur einnig skap-
hiti hans fram og baráttuvilji, en
hvors tveggja sakna ég í þess-
ari bók. >að er bara í greininni
um íslenzkar bókmenntir við
báskólann í Kaupmanna,
sem lesandinn finnur hina ólg-
andi glóð sem inni fyrir býr.
Enda er þetta snilldar vel sam-
in grein.
Guðmundur Gislason Hagalin
ritar einnig skýra og greinargóða
yfirlitsgrein um ævi Þorsteins
Gíslasonar og störtf, og er það
nauðsynlegur þáttur fyrir hina
yngri kynslóð er gengur í fyrsia
sinn á vit hans. Sú kynslóð hef-
ur með þessari bók fengið kær-
komið tækifæri til að kynnast
einhverjum áhrifamesta menn-
ingarfrömuði þjóðarinnar á
fyrri hluta þessarar aldar, manni
sem barðizt fyrir íslenzkum há-
skóla, alþýðutryggingum, al-
mennri skólaskyldu, þróun ís-
lenzkrar leiklistar. Eru störf hans
í þágu þessara mála ómetanleg.
Nokkur formgalli er á bók-
inni, að vanta skuli nafnaskrá, en
annars er hún smekklega og vel
úr garði gerð af hálfu Almenna
bókafélagsins.
Gautaborg, 18. des. 1966
Njörður P. Njarðvík.
samþyikktar atf rafmagns-
eftirlitinu.
Raíiðjan
Sími 19294. A horni Garða-
strætis og Vesturgötu.
VERZLAMIRIMAR I
DOMIJS MEDICA
) m á íslenzkum markaði
Nýkomið í miklu úrvali:
Weleda blóma- og jurtasnyrti-
vörur fyrir konuna, fyrir barnið.
BE - PO barnarólan
og
BAÐBORÐIN eftirspurðu.
MÆÐR ABÚÐIN
Sími 12505.
Blómaverzlunin Eden hf.
Sími 23390.
Kertaskreytingar, Hyasinthu-
skreytingar, skreyttar grenigreinar,
krossar og kransar. — Pantið tíman-
lega, við sendum um allan bæ. —
Einnig úrval af allskonar gjafa-
vörum að ógleymdum stóru strá-
unum á lága verðinu.
EGILSGOTIJ 3
BERKEMANN
töfflurnar eru góð
jólagjöf.
Þýzku kvenskórnir
frá Hassía og karl-
mannaskórnir frá
Manz eru örugg
gæðavara. Þessar
tegundir fást í:
Skóverzlun
STEINARS
WAAGE
Sími 18519.
Rafbúð
raftækja- og sjónvarpsverzlun.
Seljum eingöngu vörur frá viður- :
kenndum firmum. :
Látið fagmenn aðstoða yður við valið.:
Rafhúð Sími 18022.
WL'
m
TIL JÓLANNA:
Vinsælu ávaxta Grawenstein vínin
eru komin, einnig eplamost og fleiri
ávaxtasafar.
Nýjar konfektrúsínur, nýjar hnetur,
nýjir ávextir, nýtt grænmeti, kerti
og spU.
Sími 12614.
Strætisvagnaleið nr. 1 stanzar við húsið. Aðeins 5
mínútna gangur frá Miklatorgi, þar sem margar
leiðir mætast.
Ef tíminn er naumur, þá forðizt þrengslin
í Miðbænum.
ÁVALLT NÆC BIFREIÐASTÆÐI