Morgunblaðið - 13.01.1967, Síða 1
54. árg. — 10. tbl.
FÖSTUDAGUR 13. JANUAR 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þessi börn sitja á akri kínversks samyrkjubús í grennd við Canton. Verið er að fræða þau um
ýmis atriði varðandi hemað. Um 11.000 böm og unglingar á aldrinum 10-19 ára ganga í þennan
herskóla. Myndina tók japanskur ljósmyndari í nóv. sl. (AP-símamynd.)
S-Vietnam,
Þorp jofnuð við jorðu
i JárnþríhyrningnunV
An Dien, 12. janúar, NTB.
ÁFOBMAÐ er að brenna og
jafna við jörðu öll þorp á 155
ferkílómetra svæði norðvestan
Saigon, á „jámþríhyrningnum“
svokallaða, sem skæruliðar Ciet
Cong eru sagðir hafa ráðið
lögum og lofum í tvo tugi ára eða
því sem næst.
Var dreift flugmiðum um
helgina að vara íbúana við, er
síðan hafa þeir verið fluttir brott
smám saman í flóttamannabúðir
til bráðabirgða en bandarískir
hermenn ag tæknisérfræðingar,
vel búnir vopnum og með ýmis
þungavinnutæki meðferðis,
leggja til atlögu við þorp þeirra.
Litlum vandkvæðum er bund-
ið að brenna þorpin því flest eru
húsin gerð úr trjávið og stráum,
en neðanjarðar eru loftvarnar-
byrgi, forðageymslur og ranghal-
ar í ýmsar áttir og á að eyði
leggja allt það.
íbúar þorpanna, sem eru að
meirihluta konur er eiga menn
sína í her S-Vietnam, tóku tíð-
indunum af stillingu en mörg. r
var sárt um að yfirgefa heim-
kynni sín og vita lítt sem ekki
hvað við tæki. „Mér er ekki
meir en svo um að fara héðan
með bömin án þess að hafa
hugmynd um hvort þar er mat að
hafa handa öllum“ sagði kona
ein í þorpinu An Dien er hún
horfði á hermennina leggja eld í
Framhald á bls. 27.
Mao Tse-tung enn traustur í sessi
Engir fjöldafundir i Peking i gær - Fyrrv. borgarstjóri i
Peking myrtur - ,Menningarbyltingarnefnd hersins' komið á
Peking, Sbanghai, Hong Kong
12. jan. Ap. — NTB.
ískaldir vindar frá Góbí-
cyðimörkinni næddu um göt-
ur Peking í dag og komu í
veg fyrir fjöldafundi rauðu
varðliðanna á strætunum. Er
þetta í fyrsta sinn, sem ekki
hefur verið efnt til hópfunda
í Peking í ár. Áreiðanlegar
heimildir herma, að Mao Tse
tung sé kominn til Peking, en
hann hefur að undanförnu
haldið sig í heitara loftslagi
í Shanghai og grennd ásamt
eftirmanni sínum Lin Piao.
Á götum Peking var þrátt
fyrir kuldann haldin sýning
Talið að Boston-
morðinginn sé fundinn
Carwbridge, Mass., 12. jan.
— AP —
M J Ö G sterkar líkur benda
til, að Bostonmorðinginn al-
ræmdi, er myrti 13 konur á
tímabilinu júní 1962 til janú-
ar 1964, sé fundinn. Maður-
inn, sem heitir Albert Des-
alvo, var handtekinn eftir
fjórar líkamsárásir á konur
aeint á árinu 1964. Engin
þessara kvenna lézt af völd-
um árásanna, en Desalvo ját-
aði þegar við handtöku, að
hafa kyrkt hinar 13 um-
ræddu konur, eftir að hafa
framið á þeim kynferðis-
glæpi.
Játning Desalivos hefur ekki
vierið tekin giild fnam tiíl þessa,
þar eð geðiheils/u hans er mjög
ábótavant. Hins vegar er sann-
að, að morðin Ihófust þegar eftir
að Desalvo hafði verfð látinn
laius úr fangélsi 1962 fyrir kyn-
ferðisaflbrot, og kona hans neit-
aði að taika hann aftur inn á
heimili tþeirra. Lee Bailey, verj-
andi Desalvos, Ihefuir látið Sivo
ummælt, að Desalvo hafi verið
óábyrgur gerða sinna, er hann
framdi morðin. Hyggst hann fá
tvo geðlækna í lið með sér til
að sanna að S’vo sé.
Fram kom við réttadhöldin, að
Desalvo haifði verið misþyrmt
hrottaiega í æsku, og hann hafi
lært áð Ibrjótast inn þegar er
hann var 6 ára gamalil. í skóla
var Desalvo hins vegar fyrir-
myndairlbarn og sikýrslur gefa til
kynna að hegðan hans hafi í
engiu verið átoótavant meðan
hann .gegndi herjþjóniustu.
Dómur í máli Desa'tvos feliur
innan flárra vikna.
á „spillingaröflunum", sem
svo eru kölluð, og þau höfð
að spotti og athlægi. „Spill-
ingaröfl“ þessi eru menn sem
ásakaðir eru um stuðning við
kapítalismann. Var þeim ekið
um í vörubílum prýddum
stórum spjöldum, þar sem
nöfn mannanna og verknaðir
þeirra voru kunngerðir.
tJtvarpið í Peking sagði, að
allt að 500.000 stuðningsmenn
Maós formanns hafi efnt til hóp-
göngu og fjöldafundar og þar
æpt vígorð gegn andstæðingum
Maós. í síðustu viku kom til
átaka milli fylgismanna Maós og
andstæðinga hans á götum
Shangihai, eins og kunnugt er af
fréttum.
bá bárust í dag þær fregnir
frá Hong Kong, að fyrrv. borg-
arstjóri í Peking Peng Chen hafi
verið myrtur sl. mánudag. Dag-
blaðið „Morgunpósturinn“ í S-
Kína hafði það eftir borgara, að
nafni Wong, sem búsettur er í
Hong Kong, að hann hafi á 10
daga ferðalagi í Canton séð get-
ið um morðið í dreifibréfum þar.
Framhald á bls. 27.
Þoð er ekki
samo hvernig
að er farið
Bergen, 11. janúar. NTB.
LÓGREGLAN í Bergen leitar
nú ungs og efnilegs ráns-
manns, sem í dag rændi unga
stúlku fé því er hún hafði á
sér, skilaði henni buddunni,
hneigði sig kurteislega og
hvarf á brott við svo búið.
Atburður þessi átti sér stað
á gatnamótum skammt frá
banka einum, en þar var
stúlkan að fara að leggja mn
peninga fyrir föður sinn.
Ekki var það ýkjamikið fé,
eða tæpar þúsund krónur ís-
lenzkar, enda stúlkan ekki
nema sjö ára og ránsmaðurinn
reyndar að hennar sögn á
svipuðum aldri.
18 farast í hríð-
arveðri í Mexikó
Mexííkó, 12. jan. AP.
ÁTJÁN manns hafa farizt i
hríðarveðrinu, sem gengið
hefur yfir Mexíkó undan-
farna daga. 3000 manns i út-
hverfum Mexíkó hafa orðið
heimilislausir. lȇ hefur 4000
manns verið bjargað frá
tepptum fjallasvæðum. —
Flokkar lækna og björgunar-
manna hafa fært hinum
heimilislausu fatnað og mat-
væli og reist yfir þá bráða-
birgðaskýli.
Hriðörveður (þefcta er hið
mesta, sem gengið hefur yfir
Mexiikó í 26 ár. í diag spóði veð-
urstofan þar toatnandi og hilýn-
andi veðri.
Skotárás á lögreglumenn
Helsingborg, 12. jan. NTB.
FIMMTÁN ára unglingur í
Helsingjaborg skaut í dag
með vélbyssu á tvo lögreglu-
menn á skotæfingarsvæði þar
í borg. Skothæfni piltsins var
hins vegar léleg og bvorug-
ur lögreglumannanna særðist,
né heldur vörður æfingar-
svæðisins, sem var í för með
þeim.
Lögreglumennirnir voru
vopnaðir, en svöruðu samt
sem áður ekki skotárásinni.
beir köstuðu sér níður og
reyndu að kalla aðvörunarorð
til drengsins. Tókst þeim að
handsama hann, er hann hafði
skotið 10 skotum af vélbyss-
unni Var hann færður í varð
hald og verður ákærður fyrir
morðtilraun.
Drengurinn hefur játað við
yfirheynslur, að hafa brotizt
inn í vopnageymslu æfingar-
svæðisins daginn áður og tek
ið þar vélbyssuna og önnur
vopn. Lögreglunni var til-
kynnt um þjófnaðinn og fóru
tveir lögreglumenn á vettvang
ásamt verði æfingarsvæðins-
ins. Var pilturinn þar fyrir
og er hann sá til þeirra hóf
hann þegar skotárásina.
Piltur þessi hefur sagt, að
hann hefði skotið á lögreglu-
mennina til að hræða þá á
brott. Fullvíst er talið, að þeir
hefðu orðið fyrir skotum
hefðu þeir ekki kastað sér
niður þegar í stað.