Morgunblaðið - 13.01.1967, Síða 4

Morgunblaðið - 13.01.1967, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FöSTUDAGUR 13. JANÚAR 1967. BILALEICAN FERÐ SÍMI 34406 Daggjöld kr. 300,00 og kr. 2,50 á ekinn km. SENDUM IMAGNUSAR skiphoiti21 símar21190 eftir lokun simi 40381 síw 1-44-44 \mum Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31100. LITLA bíluleígon Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensín innifalið i leigugjaldi. Sími 14970 BILJVLEIGAN VAKUR Sundlaugaveg 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. SPMM TÍMA FYRIRHOFN f --=*OUJUr/BJkM /A£/L/V7/3P RAUOARÁRSTlG 31 SfMI 22022 ÖKUKENNSIA HÆFNISVOTTORÐ ÚTVEGA ÖLL GÖGN VARÐANDI BÍLPRÓF ÁVALT NÝJAR VOLKSWAGEN BIFREIÐAR 35481 RAGN A R TÓMASSON HÉRAÐSDÓMSLOGMAÐUR Austurstræti 17 - (Silli «t Valdi) S(MI 2-46-45 Málflutningur Fasteignasala ALMENN LÖGFRÆÐISTÖRF Húseigendafélag Reykjavíkur Skrifstofa á Bergstaðastr. lla. Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla virka daga nema laugardaga. Á' Góða veizlu gera skal Lesertdur skrifa: „Kæri Velvakandi. Er við undirritaðir ásamt dömum vorum, mættum til dansleiks skömmu eftir mið- nætti við veitingahúsið Ládó að faranótt nýársdags 1967, héld- um við að húsinu yrði lokað um 0.30 þá nótt. Sú var vist ætlun húsráðenda en samt sem áður var utan dyra um þetta leyti (0.15) múgur og marg- menni og tróðst mikið. Aðrir betur siðaðir stilltu sér upp í röð þar á meðal vér. Stóð nú í stimpingum og troðning þar til laust fyrir klukkan eitt en þá mætti lögreglan. Stóðu nú verðir laganna eins og glópar og vissu ekkert hvað gera skyldL Laks fór einn þeirra inn eftir mikið erfiði til skrafs við dyraverði. Kom sá hinn sami út að vörmu spori og tilkynnti með vart heyrandi röddu að nú þegar væri of margt í hús- inu og ekki yrði fleira fólki hleypt inn. Þá var klukkan eitt. Hann sagði jafnframt, að miðar yrðu endurgreiddir dag- inn eftir eða hinn næsta. Þetta eyðilagði dansinn fyrir mjög mörgum sem hurfu á braut og einnig fyrir hreysti menni sem húktu fyrir utan til kl. 2 en komust þá inn vegna „góðmennsku" dyravarðar. Dansleiknum lauk klukkan 3 og höfðu þeir þá aðeins 1 klukkustund til skemmtunar fyrir 300 kr. Eftir þetta vikum við okk- ur að þessum lögregluþjónum og spurðum þá hve marga hús- ið tækL svarið var stutt og laggott: „Um 480“. Þeir okkar sem komust inn, heyrðu hins- vegar á samræðum dyravarða, að húsið tæki um 460. Einn okkar hafði miða nr. 500. En þó að allir kæmust ekki að sem vildu, var þó innifyrir eins og í vel fullri síldar- tunnu. Ekki voru nógu margir hank ar fyrir allar yfirhafnir og var því fleygt upp á hillur fyrir ofan þá án þess að númer væru gefin og ekki bætti það úr að frá vatns- eða skólplögn á hæðinni fyrir ofan lak vökvi ofan á yfirhafnirnar. Um skemmtiatriði er það að segja, að happdrætti var aug- lýst í Morgunblaðinu 28.12 ‘66. Þetta happdrætti fór aldrei fram og er það staðfest af þeim sem voru frá upphafi til enda. Um endurgreiðslu miða er þetta að segja: Við íórum til veitingastaðarins og fengum tvo ónotaða miða endurgreidda umyrðalaust. Að þvi loknu spurðum við mjög kurieislega hve mikinn fjölda gesta húsið tækL Manngarmurinn brást reiður við og sv-araði á þessa leið: „Þú hefur fengið þína miða endurgreidda og hefur þú ekkert hér meira að gera.“ Við spurðum manninn aftur kurteislega og rólega. Þá öskr- aði karl fjúkandi vondur: „Spyrjið lögreglurva." Við svör uðum að við hefðum gert það og að fjöldi gesta væri 480, en samt hefðum við miða nr. 500. Við það þraut þolinmæði mannsins og ýtti hann okkur til dyra en þaut sjálfur upp á loft — Regnstjörnurnar. Á" Snertið ekki hús Thor Jensens Lesandi skrifar: Það er ástæða til þess að bauna á ósmekkinn yfir eða öllu heldur ofstjórn skipulags og byggingarmála höfuðborgar íslands h.f. Allt tiltækt verður að nota til þess að forða land- inu frá þeim ósóma að ryðja burt fallegu og einkar hug- þekku minnismerki um einn af velgjörðarmönnum islenzku þjóðarinnar Thor Jensen. Dönsk ofstjórn og íslenzk rányrkja höfðu gert ísland að einu allsherjar FL.AGI þegar fátækur og umkomulaus dansk ur drengur kom hingað á ísa og landflótta árL Þessi drengur byggði margar skýjaborgir og kom mörgum þeirra í fram- kvæmd og jafnframt varð hann fyrirmynd annarra í þeim efnum. Ekki hefur hann frekar en aðrir framámenn sloppið við öfund hinna lítilsigldu, þegar hann reisti hið gullfallega hús sitt við tjömina, sem tákn um framfarahug sinn og trú á ís- landi. Þetta hús setti myndarbrag á kotbæinn Reykjavík og setur enn svip á höfuðborg íslands og hefur jafnvel verið getið allt austur í Kína og þar sýnt sem tákn um reisn og smekta fslendinga og það hjá þjóð, sem hefur lengsta og að mörgu leyti glæsilegasta sögu að bciki og vonandi á mikla framtíð fyrir sér, þótt eitthvað syrti I álinn í bili. Ósmekkvísi nýríkra valda- manna er alþekkt úr sögunni og felst meðal annars í því að hrifsa til sín eða eyðileggja allt sem einhversvirði er og hrófla upp einhverju bákni 1 staðinn til minningar um sína tröllauknu heimsku. Fyrir tveim áratugum voru margar menningarborgir álf- unnar ein rjúkandi rúst, en eitt af þvi fyrsta, sem gert var I viðreisnarátt var að endurreisa fornar byggingar með miklum kostnaði þegar þörfin fyrir íbúðar- og verksmiðjuhúsnæði var yfirþyrmandL Endurreisn þessara fornu verðmæta hefur eflaust eflt kjark og lífsvilja milljónanna, sem lifðu hörm- ungar heimsstyrjaldarinnar og hefur það haft ómetanlegt GILDL Við eigum fáar minningar um bjartsýna framfaramenn eins og THOR JEINSEN og við megum ekki láta dægurflugur byggja sér glerskápa á þeim stöðum, þar sem ómetanlegar söguminjar prýða nútíð og framtíð. — S.Ó. 'Ár Kína — Fréttir Menn hafa komið að máli við Velvakanda og beðið hann að koma því á framfæri við Útvarpið, að Stefán Jónsson verði látinn lesa fréttirnar frá Kína. Símaskráin 1967 Símnotendur í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, munið að frestur til að senda inn breytingar rennur út laugardaginn 14. janúar 1967. Verzlunarpláss óskast Ilöfiim verið beðnir að útvega lítið verzlunarpláss fyrir sérverzlun. Málflutnings og fasteignastofa, Agnar Gústafsson hrl. og Björn Pétursson, Austurstræti 14, Símar 22870 — 21750. Bæjarsíminn í Reykjavík. Hestamannafélagið Fákur verður í félagsheimilinu laugardaginn 14. janúar kl. 8,30. Spiluð verður félagsvist. Dansað á eftir. Ath. að árshátíð félagsins v^rður 4. febrúar að Hótel Borg Regnföt allar stærðir fyrirliggjandi af ungbarnaregnfötum. ★ Rauðar telpna regnkápur með flauels áferð nýkomnar. ★ Herra regnúlpur og regnföt. Miklatorgi, Lækjargötu 4. mWlkVÖLD

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.