Morgunblaðið - 13.01.1967, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1967.
Báðherrabústaðurinn við Tjarnargötu.
Lagfæringar á ráð-
herrabústaðnum
tBíNXÐ er nú að endurbótum
og lagfæringum á ráðherra-
búataðnum við Tjarnargötu. Sett
tr verða nýir gluggar með tvö-
Badu gleri í húsið, og ennfrem
ur verður skipt um járn á hluta
þess. Þá á einnig að fara fram
næ&lningarvinna innanhúss.
Ráðherrabústaðurinn komst
f eigu ríkisins í tíð Hannesar
Hafsteins, eða 1904 og var þá
fceypt af Sólbakkaverksmiðj-
unni á Önundarfirði og flutt
þaðan. Var húsið reyndar gefið
Landssjóði, en til þess að eigna
skiptin gætu formlega talizt sala
greiddi Landssjóður fyrir það
1 kr.
Húsið er timburhús, en stend
ur á steyptum grunni. Niðri eru
setustofa, borðsalur og eldhús,
en á efri hæðinni er íbúð Dýr-
finnu Oddsteinsdóttur, húsvarð-
ar, þrjár stofur og eitt svefn-
herbergi, >
Nauðungaruppboð
sem augl. var í 46., 47. og 48. tbL Lögbirtinga-
blaðsins á v/s Stjaman R.E. 3, þingl. eign Sjö-
stjörnunnar h.f. Reykjavík, fer fram eftir kröfu
Stofnlánadeildar sjávarútvegsins miðvikudaginn 18.
janúar 1967 kl. 3.30 síðdegis, við skipið þar sem það
liggur í Reykjavíkurhöfn.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Afar ódýr frímerki Wf
frá Austurríki
Tvö þúsund og átta hundruð falleg, mismunandi
safnfrímerki og sérfrímerki, raunverulegt verð-
mmti um 320 mörk en í auglýsingaskyni aðeins
300,00 íslenzkar krónur, gegn póstkröfu, svo lengi,
sem birgðir endast. — Póstkort nægir.
MARKENZENTRAIÆ, Dempschergasse 20,
1180 Wien.
Á ekkert skylt við menn-
ingu, byltingu né alþýðu
Ummæli aðalfulltrúa Sovétríkjanna hjá
SÞ um „menningarbyltinguna“ í Kína
New York, 10. jan.
(William N. Oatis — AP)
NIKOLAI T. Fedorenko, aðal-
fulltrúi Sovétríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum, kom
á þriðjudagskvöld fram í
sjónvarpsþætti Marv Griff-
ins í New York, og var þætt-
inum endurvarpað um öll
Bandaríkin. Ræddi Fedorenko
þar í rúma hálfa klukkustund
við Griffin og aðra gesti, aðal-
lega um ástandið í Kína.
Sagði hann að hin svonefnda
,4nenningarbylting“ í Kína
ætti ekkert skylt við menn-
ingu, ekkert við sanna bylt-
ingu, og ekkert við alþýðuna.
Þar gætti hvorki Marxisma,
Leninisma né kommúnisma.
Aðalfulltrúinn sagði, að
Sovétríkin væru fylgjandi
því að Kína fengi sæti hjá
Sameinuðu þjóðunum, og
styddu .Jandið og þjóðina“,
en gætu ekki lýst stuðningi
við stefnu leiðtoganna í Pek-
ing.
Þótt hann væri sérfræðing-
trr í kínverskum bókmennt-
um og hefði verið búsettur í
Kína í 12 ár, kvaðst Fedor-
enko 1 rauninni ekki vita
hvað þar væri að gerast.
Sagði hann að ástandið þar
væri „mjög alvarlegt og mjög
flókið".
Eins og til er ætlazt í sjón-
varpsþætti Griffins, ræddi
Fedorenko þrjáir bækur, sem
hann hefur ritað (á rússn-
esku) um Kína og Japan,
sýndi myndir af eiginkonu
sinni, þremur dætrum og
tengdasyni, og spaugaðist við
stjórnandann. Einnig næddi
hann við aðra gesti þáttarins,
færði hljómsveitarstjóranum,
Bob Croáby, Havana-vindil,
þakkaði brezku leikkonunni
Lynn Redgrave vinsamleg
ummæli um Sovétríkin, og
bauð Griffin að koma þangað
í heimsókn.
í viðræðum sínum við
Griffin viðhafði Fedorenko
orðaleik. Sagði hann að konu
sinni lík&ði vel við Ohannel
5 (rás 5, sem sendir m.a. sjóp,-
varpsþátt Griffins frá New
York), og einnig líkaði henni
við Chanel No 5 frá París
(þ.e. ilmvatnið). Kvartaði
Fedorenko yfir þvi að sífelld
útfærsla Bandarikjamanna á
„hinni hörmulegu styrjöld í
Vietnam“ hefði mjög skaðleg
áhrif á sambúð Sovétríkjanna
og Bandarikjanna, og kvað
það einlæga ósk Rússa að endir
verði bundinn á styrjötdina,
svo sambúðin fái að þróast á
sem beztan hátt.
Aðspurður hvernig unnt
væri að koma á samningavið-
ræðum í Vietnam, sagði Fed-
orenko að frumskilyrðið
væri að Bandarikjamenn
hættu loftárásum á Norður-
Vietnam. Það, sagði hann,
gæti skapað aðstæður til við-
ræðna.
Fulltrúinn sagði að sendi-
fulltrúar Bandaríkjanna hjá
SÞ væru „hvað eftir annað að
gefa yfirlýsingar um friðar-
vilja, en raunin væri sú að
stríðið héldi áfram — orð og
athafnir stönguðust þannig á“.
Að sjónvarpsþættinum iokn
um sagði hann við frétta-
menn að yfirvöld í Washing-
ton yrðu að ræða friðsar-
samninga við „þjóðfrelsis-
fylkingu“ Viet Cong skæru-
iiða, sem væri eini rétti full-
trúi stríðsaðilanna í Vietnam.
Þótt Griffin segðist álíta
styrjöldina í Vietnam nauð-
synlega, sagði hann Fedo-
renko að um öll Bandarikin
væri þess óskað að henni
yrði lokið, og tóku áhorfend-
ur, aðallega unglingar, undir
þau orð hans með lófatakL
Einnig var mikið klappað fyr
ir Fedorenko sjálfum, þegar
hann gekk inn á sviðið, hár
maður vexti með mikið hár.
Sagði hann að það væri gam-
all siður í heimalandi sínu að
ganga með sítt h'ár, en nú
væri sá siður alþjóðlegur.
í STUTTU MÁTI
Belgrad — NTB
JÚGÓSLAVNESKI rithöfundur-
inn Milooan Djilas, var látinn
laus úr fangelsi á gamlársdags-
kvöld skv. sérstakri náðun frá
Tító, forseta Júgóslavíu. Tveir
aðrir menn, þeir Daniel Ivin og
málarinn Leonid Seika, sem set
ið hafa í fangelsi fyrir að hafa
Nauðungaruppboð
sem augl. var í 57., 59. og 61. tbL Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á hL í húseigninni nr. 12 við Hjálm-
holt hér í borg, þingí. eign Emils Hjartarsonar, fer
fram eftir kröfu Ágústar Fjeldsted hrl., Boga Ingi-
marssonar hdl„ Jóns Arasonar hdl., og Brands
Brynjólfssonar hdl., á eigninni sjálfri miðvikudag-
inn 18. janúar 1967 kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
gagnrýnt stjórnina voru einnig
látnir lausir. Þeir voru báðir
nánir samstarfsmenn rithöfund-
árins Mihajlo Mihajlom, sem
dæmdur var í eins árs fangeisi
á síðasta árL
Wadhington — NTB
TILKYNNT var í Washington I
dag, að Boeing flugvélaverk-
smiðjurnar og General Electric
hefðu fengið samninginn um
smíði fyrstu hljóðfráu farþega-
þotunnar í Bandaríkjunum. Er
tilkynningin var gefin út, höfðu
samningsviðræður staðið í 30
mánuðL Helzti keppinautur
Boeing voru Lockheed-flugvéla-
ver ksmið j urnar.
TOYOTA1967
TOYOTA LANDCRUISER — Traustasti og kraft-
mesti Jeppinn á markaðinum. Með stálhúsi og
rúmgóðum sætum fyrir 6.
VERÐ AÐEINS KR. 192 þúsund.
Innif. í verði m.a.:
Tvöfaldar hurðir — Klæddur toppur — Aflmikil
miðstöð — Riðstraumsrafall (Alternator) •—
Toyota Ryðvörn — Vökvatengsli — Stýrishögg-
deyfar — Stór verkfærataska — Dráttarkrókur —
Sólskermar — Vindlakveikjari — Inniljós — Rúðu-
sprauta.
TOYOTA UMBOÐIÐ
Japanska
bifreiðasalan hf.
Ármúla 7 — Sími 34470.
TRYGGIÐ YÐUR TOYOTA
O