Morgunblaðið - 13.01.1967, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. 3ANÚAR 1967.
1«
V erzlunarhúsnæði
Að Laugaveg 96 er til leigu glæsilegt verzlunar-
húsnæði. Gólfflötur um 250 ferm. Hentugt fyrir
stærri sérverzlun eða deildarverzlanir. Upplýsingar
gefnar daglega kl. 12 — 14 í síma 17980.
Nauðungaruppboð
sem augl. var 64., 66. og 67. tölubl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á hl. í húseigninni nr. 47 við Stórholt,
hér í borg, 3. hæð, þingl. eign Sigmars Péturssonar
fer fram eftir kröfu Axels Kristjánssonar hrl., á
eigninni sjálfri þriðjudaginn 17. janúar 1967 kL
2.30 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Misjafnar undirtektir
við alþjóðardðstefnu kommúnista
Beligrad og London, 11. janúar,
AP og NTB.
KOMMÚNISTAFX.OKKUR
Júgóslavíu gerði það lýðum
ljóst í dag, miðvikudag, að hann
væri mótfallinn alþjóðlegri ráð-
stefnu kommúnistaflokka, sem
Sovétríkin vilja boða til og teldi
að nú væru liðnir þeir dagar er
kommúnistahreyfingunni væri
stjórnað frá nokkrum einum
stað.
Á fundi í miðstjóm flokksins
í gærkvöldi var samþykkt álykt
un er samdi Vladimir Popovic,
sem sæti á í flokksstjórninni,
íþar sem gerð er grein fyrir af-
stiöðu flokksins till þessa máls,
í ályktuninni segir að komm-
únistafJokkur JúgóslaVíu telji
slíka ráðstefnu ekki í sam.ræini
við aðstæður þær sem nú séu
fyrir Ihendi, ailar ákvarðanir
teiknar þar myndu fara að vilja
meirihluta fundarmanna og
binda um of henduir Ihinnar al-
þjóðlegu verkalýðshreyfingar.
Popovic lét þess þó getið að ekki
sæi hann neitt því til fyrirstöðu
að haldinn yrði almennur fund-
ur kommúnistafloikka sem þess
óskuðu en sagði áð slíkt ætti
ek'ki að spilla samibúðinni við
hina sem heima sætu, og mifclu
líkleigastar til árangurs teldi
júgósLavneski kommiúnistaflokk-
urinn fundi tveggja komm.ún-
istaflokka eða nokkurra fleiri.
— ★ —
Franski kom mú n Ls ta flokk u r-
inn lýsti í fyrri viku yfir ein-
dregnum stuðningi við att'þjóð-
lega ráðstefnu kommúnista-
flokika og var á þeim fundi skýrt
frá þvi að samtals sextíu komm-
únistaflokkar (hefðu sett framl
óskir um að haldin yrði aiþjóð-
leg ráðstefna fkxkkanna. Á þess-
um sama fundi sökuðu frans'kir
kommúnistair einnig kínverska
kommúnista um að hafa haft að
engu grund va llarreglur marx-
ismans,
— ★ —
Pravda, málgagn sovézka
kommúnistaflokksins, sagði i
dag að tillagan um alþjóðlega
ráðstefnu kommúnistaflokkanna
hilyti mjög góðar undirtektir
hvarvetna í Sovétníkjunum.
Nauðimgaruppboð
sem augl. var 64., 66. og 67. tölubl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966, á hl. í húseigninni nr. 34 við Gnoð-
arvog hér í borg, talin eign Stefáns ísakssonar,
fer fram eftir kröfu Jóns Bjarnasonar hrl., á eign-
inni sjálfri þriðjudaginn 17. janúar 1967, kl. 2
síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Innritun allan daginn
íslenzkir kennarar og erlendir.
Síðasti innritunardagur.
TAUSCHER
vinsælustu sokkarnir fást hjá okkur.
LAUGAVEGI 59.
Dæmt í mcíli árósearmcBnns
Hlaut fangelsisdóm og skal greiða
yíir 100 þús. kr. vegna kjalkabrots
VETURINN 1964 gerðist það
á almennum dansleik í einu
samkomuhúsanna hér í borg-
inni, að einn gestanna varð
fyrir meiriháttar líkamsárás.
Fyrir alllöngu er genginn
dómur í máli þessu og var
árásarmaðurinn dæmdur til
að greiða manni þeim er
varð fyrir meiðslum af hans
völdum rúmlega 100.000 krón
ur í skaðabætur. Þá var árás-
armaðurinn dæmdur í fang-
elsi.
Dómur þessi var kveðinn upp
í Sa'kadómi Reykjavíkur af Ár-
manni Kristinssyni sakadómara.
Árásarmaðurinn er Friðrik
Tómas Alexandersson, þá til
heimilis Bogahlíð 11. Vii'ðist
honum laus hlöndin, Ihefur fjór-
um sinnum áður ýmist sætt kær-
um eða verið dæmdur fyrir lík-
amsárásir.
Atburður sá, er hann hefur nú
verið dæmdur till refsingar fytrir,
gerðist í janúar 1964. Var hann
þá á almennum dansleik í Þórs-
kaffi. Kom hann þar að borði
annarra gesta, sem hann ekki
þekkti. Friðrik gerðist þar um-
svifamikili og tók að súpa úr
glasi eins gestanna. í þeirra
hópi var karlmaður, er fór að
amast við þessari framkomu að-
komumannsins. Skipti það eng-
um togum að Friðrik sló mann-
inn ihögig svo mikil að hann
kjálkalbrotnaði. Brotið hafðist
Nauðungaruppboð
sem augl. var í 57., 59. og 61. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á hl. í húseigninni nr. 27 við Berg-
staðastræti hér í borg, þingl. eign Baldurs Jóns-
sonar fer fram eftir kröfu Boga Ingimarssonar hdl.,
á eigninni sjálfri þriðjudaginn 17. janúar 1967 kl. 3
síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Rcykjavík.
Æiké
/'////////, >■ Mg
/ \//
JANIS
Acti-or
mmm
JANIS /vöflpotb
Janis roll-on deodorant gefur yður ferskan
03
svalan ilm undir hendur, sem endist allan dag-
inn. Gjörsamlega skaðlaust húð og fötum.
Sjálfvirka kúlan í flöskuopinu ber létt og ná-
kvæmlega á það sem þér þurfið í hvert sinn.
HALLDÓR JÓNSSON H. F. Heildverzlun
Hafnarstreeti 18 - Símar 23995 og 1 2586
ilda við. Var það ekiki fyrr en
löngu seinna að sérfræðingar
sfcár.u úr um það að árásarmað-
urinn hafði orðið valdur a3
fimm prósent varanlegiri örorku
mannsins. Það var ákæruvaidi'ð,
sem höfðaði þetta mái gega
Friðrik T. Alexanderssyni.
f sakadómi var hinn sekl
dæmdur til að greiða mannin-
um í skaðabætur k.r. 106.500.—t
Refsingin var ákveðin 6 mánaða
fangelsi. Loks var árásarmann-
inum gert að greiða allan sakar-
kostnað. Dómi var elkki áfrýjað.
í STUTTII MMI
Saigon — NTB
VIET CON'G-hreyfingin lagði á
nýársdag fram tilboð um viku
vopnahlé frá 8. febrúar, í sam-
bandi við nýárShátíðahöld landj
manna. Áður höfðu S-Vietnam-
menn lagt fram tilboð um 4
daga vopnahlé. Bandaríkjamenu
sökuðu Viet Cong um að hafa
rofið nýársvopnahléið 119 sinn-
um á 48 klst.
Tel Aviv — NTB
SÝRLENZKIR og ísraelskir her
menn skiptust á skotum við aust
anvert Galeileavatn á nýársdag.
Báðir aðilar saka hvorn annau
um að hafa hafið skothríðina.
WAS'HINGTON — NTB. —.
Bandaríski Rauði Krossinn til-
kynnti á sunnudag, að 48 kín-
verskir fiskimenn, sem banda-
rískt herskip bjargaði í sl. mán-
uði, yrðu sendir heim við fyrsta
tækifæri. Talsmaður Rauða
krossins vildi ekki skýra frá
dvalarstað Kínverjanna, en
sagði, að þeir yrðu sendir með
flugvél frá Hong Kong og þaðau
farið með þá til landamæra kín-
verska Alþýðulýðveldisins og af-
hentir fulltrúa kínverska Rauða
krossins.
ANDREW-flugvelli, USA, NTB
Bandarísk herflugvél með 7
manna áhöfn fórst í lendingu við
Andrew-flugvöll um helgina.
Enginn komst lífs af.
ROSTOCK, A-Þýzkalandi, NTB
Listasambönd í Finnlandi og
Noregi hafa tilkynnt að þau taki
þátt í árlegri listasýningu
Eystrasaltslanda, sem fram fer
í Rostock í júlí í sumar.
BONN — NTB. — V-þýzka utan
rlkisráðuneytið skýrði frá þv<
á mánudag, að í næstu viku yrði
send sendinefnd til Prag, til að
kanna möguleika á að taka upp
á ný stjórnmál&sainband viff
Tékkóslóvakíu.