Morgunblaðið - 28.02.1967, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1967.
7
70 ára er í dag frú Margrét
Víglundsdóttir, Ljósheimum 6.
Hún er í dag stödd hjá syni sín-
um á Þinghólsbraut 32, Kópavogi
Laugardaginn 4. íebrúar voru
gefin saman í hjónaband af séra
Jóni M. Guðjónssyni, ungfrú
Emilía Ólafsdóttir Sunnubraut 4,
Akranesi og Jón Sigurðsson,
Kirkjubraut 60 Akranesi. (Ljósm.
Ólafur Árnason, Akranesi.)
breytt og flytur m.a. þetta efni:
Hollenzk bókasafnstækni vekur
heimilisathygli (forustugrein). ís-
lenzkt þjóðerni vestan hafs eftir
Egil J. Stardal. Hefurðu heyrt
þessar? (Skopsögur). Kvenna
þætti eftir Freyju. Samtal um
fjármál við Aron Guðbrandsson.
Sígildar nóttúrulýsingar. Konu-
riki (saga). Grein um listdans-
arann Rudolf Nureyev. íslenzk
baráttusaga (bókarfregn). Ný að
ferð í gömlu starfi. Demanta-
spjall eftir Ingólf Davíðsson.
Ástagrín. Skemmtigetraunir.
Skáldskapur á skákborði eftir
Guðmund Arnlaugsson. Bridge
eftir Árna M. Jónsson. Úr einu
— í annað. Stjörnuspá fyrir þá,
sem fæddir eru í marz. Þeir vitru
sögðu. Ritstjóri er Sigurður
SkúlasOn.
Faxi, febrúarblað 1967 hefur
borizt blaðinu. Það er fjölbreytt
að vanda um málefni, sem Suð-
urnes varða og prýtt fjölda
mynda. Af efni þess má nefna:
I.B.K. sigrar. grein um knatt-
spyrnumót. Minningar frá Kefla
vík eftir Mörtu Valgerður Jóns-
dóttur, Tvítugt átthagafélag,
Minningargrein um Jóruni M.
Einarsdóttur, Guðjón Einarsson
áttræður og kona hans Guðrún
Sveinsdóttir sjötug, Leikdómur
um Syndir annarra Einsöngur í
Kristskirkju, Hvalsneskirkju
berast vegleg gjöf. Ingimundur
Jónsson áttræður, minning Jó-
hannesar Árnasonar ýmsar smá
letursgreinar og fleira eftir. Rit-
stjóri Faxa er Hallgrímur Th.
Björnsson Faxi er gefinn út af
málfundafélaginu Faxa í Kefla-
vík.
VÍSDKORN
Að hinzta kveldi.
Slkylt er að hlíða skapadóm.
skini hallar dagsins
Eins og kalið brekkublóm
bíð ég sólarlagsins.
Hjálmar frá Hofi.
>f Gengið >f
Reykjavík 21. íebrúar 1967.
269. des. s.l. voru gefin saman
af séra Frank M. Halldórssyni,
ungfrú Guðbjörg Gunnarsdóttir
og Guðmundur Vilhjálmsson,
Hraunbæ 122. (Nýja Myndastof-
an Laugavegi 43b sími 16-1-26).
Böm eiga ekki heima á götunni
Verndið börnin gegn hættum og
freistingum götunnar og stuðlið
með því að bættum siðum og
betra heimilislífi.
Blöð og tímarit
Heimilisblaðið Samtíðin marz-
blaðið er komið út, mjög fjöl-
Kaup Sala
1 Sterlingspund 120,05 120,35
1 Bandar. doWar 42,95 43,06
1 KanadadolLar 39,77 39,88
100 Danskar krónur 619,80 621,40
100 Norskar krónur 600,45 602,00
100 Pesetar 71,60 71.80
100 Sænskar krónur 831,60 833,75
100 Finnsk mörk 1.335,30 1.338,72
100 Fr. frankar 868,10 870.34
100 Belg. frankar 86,38 86,60
100 Svissn. frankar 990,70 993,25
100 Gyllini 1189,44 1192,50
100 Tékkn kr. 596,40 598,00
100 V.-þýzk mörk 1.080,06 1.082,82
100 V.-þýzk mörk 1.080,15 1.082,91
100 Lírur 6,88 6,90
100 Austurr. sch. 166,18 166,66
Spakmœli dagsins
Sá, sem á ljós hið innra með
sér, getur notið bjartra daga í
dýflissu. En sé, sem gengur í
ólund og bölmóði undir heiðum
himni, er sín eigin myrkvastofa.
— Milton.
nm land i hringferS. HerðuibreiS var
á Reyðarfirði í gær á norðurleið.
Skipadeld S.Í.S.: Arnarfell er á
Norðfirði. Jökulfell f6r 24. þm. frá
Svendborg til Austfjarða. Dísarfell
fór 25. þm. frá Odida til Hornafjarðar.
Litlafell er væntanlegt til Rvíkur í
dag. Helgafell er í Rotterdam. Stapa-
fell losar á Austfjörðum. Mælifell er
í Þorlákshöfn.
Eimskipafélag íslands h.f.: Bakka-
foss fór frá Seyðisfirði 1 gærkvöldi 26.
væntanlegur til Rvíkur í fyrramálið
28. Brúarfoss fer frá Keflavík í dag
27. til Cambridge og NY. Dettifoss fer
frá Vestmannaeyjum í dag 27. til
Ventspils og Kotka. Fjallfoss fer frá
NY 1. til Rvíkur. Goðafoss fór frá
Vestmannaeyjum í gær 26. til Grimsby,
Rotterdam, Rostock og Harmborgar.
Gullfioss kom til Rvíkur i morgun 27.
frá Leith. Lagarfoss hefur væntanlega
farið frá Róstock í dag 27. til Kaup-
mannahafnar, Gautaborgar og Rvkur.
Mánafoss fór frá Reyðarfirði 26. til
Hull, Antwerpen og London. Reykja
foss fer frá Aalborg 4. til Gdynia,
Rostook, Kaupmannahafnar og Gauta
borgar. Selfoss fer frá NY 3. til Rvikur
Skógafoss fór frá Rotterdam 25. vænt
anlegur til Hafnarfjarðar annað kvöld
28. Tungufoss fór frá Bergen 25. til
Thorshavn, Reyðarfjarðar, Seyðisfjarð
ar og Norðfjarðar. Askja fór frá Great
Yarmouth í dag 27. til Kristiansand,
Gautaborgar og Rvíkur. Rannö fer
frá Fáskrúðsfirði í dag 27. til Eskifjarð
ar, og Norðfjarðar. Seeadler fer frá
London í kvöld 27. til Rotterdam, Ham
borgar og Hull. Marietje Böhmer fór
frá Rvík í dag 27. til Reyðarfjarðar,
Seyðisfjarðar, Ardrossan og London.
Utan skrifstofutíma eru skipafréttir
lesnar 1 sjálfvirkum símsvara 2-14-66.
Áheit og gjafir
Hnífsdalssöfnunin afhent Morgunb.:
Starfsfólk Fiskifél. íslands 2.300 ; 5
börn í Melaskóla safnað á Kaplaskjóls
vegi 2.1(30; Safnað af Ragnh. Jónsd og
Heiðrúnu Guðbrandsd. Þykkvabæ
Rang. 1.060; HE 1000; NN 100; Guð-
mundur Þórðarson 500; Vistmenn og
starfsfólk Vinnuheimilisins að Reykja
lundi 10.300; Kvenfél. Keðjan 5000;
3 stúlkur í Breiðagerðisskóla 3160; 3
stúlkur í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði
héldu basar 1500, safnað af þrem
bræðrum í Heimunum 6585; Helga
Bragad, María Guðmundsdóttir, Erna
Einarsdóttir 1016,43; 3 stúlkur í Kópa-
vogsskóla héldu hlutaveltu 1640; Safn
að af 8 stúlkum í Digranesskóla með
hlutaveltu 5601,35, Edda Inga og Ingi-
'björg söfnuðu í Hellisandi og Gufu-
skálum 6325; Safnað af Sigrúnu Zop-
honíasd. og Guðrúnu Pétursd. Blöndu
ósi 7800; Jóna 1000; SM 100.
Sjóður hjartveikra barna afh. Mbl.:
Starfsfólk Trésm. Meiður og Hall-
armúla 1700; 4 stúlkur í Breiðagerðis-
skóla 10 og II ára bekk. Safnað í
húsum 6365; María og Herdís í Öldu-
götuskóla 795; NN 200; Safnað af
Tryggva Jónssyni og Gunnari Theo-
dórssyni 2255; ómerkt 1 bréfi 100;
'HP 500;JJ áh. 100; Sverrir Guðjóns-
son 300.
Áheit og gjafir á Strandarkirkju aih.
Mbl.: , GSS 100; ánœgður 1800; NN
100; NÓ 100 X-2 100; NN 10. ÖS 500.
HO 100; JJ 100; Örvar 100; R 50; X
NN 10; ÖS 500; HO 100; JJ
2 200; JE og MG 100; NN 45 NN 2000;
SP 100; g.áh Rí> 20; GKG 100; ÞJ 25;
KB 100; IÞ 200; NN 400; LÞ 200; SÖ
Sauðárkróki 100; gömul kona 260;
^ngibjörg 100; EE 500; ÞG 250; GK
400; RS 100; Guðm. Jónsson 100; MJ
100; Gísli Jónsson 1000; Ólöf F 100;
Unnur 100; X-2 200; SS 100; GN 600;
Höh 210; GÓ 100; Guðný 150; IS 300;
2 gömul áh. frá HF 50; kona í Grinda-
vík 1000; JS 500; Svavar 500; ÁJ 100.
Akranesferðir Þ.Þ.Þ. mánudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og laugar-
daga frá Akranesi kl. 8. Miðvikudaga
og föstudaga frá Akranesi kl. 12 og
sunnudaga kl. 4. Frá Reykjavík alla
daga kl. 6, nema á laugardögum kl.
2 og sunnudögum kl. 9.
Hafskip h.f.: Langá fór frá Eski-
firði 25. til Malmö og Gdynia. Laxá er
í Vestmannaeyjum. Rangá fór frá Ham
borg 27. til Hull. Selá fór frá Norð-
firði 25. til Lysekil og Hirtshals.
Flugfélag íslands h.f.: Millilanda-
flug: Skýfaxi kemur frá Glasgow og
Kaupmannahöfn kl. 16:00 í dag. Snar-
faxi fer til Vagar, Bergen og Kaup-
mannahafnar kl. 09:30 á morgun. Vél
iin er væntanleg aftur til Rvikur kl.
16:35 á miðvikudaginn. Skýfaxi fer
til.Glasgow og Kaupmannahafnar kl.
08:00 á morgun. Innanlandsflug: í
dag er áætlað að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir), Vestmannaeyja (2 ferðir),
Patreksf jarðar. ísafjarðar, Húsavíkur
og Egilsstaða. Á morgun er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Kópa-
skers, Þórshafnar, Fagurhólsmýrar,
Hornafjarðar, Lsafjarðar og Egilsstaða.
Skipaútgerð ríkisins: Esja er í
Rvik. Herjólfur fer frá Vestmanna-
eyjum kl. 21:00 í kvöld til Rivlkur.
Blikur fer fré Gufunesi í dag vestur
Ur Passíusá/mum
Knllgrlmav Pélimwoo.
Frásnúið Guði allt mitt er
eðli og líf fáneyta,
öðrum því gef ég oft af mér
ill dæmi svo að breyta.
En hér á mót með elsku hót
öll Guðs börn rétt því trúa,
frá bölvan, deyð, djöfli og
neyð
Drottinn réð lýðum snúa.
18. sálmur, 8. vers.
Málaravinna
Önnumst alla málaravinnu.
Jón og Róbert,
sími 15667 og 21893.
Volvo P-544 ’64 ,
hvítur, tækifærisverð kr.
105.000,00.
Aðalbilasalan,
Ingólfsstræti 11.
Unglingspiltur
óskast í sveit til aðstoðar
við . skepnuhirðingu. Uppl.
í síma 41304.
F ry stihús verkst jóri
óskar eftir starfi. Ýmislegt
kemur til greina, einnig úti
á landi. Tilb. sendist Mbl.
fyrir 15. marz merkt „Verk
stjóri 8843“.
Til sölu
Vegna brottflutnings af
landi er til sölu nýr ís-
skápur og svefnsófi. Uppl.
í síma 40480.
Keflavík — nágrenni
Vantar stúlku til heimilis-
starfa 2—4 tíma á dag,
vegna veikinda. Uppl. í
síma 2449.
Þýzkukennsla
— dönskukennsla. Les
þýzku og dönsku með gagn
fræðaskólanemendum. —
Guðlaugur Stefánsson,
kennari Uppl. 1 síma
1 22 88.
Bezt að auglýsa
í Morgunbláðinu
DYROTAL
Hamrað lakk, fæst í átta
litum.
Málarabúðin simi 21600.
Þvottur — Þvottur
Þvoum allan þvott s. s.
skyrtur, soppa og vinnu-
fatnað. Einnig stykkjaþvott
og þlautþvott. Sækjum —
sendum Vogaþvottahúsið,
Gnoðavogi 72. Sími 33460.
Milliveggjaplötur
fyrirliggjandi í 5, 7 og 10
cm þykktum. Vönduð og
ódýr framleiðsla. Sendum.
Hellu og steinsteypan sf.
Bústaðabletti við Breið-
holtsveg. Sími 30322.
Heilsuvernd
Síðasta námskeið vetrarins
í tauga- og vöðvaslökun og
öndunaræfingum, fyrir kon
ur og karla hefst miðvikud
1. marz. Uppl. í síma 12240
Vignir Andréson.
Rúskinshreinsun
Hreinsum rúskinnskápur,
jakka og vesti. Sér stök
meðhöndlun. Efnalaugin
Björg, Háaleitisbr. 58—60.
Sími 31380, útibúið Barma
hlið 3, sími 23337.
Sparifjáreijendur
Ávaxta sparifé á vinsælan
og öruggan hátt. Uppl.
kl. 11—12 f.h. og 8—9 e.h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3 A.
Símar 22714 og 15385.
Skuldabréf
— ríkistryggð og fasteigna-
tryggð, eru til sölu hjá
okkur.
Fyrirgreiðsluskrifstofan,
fasteigna- og verðbréfasala
Austurstr. 14. Sími 15223.
íbúðir
til sölu
Mjög skemmtilegar 2ja, 3ja, 4ra og her-
bergja íbúðir eru til sölu í Árbæjarhverfi.
Seljast tilbúnar undir trév. og málningu.
Sérþvottahús með hverri íbúð. íbúðirnar
verða fokheldar fyrir 15. marz nk. —
Teikningar til sýnis á skrifstofunni.
MCDSS ODŒ M'ÝDBWD.D
B H □ HARALDUR MAGNÚSSON Viöskiptafræöingur Tjarnargötu 16, simi 2 09 25 og 2 00 25.I
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 57., 59. og 61. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á v/b Fræg I.S. 9 talinn eign Guð-
mundar Ben. Árnasonar, fer fram eftir kröfu bæj-
arfógetans á ísafirði og Þarvaldar Lúðvíkssonar
hrl., við skipið þar sem það verður í Reykjavík-
urhöfn, föstudaginn 3. marz 1967, kl. 4 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík. ^
— -
| M.
——*
MÁLSHÁTTUR^
Köttur vill hafa
væta ei klær.
fisk, en
Munið eftir að gefa smáfugl-
unum, strax og bjart er orðið.
Fuglafóður Sólskrikjusjóðsins
fást vonandl í næstu búð. N
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 41., 42. og 43. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á m/b Öldunni R.E. 327, þingl. eign
Guðmundar Jóns Magnússonar, fer fram eftir
kröfu Gunnars Jónssonar, lögm. og Seðlabanka
íslands við skipið þar sem það verður í Reykja-
víkurhöfn, föstudaginn 3. marz 1967, kl. 3.30 síð-
degis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.