Morgunblaðið - 28.02.1967, Blaðsíða 32
Lang stærsta
og íjölbreyttasta
blað landsins
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1967
Helmingi útbreiddaia
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Togarinn lceland II. fdrst með áhöfn
litgerðarmaðurínn Jónas Björnsson missti
fyrra skip sitt fyrir 3 árum og
reiknar með að hætta útgerð
HÖRMULEGT sjóslys varð við Bret»n-höfða á Nova Scotia
síðastliðinn laugardag er kanadíski togarinn Iceland II fórst
og með honum 16 manna áhöfn. Síðari hluta laugardags tóku
menn eftir því að togarinn hafði strandað skammt frá strönd
inni á grynningum og velktist skipið í öldurótinu. Vegna
veðurs urðu björgunarflokkar frá að hverfa, en þeir höfðu
verið á bátum og þyrlum við strandstað. Á sunnudag fund-
ust lík áhafnarinnar 10 að tölu rekin á ströndinni.
Mbl. hafði af því fregnir að
útgerðarmaður togarans Jónas
Björnsson, skipstjóri væri stadd
ur hér á landi, en börn hans eru
búsett hér. Mbl. hafði tal af
Jónasi í gærkvöldi, og sagði
hann þá:
— Togarinn Iceland II var
260 tonn. Ég fór heim til ís-
lands á gamlársóag og þá var
skipstjórinn að bíða eftir veðrh
Hann ætlaði út eftir nýárið, en
það gerði þá ótíðarkafla. Skips-
höfnin var öll skipuð frekar ung
um mönnum, skipstjórinn var
t.d. 35 ára og þeir voru bæði fjöl
skyldumenn og einhleypingar.
Annars skipti ég mér ekki svo
mikið af mannaráðningum á
skipið. Ég lét skipstjórann að
mesíu leyti um það. Hann var
1. stýrimaður hjá mér í sumar
og geta hafa orðið breytingar á
áhöfninni síðan ég hafði síðast
fréttir af henni.
— Já, ég er búinn að reka tog
araútgerð í 7—8 ár. Ég fór vest-
ur 1052, Fyrst eignaðist ég Ice-
land I, en það sökk í ís fyrir
þremur árum, en þá varð guði
sé lof mannbjörg. Honum var
bara stímað í land. Annars vert
ég sáralítið um þetta slys á Ice-
land II. Ég hringdi vestur í fyrra
kvöld, en náði ekki í þá sem
voru á staðnum, þar sem flakið
liggur og þær upplýsingar, sem
ég fékk voru afar litlar, nema
að á föstudagskvöld hafði skip-
stjórinn á Iceland II tal af öðr-
um skipstjóra, sem þá var í hófn
og þá sagði hann að hann væri
að fara inn til hafnar, sem heit-
ir Luisborg. Allt var þá í lagi
um borð. Þetta mun vera hið
síðasta, sem heyrðist til skipsms,
hvað svo sem gerðist á eftir.
— Ég veit ekki til þess að ís-
lendingar hafi verið um borð.
í>að var íslendingur hjá mér i
fyrra í tvö ár samfleitt, en hann
var farinn fyrir hálfu árL
— Ég hóf togaraútgerð 1654.
Toigarinn Iceland II var smíðað-
ur 1964 í Bathurst í New Bruns
vick. — Undanfarna vetur hef ég
ekki verið á vetrarfiskiríi og því
kom ég til íslands um áramétin
að halda áfram útgerð eftir þetta
síðustu og ég reikna ekki með
áfall.
Mjög stormasamt hefur verið
við strendur Nova Scotia og Ný-
fundnalands alla síðustu viku.
Fórust 18 manns af togaranum
Cape Bonnie síðastliðinn fimmtu
dag á St. Lawrencetflóa, er tog-
arinn strandaði þar. Þá var
tveggja fiskibáta saknað frá sl.
miðvikudegi úti fyrir ströndum
Nýfundnalands. Á þessum bátum
voru 7 manns.
Jcnas Björnsson,
útgerðarmaður.
Mannlaus gúm-
báfur á reki
SELÁ, sem er á leið til Lyse-
kil, fann í gærdag um kl. 14
gúmbát á reki mili Færeyja
og íslands, nánar tilíekið á
64.06 norðlægrar breiddar og
10.10 gráðum vestlægrar
lengdar. Var báturinn án ein-
kenna og augsýnilegt að hann
hefði verið lengi í sjó, fúinn,
hálffullur af sjó og í honum
engin merki manna.
Ekki tóst skipverjum á Selá
að ná bátnum, sem var gulur
og svartur, vegna sjógangs,
og ekki hafði verið ákveðið í
gær hvort Landhelgisgæzlan
færi að huga að bát þessum.
— Samkvæmt upplýsingum
Landhelgisgæzlunnar mun
ekki kunnugt um neina skips
tapa, sem báturinn gæti verið
frá.
Togarinn lceland II.
Surtur
her&ir sig
SURTSEYJARGOSIÐ herti sig
um helgina og sögðu sjómenn,
sem voru að veiðum á sunnudags
nóttina að fallegt hefði verið að
sjá eldana í Surtsey.
Gosið er enn svipað og það hef
ur verið, kemur úr sama gígn-
um, rennur undir hraunið og
vellur glóandi fram niðri við
ströndina og dembir sér í sjóinn.
En hraunstraumurinn hefur auk-
izt. Ekkert gos er nú þeim meg-
in sem húsið er.
Þegar Gullfoss fór hjá Surtsey
í fyrrinótt var mikið hraun-
rennsli við ströndina.
Andri fékk
140 milljón kr. verðfallstrygging-
arfé til aðstoiar frystiiðnaðinum
RÍKISSTJÓRNIN mun beita sér
fyrir því, að stofnaður verði sjóð
ur með 140 milljón króna stofn-
framlagi til að standa undir verð
falli á sjávarafurðum á árinu
1967, (svo (se!m það kann að
verða miðað við verð á árinu
1966. Hér er um verðfallstrygg-
ingu að ræða, sem mun nema
frá 55—75%.
Það sem kann að verða eftir
í sjóðnum í árslok 1967 er gert
ráð fyrir að verði varið til stofn
unar verðjöfnunarsjóðs hrað-
frystiiðnaðarins, enda náist sam-
komulag um uppbyggingu slíks
sjóðs milli aðila til eflingar
frystiiðnaðinum í framtíðinni.
Gert er ráð fyrir, að ríkis-
stjórnin leggi fram frumvarp
þessa efnis á Alþingi í þessari
viku.
Hér fer á eftir fréttatilkynn-
ing um* þetta mál frá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna:
„Störf fjögurra manna nefnd-
ar þeirrar, sem fjallað hetfur um
rekstrargrundvöll frystihúsanna
og í eiga sæti fulltrúar ríkis-
stjórnarinnar og hraðfrystiiðn-
aðarins, hafa leitt til þess, að
ríkisstjórnin hefur gefið kost á:
a) 55%—75% verðlfallstrygg-
ingu á árinu 1967, miðað
við endanleg verð ársins
1966 á þeim frystum afurð-
um, sem hagræðingarfjár-
greiðslur ná til. Verðtrygg
ingin miðast við fiskteg-
undir og greiðist frystihús-
unum jafnóðum og sölu-
samtökin greiða fiskand-
virðið.
b) Afurðalán verði óbreytt í
krónutölu frá því, sem var
á árinu 1966.
c) 75% hagræðingarfjár verði
greitt við veðsetningu af-
urða. Hagræðingarfé verði
óbreytt frá árinu 1966.
f tilefni af þessu vilja stjórn-
endur undirritaðra samtaka hrað
frystiiðnaðarins lýsa yfir eftir-
farandi:
Þrátt fyrir þá staðreynd að
hraðfrystihúsaeigendur telja, að
með þessum ráðstöfunum sé
Ejorgað úr
Hainarijarðar-
höfn
MAÐUR datt í Hafnarfjarðar-
höfn aðfaranótt sunnudags um
kl. 01.00. Mjanninum var bjargað
af lögreglu og fleirum, og var
hann orðinn sæmilega hress, að
sögn Hafnarfjarðarlögreglunnar
í gær og virtist ekki hafa orðið
meint af volkinu.
hvergi nærri nógu langt gengið I þess, að ekki verði gripið til inn
til lausnar aðsteðjandi rekstrar- heimtuaðgerða gegn hraðfrysti-
vandræðum hraðfrystiiðnaðar- húsunum á meðan athugun á
ins, fallast þeir, eftir atvikum, fjárhag þeirra fer fram“
á þessa skipan mála í trausti
43 tonn
Bíldudal, 27. febrúar.
ÁGÆTUR afli var hjá netabát-
um í síðasta róðri. Andri fékk
til dæmis 43 tonn, sem mestallt
var góður fiskur, rétt fyrir síð-
ustu helgi. Siðan hefur verið
bræla en þó fóru bátarnir út í
fyrradag. Hér er nú mikið frost,
10—11 stig og ekki sjóveður hjá
rækjubátum. Rækjuafli hefur
verið frekar tregur að undan-
förnu.
I bezta yfirlæti á rjúpnaveiðum
Þremenningarnir i Danmarkshavn senda Mbl. skeyti og
segja frá dvöl sinni — Tvisýnt um flugveður norður
— HER er 30 gráðu frost, heið-
skýrt veður og logn — segir
í skeyti dagsettu 24. febrúar,
sem Mbl. hefur borizt frá þre-
menningunum í Danmarkshavn
á Grænlandi, Jóni R. Steindórs-
syni, flugstjóra; Gunnari Guð-
jónssyni, flugmanni og Jóhanni
Erlendssyni, flugvirkja — en
eins og kunnugt er skemmdist
flugvél þeirra, Glófaxi, í lend-
ingu í fyiri viku þar nyrðra.
— Flugvélin Glófaxi stendur
hér úti á ísnum með brotinn
vinstra hjólaútbúnað og vinstra
skíði. ísinn er alltaf á hreyfingu
og frá honum berast drunur, en
flmgvélinni er ekki hætta búin
að sinni.
— Við vorum aldrei í neinni
hættu og í gær gerðum við ráð-
stafanir til þess að verja flug-
vélina. Farið er að birta eftir 3ja
mánaða myrkur.
— í gær var skotinn hér ís-
björn og tveir aðrir skömmu áð-
ur. Talsvert er af rjúpu hér um
slóðir og á morgum förum við á
skytterí. Við lifum hér í bezta
yfirlæti, borðum hátíðamat, t.d.
moskuuxasteik og rjúpuir. Á
kvöldin er spilað á spil, lesið,
skrifaðar dagbækur o.fl. Hér
starfa 12 menn, sem allir senda
vinum sínum á íslandi beztu
kveðjur og við biðjum ykkur
einnig fyrir kveðjur til fjöl-
skyldnanna og annarra kunn-
ingja og vina.
Skíðið undir Gljáfaxa var
ókomið til landsins í gær, er
Mbl. hafði samband við Svein
Sæmundsson, blaðafulltrúa Flug
félags fslands, en von var á því
á hverri stundu. Fremur óhag-
stætt veðurútlit var þá við Dan-
marktíhavn og óvíst, hvort flogið
yrði nú í morgun. Það er ætlun
Flugfélagsins, að Gljáfaxi fari
strax og veðúr leyfir til þess að
sækja þremenningana og munu
þá fara í förina sérfræðingar til
þess að rannsaka skemmdirnar á
flugvélinni svo og fulltnúi tryg'g
ingarfélagsins. Þá mun flugvél-
inni ætlað að ljúka við þá áætl-
un, sem Glófaxi átti að fara og
ljúka þar með skíðafluginu.