Morgunblaðið - 12.04.1967, Page 4

Morgunblaðið - 12.04.1967, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1967. > BILALEICAN FERD SÍMI 34406 Bensín innifalið í leigugjaldi. SENDU M IVIAGIXÚSAR SKIPMOLTI21 SIMAR 21190 eftir lokun simi 40381 a, ,u j-44-44 \mim Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA bíloleigon Ingrólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensin innifalið í leigugjaldL Sími 14970 BÍLALEIGAN VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. SMBifl TÍMA OG FYBIRflOTN /7==>B/UU£/*JU$ Ite/LtyœF BAUOARABSTIG 3T SÍMI 22022 Fjaðiir. fjaðrablóð. hljóðkútai púströr oJl varahlutlr í margar gerðir bifreiða. Bílavörubúðin FJÖÐBIN Laugavegi 168. — Suni 24180. K R. Knattspyrnudeild Hópferðabílar aJUar stærðlr ® i mfiin/tft Simar 37400 og 34307. Kópavogur leiguhúsnæði 6ska eftir lítflli leiguíbúð I Kópavogi, sem um 25—25 ferm., upphitað vinnupláss gæti fylgt. Möguleikar fyrir leiguliða að fá aukavinnu við léttan iðnað á staðnum. Til- boð seindist Mbl. í síðasta lagi á föstudag merkt „X — 2309“. Sjónvarpið og börnin Sjónvarpseigandi skrilar: „Kæri Velvakandi Ég er mjög ánægður með sjón varpið og finnst það hafa farið vel af stað. En ég er hins vegar óánægður með breytinguna á sjónvarpstímanum á sunnudög- um. Það var ágætt að byrja klukkan fjögur eins og áður, en afleitt síðan sendingin hófst ekki fyrr en klukkan sex. í fyrsta lagi missa þeú, sem horfa á sjónvarp, af kvöldfrétt um útvarpsins. f öðru lagi — og það er þó mikilvægara — truflar þetta mjög matmálstím ann. Barnatíminn er fluttur á hinum venjulega matmálstíma allra landsmanna — og fer allt borðhald á heimilum út um þúfur. Börnin komast ekki í ró fyrr en um síðir — og þá fara þau oft svöng i rúmið, því erfitt er að hemja þau við mat borðið, eins og fyrr segir. Þetta er bölvað fyrirkomu- lag og mælist illa fyrir hjá öll- um, sem ég þekki. Oþarfi var að teygja dagskrána fram á kvöld- ið nema þá með lengingu henn- ar. Ágætt var að byrja barna- tímann það snemma að honum lyki nokkurn veginn fyrir mat — og Denni dæmalausi þyrfti líka að hafa sýnt sig fyrir mat- artímann, þvi stálpaðri börnin lita hann sem eins konar fram- hald barnatímans. Velvakandi viltu ekki koma þessu á framfæri við sjónvarpið og biðja herrana þar að íhuga málið aftur. Annars þakka ég sjónvarps- mönnunum allt annað. Sjónvarpseigandi" ^ Tóbaksauglýs- ingar Bindindismaður skrifar: „Velvakandi, Mér finnst ánægjulegt að sjón varpið skyldi loks hætta að taka við tóbaksaugíýsingum. Þetta ætti að verða útgefendum blaða og tímarita hvatning til þess að stöðva birtingu þessara hvimleiðu og ég segi — stór- hættulegu auglýsinga. Ég skil i rauninni ekkert í blaðaútgef- endum að láta tæla sig til þess að ganga til liðs við tóbakssal- ana. öllum er fyrir löngu Ijóst, að tóbakið skaðar heilsu manna — ekkert lítið. heldur stóríega. Ég vil beina þeim tihnælum til útgefenda blaða og tímarita að þeir leggist á sveif með okkur, sem viljum efla hreysti og menningu íslendinga: Útrým um tóbaki og víni. Burt með Bakkus. — Bindindismaður" Velvakandi langar til að gera örlitla athugasemd við þetta bréf, eða öllu heldur að koma með skýringu. Blaðaútgefendur eru sennilega ekkert verri menn en bindindismaðurinn, sem bréfið skrifar. En eins og honum er kunnugt berjast blöð in í bökkum fjárhagslega og útgáfustarfsemi hefur aldrei þótt ábatasöm á íslandi. Það er ósköp einfal mál — og skilj anlegt. Mörgum útgefanda er sennilega Ola við tóbakið, þótt hann telji sig ekki hafa efni á að hafna auglýsingum, sem greiddar eru fullu verði. Þegar ÖIlu er á botninn hvolft eru aug lýsingar blöðunum það sama og síldin er sjómanninum. ÍC Hvað hrjáir okkur mest? Reykvíkingur skrifar: „Kæri Velvakandí. Þvi ertu alltaf að hleypa þess um leiðinda kerlingum inn í dálkana þína — þessum, sem stöðugt eru að prédika um skað semi áfengis og sjá rautt, ef þær heyra minnst á vin? — Vissulega getur vínið haft slæm ar afleiðingar. En við, sem teljum okkur kunna að fara með vín á réttan hátt, álítum það hreinasta óþarfa að láta ein hverjar kerlingar segja okkur fyrir verkum, skammta okkur eða leggja okkur lífsreglurnar. — Þeir, sem stöðugt eru að prédika um hætturnar af bjórn- um, telja sig að líkindum ekki ofurselda Bakkusi. Vitanlega eiga þeir að hafa frelsi til þess að svara fyrir sig. En það fer f taugarnar á öllu venjulegu fólki, þegar þessar dömur og herrar telja sig þurfa að hafa vit fyrir öllum landslýð. Leifið hverjum og einum að hafa vit fyrir sjálfum sér. ákveða hvað honum er fyrir beztu — og Iátið hann f friði — hvort, sem hann vill drekka eða ekki. Fólk er orðið þreytt á þessum hei- lögu manneskjum, sem stöðugt telja sig þurfa að grípa fram fyrir hendurnar á samborgurum sinum — til þess að „frelsa“ þá. Látið hvern og einn um að „frelsa" sjálfan sig, skiptið ykk ur ekki af högum annarra. Gef ið ykkur meiri tíma til þess að Ieysa eigin vandamál og þegar þið reynið að bæta þjóðfélagið, byrjið á ykkur. Áfengisbölið er ekki það eina. sem hrjáir okk- ur. Sá, sem laus er við áfengið, er þar með ekki syndlaus. Reykvíkingur". it Umferðin „Heiðraði Velvakandi! Er ég las greinina í dálknum þínum, sem Skútukarl skrifaði þann 5. apríl varð ég fyrir sár- um vonbrigðum sérstaklega vegna þess, að ég hélt að karl- menn gætu ekki verið svona miklir „nöldurseggir". Þessi blessaður Skútukarl heldur því fram að kvenfólkið ætlist til að karlmenn víkji fyr ir því og álítí sig sem heilagar- kýr í umferðinni en þarna fat- ast honum heldur betur. Það væri þokkalegt ef allar konur tækju ökupróf með það markmið fyrir augum, að treysta eingöngu á karimennina, þegar út í umferðina væri kom ið, því að þessir „uppörvandi** þjóðfélagsbræður hafa víst mik ið meira en nóg með sjálfa sig. Ég get vel skilið að skútu- karli finnist það vera neyðar- úrræði, að víkja fyrir kven- manni í umferðinni, þvi að sam kvæmt sjólögunum verða allir að víkja fyrir seglskútum. Aðeins eitt að lokum: Verum samtaka í að sýna fyllstu varúð í umferðinni, en kennum ekki öðrum um það sem afvega fer hjá okkur. Virðingarfyllst, Ein nitján ára! ★ Kvikmyndahús „Velvakandi! Sl. sunnudag fór ég i bíó kL 9. Sá gífurlegi sóðaskapur, sem mér þar mætti. var slíkur, að jafnvel karlmönnum ofbauð. Popkorn, plastpokar og margs konar bréfadrasl huldi gólfin. Þessu er snarlega hægt að kippa I lag með þvi að hætta sölu sælgætis í kvikmyndahús- um eða þrífa húsin milli sýn- inga. Hneyksluð húsmóðir". HAFNARSTRÆTI 3SIMI20455 fermingar PHILIPS útvarpstæki í miklu úrvali. PHILIPS plötuspilarar 4 gerðir. PHILIPS segulbandstæki í miklu úrvalL PHILIPS rafmagnrakvélar 4 gerðir. PHILIPS hárþurrkur ___ijuill ~ PHILIPS tæknileikföng ■MMRDMIÍ RONSON hárþurrkur HEIMILISTÆKI S.F. ... ------------- - --- Trilla óskast Óska að kaupa trillu má vera allt að 5 tonn. Tilboð er greinir ásigkomulag verð og greiðslu- sldhnála sendist MbL fyrir laugardag. Mert TKILLA „2088“ Einbylishús — Hafnarfjörður Til sölu einbýlishús við Hverfisgötu. 3 svefnherbergi og bað á efri hæð samJiggj- andi stofur og eldhús á neðri hæð. Bíl- skúr. Skip og Fasteignir Austurstræti 18 — Sími 21735. Eftir Iokun 36329. Bezt sð auglýsa í IVCorguublaðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.