Morgunblaðið - 12.04.1967, Qupperneq 11
-MOROTJNBIiAÐI©, M®VTKUDAOtTR 12. APRÍL 19«7.
„Heldur dauft um far-
fuglakomur í Surtsey"
— segir Arni Waag i samfali við Mbl,
JÞAÐ hefur verið heldur dauft
um farfuglakomur hér í Surts-
ey,“ sagði Árni Waag fuglafræð-
lngur. þegar við áttum tal við
hann gegnum talstöðina í fyrra
dag, en eins og kunnugt er,
dveljast tveir menn, Árni Waag
og Völundur Hermóðsson, við
rannsóknir á komum farfugla til
eyjarinnar, og þá einnig með-
fram til að rannsaka magainni-
hald þeirra, í því skyni, að
kanna, hvort þeir beri með sér
fræ erlendis frá.
„Við höfum frétt af þvi frá
meginlandinu, að skógarþrestir
séu almennt komnir, þeir, sem
ekki eru hér staðfuglar, en slíkt
er algengt. Við höfum aðeins séð
5—6 skógarþresti, hinn 2. apríl,
svo að líklegt er að meginhluti
skógarþrastanna hafi að þessu
sinni farið framhjá Surtsey.
Eins og kunnugt er, er það ým-
ist, að Tjaldar séu staðfuglar
og farfuglar. Við höfum séB 4
hópa af Tjald koma af hafi hing- |
að frá suðaustri, og þar er örugg j
lega um farfugla að ræða. En
Tjaldar eru hérna að staðaldri.
Einnig höfum við sér hér Tildr-
ur, en hún er farandfugl, eins
og það er nefnt. Nokkurs konar
millilending, áður en hún held-
ur norðar á bóginn.
í sjónum í kringum eyjuna er
óhemjumikið um ljósátu, og
mikið af henni hefir rekið á
land. Á henni gæðir Ritan sér,
og segja má, að þúsundir af Rit-
um séu allt í kringum eyjuna,
rétt upp í landssteinum, einkan-
lega þó norður eða norðaustur
af eyjunnL“
„Og hvernig líður svo ykkur
eyjarskeggjum?"
„Alveg skínandi vel. Húsið hér
er með afbrigðum gott, vel smíð-
að, og aðbúnaður allur hinn
beztL“
„Og Surtur hefur ekkert angr-
að ykkur?“
„NeL sambýlið við hann hef-
ur gengið slysalaust, þetta er
hinn bezti nágranni. Hraun-
rennslið er stöðugt, en þó er
nokkur dagamunur á því.
Hraunið vellur ekki, eins og þú
veizt, upp úr gígnum, heldur
rennur neðanjarðar, nærri því
niður að flæðarmáli og vellur
þar í sjó fram.“
„Og ekkert meira, Árni?“
„Ekkert annað en að við biðj-
um að heilsa fólki okkar á meg-
inlandinu, og eins og ég sagði
áðan, okkur liður alveg skín-
andi vel, ekkert sem á bjátar.“
Hundrað dr í Borgarnesi
EINS OG kunnugt er átti Borg-
•rnes nýlega 100 ára afmæh, og
í tilefni af því hefir bókaút-
gáfan Iðunn gefið út afmælisrit
eftir Jón Helgason ritstjóra:
»Hundrað ár í Borgarnesi".
Höfundurinn Jón Helgason er
kunnur rithöfundur, sem er sýnt
um að draga fram í dagsljósið
gamlar sagnir og fróðleik, og næg
ir að benda á lesbók Tímans,
•em hann hefir ritstýrt undan-
farin ár, og hlotið vinsældir und
ir ritstjórn hans.
Sagnfræðilegar tilhneiglngar
höf. koma skýrt fram i þessu
afmælisriti. t fyrstu köflum rits-
ins, eða 254 bls. ef 314 (utan
annáls og nafnaskrár) er höf.
mjög natinn við að tína saman
sundurlaus brot úr fábreyttri
*ögu Borgarness, og raða þeim
upp I læsilegt rit. Þó er mörgu
sleppt, en annað tekið, sem þýð
ingarminna er. Verður slíkt allt
af matsatriði, og skal ekki sér-
ctaklega átalið.
Myndir eru allmargar i bók-
innþ en þeim er svo handahófs-
lega raðað, að þær vísa ekki til
þeirra atburða eða aðhafna, sem
þær væntanlega eiga þó að
skýra. Óviðfeldið er það, fyrst
farið er að birta myndir af sum
tim hreppsnefndarmönnum, að
hafa þá ekki alla.
Þá hefði ekki verið óviðeig-
andi. að myndir af Ólafi Magnús
syni skipstjóra hefðu bifzt í rit-
syni, stýrimanni hans og síðar
skipstjóra, og Gunnari Ólafs-
syní skipstjóra hefðu birst í rit-
inu, svo stóran þátt áttu þessir
menn í að draga björg í bú Borg
nesinga, sem meira munaði um
en flest annað þann tíma, sem
þeir voru I þjónustu þeirra.
Þá eru engar myndir af þeim
skipakosti, sem Borgnesingar
hafa átt og gert út frá Borgar-
hesi, sumpart með öðrum hér-
aðsbúum, eins og e/s. Suður-
lands, m/s. Laxfoss og siðast
m/s. Akraborg. Ekki heldur af
fiskiskipunum m/s. Eldborg, m/s.
Hafborg og m/s. Hvítá. Öll hafa
þessi skip og útgerð þeirra þó
ekki átt lítinn hlut í batnandi
afkomu kauptúnsins, bæði sem
atvinnuveitendur og gjaldþegnar
til hreppssjóðs, sem sérstaklega
munaði um, áður en útsvarslög-
um var breytt þannig, að sam-
vinnufélög yrðu útsvarsskyld
eftir sömu reglum og önnur at-
vinnu- og verzlunarfyrirtæki.
Síðasti hluti bókarinnar, sem
ber nafnið „Síðasti aldar þriðj-
ungurinn", er aðeins 60 bls.
Þetta árabil er raunar sá timi í
sögu Borgarness, sem megin
þættir í athafna og þróunarsögu
þess verða tiL og er engu líkara
«i höfundi hafi tekizt að gera
honum skil líkt og skákmanni,
sem lendir í tímahraki. Hann
leggur mest af tíma sínum í að
f>yggja upp skákina með þraut-
hugsaðri byrjun, en þegar nálg-
ast síðustu leikina, verður hann
að leika af of miklum hraða, og
án þess að hafa tíma til að hugsa
skákina, sem endar svo með móti
hans.
Þessi hluti bókarinnaT verður
að teljast nauða ómerkilegur og
hroðvirknislega frágenginn. Er
það ekki afsakanlegt, vegna
þess, að til þess að gera þennan
kafla sæmilega úr garði, voru
heimildir tiltækarL bæði i rituðu
máli og hjá fjölda manna, sem
enn eru á lífi og þaulkunnugir
sögusviðinu.
Margt i frásögn bókarinnar frá
þessu tímabili er rangt með far-
ið, breitt sig óþarflega mikið yfir
lítilfjörlega atburðL en aðrir,
sem skipta verulegu máli í fram-
farasögu þorpsins naumast eða
ekki nefndir, t. d. kaupin á
Hamrinum, bygging nýja barna-
skólans, samgöngumálin o. m. fl.
Ekki er að efa, að höfundi hafi
verið áhugamál að gera þennan
kafla bókarinnar jafnvel úr
garði sem hina fyrri, en kunn-
ugum dylst það ekki, að nokkr-
ir af heimildarmönnum hans,
sem getið er í formála, hafi horft
í gegn um litað gler til ýmissa
atburða, sem þeír sjálfir voru
ekki hluttakendur I eða beittu
sér gegn. sem ekki aðeins verður
til þess, að bókin sjálf verðúr
talin léleg heimildarrit um sögu
staðarins á þessu tímabilL heldur
vinnur gegn því álitL sem höf-
undur hefir almennt haft, sem
sagnfræðingur.
Bókin er prentuð á góðan
pappír, og allur frágangur frá
prentsmiðjunni hinn snyrtilegasti
og myndir ágætar.
Friðrik Þórðarson.
Svíar lána
til Sundahaínar
A FUNDI hafnarstjórnar, sem
haldinn var 22. marz sl., var
lagt fram bréf frá Skánska Cem
entgjuteriet, dagsett 17. marz
1967, þar sem fyrirtækið býðst
til að lána hafnarsjóði jafnvii-ði
2,4 millj. sænskra króna til
Sundahafnar.
Samþykkti hafnarstjórn að
taka lán þetta og veitti hafnar-
stjóri umboð til þess að ganga
frá lántöku
Sendir Saigon her-
lið til N-Vietnam?
Saigon, 7. aprfl, AP.
FORSETI S-Vietnam, Ngu
yen Van Thieu, hótaði í dag,
að loftárásir yrðu gerðar á
Hanoi-borg eða innrás gerð í
N-Vietnam, ef árásum her
manna Viet Cong og her-
manna Hanoi-stjórnarinnar
verði haldið áfram sunnan
hlutlausa beltisins. Thieu
sagði, að árásir kommúnista
í syðri hluta hins 16 km
breiða beltis milli S- og N.
Vietnam væru vísvitandi
brot á Genfar-sáttmálanum
frá 1954, og stjórn S-Vietnam
áskildi sér rétt til að bregðast
við á hvern þann hátt, sem
hún sjálf kysi.
Er forsetinn var spurður hvern
ig þau viðbrögð mundu verða,
svaraði hann því til, að annað-
hvort yrðu sprengjuárásir gerð-
ar á Hanoi-borg eða herflokkar
frá S-Vietnam yrðu sendir til
N-Vietnam. „Verður að líta á
slíkar aðgerðir sem sjálfsvörn",
bætti forsetinn við.
Stjórn S-Vietnam hefur upp-
lýst, að N-vietnamenskir öryggis
verðir hafi farið yfir Ben Hai
fljótið milii S- og N-Vietnam á
miðvikudag og ráðist á lögreglu
stöð hálfan kílómetra sunnan
landamæranna.
Forsætisráðherra S-Vietnam,
Nguyen Cao Ky, fór flugleiðis
til Quang Tri-héraðsins I dag, en
þetta hérað á landamæri að hlut-
lausa beltinu. Hefur Ky í hyggju
að kanna það tjón, sem komrr»-
únistar hafa valdið nýlega rétt
sunnan við beltið og við herfor-
ingja sína þar.
Hlutlausa beltið, sem klýfur
Vietnam í tvo hluta um 17.
breiddarbaug, var myndað á
Genfarráðstefnunni árið 1954. -
Beltið hefur verið hlutlaust að
orðinu til þangað til síðastliðið
sumar, en þá kom þar til átaka
milli Viet Cong og Bandaríkja-
manna og síðan hafa Bandaríkja
menn gert á það fjöldamargar
loftárásir.
Fiskveiðasamn-
in^tir undirrit-
'<j
aour
Osló, 7. aprfl, NTB.
INNAN tveggja vikna verðirr
undirritaður samningur milll
Noregs og Danrnerkur varðandi
fiskveiðiréttindi Norðmanna við
austurströnd Grænlands. Ef
Stórþingið fellst á samninginn
í vor mun hann ganga í gildi frá
10. júlí í ár.
Samkomulagið heimilar norsk
um fiskimönnum að stunda fisk
veiðar bæði innan og utan
þriggja mílna landlhelginnar á
afmörkuðum svæðum. Danir
geta rift samningnum eftir fimm
ár, ef þessar fiskveiðar valda
tjóni á fiskistofninum við aust-
urströnd Grænlands.
Lyn og Graham McCarty
Nýíi skemmtikioftar í
Leikhúskjalloranam
LEIKHÚSKJALI.ARINN hefor
fengið nýja erlenda skemmti-
krafta þar sem ern ungu ást-
rölsku hjónin Lyn og Graham
McCarty. Þan hafa náð miklum
vinsældum í Bretlandi sem með
al annars má merkja af þvi aS
þau hafa sungið inn á tvær
„Long play“ plötnr fyrir His
Masters Voice og einnig nokkrar
minni plötur. Þí hafa þau viða
komið fram i sjónvarpi og út-
varpi.
Fréttamenn hlýddu á söng
þeirra fyrir nokkru og er lítill
vafi á að þau munu vinna hylli
íslenzkra gesta. Lyn og Graham
voru kennarar í Ástralíu og
héldu þeim starfa áfram fyrst eft
ir að þau komu til Bretlands.
Þau sungu svo gjarnan í frístund
um sínum og það gekk svo vel
að þau ákváðu að gera það að
atvinnu. Áður en þau komu hing
að til lands fóru þau í bókasafn
til að lesa sér tiL En bæklingarn-
ir sem þar var að fá voru um
tuttugu ára gamlir og ekki mik-
ið á þeim að græða sögðu þau.
— Það er ekki fyrr en maður
ferðast um og sér önnur lönd
að maður skilur hvað er gott
að vera heima. En þangaðtil ætl
um við að fara eins víða og við
getum sögðu hjónin. Þau Lyn
og Graham skemmta í einn mán-
uð í Leikhúskjallaranum, og
hljómplötudeild Fálkans mun fá
síðari Long play plötu þeirra ina
an skamms.
Öskum eftir
sendisveini strax
Ingólfsapótek.