Morgunblaðið - 28.04.1967, Síða 12

Morgunblaðið - 28.04.1967, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRIL 1967. RÆTT VIÐ FULLTRÚA Á LANDSFUNDI Hákon Salvarsson, bóníli i Reykjarfirði við Djúp, er einn fulltrúa á Landsfundinum. Við tökuan hann tali og spyrj um hann um vandamál byggð arlagsins. Hákon segir: — Aðstaða við Djúp er vfða ekki góð til heyskapar. Ræktun er heldur lítil. Sam- göngur eni góðar um sumar- tímann, ©n Djúpbáturinn bjargar okkui alveg á vet- urna. Hann er lifæð byggðar- lagsins allt frá þvi i október og fram til júnímánaðar. — Búskapur er mjög bland aður. Heldur er þó meira aí býlum, þar sem búin geta tal- izt fjárbú. Við höfum góðan markað fyrir mjólkurafurðir sem er Ísafjörður. — Rafmagnsmál eru nú mjög að batna. Bændur eru sífellt að fá dísilrafstöðVar, og er það að sjálfsögðu til mik- illa bóta. — Ég eT mjög ánægður með stjórnina. Hún hefur ver íð farsæl. Margt hefur lagazt f málum bænda og nægir þá t.d. að minna á niðurfellingu innvigtunargjaldsins. — £að er einlæg von mín að Sjálf- stæðisflokkurinn komi styrk- ur út úr kosningunum, sem eru á næsta leyti. ★ Sigurjón Ólason, sveitar- stjóri á Reyðarfirði, drap á ýmsar framkvæmdir, sem hreppurinn hefur staðið að að undanförnu. Nefndi hann fynst til vatnsveitufram- kvæmdir: — Til skamms tíma var notazt við ofanjarðarvatn á Reyðarfirði, sem fengið var í svonefndum Dýjadalslækj- um ofan við kauptúnið. En fyrir nokkru var haíizt handa um vatnsveituframkvæmdir og var borað eftir vatni á eyrunum, sem eru um 2 km innan við bæinn. Voru bor- aðar tvær holur og hefur nú verið lokið við að virkja aðra þeirra. Var vatn úr nýju veitunni lagt út í kauptúnið í haust og er lokið að leggja út fyrir svonefnda Oddnýjar- hæð, sem er utarlega í bæn- um. I sumar er ráðgert að ljúka lagningu í nýtt hverfi, sem er þar rétt fyrir utan. Verður byggður 240 tonna vatnsgeymir ofan við kaup- túnið, sem á að tryggja nægt neyzluvatn. — Annað merkt mál, sem er á döfinni á Reyðarfirði er viðbót við hafnarframkvæmd- ir. Reyðarfjarðarhöfn er sem kunnugt er ein af fjórum að- alhöfnum Eimskipafélagsins, en nú fyrir skemmstu bar svo til að eitt af skipum fé- lagsins neitaði að koma þang- að inn, því að það átti á hættu að stranda um fjöru. Hefur staðið á því, að við fengjum að moka upp utan við stál- þilið í höfninni, þannig, að hún yrði öruggt lægi fyrir hafskip. Nú I sumar höfum við einnig áhuga á að reka niður stálþil að norðanverðu við bátakví, 110 metra í vest- urátt. Væntum við þess fast- lega að hægt verði að aðstoða okkur við þetta af opinberri hálfu, því að ég veit ekki hvar er grundvöllur fyrir úr- bótum I hafnarmálum ef það er ekki þar sem höfn stendur jafnvel undir sér og Reyðar- fjarðarhöfn gerir. — í Reyðarfirði fjölgar fólki jafnt og þétt og eru íbúar hreppsins nú 686 og hefur fjölgað um 150 á siðustu átta árum. Er mikið byggt af nýj- um húsum og hafa verið af- greidd 11 ný byggingarleyfi fyrir sumarið. Á undanförn- um árum hefur einnig verið byggt mikið og nú nýlega hefur verið byggt hér hús, þar sem héraðslæknirinn hefur sína móttöku hér. Þá má nefna, að á fjárhagsáætlun yfirstandandi árs er varið hálfri milljón til varanlegrar gatnagerðar, sem verður und- irbúin í sumar, og ef til vill byrjað á. — Hvað um kosningarnar 1 vor? —Ég tel, að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi mikla mögu- leika á að vinna sigur í kosn- ingunum 1 vor. Sjálfstæðis- menn hafa sýnt það í þessu stjórnarsamstarfi, að þeir þora að taka á vandamálun- um af fullri einurð án tillits til stundarvinsælda. Þetta tel ég að beri að meta. íbúðaverðið og byggingar- samvinnufélög verkamanna og sjómanna *’ UM síðustu mánaðamót hófust f blöðum í Reykjavík mikil skrif om íbúðaverð hér í borg, og hafa þessi mál verið talsvert á dagskrá síðan og jafnvel spunn- izt í blaðaskrifin frásagnir af fbúðaverði á ýmsum stöðum á Íandinu. Ber að harma, að skrif þessi hafa verið í nokkrum æsifregna- Btíl og mikið um fullyrðingar, íem ekki eru rökstuddar að Heinu leyti Verður hér vikið nokkuð að skrrfum þessum, þótt ekki verði um tæmandi svör að ræða að sinni enda er það skoð- nn Meistarafélags húsasmiða, að «ll-langur tími geti liðið, þar til 611 kurl verði komin til grafar í tnáli þessu. Er engum til farnað- ar, að haldið verði áfram að " gkrifa um þessi mál af sömu flasgirni og að undanförnu, en Bjálfsagt er að gera hér nokkrar athugasemdir til að skýra þessi mál, þótt ekki sé víst, að slíku verði fagnað af þeim, sem hafa byrjað þessi skrif eða átt upp- tök að þeim af lítilli fyrirhyggju. Það er upphaf þessa máls, að VLsir tilkynnti það með stórri fyrirsögn á forsíðu föstudaginn 31. marz, að „byggingarkostnað- ur væri 50% af gangverði íbúða". Var síðan sagt, að komið hefði fram á aðalfundi Byggingasam- vinnufélags verkamanna og sjó- manna, sem reist hefði fjölbýlis- húsið Reynimel 88—94 fyrir fé- lagsmenn sína, að „kostnaðar- verð reyndist a. m. k. helmingi lægra en gangverð er nú á al- mennum markaði". í grein þessari í Vísi eru birt- »r ýmsar tölur, sem fengnar munu vera frá stjórn félagsins eða formanni þess, Guðmundi Guðmundssyni, því að blaðið kveðst einmitt hafa haft tal af honum. Verður að ætla, að eftir- farandi séu orð Guðmundar, þótt Vísir birti þau ekki innan til- vitnunarmerkj a: „Samkvæmt þessu virðisf svo vera, sem raunverulegur bygg- ingarkostnaður sé þessi, sem að ofan greinir, en gangverð íbúða fjarri lagi og sé um óhóflegan gróða að ræða hjá þeim, sem hafa byggt íbúðir til að selja þær“. Hinn „raunverulegi byggingar kostnaður“, sem þarna er átt við, er þessi samkvæmt sömu frásögn í Vísi: 2ja herbergja í- búð kr. 480 þús., 3ja herbergja 550 þús. og 595 þús. og 4ra her- bergja 680 þús. krónur. Stjórn BVS eða formaður þess sveigir að mörgum aðiLum með ummælum sínum í Vísi, meðal annars byggingameisturum, sem sumir hatEa gert nokkuð að því að smíða íbúðir og selja. Og Vís- ir fær fljótlega Þjóðviljann til liðs við sig, því að hann tekur málið upp 2. aprll, og hefir þá meðal annars þessi ummæli eft- ir Guðmundi Guðmundssyni: „Einn félagi okkar dró sig út úr þessu á sínum tíma og sagðist heldur vilja byggja 2ja her- bergja íbúð sína hjó Byggingar- félagi verkamanna og kostar slík íbúð á þeirra vegum kr. 787 þúsund að hans sögn. Þó nýtur það byggingarfélag opinbers stuðnings með fjár- magn, en okkar félag nýtur engra forréttinda — heiti-r Bygg- ingarfélag verkamanna og sjó- manna“. Vísir hefir síðan haldið áfram að skrifa um þessi mál og eink- um beint skeytum sínum að byggingameisturum, sem vænd- ir eru um að okra á íbúðum. Rétt er þó að geta þess, að Bygg- ingarfélag verkamanna fær sinn skerf af þessum aðdróttunum, svo sem sagt er hér að framan, þar sem getið er þeirra kjara, sem einn af félögum í BSV varð að sæta, þegar hann hvarf úr því félagi og til Byggingarfélags verkamanna. Þetta félag hefir nú starfað áratugum saman, og mun þetta vera í fyrsta sinn, sem því er brígzlað um að okra á því lág- launafólki, sem keypt hefir íbúð- ir fyrir tilstilli þess. Hitt mun sönnu nær, að það félag hafi verið talið halda íbúðarverði niðri, en nú eru komnir fram ný ir spámenn og er þá öllum og öllu öðru varpað fyrir borð. Þess er að vænta, að forvígis- menn þess félags, sem reist hefir fleiri íbúðir en nokkurt annað hér á landi, geri það fyrir Vísi og heimildarmenn hans að upp- lýsa, í hverju okur félagsins er fólgið. í þessu sambandi er rétt að benda á, að áætlunarverð íbúða hjá Byggingarsamvinnufélagi Reykjavíkur er nú sem hér seg- ir: Fyrir 2ja herbergja íbúðir 480 þús. kr., 3ja herbergja 670 þús. og 4ra herbergja 813 þús. kr. Þessi áætlun er við það miðuð, að íbúðir séu afhentar tilbúnar undir tréverk og gengið frá allri sameign. Enginn mun halda því fram, að þetta félag skorti reynslu í að byggja, enda þótt það hafi ekki verið eins mikilvirkt og Bygg- ingarfélag verkamanna, og enn hefir því ekki verið haldið fram, að það hafi lagt stund á okur í starfsemi sinni. Eins og sagt hefir verið hér að framan, er það ekki ætlun Meist arafélags húsasmiða að biðja blöðin að birta fyrir sig langt mál að þessu sinni. Sjálfsagt er hins vegar að benda á ýmis atriði í sambandi við þetta mál, sem kunna að fara framhjá öll- um almenningi, og verður þá ekki hjá því komizt að krefja stjórn BVS svara við ýmsum spurningum. Stendur væntan- lega ekki á svörum hjá mönnum með svo hreinan skjöld sem þeim. Vera kann þó, að svörin gefi tilefni til frekari skrifa, og mun Meistarafélagið þá ekki telja eftir sér að taka þátt í rök- ræðum um þetta mál. En félagið vill endurtaka það, sem áður var sagt, að vart verður þetta mál útrætt, fyrr en byggingu hússins að Reynimel 88—94 er að fullu lokið og gengið hefir verið frá öllum reikningum. Þá fyrst verð ur málið ljóst, þá sést hver verð- ur endanlegur kostnaður, og væntanlega verða forvígismenn félagsins eins gunnreifir þá og þeir hafa verið að undanförnu. Það er þegar vitað, að bygg- ingu Reynimels 88—94 er ekki lokið enn. Óvíst er, hvenær bygg ingunni verður lokið til fulln- ustu, en fyrir nokkru var þetta ógert, sem nú skal upp talið: Eftir er að pússa þriðjung byggingarinnar og kálfinn. Síð- an mun einnig ætlunin að mála húsið að utan, og er því að sjálf- sögðu heldur ekki lokið. Eftir er að setja öll handrið úti. Hita- veituheimtaug er ógreidd, en hún kostar á annað hundrað þúsund krónur. Þetta eru aðeins fáein atriði, hin stærstu, sem eftir eru, en stjórn félagsins er vonandi fáán- leg til að birta nákvæma sundur liðun á kostnaði við frágang á sameign, sem framkvæma á, og ekki á að fara fram úr kr. 880,- 000 að því er sagt hefir verið. Þá er ekki ósennilegt, að ýmis- legt fleira, sé enn ógreitt í sam- bandi við bygginguna, bæði sitt- hvað, sem talið hefir verið, og ýmislegt, sem ekki hefir verið tíundað. Er rétt, að stjórn BVS gefi upplýsingar um þetta atriði og væntanlega stendur ekki á því, að hún geri það. Enn er að geta ýmissa atriða, sem fram hafa komið, og hafa sitt að segja, þegar litið er á fjár mál BVS, sem „nýtur engra for- réttinda", eins og haft hefir ver- ið eftir Guðmundi Guðmunds- syni. í því sambandi langar marga til að vita, hverju nafni ætti að nefna nokkur þau atriði, sem upp verða talin hér á eftir. BVS er stofnað 1. marz 1965. Því er samstundis fengin til af- nota ein bezta og eftirsóttasta fjölbýlishúsalóð borgarinnar og getur þegar hafið byggingafram- kvæmdir um mánaðamótin ágúst september. Félagið er m. ö. o. ekki hálfs árs gamalt, þegar svo er komið, að það er byrjað að byggja. Hvað skyldu þeir menn, sem berjast árangurslaust vikum og mánuðum saman við að fá lóð, kalla slíka fyrirgreiðslu af borgarinnar hendi? Skyldi eng- um koma til hugar þetta, sem G. G. afneitaði — forréttindi! Flestir húsbyggjendur verða að byrja á að greiða gatnagerð- argjald, þegar þeir fá loks lóð hjá borgaryfirvöldunum. Svo geta liðið 12—18 mánuðir, þar til sömu aðilar mega hefja bygg- ingaframkvæmdir. En þurfti BVS að sæta þeim kjörum? Nei, BVS vax ekki krafið nema um hluta gagnagerðargjaldsins mán- uði áður en framkvæmdir hóf- ust, og lokagreiðsla á þessu gjaldi fór ekki fram fyrr en átta mánuðum síðar. Rétt er að geta þess, að gatnagerðargjaldið nam alls 302,550 krónum, að því er Vísir segir, og er erfitt að sjá, hvernig sú tala er til komin. Við sömu götu reistu aðrir aðilar hliðstætt fjölbýlishús, og þar var gatnagerðargjaldið ákveðið 413,- 000 krónur. Skyldi nokkrum detta í hug forréttindi, þegar þessar stað- reyndir eru hafðar í huga í sam- bandi við tilhliðrunarseml Reykjavíkurborgar við BVS? Þann 26. apríl 1966 fékk BVS 2.6 milljón króna lán hjá Bygg- ingasjóði ríkisins til að fleyta sér yfir erfiðan hjalla, meðan beðið var eftir fé frá Húsnæðis- málastjórn. Sami sjóður lánaði félaginu aftur eina milljón króna 13. febrúar sl. Slíka fyrirgreiðslu fá aðeins þeir, sem eru í náðinni hjá vissirm mönnum og njóta for réttinda. Eða hvað finnst þeim mörgu, sem hafa staðið í ströngu mán- uðum og árum saman við að byggja yfir sig íbúð, sem hefi-r stöðvazt hvað eftir annað vegna fjárskorts? Hvað finnst þeiim, sem hafa ekki getað fengið fé hjá Húsnæðismálastjórn, þótt þeir hafi haft lánshæfar íbúðir? Það er svo sem ekki að furða, þótt formaður BVS hafi talið rétt að guma af því, að hann og félagar hans hafi „gert það, sem allir geta gert“ — án forrétt- inda! Þetta er nú orðið alllangt mál og skal litlu einu við bætt. Er líka frekar von til þess að greið svör fáist, ef ekki er spurt of margs í senn. Þó verður ekki hjá þvi komizt að bæta við nokkr-um spurningum að end- ingu. Er þá fyrst s-ú, hvert hafi verið verð á íbúðum í ágúst 1965, þeg- ar BVS lét félagsmenn sína greiða fyrstu greiðslu, svo nokk- ur samanburður fáist við það verð, sem félagið talar nú um 4 ibúðum sínum. Það er vitað, að hjá bygginga- meisturum er ákveðið, fast verð Framh. á bls. 21

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.