Morgunblaðið - 28.04.1967, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.04.1967, Blaðsíða 32
Lang stœrsfa og fjölbreyttasta blað landsins Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1967 Ferðamálaráðstefn- an sett í gær RÁÐSTEFNA Ferðamálaráðs var sett að Hótel Borg klukkan tíu f gærmorgnn og voru þar saman komnir um 80 fundarmenn viðs- vegar að af landinu. Lúðvík Hjálmtýsson, form:<5ur ráðsins bauð fundarmenn velkomna og Ingólfur Jónsson, samgöngumála ráðherra setti ráðstefnuna. Geir Hallgrimsson, borgarstjóri bauð fundarmenn velkomna til Rvik- ur. Þá var Sigurður Magnússon, kosinn fundarstjóri og örlygur Hálfdánarson, fundarritari. Fyrsti liður á dagskránni var framsögu- erindi Þorleifs Þórðarsonar, for- stjóra Ferðaskrifstofu ríkisins, fjallaði það um Rvík sem ferða- mannabong. Aðrir framsögu- menn voru dr. Sigurður Þórar- insson, sem talaði um náttúru- vernd, Haraldur J. Haimar, rit- stjóri, sem talaði um möguleika fslands sem ferðamannalands, Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneyt- MADRID 26. apríl, AP — 1 morgun kom upp eldur í húsa- kynnum spænska stórblaðsins ABC við breiðgötuna Castellena f Madrid. Hús eru þar heldur fornfáleg og gekk illa að hemja eldinn framanaf en tókst þó að lokum. Talið er að eldurinn hafi stafað af sprengingu í brúsurn með hreinsilegi. Nokkrir verka- menn slösuðust í eldinum og a.m.k. einn slökkviliðsmaður. Tjón varð töluvert. isstjóri, sem talaði um samgöngu- mál og Lúðvík Hjálmtýsson, sem ræddi um hótelmál. Miklar umræður urðu á eftir og var þeim haldið áifram til klukkan að verða sjö um kvöld- ið. Þá var skipað í nefndir til fjalla um þau mál sem framsögu erindin voru um, og framsögu- menn sjálfir skipaðir formenn, nema hvað Konráð Guðmunds- son, varð formaður Hótelmála- nefndar. Nefndirnar hefja svo störf klukkan níu fyrir hádegi í dag og almennur funduæ verð- ur haldinn klukkan tvö. Verða nefndarálit þá rædd. Ráðstefn- unni lýkur svo í kvöld. Lúðvík Hjálmtýsson býður fundarmenn velkomna á Ferðamálaráðstefnuna 1967 Rannsóknennekki lokið í gærkvöldi Steinninn vó ekki 4 tonn RANNSÓKN var ekki lokið i máli skipstjórans á togaranum Brandi, sem tekinn var að meint um ólöglegum veiðum þrjár og hálfa sjómílu innan landhelginn ar SV af Eldey sl. mánudag, Veitinga- og gisti hús á Selfossi Fundur um stofnun hlutafélags f NÝÚTKOMNU Suðurlandi seg- Ir, að undanfarið hafi mikið ver- Ið rætt nm nauðsyn þess að bæta úr gistiaðstöðu suðvestanlands, einkum á Selfossi. Segir enn- fremur, að á Selfossi sé nú engin aðstaða til gistingar, en með sí- vaxandi umferð sé knýjandi þörf fyrir sæmilega rúmgott gisti- og veitingahús á staðnum. Washington, 27. apríl — AP LÍTCL kjarnorkusprenging var framkvæmd neðanjarðar í dag í tilraunastöð bandarísiku kjarn- orkustöðvarinnar 1 Nevada. Sprengingunni var lýst sem lítil- vægri og hefði sprengikr >ftur hennar verið undir 20.000 tonn- um af TNT. Hafi þvi nokkrir aðilar tekið höndum saman um að leysa þetta máL Það voru sýslumaður Árnes- sýslu, oddviti Selfosshrepps, gest- gjafi Tryggvaskála, framkvstj. Búnaðarsamb. Suðurl., forstj. Mjólkurbús Flóamanna og for- stjórar beggja kaupfélaganna i Árnessýslu, sem komu saman til fundar nýlega og ræddu þetta máL Á fundi i Iðskóla Selfoss i gær var hiutafé ákveðið kr. 3. milljón irir. 27 einstaklingar og fimm fé- lagasamtök lofuðu að leggja fram samtals 2.585.000,00. þegar Morgunblaðið hafði sam- band við Jón Abraham Ólafsson um sjö-leytið í gærkvöldi. Sautján menn höfðu þá kom- ið fyrir réttinn og átti að halda rannsókninni áíram í gær- kvöldi. Þegar henni lýkur verða niðurstöðurnar sendar saksókn- ara. Steinn sá sem togarinn kom inn með var rannsakaður í gær. Reyndist nann mun minni en fyrst var áætlað, vó aðeins um 1 tonn. Skipsmenn höfðu áætlað •þyngd steinsins 4—5 tonn. Það var gossteinn svokallaður, aieð gljúpu yfirborði. Ragnar Kjartansson formaöur ÆSÍ 5. þing ÆSI sett á laugardag FIMMTA þing Æskulýðssam- bands fslands verður haldið i Reykjavík dagana 29. og 30. apríl. Þingið verður sett laugar- daginn 29. apríi kl. 14.00 í Þjóð- leikhúskjallaranum. Helztu dagskrárliðir þingsins verða: Æskulýðslöggjöfin, ýms- ar nýjungar í starfsemi sam- bandsins og lagabreytingar. Aðalfundur fulltrúaráðs ÆSÍ var haldinn þriðjudaginn 25. apríl á skrifstofu sambandsins að Þingholtsstræti 1. Þar fór fram stjórnarkjör og í framkvæmdastjóm fyrir næsta kjörtímabil voru kjörnir: Formaður Ragnar Kjartansson SUS, og aðrir í stjórn með hon- um; Ingi B. Arsælsson SUF, örl- ygur Geirsson SUJ, Haukur Már Haraldsson ÆF og Valur Vals- son SŒtí. Sjónvarpið fær nýtt myndsegulband SJÓNVARPIÐ fékk nýtt mynda- segulbandstæki i gær, en það átti eitt fyrir. Nýja tækið er af sömu gerð, Ampex, en fullkomn- ara. Pétur Guðfinnsson, fram- kvæmdastjóri Sjónvarpsins, sagði Morgunblaðinu að þetta yrði til mikils hagræðis fyrir þá og einn ig aukins öryggis þvi myndasegul bönd eru flókin tæki og margt getur bilað. Bænadagurinn helgaður trúar- vakningu á fslandi BISKUPINN yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, hefur sent prestum landsins bréf þar sem hann óskar þess að bænadagur þessa árs, sem verður 30. apríl, verði belgaður sama bænarefni og dagurmn í fyrra, trúarvakn- lngu á Islandi. f bréfi sínu segir hann m.a.: í hverri guðsþjónustu flytjum vér i einhverTi mynd bæn um að kirkja Krists megi eflast og andlegur hagur þjóðar vorrar blómgast. Sameinumst enn i þessari bæn á bænadegi og lát- um hana ekki hljóðna. Vér skul- um biðja þess aí alihug, að þjóð vor vakni til sterkara viðnáms og ákveðnari viðbragða gegn hverri þeirri þróun sem horfir til dvínandi áhrifa kristinnar trúar á uppeldi og mótun lands- manna. Enginn sem 'hefur þegið náð heilagrar trúar gengur þess dulinn, að þar er fjársjóður fólg inn sem of margir meta lítils í reynd, sjálfum sér og samfélag- inu til tjóns. Síðar í bréfinu segir: Biðjum þess að kirkjan á íslandi vakni til sterkari vitundar um köllun sína og verði betur tygjuð til þess að vísa til vegar. Biðjum þess að hún megi í orði og verki vitna með spámanninum: Drott- inn hefur sent mig með sinn anda. Svo segir Drottinn frels- ari þinn: Ég, Drottinn Guð þinn, er sá sem kenni þér að gjöra það sem þér er gagnlegt, sem vísar þér þann veg er þú skalt ganga (Jes. 4«,17). Biðjum um hreina og flekklausa guðrækni (Jak. 1,27) sanna, lifandi trú. í þessari bæn er fólgið allt sem til bata horfir og blessunar fyrir land vort og lýð. Biðjum þess hver um sig að Drottinn byrji í oss hið góða verkið. 02 full- komni það. Hann sagði að þeir fengju i sívaxandi mæli sendar myndseg- ulbandsspólur utan úr heimi og þegar tvö tæki væru fyrir hendi væri hægt að „kopiera“ og raða niður eins og þeir vildu. Einnig auðveldaði það mikið upptöku þátta með Islenzku efni. Þegar tveir myndsegulbandsþættir koma, hvor á eftir öðrum þurfti áður að hafa minnst fimm mín- útna hlé, með uppfyllingarefni meðan verið væri að skipta um spólur. Þegar nýja tækið verður tekið í notkun er það óþarfi. Það verður sett upp til bráða- birgða í gamla tækjaherberginu sem þeir kalla,, en endanlega komið fyrir í maímánuði eða þar um bi'l, þegar koma til landsins upptökutæki sem leysa gamla sænska sjónvarpsbílinn af hólmi I vanastjóm voru kjörnir: (Hreggviður Jónsson ÍUT, Pétur Ágústsson BtF og Halldór Guð- mundsson INSÍ. Endurskoðendur voru kjörnir: Þorsteinn Skúlason UMFÍ og Ragnar Tómasson SiBS. Drengur slasast SJÖ ára drengur slasaðist í bif- reið föðurs síns í gærdag. Það var á mótum Lækjargötu og Vonarstrætis, en þar þverbeygðl bifreið í veg fyrir þá. Faðir drengsins snarhemlaði og tókst að forða árekstri. En drengurinn litli sem sat i aftursætinu, kast- aðist á bak framsætisins af miklu afli. Hann var fluttur á Slysavarðstofuna, en blaðinu er ekki kunnugt um meiðsli hans. Ökuþór sá sem slysinu olli var tekinn til yfirheyrslu. Sjávarútvegsmólaráðherra sct fund með Síldarátvegsnefnd EGGERT G. Þorsteinsson, sjáv- arútvegsmálaráðherra, sat í gær fund með síldarútvegsnefnd, par sem rætt var um vandamál sem skapast hafa vegna skemmdu síldarinnar i Noregi. Morgun- blaðið hafði samband við ráð- herrann i gær, og sagði hann að ekkert það hefði komið fram á fundinum sem tímabært væri að segja frá nú. Þeir hefðu aðeina rætt málin sín á milli og síldar- útvegsnefnd muni síðar leggja fram skriflega greinargerð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.