Morgunblaðið - 20.05.1967, Page 17

Morgunblaðið - 20.05.1967, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAI 1067. 17 Páll V. Daníelsson hagdeildarstjóri: Bjarni Snæbjörnsson læknir — 50 ára starfsafmæli - ÉG minnist þess, þegar ég 16 ára gamall fylgdist af áhuga með alþingiskosningunum 1931 og man ég sérstaklega eftir Hafnarfirði, en þar var Bjarni Snæbjörnsson í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það var tal- in von ti-1 að hann ynini kosning nna og höfuð rökin fyrir því voru hve vinsæll hann væri. Og ekki fylgdist ég síður með af áhuga árið 1937. Þannig hafði hróður Bjarna Snæbjörnssonar borizt um landið og al'lt til yztu annesja Norðanlands. Ég þekkti því Bjarna Snæbjörnsson löngu áður en leiðir okkar lágu saman og í þann tíð óraði mig ekki fyrr því, að ég ætti eftir að eiga aðsetur í Hafnarfirði, og að leið- ir okkar Bjarna Snæbjörnssonar mundu liggja svo náið saman sem raun er á orðin. Þótt ég þekkti nafn Bjarna Snæbjörnssonar, þá þekkti ég ekki manninn í sjón. Það var um áramótin 1940 og 1941, sem ég kom til Hafnarfjarðar. Ég tók þá fljótlega eftir manni miklum að vallarsýn, sem ferð- aðist á reiðhjóli uim götur bæj- arins og setti svip sinn á bæjar- lífið. Ég fékk fljótlega að vita, að hér var Bjarni Snæbjörnsson læknir á ferð. Hann var að ferð 1 ast á milli sjúklinganna sinna. Og ég átti eftir að verða þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Bjarna betur. Ég segi gæfu aðnjótandi, en það er mín akoðun og velflestra að ég ætla, Á FIMMTÍU ára starfsafmæli Bjarna Snæbjörns- sonar læknis, í dag 20. maí 1967, senda fjölmarg- ir Hafnfirðingar og aðrir íbúar Reykjaneskjör- dæmis honum og konu hans kveðjur sínar með þakklæti í huga fyrir þau margvíslegu störf, sem Bjarni læknir hefur innt af hendi í hálfa öld með aðstoð sinnar ágætu konu. Mér er það til efs, að margir geti litið yfir svo farsælan starfsdag eins og Bjarni Snæbjörnsson getur gert sem læknir og stjórnmálamaður um hálfrar aldar skeið. Allt frá fyrstu starfsdögum Bjarna læknis í maí 1917 hefur hann verið hinn vinsæli og trausti læknir, sem aldrei brást og gegndi ávallt kalli, svo fljótt sem auðið var. Hann hefur ætíð reynzt ráðhollur þeim, sem til hans hafa leitað sem drengskaparmanns, enda sýndu sig bezt vinsældir hans, er hann leitaði 1 kjörfylgis til setu á Alþingi og hlaut þá ævinlega kosningu. Um leið og ég með þessum fáu línum sendi frú Helgu og Bjarna lækni persónulegar kveðjur með þakklæti, veit ég, að ég flyt þeim kveðjur fjöl- margra úr byggðum Reykjaneskjördæmis um leið og við óskum þeim alls hins bezta í tilefni þessara merku tímamóta í lífi þeirra. Matthías Á. Mathiesen. Nýleg myud af frú Helgu og Bjarna lækni. að ekki sé hægt að öSlast öllu meiri gæfu í lífinu, en þá að kynnast góðu samferðafólki. Enda hafa kynni mín af Bjarna Snæbjörnssyni verið þau, að ég skil vel þá lotningu og hlýhug, sem fólk ber til Bjarna, þegar um hann er rætt, þótt slíkt vekti nokkra undrun hjá mér í fyrstu. Mín reynsla er sú, að maðurinn er heilsteyptur, vel- viljaður, hjálpfús og traustur svo að af ber, enda fellur ekki á hann skuggi hjá þeim, sem þekkja hann bezt. Þegar við rennum huganum yfir hálfrar aldar langan starfs- dag Bjarna Snæbjörnssonar þá stöldrum við við og sjáum hann fyrir okkur sem mann, lækni og stjórnmálamann. Er við hittum Bjarna Snæ- björnsson, þá sjáum við fyrir okkur stórvaxinn myndarlegan mann, rólegan í fasi og festuleg- an, mildan og aðlaðandi í allri framkomu og traustvekjandi mjög. Fólki finnst gott að leita til hans og héfur margur þegið af honum góð ráð á örlagaríkum stundum og hjálp í erfiðleikum. Eru það æði margar stundir, sem Bjarni hefur lagt á sig til að leysa úr ýmsum vanda fyrir fólk, þótt það á engan hátt komi læknisstarfi hans við. 1 þessu efni vil ég segja litla en lærdómsríka sögu af Bjarna en hún er aðeins ein af mörg- um, sem sýna hve óþreytandi hann hefur verið við að leysa úr vandræðum fólks og láta hjálp sína í té. Á erfiðum tímum atvinnu- leysis og fátæktar kom maður nokkur að máli við Bjarna og sagði að svo væri komið hjá sér, að hann sæi engin ráð önnur en að selja húsið sitt. Hann gæti ekki staðið í skilum með greiðslu af áhvílandi skuldum, En þá verður þú að fá þér leigt og borga leigu, sagði Bjarni. Já það varð maðurinn að gera. Bjarni fór þá að spyrja mann- inn nánar um hagi hans. Hvað hann ætlaði að taka stórt hús- næði á leigu, hvað hann treysti sér til að borga háa leigu á mán uði, hve skuldirnar á húsinu væru miklar og greiðslubyrðin þung. Niðurstaðan út úr þessum viðræðum varð sú, að Bjarni ráðlagði manninum að selja ekki, heldur skyldi hann minnka við sig húsnæðið niður í þá stærð, sem hann mundi taka á leigu, ef hann seldi og leigja svo afganginn af húsinu. Bjarni sagðist skyldi taka við leigunni bæði frá leigjandanum svo og skyldi húseigandinn greiða mán aðarlega til sín þá upphæð, sem hann treysti sér til að greiða, ef hann leigði hjá öðrum. Þannig fékk Bjarni í sínar hendur mán- aðarlega leigu fyrir allt húsið, svo greiddi hann öll gjöld af húsinu, afborganir og vexti og lauk því svo að maðurinn komst yfir erfiðleikana og þurfti ekki að selja húsið. Slíka hluti hefur Bjarni lagt á sig til að hjálpa öðrum, enda þótt skyldustörfin væru ærin. Frásögn, eftir Loft Guð- mundsson rithöfund, í jólablaði Hamars 1965 lýsir Bjarna vel, en hún er frá fyrstu læknisárum Bjarni en þar segir svo: „Geislinn slokknaði. Kannski hafði mér missýnst. En læknin- um unga varð litið á mig í sömu svifum og sá undrunarsvipinn á andliti mér. Þá gekk hann til mín með stokkinn í annarri hendinni. Spurði mig hvort að ég hefði ekki séð vasaljós áður og kveikti enn geislann furðu- iega. Og ekki nóg með það, heldur sýndi hann mér hvernig hann yrði kveiktur og slökktur, opnaði síðan hinn endann á stokknum, dró út rafhlöðuna og sýndi mér hvernig henni væri komið fyrir og skýrði mér um leið frá því, hvernig hún virk- aði og hversvegna. Þótt undar- legt megi virðast, þá man ég það jafn greinilega og það hefði gerzt í nótt er leið, er við stóð- um þarna á baðstofugólfinu, í daufum bjarmanum frá olíu- lampanum..." Þessi saga gerðist eftir að Bjarni hafði verið á erfiðu ferða lagi á sjó og landi, í slæmu veðri í fyrstu læknisvitjun sinni upp í Kjós. Hann gaf sér samt tíma til að sinna drengnum. En fleiri amtíðarmenn Bjarna Snæbjörnssonar hafa lýst þess- um eiginleikum hans. Þorleifur Jónson fyrrverandi bæjarfull- trúa og bæjarráðsmaður í Hafn- arfirði segir í Morgunblaðinu 8. marz 1939 m.a.: „Hann er einn af þeim fá- gætu vinnunnar og starfsins mönnum, sem alltaf hafa tíma til ails. Þrátt fyrir það, þótt mönnum virðist hann hljóti að eiga fullt í fangi með að anna hinum margvíslegu skyldustörf- um — ef hann eigi að unna sér eðlilega hvíldarstunda — þá er hann þó aldrei „upptekinn", þegar menn leita til hans ýmsra erinda, og þeir eru margir, sem það gera. Hann hefur alltaf tíma til að ræða við menn, ráða þeim heilt og leysa vandræði þeirra á einhvern veg. — En sú saga — sagan um dáðadrenginn Bjarna Snæbjörnsson — verður ekki sögð sér. Hún gleymist áreiðan- lega ekki, en geymist hjá þeim sem í hlut eiga." Og þegar við komum að lækn inum Bjarna Snæbjörnssyni þá er hann óaðskiljanlegur frá manninum Bjarna Snæbjörns- syni. Hann hefur ekki aðeins verið góður og eftirsóttur lækn- ir, heldur einnig sá trausti vin- ur og þátttakandi í erfiðleikum sjúklingsins, persónulega að fólk gat sagt með sanni og tæpi- tungulaust: „Bjarni er læknirinn minn.“ Enda hefur verið sagt að nóg væri að vita af því, að Bjarni væri kominn til þess að sjúklingnum færi að líða betur. _ Bjarni vakti strax traust og til- trú og alúð hans og nærgætni hefur verið viðbrugðið. Og ekki æðraðist hann, hvort sem kallið kom að degi eða nóttu. Alltaf var læknirinn reiðubúinn. Þegar læknarnir í Hafnarfirði fóru að skipta með sér nætur- vöktum, þá fékk Bjarni oft upp- f 50 ár hefur Bjarni hringingu að nóttu til þótt hann læknir, staðið vörð um ætti ekki vaktina og það var svo líf og heilsu Hafn- sem allt í lagi væri eitthvað að firðinga. en eitt sinn sagði hann við mig, að sér þætti hálf leiðinlegt, þeg ar fólk hringdi að nóttu til, ekki til að ónáða hann með sjúk- dómslýsingu eða biðja hann að koma til sjúklings, heldur til að spyrja um það, hver ætti vakt- ina, Var þá þakkað fyrir, og við- komandi sjálfsagt snúið sér til næturlæknisins. — Svona gat gerzt, enda ríkt í mörgu fólki að leita til Bjarna. Læknisaðstaða var erfið á fyrstu árum Bjarna, en hún batnaði stórlega, þegar st. Jósephssystur byggðu spítalann árið 1926. Bjarni studdi með ráðum og dáð að byggingu sjúkrahússins, enda skildi hann manna bezt hvers virði slík stofnun var Hafnfirðingum og öðrum er leita þurftu læknis- hjálpar. Bjarni var yfirlæknir á spítalanum frá byrjun og til árs- loka 19S5 að sonur hans, Jónas, tók við yfirlæknisstarfinu. Áður en Bjarni tók við yfirlæknisstarl inu fór hann til Kaupmanna- hafnar og vann þar á sjúkrahúsi st. Jósephssystra og bjó sig sem bezt undir hið væntanlega starf sitt sem sjúkrahúslæknir. Alla tíð hefur verið mjög góð og farsæl samvinna milli Bjarna og hinna dugmiklu og fórnfúsu st. Jósephssystra. Mörg eru þau handtök, sem Bjarni er búinn að leysa af hendi á st. Jósephsspítala en þó munu þau vera miklum mun fleiri, sem unnin hafa verið á lækningastofunni og í heima- húsurn. Löngum ferðaðist Bjarni um götur Hafnarfjarðar og nágrennis á hjólinu sínu 1 sjúkravitjanir og hefur það ekki verið lítið álag á læknisstarfið. Minnist ég þess að komið hafi fyrir, að hann hafi hjólað alla leið til Grindavíkur til að sinna Framhald á bls. 19 Bjarni Snæbjörnsson var kjörinnn fyrsti alþingismaður Hafnfirðinga 1931. Hann var ætíð endurkjörinn er hann gaf kost á sér, 1933 og 1937. Myndin sýnir Hafnfirðinga hylla Bjarna kosninganóttina 1937, er hann var kosinn alþingismaður. Þorleifur Jónsson, fyrrverandi bæj- arfulltrúi, flytur ávarp og frú Rannveg Vigfúsdóttir þáverandi formaður Sjálfstæðiskvenna- félagsins Vorboðans, afliendir Bjarna blómvönd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.