Morgunblaðið - 02.06.1967, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1967.
3
Boeing þota FÍ kemur 24. júní
:■■■■........' ■ ■ ■
Örn Johnson forstjóri flytur skýrslu sína á aðalfundi Flugfélagsins. Fyrir framan hann er líkan
af hinni nýju Boeingþotu félagsins sem er væntanleg til landsins síðar í mánuðinum. Við borðíJ
sitja Birgir Kjaran, formaður stjórnar félagsins, og Bergur Gíslason, sem sæti á í stjórninni.
Frá aðalfundi
Flugfél íslands
HIN nýja Bogeingþota Flug-
félags íslands kemur til landsins
24. júní nk. og verður afhent í
Bandaríkjunum tveimur dögum
áður, ap því er örn Johnson for
stjóri skýrði frá á aðalfundi fé-
lagsins í gær.
Eignarhluti starfsmanna í fé-
laginu nemur nú 12% og ákveðið
var að greiða hluthöfum 10%
arð. Brúttótekjur félagsins árið
1966 námu 275 milljónum króna
og jukust um 53 milljónir króna
eða 23%. Reksturskostnaður árið
1966 varjð 268 millj. kr., en var
214 millj. kr. árið áður. Afskrift
ir námu 21,575 millj. kr. en voru
15,331 millj. kr. árið á undan.
Hagnaður af rekstri félagsins ár-
ið 1966 varð því 7.447 millj. kr.
en var 8.243 millj. kr. árið 1965.
Tap á Dakotavélum.
Tap á rekstri innanlandsflugs
é árinu varð tæplega 7.5 millj.
kx. Hinar nýju Friendship-skrúfu
þotur skiluðu 160 þús. kr. hagn-
aði á innanlandsleiðum, þrátt
fyrir hæstu leyfilegrar afskriftir
20% eða 10,5 millj. kr. á árinu.
Tap á rekstri þriggja Dakota-
flugvéla varð hins vegar 8,2
millj. kr., en var 6 millj. árið á
undan.
Afkoma millilandaflugsins var
hins vegar góð árið 1966, 14,9
mil'lj .kr. hagnaður eftir 9.9 millj.
kr. afskrif. Heildarflutningar fé
lagsins innanlands og millilanda,
jukust um 16,3%. Framleiðslan,
eða t/km. til sölu, jókst um
16,3%, og varð hleðslunýting því
hin sama og árið 1965 eða 61.5%.
Farþegar í innanlandsflugi
voru 111,052, en 88,064 árið áð-
ur, og fjölgaði þeim því um
26.1%. Sætanýting var 57,16%
miðað við 57,82% árið áður. Af
flutningum innanlands önnuðust
Friendshipvélarnar nú 63,3% en
41,4% árið áður. Vöruflutningar
innanlands jukust um 49,46%, og
námu 1935 tonnum 1966 og póst-
flutningar jukust um 98% og
námu 351 tonni.
Millilandafarþegar í áætlunar-
ferðum voru 48,604 (42,986) og í
leiguflugi 7.232 (5,642). Vöru-
flutningar milli landa námu
613,6 lestum og var það 40,3%
aukning. Af pósti voru flutt 148,5
tonn milli landa miðað við 136,8
tonn árið áður.
Heildarflutningar félagsins
voru sem hér segir: Fluttir voru
137.279 farþegar en 137,279 árið
áður, og nam aukningin því
22,1%. Af vörum voru alls flutt
2,538 tonn en 1,725 tonn árið áð-
ur, og var því aukningin 47%.
Flutt voru 500 tonn af pósti mið-
að við 314 tonn árið áður og var
aukningin því tæp 60%.
Aukning hlutafjár.
Aðalfundur félagsins, sem fór
fram á Hótel Sögu, hófst með því
að Birgir Kjaran, formaður stjórn
ar Flugfélagsins, tilnefndi Magn-
ús B. Brynjólfsson fundarstjóra
og Jakob Frímannsson fundarrit.
ara. Áður en gengið var til dág-
skrár var minnzt látinna starfs-
manna, þeirra Magnúsar Andrés
sonar, sem var endurskoðandi
reikninga félagsins í 26 ár, og
Sigurðar Guðnasonar næturvarð
ar.
Birgir Kjaran tók síðan til
má'ls, fór nokkrum orðum um
starf félagsins á síðastliðnu ári,
vék að því sem gerzt hefur á
30 ára ferli félagsins og gat þess
sem framundan er.
Hann nefndi fyrst komu Snar-
faxa, annarrar Fokker Friends-
hipflugvélar félagsins en hvað
enn stærri þann áfanga að auka
hlutafé félagsins úr röskum 4
milljónum króna í 20 mi’llj. kr.
og síðan með söfnun hlutafjár í
64 milljónir, en slíkt yrði að
teljast óvenjulegt átak á íslenzk
an mælikvarða. Hann kvað stjórn
félagsins ánægjuefni sú mikla
hlutdeild, sem starfsmenn félags
ins ættu í þessari hlutafjáraukn-
ingu.
Hann sagði, að það sem vald-
ið hefði mestu um það að hallinn
af innanlándsflugi hefði skert
arðinn atf millilanidafluginu væri,
að enn yrði að notast við á mörg
um leiðum vélar, sem orðnar
væru óhagkvæmar til þessarar
þjónustu og of dýrar í rekstri og
viðhaldi. Hann kvaðst vona, að
félaginu mætti vaxa svo fiskur
um hrygg, að það gæti losað sig
fyrr en seinna við þessar véla-
gerðir og legði áherzlu á að eign
ast fleiri hentug tæki, svo sem
Fokker-Friendshipvélar, til að
anna þessu starfi.
Birgir Kjaran sagði, að flugvél
ar félagsins væru nú 8 og far-
þegasætafjöldi þeirra 426. Á síð-
astliðnu ári var flogið reglulega
til 13 staða innanlands og sex
borga erlendis. Tala starfsmanna
var 330, þar af 45 flugmenn og
40 lærðir vélamenn.
Þriðja Frindshipvélin.
Hann sagði, að sem betur fer
hefði stjórn Flugfélagsins ákveð
ið að ráðast í kaup þriðju Fokker
Friendship-vélarinnar áður en
„Glófaxi" fórst og hefði leyfi
stjórnarvalda þegar fengizt til
þess. Kaupsamning þennan hefði
félagið getað gert án þess að til
rikisábyrgðar þyrfti að koma og
væri það ánægjulegur vottur þess
trausts sem félagið nyti á alþjóða
vettvangi. En mikilvægasta og
öflagaríkasta ákvörðunin hefði
þó verið samningurinn um kaup
á þotu af gerðinni Boeing 727
fyrstu þotunni í eigu íslendinga,
Þotan og nýja Fokker-Friends-
hipvélin kosta samanlagt hvorki
meira né minna en 450 milljónir
íslenzkra króna, sagði Birgir.
Þetta er risatala á mælikvarða
smáþjóðar, kannski fífldirfskuleg
að sumra dómi. En við sem tök
um á okkur ábýrgð þessara gerða
trúum og treystum að við séum
að gera rétt og höfum að engu
flanað án velgrundaðra athug-
ana og útreikninga. Hinu er ekki
að leyna að ekkert má bresta og
til miki'ls óhagræðis er fyrir okk
ur að verða að .reka þotuna frá
Keflavíkurvelli. Er það vissulega
von okkar að slíkt verði ekki til
langframa, sagði Birgir.
Minni reksturskostn-J '-ir.
í skýrslu sinni sagði örn
Johnson, að hann teldi að rekst-
urskostnaður þota og skrúfuþota
væri mun lægri en eldri gerða
og sem dæmi nefndi hann að
reksturskostnaður Douglas- Da-
kota-vélanna í innanlandsflugi á
síðastliðnu ári hefði verið 35%
hærri en Fokker-Friendship- vél
anna, en ef atfskriftakostnaður
væri talinn með hefðu Douglas-
Dakota-vélarnar verið 61%'dýr-
ari en Friendshipvélarnar.
Örn sagði að ástæðurnar fyrir
Framhald á bls. 19
STAKSTflMAR
Eituiör
Málgagn Hannibals Valdimars
sonar „Nýja Alþbl.blaðið“ sendá
Magnúsfi Kjartanssyni etftirfar-
andi eiturör í nýútkomnu tölu-
blaði: „Hefði Alþýðubandalagið
nokkum tíma orðið til án Hanni-
,bals Valdimarssonar og tuðn-
ingsananna hans?“. Þetta er auð-
veld spurning. Ólíkt aúðveldari^
,en etf presturinn hetfði t.d. spurt
f ermingardrenginn M. K. á
kirkjugólfi: Hver hetfur skapað
þig Magnús minn? Eða spurn-
ingin, sem hótfyndinn prófessor
lagði eitt sinn fyrir „bókmennta
fræðing", sem átti að ganga und
ir málamyndapróf, áður en
hann hlyti gott starf á vegum
Háskólans: „Hver var Benedikt
Gröndal og hvað liggur eftir
hann? En til þess að aujðvelda
M. K. svarið og forða því að
hann falli á prófinu í þetta
sinn . . .
Málefnaágreiningui
„Nýja Alþýðublaðið“ leggur
ríka áherzlu á, að færa sönn-
ur á það, að um málefna-
ágreining sé að ræða milli
kommúnista og Hannibalista. f
því skyni er rakin allítarlega
saga kjarasamninganna 1964 og
er þar margt fróðlegt að finna.
Blaðið gerir grein fyrir stefnu
Hannibals í kjaramálum frá
júnísamkomulaginu 1964 og leið
ir fram ýms vitni úr röð-
um kommúnista til sönnunar
þeirri fullyrðingu að um grund
vallarágreining hafi verið og
sé að ræða í kjaramálum laun-
þega milli kommúnista og Hanni
bals. Kommúnistar hafi viljað
halda áfram þeirri stefnu að
krefjast óraunhæfra launahækk-
anna en Hannibal viljað
meta umbætur á öðrumi
sviðum svo sem húsnæðis-
málum til kjarabóta. Um að-
dragandann að samningunum
1965 segir blaðið: „Því var sam
þykkt • af skoðanabræðrum
Magnúsar veturinn 1965 að
enga samninga skyldi gera þá
um sumarið, heldur skapa al-
gera upplausn á vinnumarkaðin-
um og stanzlaus^iu skæruhern-
að á vinnustöðum til hausts. En
staða Hannibals var enn of
sterk. Þrátt fyrir svik ríkis-
stjórnarinnar á loforðum um
ráðstafanir til stöðvunar verð-
bólgu (svo!) hækkandi kaupmátt
ur launa í fyrsta skipti síðan
1959. Og f jölmenn kjaramála-
stefna ASÍ í lok marz 1965 sam-
þykkti einróma að halda áfram
á sömu braut og mörkuð var
með júnísamkomulaginu 1964“.
f samræmi við þessi ummæll
verður að telja, að enn beri á
milli í þessum efnum.
Málefnaágreiningui
milli fleiri
Svo kynlega vill tll, að sam-
kvæmt „Nýja Alþýðublaðinu“
virðist vera um „málefna-
ágreining“ að ræða milli ann-
arra en kommúnista og Hanni-
bals. Sá málefnaágreiningur
virðist einnig vera fyrir hendi í
röðum Hannibalista sjálfra. f
grein eftir Margréti Auiðuns-
dóttur í sama blaði segir: „Vís-
ir segir í áðurnefndri grein, að
verðbólgan hafi nú verið stöðv-
uð um 10 mánaða skeið og síð-
ustu árin hafi vöxtur hennar
verið hægari en áður vegna
góðs samkomulags launþega, ftt
vinnurekenda og ríkisstjórnar.
En hvað segja launþegar? End-
ist þeim kaupið betur nú en áð-
ur? Er kaupmátturinn sá sami
í dag og fyrir 10 mánuðum?".
Þeesi ummæli benda ótvírætt
til þess að það sé ekki síður
málefnaágreiningur innan raða
Hannibaiista og máletfnasam-
staða með sumum í þeim
hóp og Magnúsi Kjartanssyni.
HHPPDRIElll SíBS
GOÐRJSLEGA ENDLR-
NÝBÐ FYRIR HELGI
DREGIÐ A MANIJDAG
EDDURnVlUn IVKUR
R HHUECI ORÓIinRDPOS