Morgunblaðið - 02.06.1967, Side 8
r> 8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1967.
Hugleiðingar um landsmál
ÞÓTT mikið sé rætt og ritað
um landsins gagn og nauðsynj-
ar þá er þa3 brunnur, sem
aldrei verður þurrausinn. Nú eru
kosningar til Alþingis fyrir dyr
m og mikið um að vera í sam-
bandi við þær. Á vettvangi
stjórnmálanna þurfa merkustu
þjóðmálin að marka svo glöggt
stefnuna að takmarkaðir flokks-
hagsmunir hverfi i skuggann fyr
ir því nauðsynlega. Þótt mörg
séu þjóðmálin verður þó hið svo
nefnda verðbólgumál efst á
baugi. I»að verður að treysta
grundvöll fjárhagsins svo að
þjóðin geti staðið á eigin fót-
um. Verðstöðvunarlögin eiru spor
í rétta átt. Þau ná bara ekki
nógu langt. Það verður með lög-
um að stöðva kaup og laun, eins
og verkalýðsforinginn Wilson
g?rði í Bretlandi.
Þeir, sem framleiða úr skauti
jairðar, til lands og sjávar eru
hínir ábyrgð að sjá þjóðinni fyr
ir lífsviðurværi. Kaupþegar og
launafólk hafa oftast það eina
sjónarmið að krefjast hækkandi
Skaups og launa án tillits til allra
éstæðna framleiðslunnar og
verða þannig hinir óábyrgu. Nú
er svo komið að framleiðslufyr-
Srtæki eru að stöðvast. Verði
mikil brögð að því, kemur at-
vinnuleysi og allir verða að sjá
um sig sjálfir. Það er nauðsyn-
legt fyrir launafólk að hugleiða,
hvernig það ætlar þá að fara að.
IFjárhagsaðstoð ríkisins við fram
leiðsluna hlýtur jafnan að verða
mjög takmörkum háð og hinir
bábyrgu dæma sig sjálfir úr leik
um forustu í þessu nauðsynja-
máli, nema þeir skipti um skoð-
un og aðferðir. — Framleiðend-
ur hafa í mörg horn að líta og
verða að gæta hófs um alla ó-
þarfa eyðslu. Það gera bænd-
ur. Þeir vinna samkvæmt þörf-
inni og sníða kröfur sínar sam-
kvæmt því, sem getan leyfir.
Þeir byggja atvinnuveg sinn á ís-
lenzkri gróðurmold og nota ís-
lenzk framleiðslutæki (búfé) að
langmestu leyti. Þetta samanlagt
gerir það að verkum, að bænda
stéttin er sterkasta stétt þjóð-
tfélagsirus.
Samhliða verðstöðvuninni
Verður að vinna að því að
hækka gengi krónunar. Þá
íækkar innflutta varan, sem
verkar gegn dýrtíð og það hækk
dr þjóðina i sessi gagnvart við-
Bkiptaþjóðum. Við vitum um við
brögð nágrannaþjóðanna, ef pen
ingagengi þeirra hækkar. Ef
gjaldeyrisvarasjóður þjóðarinn-
ar er hærri en erlendar skuld-
ir ríkisins, samfara birgðum af
útflutningsvöru í landinu ásamt
mikilli vöruframleiðslu til dag-
legra þarfa þjóðarinnar, ætti
gengi krónunnar að geta hækk-
að.
Til þess að hægt sé að koma
þessum nauðsynjamálum fram,
ésamf mörgum öðrum með lög-
um, verður Alþingi að vera svo
skipað að það hafi miklu sterk-
ari meirihluta til atkvæða held-
ur en nú er. Eins og fyrirkomu
lag er nú í kosningum til Al-
þingis og eins og flokkaskipan
■stjórnmálanna er nú fyrir kiom-
ið, getur það aðeins orðið með
meiri sameiningu flokka um
ríkisstjóm.
Liggur þá beinast við að lýð-
ræðisflokkarnir gengju til sam-
stsirfs um skipun næstu ríkis-
stjórnar.
Alþýðubandalagið er raunar
hvorki fugl né fiskur stjórnmála-
lega séð, nema það losaði sig úr
kommúnismanum og gengi til
samstarfs við Alþýðuflokkinn.
Kommúnistana á að útiloka frá
öllum áhrifum á landsmál og
koma þeim algerlega út úr Al-
þingi, þar sem þeirra stefna er
mótstæð kristilegri þjóðmenn-
ingu og þeir eru undir valdi
erlends stjómmálavalds. Þar eig-
um við að fara að dæmi ná-
grannaþjóða okkar. Enda álíta
þær það mikinn menningarskort
íslenzku þjóðarinnar, hvað
kommúnisminn veður hér uppi,
sem það líka er. Allt samstarf
annarra stjórnmálaflokka við
kommúnistana er hneykslanlegt.
Kommúnisminn á sök á stríðinu
í Víetnam. Atlantshafsbandalag-
ið er stofnað til höfuðskomm-
únismanum. íslenzka þjóðin get-
ur ekki verið utan þeirra sam-
taka, eins og enn 'horfir um
mál þjóðanna. Mesta áhugamál
kommanna hér á landi er, að
þjóðin sé ekki í þessum samtök-
um. Er það auðvitað samkvæmt
fyrirmælum húsbænda þeirra í
Kreml og Kína. Ef kommúnist-
ar fengju að ráða stjórnmálum
hér, mundu þeir koma þjóðinni
fyrir kattarnef.
Alþingi hefur í mörg horn að
líta, bæði í verklegum og and-
legum málum. Verður hér ekki
farið langt út í þá sálma. En
ég leyfi mér að vekja athygli
þess á einu máli, sem er stofnun
kristilegs lýðháskóla í Skálholti.
Þar ættu verðandi leiðtogar
þjóðarinnar og annað ungt fólk
að fá leiðbeiningu og hvatningu
til að hugsa allt og starfa á
kristilegum grundvelli. Kenning
kristninnar er ráðstöfun skapar-
ans og við mannanna börn eig-
um enga leið fram hjá „kenn-
ingunni“ eða á hlið við hana,
til þess að lifa menningarlífi.
Þennan sannleika sér allur fjöldi
fólksins 1 landinu með sljóum
augum og segja má að í dag
vanti þjóðina ekkert nema vakn-
ingu í trúnni. Ahugamenn þessa
máls með biskup landsins í
broddi fylkingar, hafa stofnað til
svonefndrar Skálholtssöfnunar,
sem fengið hefur mjög daufar
undirtektir hjá fólkinu hér.
Frændþjóðir okkar sjá hvað
þetta mál er merkilegt og hafa
gefið til þess um 4 milljónir
króna. Alþingi þarf nauðsynlega
að veita kirkjustjórninni heimild
til stofnunar happdrættis fyrir
skólamálið I Skálholti. Fyrir
Kristilegan lýðháskóla þar. Ef
vel tækist, gæti sá skóli orðið til
vakningar á sviði trúmálanna.
En á því er þjóðinni mest þörf
nú. Ég var ungur maður, á kristi-
legum lýðháskóla í Noregi. Ein-
kunnarorð skólans voru: „Guð
fósturjörðin og ég“. Ég og fleiri
nemendur sóttum mikla menn-
ingu á þennan skóla.
Margt heyrist frá Alþingi. Nú
nýlega tal um rikisstyrk til út-
gáfu á blaðakosti stjórnmála-
flokkanna. Það lætur illa í eyr-
um margra. Auðvitað verða blöð-
in að sjá um sig sjálf. Blaða-
kosturinn er of mikill, en ekki
of lítill og mikið vafasamt sumt
sem í blöðum stendur oft og
tíðum.
Þá heyrist frá Alþingi um laun
og styrki til listamanna. Þar eru
komin á spenann hjá rikinu mörg
hundruð manns. Nú er talið, að
öll list sé hér í afturför. Það
er skiljanlega til að halda hnign-
uninni við að launa og verðlauna
bull og skripaverk. Ef listin er
til hjá fólkinu, kemur hún ekki
sízt fram án launa. Sönn list gef-
ur sjálf laun nú á tímum. Millj-
ónaþjóðir fá — segjum 4—ö lista-
menn — sem vert er um að tala
á löngum tima. En við erum með
mörg hundruð í dag. Þvílíkur
hégómi og fjarstæða. Myndir af
málverkum „listamanna". sem
sjást hér í blöðum, eru oftast
líkar því að blindir menn hafi
krassað þær upp á blað.
Vonandi tekur Alþingi eitt-
hvað í taumana gagnvart þeirri
stórkostlegu gjaldeyriseyðslu,
sem fer til skemmtiferðafólks
héðan til útlanda.
Allar framfarir byggjast á and-
legri menningu. Ríkisútvarpið á
að glæða hana og efla. Það er
óviðkunnanlegt að pólitísku
flokkarnir kjósi útvarpsráð. Þeir
eru ekki öxullinn í andlegri
menningu þjóðarinnar. Þeir geta
verið þrándur í götu allri menn-
ingu, eins og flokkur kommún-
ista hér. Höfuð menningarstofn-
un þjóðarinnar er kirkjan —
kenning Krists.
Kosning í útvarpsráð ætti að
vera með þeim hætti, að Sam-
einað Alþingi kysi 2 menn,
kirkjustjórnin 1 mann og háskól-
inn 1 mann.
20. marz 1967.
Jón H. Þorbergsson.
Aukii gistirými
víða um land
Fearðamannastraumnrinn út um
landsbyggðina eykst með hverju
ári. í sumar er búizt við mjög
mikilli aukningu frá þvi sem
var sáðastliðið sumar. í kaup-
stöðum og þorpum landsins eru
nú að rísa ný hóiel og veitínga-
Istaðir. Eftir því sem fólk hefur
leitað meir og meir upp á sveit,
hefur þörfin fyrir hótel á hin-
um ýmsu stöðum orðið mjög
brýn. Hafa íbúarnir utan höfuð-
borgarinnar gert sér grein fyrir
þessairi þörf og má búast við þvi,
að á naestu árum rísi upp full-
komnar hótelbyggingar í flestum
stærri kauptúnum landsina
Mbl. átti 1 gærdag tal við
Lúðvík Hjálmtýsson, ferðamála-
stjóra um gistihúsarekstur úti
á Iandi i sumar. Vildi hann í því
sambandi fyrst og fremst geta
hins nýja og glæsilega htels á
Höfn í Hornafirði, sem opnað
verður á næstunnL Hótelið er
mjög nýtízkulegt, með 20 her-
bergjum og 34 rúmum. Veitinga-
salurinn er mjög glæsilegur og
fullkominn. Hótelið eiga Árni
Stefánsson og Þórhallur Dan
Kristjánsson, en þeir hafa rekið
hótel á staðnum undanfarin ár.
Þá minntist Lúðvík á nýja
viðbyggingu við hótelið Reyni-
hlið við Mývatn, sem lokið verð-
ur við innan skamms. Geta þá
um 20 fleiri gist að Reynihlíð en
áður. Hótelrekstur að Reynihlíð
annast Arnþór Bjarnason. Að
Mývatni er ferðaimannastraum-
urinn eirma mestur, en þar er
náttúrufegurð á íslandi hvað
mest. Hafa hótelin við Mývatn
iðulegia verið fullsetin yfir sum-
armánuðina og mjög mikil þörf
verið fyrir stækkun á hótelun-
um.
Lúðvík tjáði einnig blaðinu,
að í sumar yrði hafizt handa um
hótelbyggingar víða um landið,
t. d. í Húsavík. í ráði er að
byggja hótel í Vestmannaeyjum,
Bíldudal Hellu og Seyðisfirði og
verður innan skamms byrjað á
þessum byggingum.
í félagisheimilinu á Egilsstöð-
um, Valarskjálf, sem vígt var sl.
sumar, verður í sumar rekið
veitingahús. Er búið að opna
húsið og annast Ásdís Sveins-
dóttir rekstur þeiss.
„Með ólíkindum uð þingmenn
Frumsóknur leggi á
sig erfið ferðuiög“
Bridge
UNDANKEPPNI í heimsmeist
arakeppninni í bridge fer fram
þessa dagana í Bandarikjunum.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá, er undankeppninni þannig
hagað, að hver sveit spilar þrjá
32 spila leiki við hverja af hinum
sveitunum. Að undankeppninni
lokinni spila tvær efstu sveitirn-
ar til úrslita og verða þá spiluð
128 spil.
Nú er lokið % hlutum af und-
' ankeppninni og er staðan þessi:
1. Ítalía 111 stig
' 2. Frakkland 104 —
3. N-Ameríka 97 —
4. Thailand 51 —
5. Venezuela 37 —
Ekki hafa borist úrslit úr öll-
tim síðustu umferðunum, en úr-
slit í 10. umferð urðu þessi:
Frakkland — Venezuela 20-0
N-Ameríka — Thailand 17-3
Keonninni líkur n.k. mánudae.
Ærlæk, 22. maí.
HELDUR hefur verið kaldrana-
legt hér í Norðursýslu undan-
farandi. Brunafrost suma daga
svo að ekki hefur svitnað fyrir
dyrum um hádaginn. Jörð má
heita auð, utan stórfenni frá
vetrinum.
Hrafl af hafís er fyrir landL
sem getur þá og þegar teppt
siglingar. Annars hefur verið
nægur fóðurbætir á Kópaskeri
og gnægð matvæla. Er vonandi
að lánist að afla fóðurbætis eftir
þörfum. Mjög er orðið kr.appt
um hey í öllum sveitum, nema
Sauðaneshreppi, en þar er ástand
íð trúlega eitthvað betra, þar
eð flestar jarðir þar eru komn-
ar í eyði, en búskapur farið
minnkandi á öðrum. Já, nema
Hóll.
Þann 13. maí s.l. birtist i
Degi á Akureyri fréttabréf frá
Ófeigsstöðum. Segir þar að Gísli
Guðmundsson frambjóðandi
Framsóknar hafi komið í Foss-
hól þá fyrir skömmu, að ræða
við háttvirta kjósendur, og sé
það helsti viðburður þessa
síðustu viku. Er síst að furða þó
fréttamanni finnist mikið til um
þetta, þar sem það er með svo
miklum ólíkindum, að þingmað-
ur Framsóknar fari að leggja
á sig erfið ferðalög, til að ræða
við þessa kjósendur, þvi að
„þröngsýnir og smásálarlegir
bændur og sveitavinir eiga þar
ekki heima.“
Þó getur hugsast að frambjóð-
andi Framsóknar ætli að taka
sér það göfuga hlutverk fyrir
hendur, að hressa eitthvað upp
á þá þröngsýnu og smásálar-
legu bændur og sveitavini, svo
að þeir gætu orðið nægilega víð-
sýnir þann 11. n.k.
Ennfremur segir í sama bréfi.
„Hér spretta laukar og gala
gaukar, 1 hugum manns.“
Dásamleg er hún þessi mikla
bjartsýni. En það má þó hafa
í huga, að of mikilli bjartsýni,
geta fylgt enn sárari vonbrigði.
Jón Sigfússon.
Fasteignasalan
Hátúni 4 A, Nóatúnshúsið
Sími 2-18-70
Glæsilegt
einbýlishús
í Kópavogi 6 herb. tvær stof
ur. Lóð fullfrágengin og
girt. Suðursvalir.
6 herb. einbýlishús við Vall-
arbraut.
Endaraðhús við Vogatungu.
Raðhús á tveimur hæðum við
Otrateig. Parket á stofu,
harðviðarinnréttingar, tvö-
falt gler, húsið er í glæsi-
legu ásigkomulagi.
Lítið einbýlislhús við Sunnu-
braut, Kárastíg, og Arnar-
götu.
Sérhæð við Rauðalæk, bíl-
skúrsréttur.
Sérhæð við Gnoðavog, bíl-
skúr.
Sérhæð við Miklubraut, bíl-
skúr.
5 herb. glæsileg íbúð við Háa-
leitisbraut.
5 herb. íbúð við Hvassaleiti,
bílskúr.
4ra—5 herb. endaíbúð við
Ljósheima. Útb. 6ö0 þús.
4ra—5 herb. íbúð við Boga-
hlíð.
4ra herb. risíbúð við Miðtún.
4ra herb. rishæð við Kársnes-
braut, útb. 200 þús.
3ja herb. jarðhæð við Gnoða-
vog.
3ja herb. íbúð við Birkimel,
ásamt herb. í risi.
3ja herb. kjallaraibúð við
Bollagötu.
2ja heirb. kjallaraíbúð við
Drápuhlíð.
2ja herb. íbúð við Hraunbæ.
2ja herb. íbúð við Hringbraut
Hilmar Valdimarsson
fasteignaviðskiptL
Jón Bjarnason
hæstaréttarlögmaður.
frystikistur
Frystikistur þrjár stærðir:
275 lítra kr. 13.550..
350 lítra kr. 17.420.-
520 litra kr. 21.100.-
n f w —
VIÐ'OÐINSTORG
SlMI 10322
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu