Morgunblaðið - 02.06.1967, Blaðsíða 20
20
1ÆORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1967.
Minnismerki sjómanna á Akra-
nesi afhjúpað á sjömannadaginn
ram með fflaesibraí? báts f vertíðarlr>lc. anlc beQS bafa R.evViavílc ncr 1 fvrir nrrVlrr-
HANN fór fram með glsesibrag
í góðu veðri og meiri þátttöku
en áður. — Hófst reyndar á laug
ardag með sundmóti í Bjarna-
laug. — Á sunnudag var dag-
skráin þannig:
Kl. 8.00 Fánar dregnir að hún
á skipum í Akranéshöfn.
Kl. 10.00 Kappróður skips-
hafna og fyrirtækja.
Kl. 13.00 Safnast saman við
höfnina og gengið undir fánum
á Akratorg. Lúðrasveit Akraness
lék undir göngunni.
Kl. 14.00 Hátíðarsamkoma á
Akratorgi. Afhjúpað minnis-
merki sjómanna (sr. Jón M.
Guðjónsson). Kirkjukór Akra-
ness og Karlakórinn Svanir
sungu.
Kl. 16.15 Fimleikasýning
(stjórn. Ævar Sigurðsson), reip-
tog, eggjahlaup og knattspyrna
á íþróttavellinum. — Lúðrasveit
Akraness lék ættjarðarlög. —
Svo var dansað um kvöldið.
Það má segja að afhjúpun
„Minnismerkis sjómanna" hafi
sett mestan hátíðarsvip á dag-
inn, raunar lengi búið að bíða
eftir þeirri athöfn. — Fyrir 20
árum sendi sr. Jóiy M. Sveins-
son út ávarp til Akurnesinga um
að vinna að því að koma þessu
nninnismerki upp. Síðan var skip
uð nefnd manna úr ýmsum
félögum til þess að starfa að mál
inu undir stjórn sr. Jóns. Átt-
hagafélag Akurnesinga í Reykja
vík hefir og átt sína fulltrúa í
nefndinni, og hefir félagið stutt
málefnið með ráðum og dáð og
drjúgum fjárframlögum. — Ann
*rs var fjáröflun til framkvæmd
anna á þann hátt, að á hverri
vetrarvertíð var greidd viss upp
hæð tekin af óskiftum afla hvers
báts í vertíðarlok, auk þess hafa
borizt áheit og gjafir, og eru að
berast enn í dag.
Minnismerkið er af sjómanni
í stakk með sjóhatt, og stígur
hann fram í fótinn með kaðals-
hönk í hendi, og virðist vera að
undirbúa lendingu. — Listaverk
ið gerði Marteinn Guðmundsson
myndskeri frá Merkjanesi í
Höfnum, en hana starfaði í
Reykjavík og lézt fyrir nokkr-
um árum.. Kona hans og börn
voru viðstödd athöfnina í boði
bæjarstjórnar Akraness. En
bæjarstjórnin samþykkti á sín-
um tíma, í tilefni af 100 ára af-
mæli Akraness sem verzlunar-
staðar, að reisa þetta minnis-
merki í samvinnu við nefndina,
og rak sú samþykkt endahnút-
inn á framkvæmdina. Nefndin
mun þó starfa áfram að þessu
minningarstarfi m.a. með því að
safna nöfnurn og myndum
drukknaðra sjómanna fyrr og
síðar. —
Auk sr. Jóns M. Guðjónssonar
hélt bæjarstjórinn, Björgvin
Sæmundsson, eftirtektarverða
ræðú við þetta tækifæri.
Tveir heiðurssjómenn voru
sæmdir stjörnu sjómannadaigs-
ins á þessari hátiðarstundu, þeir
Oddgeir Ólafsson, Bjarnasonar
frá Litla-Teigi og Júlíus Einars-
son Ingjaldssonar frá Bakka.
Báðir þekktir dugnaðar sjómenn
um mörg ár.
§§ Það má geta þess að lokum að
styttan, sem reist var á Akra-
H torgi er 3 metrar að hæð og
stendur á steini allstórum, sem
tekinn var úr fjörunni á vest-
urströnd Skagans. Stendur hann
Júlíus Einarsson og Oddgeir Ólafsson, sem voru heiðraðir,
svo og sóknarpresturinn séra Jón. M. Guðjónsson og Kristján
Kristjánsson, formaður sjómannadagsins. (Ljósm. Ól. Árnas.),
eins og hann stóð í fjörunni um
aldir. Hann er um 1,90 m. á
hæð.
Líkanið var sent út til Noregs
til þess að láta stækka það og
steypa í eir, og er nýkomið til
Akraness.
Akurnesingar eru stolltir yfir
þessu fyrsta listaverki á Akra-
torgi og vona að önnur fylgi á
eftir.
H.J.Þ.
Erfið vertíð
Rifshafnarbáfa
ELLEFU bátar voru gerðir út
frá Rifi á vetrarvertíð og varð
heildarafli þeirra 4.323 tonn í
477 róðrum. Aflahæstur varð
Skarðsvík með 839.5 tonn í 65
Minnismerki sjómanna
á AkratorgL
Breytingar á sam-
þykkt Noröurlanda um
aimannatryggingar
Kaupmannahöfn, 31. maí. NTB.
DANSKA félagsmálaréðuneytið
hefur látið frá sér fara umburð-
arbréf varðandi breytingar á
•amþykkt Norðurlanda um al-
mannatryggingar.
Meðal mikilvaegustu breyting-
•nna má nefna, að rílkisborgari
einhvers Norðurlandanna þurfi
yfirleitt að hafa dvalizt aðeins
I einhverju hinna landanna 1
þrjú ár til að fá rétt til sjúkra-
peninga, ekfkjubóta eða ellilauna
á sama hátt og þegnar landsins
sjálfs. — Áður var krafizt að
minnsta kositi fimm ára dvalar
til þess að verða aðnjótandi þess-
ara hlunninda, að því er ráðu-
neytið skýrði frá.
Enn fremur verði fengin heim-
ild tfl þess að taka með sér
sjúkrapeninga og ekkjubætur
við flutning til annars lands en
áður var slíkt einungis mögulegt
að því er snerti ellilaun.
Sveipur færði Barð-
amim hf. sigurinn
HIN árlega firmakeppni Hesta-
mannafélagsins Fá’ks var háð á
•keiðvellinum við Elliðaár á
laugardag. Komu þar fram rúm-
lega 130 gæðingar, og urðu sig-
urvegarar þessir:
1. ) Barðinn h.f. Fjcrir Barðann
keppti Sveipur Friðjóns Step
hensens, ættaður úr Borgar-
fjarðarsýslu.
2. ) Ræsir h.f. Gæðingur: Blakk-
ur frá Felli í Árnessýslu, eig-
andi Ragnheiður Vilmundar-
dóttir.
S.) Heildverzlun Vilhjálms H.
Vilhjálmssonar. Gæðingur:
Stjörnufákur úr Reykjavík,
eigandi Þorlákur G. Ottesen.
4.) Trésmiðja Sveins M. Sveins-
j> sonar s.f. Gæðingur: Gráni,
ættaður úr Skagafjarðar-
sýslu, eigandi Örn Ó. John-
sen.
5.) Borgarprent h.f. Gæðingur:
Tvistur ættaður úr Húna-
vatnssýslu, eigandi Ragnar
Thorvaldsson.
í sambandi við firmakeppnina
seldu Fákskonur happdrættis-
miða, og var dregið í happdrætt-
inu á sunnudagskvöld. Eftirtalin
númer hlutu vinninga:
1. Nr. 1487 hlýtur gæðing.
2. nr. 2259 hlýtur skipsferð
til Evrópu.
3. nr. 1492 hlýtur skipsferð
umhverfis landið.
4. nr. 1096 hlýtur flugferð til
Akureyrar. i
1. nr. 1487 hlýtur gæðing.
Rúrik Haraldsson og Helga Val týsdóttir í hlutverkum sinum í
„Prjónastofunni Sólin".
Leikför Þjöðleikhúss-
ins norður og austur
ÁKVEÐIÐ er að fara í leikför
með leikrit Halldórs Laxness,
Prjónastofuna Sólina, til Nörð-
ur- og Austurlandisins á næst-
unni. En áður en lagt verðu-r af
stað verður Ieikritið sýnit einu
sinni í Þjóðleikhúsinu, og verð-
ur sú sýning á morgun þann 31.
maí. Eins og kunnugt er stend-
ur hér yfir norrænt leikstjóra-
námskeið, „Vasaseminaret" og
verða hinir norrænu leikstjórar
gestir á þessari sýningu, en þeir
eru um 40.
Lagt verður af stað í leikför-
ina 18. júní n.k. og verður fyrst
sýnt í félagsheimilinu Ásibyrgi
í Miðfirði. Þar næst verður sýn-
ing á Blönduósi, Akureyri og
Ólafsfirði. Þaðan verður svo
haldið til Austfjarða og sýnt 1
hinum nýju og glæsilegu félags-
heimilum þar. Leikferðin stend
ur til 1. júlí, en þá hefjast sum-
arleyfi leikara. Tuttugu leikar-
ar og leiksviðsmenn taka þátt
í þessari leikferð og farið verð-
ur á tveimur bíloim.
Leikstjóri er Baldvin Halldórs
son, en leikmyndir eru gerðar af
Gunnari Bjarnasyni. Með aðal-
hlutverkin fara leikararnir
Helga Valtýsdóttir, Lárus Páls-
son, Rúrik Haraldsson, Róbert
Arnfinnsson og Sigríður Þor-
valdsdóttir.
róðrum, skipstjóri Sigurður
Kristjónsson. Báturinn var einn-
ig aflahæstur á vetrarvertíð 1966
með um 1230 tonn.
Skarðsvik varð nú aflahæstt
báturinn frá höfnum á Snæfells-
nesi. Afli annarra Rifsbá.ta varð
þessi: Pétur Sigurðsson 767.7
tonn í 58 róðrum, Hamar 671.6
tonn i 79 róðrum, Tjaldur 346.4
tonn í 43 róðrum, Hafrún 329.9
tonn í 62 róðrum, Haukur 306.4
tonn í 37 róðrum, Andvari 304.6
tonn í 35 róðrum, Sæborg 240.4
tonn í 25 róðrum, Haföm 175.6
tonn í 32 róðrum, Orri 170.9
tonn í 23 róðrum og Hafbjörg
169.8 tonn í 20 róðrum.
Aðtoomubátar lönduðú 183
tonnum.
Þetta var einhver erfiðasta ver
tíð Rifsihafnarbáta til þessa og
réð tíðarfar þar mestu um, sem.
var með eindæmum erfitt. Kom
það sérstaklega niður á sjósókn
minni bátanna. — Rögnvaldur.
-------------- *
Vertíðarlok
í Ólafsvlk
ÓLAFSVÍK, 30. maí. — Vetrar-
vertíðinni er lokið og voru bát-
ar almennt búnir að fcaka upp
net sín fyrir síðustu helgi. Var
nú haldið nokkru lengur úti en
áðuir á undanförnum vertíðum,
þar sem afli glæddLst nokkuð
upp úr miðjum maímánuði. En
aflabrögð hafa verið mjög léleg
i vebur eins og annars staðar í
verstöðvuim.
Heildarafli nú á vertíð he-fur
orðið 6531 lest en var í fyrra
9417 lestir. Aflahæsti báturinn
á vertíðinni var Steinunn 826
fconn í 86 róðrum. Sfcpstjóri er
Kristmundur Halldórsson. Aifli
annarra báta var sem hér siegirt
Jón Jónsson 724 tonh í 82 róðr-
um, Valafell 691 i 76, Halldór
Jónsson 636 í 75, Sveinbjöm
Jafcobsson 569 í 69 róðrum,
Valafell 561 í 76, Guðbjörg 414
í 61 róðri. — Hinrik.