Morgunblaðið - 02.06.1967, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1967.
21
Nýtt hótel Barðstrend-
ingafél. í Vatnsfirði
NÝLBGA hél Barðstr>endingiafé-
lagið í Reykjavík aðalfund sinn.
f skýrslu stjórnarinnar kom fram
að starfsemi félagsins hafi verið
mikil og fjölbreytt á BÍðiastliðnu
ári.
Félagið á og rekur sumar-
hótelið Bjarkarlund í Reykhóla-
sveit, er þar gisting fyrir 40
gesti. Tekur hótelið á móti gest-
um til lengri og skemmri dvalar.
Vegna vorferðalaga skólabama
úr Reykjavík og víðar, sem
mikið haia pantað mat og gist-
ingu í vor mun hótelið í Bjark-
arlundi opna nú um 20. maí, sem
er nokkru fyrr en venjulega.
Hótelstjóri í Bjarkarlundi 1 sum-
ar verður Svavar Armannsson.
í Viatmsfirði á Barðaiströnd hef-
ir félagið rekið greiðasölu nokk-
ur undanfiarin ár. Á síðastliðnu
ári réðst félagið í að reisia þar
hótel, boðin var út smíði á 240
fermetra húsi, sem Benedikt
Davíðsson byggingarmeistari og
Magnús Ingvairtsison arkitekt
höfðu teiknað.
Hagstæðasta tilboðið var frá
Noregi, var þvi tilboði tekið.
Milligöngu um samninga við hina
norsku framleiðendur hafði fyr-
irtsekið Bjöm Westad & Co í
Reykjaivík.
Framleiðendiur sendu tvo fag-
menn með húsið til að setja það
upp og tók það mánuð fyrir fjóra
menn að gera húsið fokhelt, þó
tafði það nokkuð, að húsið hafði
skemmzt í flutningi tii lamdsms.
í húsinu verður fullkomið eld-
hús, veitingasalur, sem rúmiar
80 manns í sæti og giisting fyrir
10. Þá hefur félagið fest kaup
á nýrri 35 kw. rafstöð, sem sett
verður upp í Vatnsfirði í vor.
Allar eru þessar framkvæmdir
kostnaðarsamar. Til að afia fjár
til þeirra efndi féiagið til happ-
drættis á síðastliðnu ári. Happ-
drætti þeitta, sem var heimiliis-
tækja happdrætti gekk mjög vel.
Einnig fékk félagið lán hjá
Ferðamálasjóði Islands til fram-
kvæmdanna í Vatnsfirði. Enn þá
er mikið eftir til að ljúka við
húsið og sér félagið fram á litla
möguleika á þvi í sumar, vegna
fjárskorts. Þó verður reynt að
Ijúka við og taka í notkun gisti-
herbergin, en notast áfrarn við
eldri aðstöðu tii veitingasölu. Þá
var á aðalfundimun samþykkt að
gefa hóteiinu í Vatnsfirði nafnið
Flókalundur. Hóteistjóri í Flóka-
lundi í sumar verður Kristinn
Ósfcarsson.
Starfsemi félagsins í Reykja-
vík hefur verið með Mku sniði og
undanfarin ár. Skemmtifundir
haldnir einu sinni í mánuði og
bafa þeir verið mjög vel sóttir.
Þá hefir starfað á vegum félags-
ins málfimdadeild, sem heldur
fundi einu sinni í mánuði.
Kvennanefnd félagsins hefir séð
um jóiafagnað fyrir böm, grímu-
dansleik og skírdagssamkomu,
en tál hennar er boðið öllum
Barðstrendingum búsettum í
Reykjavík og nágrenni, sem náð
hafa 60 ára aldri. Þá starfar
á vegum félagsinis bridgedeild,
sem spilar einu sinni í viku all-
an veturinn.
Þá kom biað félagsins AnnáU
tvisvar út á síðasta ári, ritstjóri
þess er Andrés Davíðsson.
Á síðastliðnu ári réð féiagið
sér framk.væmdastjóra, er það
Guðbjartur Egilsson og hefur
hann opnað skrifstofu fyrir fé-
iagið í Bugðulæk 18, sími 38638.
Félagar í Barðstrendingafélaig-
inu eru nú 530 taisins.
Stjóm félagsins skipa nú Guð-
bjartur Egilsson formaður, Guð-
mundur Jóhannesson varafor-
maðaður, Sigmundur Jónsson
gjaldkeri, Ólafur A. Jónsson rit-
ari. Meðstjórnendur eru Kristinn
Óskansson, Gísli Kr. Skúlason,
Alexander Guðjónsson og Marinó
Guðjónsson. (Frá Barðstrend-
ingaíélaginu).
194 nemendur
i Barnaskóla
Sauðárkróks
Sauðárkróki.
NÝLEGA var Barnaskóla Sauð-
árkróks slitið. Skólastjórinn,
Björn Daníelsson flutti ræðu og
skýrði frá starfsemi skólans.
Nemendafjöldi var 194 og í 9
deildum, en fastir kennarar auk
skólastjóra voru, 3, 4 kennarar
með hálft starf, eða alls 6 kenn-
arar.
Áður hafði verið haldin sýn-
ing á handavinnu, skrift og
teikningu nemenda.
27 luku barnaprófi, þar af 6
með ágætiseinkunn. Sérstaka
athygli vakti að meðaleinkunn
í rei'kningi á barnaprófi var
8,56, sem er óvanalega glæsileg
útkoma úr þeirri námsgrein.
Við skólaslit voru veitt nokk-
ur verðlaun fyrir námsárangur
og fleira.
I húsi barnaskólans eru einnig
starfandi gagnfræðaskóli og iðn-
skóli, svo þar er mikil þröng
á þingi. Undanfarin ár hefur
verið unnið að undirbúningi að
byggingu nýs gagnfræðaskóla-
húss, og er nú byrjað á þeim
framkvæmdum. — jón.
Sjónvarpsfélag
I Ólafsvík
ÓLÁFSVÍK, 30. maí. — Félag
sjón v a rpsáhiugam a n n a var ný-
legia sitofnað hér. Mættu til fund-
ar 50 manns, sem gerðust félags-
menn. Er það stofnað m.a, til að
sameina innkaup á sjónvarps-
tækjum, svo og að athuga aðra
þjónustu, sem hægt væri að fá
■hjiá inniflytjendum sjónvarps-
tækja.
Draumur manna um sjónvarp
hér á norðanverðu Snæfellsnesi
f er nú senn að verða að veru-
leilka, og er verið að setja upp
bráðabirgðastöðvar í' nágrenni
Ólafsvíkur. Munu þær verða til-
búnar til útsendingar innan
fárra daga. Sjónvarpstæki eru
komin í nokkur hús hér í Ólafs-
vík og hafa útsendingar sézt hér
beint frá Reykjavíkurstöðinni.
.............— Hinrik.
Gunnar S. Magnússon bregður sér inn á Mokka í góða
veðrinu. (Ljósm.: Steingrímur Sigurðsson).
Gunnar S. Magnússon sýnir
— í Menntaskólanum
1 DAG kl. 8.30 e.h. opnar
Gunnar S. Magnússon iist-
málari málverkasýningu í
Kjallarasal nýbyggingar
Menntaskóians í Reykjavík
(gengið inn frá Bókhlöðustíg.
Sýnir hann þar um 100
málverkverk, bæði vatnslita-
og olíumálverk. Sýningin
verður opin daglega frá ki.
2—10 og stendur yfir í 10
daga.
Gunnar S. Magnússon er
fæddiur í Skerjafirði 27. sept-
ember 1930. Hann stundaði
f fyrstu nám við myndlistar-
skólana i Reykjavík. Auk
kynnis- og námsferða til
ýmissa Evrópulanda (Frakk-
lands, Ítalíu, Hollands o. fl.)
árið 1950, var hann við fram-
haldsnám við Listaháskólann
(Statens Kunstakademi) í
Oslo frá haustinu 1949 og
lauk því 1952; auk þess dvald
ist hann síðar við myndlist-
arnám í Frakklandi, á Spáni
og Ítalíu.
Gunnar hefur kennt mynd-
hst við Myndlistarskólann og
æfingardeild Kennaraskóla
íslands.
Árið 1957 beitti hann sér
fyrir stofnun Sýningarsalar-
ins að Hverfisgötu 8—10 og
var þá einn af forstöðumönn-
um hans.
Gunnar sýndi fyrst á sam-
sýningu Félags íslenzkra frí-
stundamálara vorið 1947, síð-
an í Ásmundarsal við Freyju-
götu árið 1949 og á Akur-
eyri sáma ár. Þetta er því
þriðja sjálfstæða sýning
Gunnars.
Meðail annarra eiga Lista-
safn íslands, Listasafn Al-
þýðu og Listasafn Árnesinga
á Selfossi myndir eftir Gunn-
ar.
Myndin er af nokkrum nemendum með prófskírteini sín.
Frá Stykkisholmi
Bamaiskóla Stykknshólms var
sliitið með hátíðlegri aithöfn í
Stykkishólmiskiirkju 4. mai. Sókn
airpresturinn séra Hjalti Guð-
mundsson hafði í upphafi bæna-
stund og sungu bömin við að-
stoð Víkings JÓhannssonar, organ
leikara kirkjiunniar. Skólastjórfnn
Lúðvíg Halldórsson raktd störf
skólians í vetur, lýsti úrsiitum
prófa og kvaddi niemendur og
þakkaði þeim fyrir ástundun í
vetur.
1 skólanum I vetur ram 164
böm í 6 bekkj'airdeildum. 28 böm
luku bamaprófi og hlaut hæstu
einkurm Sigurborg Sigurðardótt
ir eða eða 9,10, en haestu einkun
í skóianum hafði Högm Jónsson
í 6. bekk 9,38.
Kennarar skólanis voru 4 fastár
aiuk skólastjóra og stundakenn-
ara.
Heilsufar í skólanum var
ágætt.
Einar M. Einarsson
irv. skipherra 75 ára
í DAG á 75 ára afmæli Einar
M. Einarsson, fyrrveranidi skip-
herra, sem dvalizt hefur fjarri
ættlandinu í tvo áratugi, en var
á sínum tíma kunnur dugnaðar-
maður á fiskibátum og síðar
framtakssamur og fylginn sér
sem skipherra á varðskipinu
„Ægi“. Hafði hann verið send-
ur út til að fylgjast með smíði
„Ægis“ í Álaborg kringum 1930
og tók síðan við skipinu þegar
heim kom. Vann hann sér gott
orð fyrir óvenjulegan dugnað
við gæzlu- og björgunarstarfið,
þannig að sumum þótti alveg
nóg um, ekki sízt erlendum skip-
stjórum, en hann var heiðar-
legur og harður í horn að taka,
þannig að svo fór um síðir, að
hann hrökklaðist úr landi vegna
þess að hann þótti ganga of hart
eftir því, að landslög væru í
heiðri höfð.
Þó Einar M. Einarsson hafi
dvalizt í Kaupmannahöfn und-
anfarin tuttugu ár eða svo, hefur
hann ekki slitið öll tengsl við
ísland. Hann hefur árum sam-
an fylgzt með byggingu íslenzkra
INSorrænt kenn-
aranámskeið í
Þrándheimi
DAGANA 24. — 29. júlí í sumar
verður haldið í Þrándheimi nor-
rænt kennaranámskeið. Margir
þekktir skólamenn frá Norður-
löndunum munu flytja erindi á
námskeiðinu. M. a. flytur Jón R.
Hjálmarsson, skólastjóri, erindi,
sem hann nefnir: Skólinn og
föðurlandið.
Nokkrum íslenzkum barna- og
framhaldsskólakennurum er
boðin þátttaka í námskeiðinu.
Stjórnir Sambands barnakenn-
ara og Landssambands framhalds
skólakennara hafa ti'l ráðstöf-
unar nokkra styrkveitingu til
væntanlegra þátttakenda.
Þeir kennarar, sem hafa hug
á að sækja námskeiðið, þurfa að
hafa samband við formenn eða
starfsmenn samtakanna fyrir 15.
júní n.k.
Sömu aðilar veita allar nánari
upplýsingar um námskeiðið.
fiskiskipa á Norðurlöndum sem
fulltrúi Skipaskoðunar ríkisins
og unnið löndum sínum ómetan-
legt gagn með því starfi og
ýmsum öðrum viðvikum. Hann
hefur eignazt marga góða vini
í Danmörku, bæði íslenzka og
danska, sem nú gleðjast með hon
um á merkilegum tímamótum,
og hann á eflaust stóran vina-
hóp heima sem mundi vilja
gleðja hann á einn eða annan
hátt á þessum tímamótum. Af
þeim sökum eru þessar fáu lín-
ur hér birtar. Einar býr nú á
Rödorevej 232, Rödovre, Dan-
mark, og verður þar á afmæl-
inu.
Hins vegar hefur svo vel tek-
izt til, að Einar mun hverfa aft-
ur beim til fósturjarðarinnar á
hausti komanda og eyða ævi-
kvöldinu á Hrafnistu meðal ann-
arra aldraðra sægarpa. Er vel
að ísland skuli endurheimta
þessa gömlu kempu, þennan
hreinskipta drengskaparmann
sem var stétt sinni og þjóð til
sóma hvar sem hann fór. — &
Ályktun um
bókusulnsmúl
Þessi ályktun vax samþykkt á
fundi fulltrúaráðs BHM hinn 10.
sl.:
Fulltrúaráð Bandalags háskóla-
manna bendir á niauðsyn þess að
endurskipuleggja íslenzk bóka-
safnsmál, þar sem sökium fá-
mennis er ógemingur að halda
uppi nema einu vísindalegu
bókasafni hérlendis, en gott vis-
indalegt bókasafn er bein und-
irstaða allrar fræða- og vísinda-
starfsemi, sem menning og tækni
nútímans byggjast á. Sífelldur
flutningur bóka og heimiida milli
bókiasafna og stofmania, eins og
nú tíðkaist hér og á fyrir sér að
aukast, er og í litlu samræmi við
hugmyndir nútímamis um vinnu-
hagræðingu.
Fulltrúaráðið tekur því ein-
dregið undir það álit Félags ís-
lenzkra fræða, að verðugt sé að
minnaist ellefu alda afmælis fs-
lands byggðar 1974 með því að
reisa nýja bókhlöðu fyrir vis-
imdalegt þjóðbókasafn, er veiti
sem bezta aðstöðu til fræði- og
vísindaiðkana. (Frá B.H.M.)