Morgunblaðið - 06.06.1967, Side 14

Morgunblaðið - 06.06.1967, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1967. ! Uppeldismála- þinginu lokið Afmælismót hjd skdtum d Akureyri um helginu UM helgina var haldið uppeldis máiaþing í Melaskólanum i Reykjavík á vegum Sambands islenzkra barnakennara og Landssambands framhaldsskóla- kennara. Sl. laugardag var þingið sett af Skúla Þorsteinssyni, SÍB, en^ þá flutti Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, ávarp. Þórhallur Vilmundarson, próf essor flutti erindi um þjóðernið, skólann og uppeldið og vakti það mikla athygli áheyrenda. Eftir hádegið var opnuð kennslutækjasýning í Melaskól- anum og síðdegiskaffi var drukkið í boði Geirs Haligríms- sonar, borgarstjóra. Kl. 10 árdegis á sunnudag tal — með lánskjörum MÁNUDAGINN 5: júní 1967 var (gerður samningur milli ríkis- Btjóma Bandaríkjanna og ís- lands um kaup á bandarískum landbúnaðarvörum með lánskjör Um. Samninginn undirrituðu Karl F. Rolvaag, sendiherra Bandaríkjanna, og Emil Jónsson, aði Andri fsaksson, sálfræðing- ur, um skólarannsóknir, en því næst fóru fram hringborðsum- ræður um kennaramenntun. Eftir matarhlé flutti Jón Emil Guðjónsson stutt erindi um Rík isútgáfu námsbóka, álit nefnda voru lögð fram og Ólafur S. Ólafsson, • formaður Landssam- bands framhaldsskólakennaxa sleit þinginu. Að því loknu var farið í heim sókn í skóla í Hafnarfirði og síðdegiskaffi drukkið í boði fræðsluráðs Hafnarfjarðar. í Hafnarfirði sáu þingfulltrú- ar m.a. sýningu í Öldutúnsskóla á handavinnu barna og vakti hún mikla athygli. Lánsfé, sem fengizt hefur með þessum hætti, hefur undanfarin ár verið varið til ýmissa inn- lengra framkvæmda. Akureyri, 4. júni. MIKIÐ var um dýrðir hjá skát- unum á Akuireyri í dag, én þá fóru fram aðalhátíðahöldin í til- efni af 50 ára skátastarfi hér. Hátíðin fór fram 1 gilinu við Glerá skammt ofan við Gefjun, en þar munu Akureyrarskátar fyrst hafa slegið tjöldum í úti- legu. Margt var til skemmtunar og fróðleiiks allan daginn báðum megin árinnair, en gerð hafðd ver ið göngubrú yfir ána á hátíða- svæðinu. Störf skáta í háfa öld vor.u kynnt með sýningum, efnt var til íþrótta og leikja og marg vísLegra dægradvalar. Mesta at- hygli barnanna (og hinna full- orðnu líka) vöktu dýrasýning- ar, en margar tegundir voru þarna til sýnis. Metaðsókn varð að búri apakattar nokkurs, sem fenginn hafði verið gagngert frá Danmörku til skemmtunar mönn um. Geysiilegur mannfjöldi heim- sótti hátíðarsvæðið í miklu blíð- skaparveðri og ákemmti sér hið bezta. Hátíðinni lauk með varð- eldi og flugeldasýningu. 50 þús. dollaraframlag Hafrannsóknarstofnunin kaupir bóknsufn Árna Friðrikssonar Kaup á bandarískum landbúnaðarvörum í Thor Thors-sjóðinn Wtanrikisráðberra. Samningur um kaup á banda- rískum landbúnaðarvörum hafa •verið gerðir árlega við Banda- Tíkjastjórn síðan 1957. í nýja Samningnum, sem gildir fyrir ár tð 1967, er gert ráð fyrir kaup- um á hveiti og tóbaki. Samningurinn er að fjárhæð 11.252.000 dollarar, sem er jafn-, Virði um 54 milljón króna. Vöru fcaupin eru með þeim kjörum að 30% greiðast fljólega í doll- lurum en 70% er lán til 18 ára með 2%% vöxtum. f ár er samn imgsupphæðin miklu lægri en £ Ifyrra, þar sem maís er ekki leng ur keyptur frá Bandaríkjunum Imeð slíkum lánskjörum. HINN 5. júni n.k. eru 20 ár liðin síðan George Marshall þá- verandi utanríkisráðherra Banda ríkjanna setti fram hugmyndina um viðreisn Evrópu með efna- hagsaðstoð Bandaríkjanna. Er þessa afmælis Marshall-aðstoðar innar minnzt um alla Vestur- Evrópu, og hefur ríkisstjórnin ákveðið að gera það einnig með því að beita sér fyrir að 50.000 dollarar verði gefnir í sjóð þann, sem kenndur er við Thor heit- inn Thors sendiherra, og hefur þann tilgang að stuðla að gagn- kvæmum menningartengslum milli íslands og Bandaríkjanna. Gjafaféð verði lagt fram af ríkis. sjóði og stofnunum, sem sérstak- lega nutu góðs af Marshall-að- stoðinni. Thor Thoris sjóðurinn var stofnaður árið 1965 að frum- kvæði American-Scandinavian Foundation í New York og hafa þegar safnazt í hann nálega 50.000 dollarar frá ýmsum banda rískum og islenzkum aðilum. Með framangreindri gjöf verður náð því takmarki, sem sett hef- ur verið til þess að sjóðurinn geti hafið styrkveitingar. Frá forsætisráðuneytinu. Rúnar Guðmundur Elíasson - KVEÐJA FRÁ FRÆNKU ÞAÐ varð myrkur um miðjan dag, þegar okkur barst sú harma fregn, að Rúnar litli hefði orðið undir sandskriðu og beðið bana. Rúnar Guðmundur hét hann, fullu nafni fæddur í Bolungavík 26. september 1957; Dó 29. maí s.l. og verður jarðsunginn í dag af sóknarprestinum okkar. For- eldrar hans eru hjónin Svein- borg J. Hafliðadóttir og Elías H. Guðmundsson, símstöðvarstjóri. Hann var 3. barn þeirra í 5 systkina hópi. Rúnar litli var mjög elskulegt barn, svo einstaklega bjart yfir svip hans að athygli vakti. Þótt hann að eðlisfari væri feiminn og hlédrægur, var hann ávalt svo hýr, hlýr og traustur og hlýðnara barn hefi ég aldrei vitað. Hann var svo tápmikill og duglegur, hjarta hans fullt af barnslegri hamingju og gleði. Hann æðraðist aldrei, en reyndi af fremsta megni að hjálpa sér sjálfur og undi svo glaður við sitt. Þegar að háttatíma kom, fór hann ó- beðinn, brosandi, frá systkina- hópnum að leik, og gekk til hvílu, — ávallt á sama tíma, en aldrei gat hann sofnað án þess áð biðja Guð fyrir sér og sín- um .Ef mamma hans var ekki við, kallaði hann á ömmu sína og bað hana að sitja hjá sér og lesa með sér kvöldbænirnar. Hann elskaði söng, og rödd hans ■ Minning var engilfögur og tær. Já, það má með sanni segja, að Rúnar litli var gott barn, í þess orðs fyllstu merkingu. En svo snöggt og fyrirvaralaust er hann hrifinn frá okkur, að erfitt er að trúa að þessi elskulegi drengur sé horfinn. Við stöndum 1 þögulli spurn frammi fyrir þeirri staðreynd og fáum ei skil- ið vegna hvers saklaus börn ólgandi af lífsgleði og fögrum framtíðarvonum, eru látin deyja, þegar okkur sýnist lffið rétt vera að byrja. En Guðs vegir eru órannsakanlegir og fyrir hans vilja verðum við ÖU, okkur að beygja. Elsku litli frændi minn, ég trúi þvi, að nú sért þú hjá Honum, sem þú svq oft baðst að sitja hjá sænginni þinni og vernda þig og blessa, Hjá englum þeim, sem þú baðst á hverju kvöldi að svæfa þig og vaka yfir þér. Hjarta þitt var svo hreint, að allar minningarnar sem við eig- utm um þig eru svo óumræðilega bjartar, að þær verða foreldrum þínum og systkinum og ekki sízt afa þínum og ömrnu, ómetan legur fjársjóður, sem hvorki mölur né ryð fær grandað. Vertu sæll, elsku litli vinur. Guð blessi þig um eilífð. KæTa systir mín og mágur, ég finn svo vel hve orð mín, sem ég vildi mæla ykkur ástvinunum öllum, til huggunar, eru átakan- lega fátækleg og vanmáttug. Því vil ég, um leið og ég bið Guð að styrkja ykkur öll, gera orð sálmaskáldsins mikla, Matthías- ar Jochumssonar, að mínum orð- um og segja: Gráttu, faðir, gráttu, kæra móðir, grátið þó í hófi slíkan son, deyja börn og deyja allar þjóðir, deyr þó ei vor tignarstóra von. Hlustið vel, þó harpan kæra þegi, heyrið ekki dularfullan óm? Guðs í sölum sveinninn ástúðlegi syngur enn með hvellan engils róm. ' ' H.V.H. HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN hefur fest kaup á þeim hluta hins mikla bókasafns Árna Frið- rikssonar, fiskifræðings, sem lýtur að fiski og fiskirannsókn- um. Er þar m. a. um að ræða margar verðmætar sérpentanir á rannsóknum hans sjálfs. Safnið var upphaflega selt fornbókasala í Kaupmannahöfn, en þaðan keypti Hafrannsóknar- stofnunin þennan hluta safnsins. Er safnið rétt í þann mund að koma til landsins, en ekki ligg- ur enn ljóst fyrir, um hve mörg bindi hér er að ræða. Skóla vörusýningu lýkur í kvöld 1 MELASKÓLANUM í Reykja- vik stendur nú yfir sýning á skólavörum og ketvnalutækjum á vegum félagnins Kennslutækni í samráði við stjórnir Sambands íslenzkra bamakennara og Lands sambands framhaldsskólakemn- ara. Sýningin er haldin í tilefni af Uppefldismálaþinginu, sem var háð í Melaskólanum um síðustu helgi. Jón Freyr Þórarinsson, yfir- kennari við Laugarnesskólann, sagði okkur, að félagið Kennslu- tæki væri félag nokkra áhuga- samra kennara, sem leitast við Leiðrétting 1 VIÐTALI við Anton V. Björns- birtist í kjördæmisblaði Vest- son, rafveitustjóra á ísafirði, sem fjarðarkjördæmis í Mbl. sl. föstu dag var misritað að stofnkostn- aður við virkjun í Snæfjalla- hreppi hefði verið 18 mdllj. kr. Rétt tala er ein milljón og 800 þús. krónur. Stolið úr æða- kolluhreiðrum GRUNUR leikur á að tals- verður eggjastuldur hafi verið framinn á Vatnseyri á Breiðafirði. Komst upp um stuldinn um miðjan dag í gær, og talið er að stol- ið hafi verið úr 80 æðakollu- hreiðrum. Er nú unnið að rannsókn þessa máls bæði í Stýkkishólmi og í ölafsvík. að fylgjast með nýjungum 1 kenslutækni og kynna þær öðr- um. Fyrir tveimur árum hélt fé lagið sýningu í samvinnu við Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, en núna fékk félagið nokkur fyr irtæki, sem verzla með skóla- vörur til þess að sýna þær, hvert í sínum bás. Everest Trading sýnir föndur- vörur allskonar, tæki til starfa að leðri og vefjum, Filmur og vélar sýna Sony segulbönd, ýms ar tegundir kvikmynda- og skuggamyndavéla og ramma u't an um skuggamyndir, nýja að gerð, Friðrik A. Jónsson sýnir Tandberg segulbönd og heyrnar- tækjakerfi til tungumálakennslu, Friðrik Þorsteinsson skólahús- gögn ýmisleg, Fönix hefur Nil- fisk ryksugur, Bacho loftsugur, rei'knivélar og fjölritara, Garð- ar Gíslason allskonaT vörur fyr- ir nemendur, krítarliti, bækur, blýanta og gólfflísar og Geva- fótó sýnir margvíslegar sýning- arvélar og tjöld. Gunnar Ásgeirsson er með Husquarna saumavélar, strok- járn og eldavélasamstæður fyr- ir skólaeldhús ásamt Centrum innanihússíma, Múlalundur sýnir lausblaðabækur, vinnubókakáp- ur, bréfabindi og íþróttatöskur, Ottó A. Michelsen hefur ljós- prentunarvélar, bókbandsvélar, klukknakerfi, IBM rafmagnsrit- vélar og réiknivélar, Radió & raftækjastofan sýnir myndvarpa, grammófóna, kvikmyndavélar, segullbandstæki og heyrnartækja kerfi og Tæknivörur sýna smá- sjársýningarvélí reikningsgrind- ur fyrir mengjareikning, reifcn- ingsbakka og orgel í tösku með rafmagnsblásara. Sýnlng þessi hófst á laugar- daginn og lýkur henni í kvöld. í dag er hún opin frá kl. 4 til 10 fyrir skólamenn og allan al- menming.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.