Morgunblaðið - 25.06.1967, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 25.06.1967, Qupperneq 7
MORGUNB'LAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1967. 7 Drengjakór í heimsókn Danski KFUM-drengjakórinn Parkdrengekoret kemur hingaS til lands 4. júlí og mun verða liér í tvær vikur og halda söngskemmtan ir í Reykjavík og væntanlega einnig í Keflavík, Vestmannaeyjum, á Selfossi og Akranesi. Myndin er af nokkrum drengja þeirra, sem koma hingað í sumar. Á söngskrá kórsins verður meðal annars söng Icikurinn Eldfærin eftir ævintyri H.C.Andersens, sem kórinn flutti í Austurbæjarbíói árið 1954 Drengirnir munu búa á heimilum vina kórsins hér í Reykjavík. Enn vantar dvalarstaði fyrir nokkra drengi og eru þeir, sem skjóta vilja skjólshúsi yfir ungan söngfugl í tvær vikur vinsamlega beðnir um að láta vita um það í síma 13827. FRETTIR Konur í Styrktarfélagi van- gefinna. Farið verður að Sólheim um í Grímsnesi sunnudaginn 2. júlí kl. 13. frá bílastæðinu við Kalkofsveg. Farið kostar kr. 250,00 báðar leiðir. Þátttaka til- kynnist skrifstofu félagsins fyrir föstudaginn 30. júní. Farin er einungis fyrir félagskonur. Listsýning kvenna að Hallveig arstöðum er opin daglega frá kl. 2 — 10 til mánaðamóta. Fíladelfía, Reyltjavík. Almenn samkoma sunnudaginn 25. júní kl. 8. Einar J. Gíslason, Vest- mannaeyjum, er verið hefur í útlöndum undanfarinn tíma, tal- ar sennilega á samkomunni. Vegna sumarmótsins, sem hefst í Stykkishólmi þriðjudaginn 27. júní eru þeir, sem ætla að sækja mótið beðnir að mæta á sam- köirmu á sunnudagskvöld kl. 8. Bænastaðurinn, Fálkagötu 10. Kristileg samkoma sunnudaginn 25. júní kl. 4. Bænastund alla virka daga kl. 7 síðdegis. Allir velkomnir Hjálpræðisherinn. Helgunar- samkoma á sunnudag kl. 11. Kaf teinn Bognöy talar. Útisamkoma á Lækjartorgi kl. 16. Kveðjusam koma fyrir Brigader Imma og Óskar Jónsson kl. 20:30. Brigader Henny Driveklepp stjórnar. For- ingjar og hermenn taka þátt. All. ir velkomnir. Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju fer í skemmtiferð í Borgarfjörð sunnudaginn 2. júlí. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 8:30 um morguninn. Nánari upplýsingar gefa Guðfinna Sigurðardóttir, sími 50181, Sigríður Bergsdóttir, sími 51045 rg Sveinbjörg Helga- dóttir, sími 50295. Heimatrúboðið. Almenn sam- koma sunnudaginn 25. júní kl. 20:30. Allir velkomnir. Háteigskirkja. Almenn fjár- söfnun til kirkiubyggingarinnar stendur enn yfir. Það eru vin- samleg tilmæli til þeirra, sem hafa hugsað sér að leggja kirkj- unni fjárhagsilegt lið, að þeir geri aðvart í síma 11834, 11813 eða 15818. Kirkjan verður opin og almenningi til sýnis alla virka daga á næstunni kl. 5 — 7 síð- degis og verður gjöfum veitt mótaka þar. Sími kirkjunnar er 12407. Sóknarnefnd Háteigs- kirkju. Kvennadeild Skagfirðingafélags- ins í Reykjavík gengst fyrir skemmtiferð í Þjórsárdal sunnu daginn 2. júlí kl. 8:30. Þátttaka tilikynnist fyrir 28. júní til Lovísu Hannesdóttur, Lyngbrekku 14, sími 41279 og Sólveigar Krist- jánsdóttur, Nökkvavogi 42, sími 32853. Allir Skagfirðingar vel- komnir. Nefndin. Sumarferð Nessafnaðar verð- ur farin sunnudaginn 25. júní. Lagt verður af stað kl. 10 frá Neskirkju. Farið verður um suð- urhluta Árnessýslu og messað í Gaulverjabæ kl. 2. Þátttaka til- kynnist Hjálmari Gíslasyni, kirkjuverði, milli kl. 5 og 7, sími 16783. Ferðanefndin. Frá Guðspekifélaginu. Sumar- skólinn verður í Guðspekifélags- húsinu í Reykjavík dagana 25. júní til 1. júlí. Þátttaka tilkynn- ist í síma 17520 eða 15569. Kristileg samkoma verður í samkomusalnum að Mjóuhlíð 16 sunnudagskvöldið 25. júní kl. 8. Allt fólk hjartanlega velkomið. Sjóstangaveiðimót verður hald ið í Keflavík sunnudaginn 25. júní á vegum félaganna í Kefla- vík, Reykjavík og á Keflavíkur- flugvelli. Farið verður á sjó á 6-8 bátum. Laigt verður af stað kl. 8 og komið að landi kl. 4. Margháttuð verðlaun verða veitt eins og venjulega á þessum mót- um fyrir mestan afla, þyngstan fisk o.s.frv. Aðsetur veiðimanna verður í Aðalveri hjá Friðrjk Jóhannssyni, formanni Sjóstanga veiðifélags Keflavíkur. Orðsending frá Félagi heim- ilislækna. Þar eð fyrirsjáanlegur er mikill skortur á heimilislækn- um í borginni á meðan sumarfrí lækna standa yfir, er fólk vin- samlegast beðið um að taka til- lit til þess ástands. Jafnframt skal það ítrekað, að gefnu tilefni, að neyðarvakt að deginum og kvöld. og næturvaktir eru aðeins fyrir bráð sjúkdómstilfelli, sem ekki geta beðið eftir heimilis- lækni til næsta dags. Stjóm Fé- lags heimilislækna. Dýrfirðingafélagið fer til skóg ræktar í Heiðmörk sunnudaginn 25. júní. Lagt verður af stað kl. 2 frá bifreiðastæðinu á móti Vest urgötu 3. Fjölmennið. Skógrækt arnefnd Dýrfirðingafélagsins. Kvenfélagskonur, Keflavík. Farið verður í okkar árlegu skemmtiferð sunnudaginn 25. júní. Þátttaka tilkynnist í síma 1590. Kvenfélag Bústaðasóknar fer hina árlegu sumarferð sína næstkomandi sunnudag, 25. júní. Farið verður frá Réttarholts- skóla kl. 8:30. Nánari upplýsing- ar fást hjá Borghildi i síma 32568, Elínu í síma 33912 og Helgu í síma 33416. Langholtsprestakall. Guðsþjón- usta verður á Þingvöllum, fyrir odan Vestfirðingabúð, milli Lög- bergs og Valhallar, næstkomandi sunnudag kl. 14:30. Lagt verður af stað austur frá safnaðarheim- ilinu kl. 13:30. Tekið verður á móti sætapöntunum fyrir þá, er þess æskja í síma 35750 fimmtu- dag og föstudag milli kl. 18 og 19. Samstarfsnefnd. Sunnukonur, Hafnarfirði. Farið verður í ferðalag upp á Akra- nes sunnudaginn 25. júní. Stanz- að við Saurbæjarkirkju og í Vatnaskógi. Lagt af stað frá Þórsplani kl. 9 árdegis, stund- víslega. Ferðanefndin. Kópavogur. Húsmæðraorlofið verður að Laugum í Dalasýslu frá 31. júlí til 10. ágúst. Skrif- stofa verður opin í júlímánuði í Félagsheimili Kópavogs, annarri hæð, á þriðjudögum og fimmtu- dögum frá kl. 4 til 6. Þar verð- ur tekið á móti umsóknum og veittax upplýsingar. Sími verður 41571. Orlofsnefnd. Kvenfélag Langholtssóknar. Sumarferðir félagsins verða farnar í Þórsmörk 28. júní k.l 7:30. Upplýsingar í síma 38342 og 33115 og 34095. Vinsamlegast látið vita í síðasta lagi fyrir mánudagskvöld. Kvenfélag Grensássóknar fer í ferðalag um Borgarfjörð 27. þessa mánaðar. Nánari upplýs- ingar gefa Sigríður Skarphéðins dóttir, sími 36683, Margrét Guð- varðsdóttir, sími 32774 og Hlíf Kristensen. sími 37083. Spakmœli dagsins Enginn getur lítillækkað oss, nema vér sjálfir. — J. G. Holland JI, ippmuvi Kominn er ég í kippinn á ný og kveinka mér ekki meira, nú finn ég, hvað veröldin verður hlý, — já, viljið þið bara heyra: Af sannieikans krafti segi ég þá: Ó, sólfagri lífsins draumur, glilrandi firðir og fjöllin blá og freyðandi elfarstraumur. Sál min er frelsuð og sinnið er glatt og söngfuglar kvaka í lundum. Ég held það sé bara hérumbil satt, að heimurinn dillar mér stundum. Þó er min tíivera vandasamt verk og vmblandan ávallt of sterk. Æ hvar eru fuglar — og dirrindí? — Nu dániar mér, Jésús Pétur, sólmyrkvuð veröld og sortin ský, — svalur og dimmur vetur. Vísuinar týndar og glasið er gleymt. — Getur mig hafa dreymt? Guðm. Valur Sigurðsson. Mótatimbur til sölu 1x4 og 1x6. Upl. í síma 40638. — r Óska eftir 2ja—3ja herb. íbúð til leigu. Jóhanna Thorst; Histson símar 13486 — 18440. Baby-strauvél til sölu. Lítið notuð. Verð kr. 5.500. — Uppl. í síma '21931. Bílasýning í dag frá kl. 1—5 mikið úrval af nýjum og nýleg- um bílum. Oft hagstæð bíliaskipti. Bílasalinn Vitatorgi, sími 12500 og 12600. Til sclu • nýtt handunnið persneskt teppi, stærð 2x3 m, einn- ig er til sölu á sama stað Lada saumavél, selst ó- dýrt. Uppl. á Vesturgötu 50A, 4. hæð til vinstri. Barnavagnar Þýzkir barnavagnar fyrir- liggjandi. Seljast beint til kaupanda. Verð kr. 1650. Sendum í póstkröfu. Pétur Pétursson heildverzl un, Suðurg. 14, sími 21020. Commer Cob Mjög vel með farinn (vél nýuppgerð) Commer Cob station bifreið, árg. 1964 til sýnis og sölu í dag og næstu kvöld í Álfheimuim 9. Sími 36186. Sparifjáreigendur Avaxta sparifé á vinsælan og öruggan hátt. Uppl. kl. 11—12f.h. og 8—9e.h. Margeir J. Magnússon Miðstræti 3 A. Símar 22714 og 15385. Laxá — Laxamýri Vegna forfalla eru veiði- leyfi fyrir 2 stengur dag- >ana, 2. til 8. júlí til sölu. Uppl. í símum 32733 og Q3918 til hádegis á þriðju- ■da.g. Klæðningar á húsgögnum. Klæðum og gerum við bólstruð hús- gögn. Valhúsgögn Skólavörðustg 23. Sími 23375. Tapað Svefnpoki og vindsæng töpuðust laugardaginn 17. júní á leiðinni Reykjarvik — Eyjafjöll. Finnandi vin samlegast hringi í síma 37006. Æðardúnsbreinsun Dúnhreinsunarstöð Péturs Jónssonar Sólvöllum, Vog um Gu'llbringusýslu tek- ur við æðardún til hreins unar hvaðan sem er af landinu. Fyrsta flokks vinna. Fljót afgreiðsla. Sími 17 Vogar. Ferðatöskur vandaðar nýkomnar. HEjóðfærahús Reykjavíkur HAFNARSTRÆTI 1. TÆKIFÆRI á stofnun fyrírtækis Getum með aðeins 2ja vikna fyrirvara útvegað þessa rsérstöku og útbreiddustu fljóthreinsunarvél- ar. Getum jafnvel útvegað pláss undir rekstur með vélunum. / 6$. £%o- &Mjdgnábbm UMBOÐS- & HEILDVER2LUN HVERFISGÖTU 50 - REYKJAVÍK - SÍMI: 12935 & 32220 Franskir bakpokar Vönduðustu pokar á markaðinum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.