Morgunblaðið - 15.08.1967, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÍ>JUDAGUR 15. ÁGÚST 1967
Flugsýning um
næstu helgi
mm á vegum Flugmálafélags Islands
FLUGMÁLAFÉLAG fslands
hygffst gangast fyrir flugdegi á
laugardaginn kemur. Verður
haldin mikil flugsýning á
Reykjavíkurflugvelli. Þar verða
sýndar flugvélar, þyrlur, list-
flug, svifflug, fallhlífarstökk og
fjarstýrð fiugvélamodel. Þá
munu herþotur af Keflavíkur-
flugvelli fljúga yfir svæðið, og
ef mögulegt reynist verða sýnd-
ar farþegavélar íslenzku flugfé-
laganna.
Þetta verður níundi flugdagur
inn, sem Flugmálafélag íslands
gengst fyrir. Ásetlað er að sýn-
ingin hefjist klukkan tvö á laug-
ardag, en ef veður reynist óhag-
stætt, verður sýningin flutt yfir
á sunnudaginn. Sýningin mun
hefjast á hópflugi, sem yfir 30
vélar taka þátt í. Að því loknu
verða sýndar þyrlur og verða
það þyrla Landhelgisgæzlunnar
og þyrlur af Keflavíkurflugvelli.
Ef hægt verður mun þyrla
Andra Heiðbergs einnig taka
þátt í þeirri sýningu. Næst verð-
ur sýnt svifflug og listflug á
svifflugum, en síðan mun
Elíeser Jónsson sýna listir sínar
á tékknesku listflugvélinni, sem
keypt var til landsins á sl. ári.
Þarna verður einnig sýnt model-
flug fjarstýrðra modela og á
eftir því fallhlífarstökk. Her-
þotur af Keflavíkurflugvelli
munu fljúga yfir svæðið og
reynt verður að sýna sem flestar
af farþegavélum íslenzku flugfé
laganna,
Klufckan eitt verður ýmsum
flugvélum raðað upp á braut-
inni fyrir framan flugturninn
og gefst fólki þá kostur ó að
skoða vélarnar að vild. Aðal-
áhorfendasvæðið verður fyrir
framan flugturninn. Reiknað er
með, að dagskrá þessi taki um
tvær klukkustundir og á eftir
mun fólk geta farið í hringflug
yfir borgina, sem flugskólarnir
og flugfélögin sjá um.
Annað landsþing Flugmála-
félags íslands var haldið dag-
ana 23. og 24. júní sl. Forsetar
þingsins voru þeir Agnar Kofoed
Hansen, flugmálastjóri, og
Hákon Guðmundsson, yfirborg-
ardómari. Á þinginu voru rædd
ýmis mál, sem snerta flug og
hina mörgu þætti þess. Ýmsar
samþykktir voru gerðar en það
mál, sem hæst bar voru um-
ræður um að athuga, hvort ekki
væri tímabært, að Flugfélagið í
samvinnu við Fræðslumála-
stjórnina tæki að sér að sjá um
bóklega menntun flugmanna.
Þá var og samþykkt, að vinna
að því, að bæta úr þeim skorti
á íslenzkum flugkennslubókum,
sem nú ríkir.
Baldvin Jónsson, forseti fé-
lagsins, og Úlfar Þórðarson,
varaforseti, báðust báðir undan
endurkjöri. Núverandi stjórn
Flugmálafélags íslands skipa:
Björn Jónsson, forseti, Ásbjörn
Magnússon, varaforseti, Haf-
steinn Guðmundsson, gjaldkeri,
Leifur Magnússon, ritari, og Þór
mundur Sigurbjarnarson, með-
stjórnandi.
Dagana 2. til 5. ágúst sl. fór
fram í Svíþjóð fyrsta Norður-
landamótið í svifstökki, sem
haldið hefu verið. Einn kepp-
andi var frá íslandi — Eiríkur
Kristinsson, en hann er eini fs-
lendingurinn, sem lokið hefur
kennaraprófi í svifstökki. Keppn
in á mótinu var þrenns konar:
Liststökk, nákvæmnisstökk og
hópstökk. Eftir fyrsta daginn
var Eiríkur sjötti i nákvæmnis-
stökki og í fimmtánda sæti í
liststökkinu. Lokaframmistaðan
varð sú, að Eirikur hélt sæti
sínu i liststökkinu en varð 22.
af 25 í nákvæmnisstökkinu.
Hópstökkinu sleppti Eiríkur,
þar eð minnst þrjá keppendur
þurfti til að taka þátt í því.
Á fundi Flugmálafélagsins
með fréttamönnum kom það
einnig í ljós, að allir, sem áhuga
hafa á, geta nú fengið að læra
á listflugvélina, sem er í eigu
Félags íslenzkra einkaflug-
manna, og mun Elíeser Jónsson
veita fólki allar upplýsingar þar
að lútandi.
Tööufengur bóndans
í Fornhaga brann
Aikureyri 13. ágúst: —
UM kL 5. síðdegis í dag koma
skyndilega upp eddur i hlöðu á
bænum Fornhaga í Hörgárda.1,
en þar býr Imgólfur Guðmunds-
son. Slökikviliðsibílil frá Akureyri
fór þegar í stað vestur og auk
þess dreif að menn úr sveitinni
til slökkvistarfsíns.
Svo háittar til í Fornhaga, að
útiihús eru sambyggð, tvær hlöð-
ur, fjós og fjárhús. EHdurinn
komst í báðar hlöðurnar, og
brann önnur til grunna. en hin
stórskeammdist. Fjárhúsþakið
brann að miklu leyti og fleiri
skemmdir urðu á því húsi. Fjós-
ið slapp hins vegar óskemnmt.
íbúðarhúsið stendur alllangt frá
útihúsunum, og var því aldrei
nein hætta búin.
Tjón Ingóllfis bónda er tiltfinn-
anlegt, ekki sízt fyrir þá söik, að
hann var nýbúinn að hirða nær
allan töðufeng sinn í hlöðurnar,
og muniu hafa verið þar um 700
hestburðir. Heyið er mikið
brunnið eða kolað og að mestu
ónýtt. Unnið var að því í kvöld
að moka því út úr hlöðutóftun-
umn.
Eldsupptök eru ókunn, en
fremur er talið ósennilegt, að
um sjádtfsíkveikju hatfi verið að
xæða.
Sv. P.
I Stokkhólmi er þegar búið að mála akreinamerkingar á flestar umferðargötur með breyting-
una í hægri umferð fyrir augum, sem til framkvæmda kemur 3. september. Hefur þetta vald-
ið vegfarendum nokkrum vandræðum, og þó sérstaklega ferðamönnum. Myndin er tekin ný-
lega á einni slíkri götu í Stokkhólmi.
Hópur manna
til Svíþjóðar
mm að kynna sér breytinguna yfir
r hœgri umferð
TALSVERÐUR hópur manna
mun fara héðan frá íslandi til
Svíþjóðar nú á næstunni til að
kynna sér breytinguna yfir í
hægri umferð, sem þar verður
framkvæmd 3. næsta mánaðar.
Mikill viðbúnaður er í Svíþjóð
fyrir þessa breytingu, og undan-
farið hefur þar staðið yfir mikil
áróðursherferð í umferðarmál-
um. Er gert ráð fyrir að um 500
erlendir blaðamenn muni koma
til Svíþjóðar til að fylgjast með
breytingunni, og verður henni
sjónvarpað um mörg lönd.
Valigarð Briem, formað'ur
Framkvæmdanefndar hægri um-
ferðar, er þegar farinn til Sví-
þjóðar, til þess að fylgjast með
aðdraganda breytingarinnar, en
nefndin öll mun verða viðstödd
er breytt verður yfir í hægri
akstur, svo og Benedikt Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri, og
Gestur Þorgrímsson, blaðafull-
trúi hennar. Ennfremur fara frá
umferðarnefnd Reykjavíkurborg
ar Guttormur Þormar og Pétur
Sveinbjörnsson og lögreglustjóri,
Sigurjón Sigurðsson verður
einnig úti ásamt þremur lög-
regluþjónum. Frá Vegamálaskrif
stofunni fer yfirverkfræðingur
hennar. Þá er vitað að nokkrir
ökukennarar og ýmsir aðilar,
sem vinna að umferðarkennslu
verði viðstaddir breytinguna.
íslendingar og Englendingar
hafa sýnt hinni fyrirhuguðu um-
ferðarbreytingu í Svíþjóð hvað
mestan áhuga, og hafa báðar
þjóðirnax áður sent nefndir út til
að kynna sér hana. Báðar þessar
þjóðir hafa þarna hagsmuna að
gæta, þar sem áþekk breyting
verður framkvæmd hér á næsta
ári, og Englendingar munu mik-
ið vera að velta því fyrix sér,
hvort slík breyting sé fram-
kvæmanleg þar.
Bílslys í Rofabæ
ÞRENNT slasaðist í fyrrakvöld
í hörðum árekstri á mótum Rofa
bæjar og Hraunbæjar.
Áreksturinn varð um kl. 19.53,
og varð hann með þeim hætti,
að Volvo-vöruibifreið var ekið
austur Rofabæ en leigubifreið í
— hjón og bifreiðastjóri — og
voru þau öll flutt í slysavarð-
stofuna. Voru bifreiðastjórinn
og konan síðan flutt í sjúkrahús.
Leigubifreiðin mun vera gjör-
ónýt og vörubifreiðin mikið
skemmd.
í
Þannig leit fólksbíllinn út á slysstað og má teljast mildi, að
ekki skyldu verða alvarlegri slys á fólkinu, sem í honum var.
(Ljósm.: Sv. J.)
vestur. Þegar þær mættust á
gatnamótunum skullu hægri
framhorn þeirra saman. Við
áreksturinn kastaðist leigubif-
reiðin aftur á bak og inn á
Hraunbæ, en vörubifreiðin rann
áfram af gatnamótunum í vest-
ur og stöðvaðist nokkru utan við
veginn.
Þrennt var í leigubifreiðinni
LEIÐRETTING
GREIN um frú Sigríði Jóns-
jttur á ísafirði áttræða, sem
rtist í blaðinu s.l. sunnudag,
isritaðist nafn hennar í fyrir-
ign. Leiðréttist það hér með
n leið og blaðið biðst afsök-
íar á þessum mistökum.
H
I oio
Colorado-bjalia
í Skjóltinum?
í GÆRKVÖLDI hringdi kona
vestan úr Skjólum til Morgun-
blaðsins og skýrði frá því, að sl.
laugardagskvöld hefði hún séð
bjöllu á veggnum rétt fyrir ut-
an húsdyrnar, sem hvorki hún
né börn henar hefðu borið
kennsl á. Hefðu börnin hugað
að bjöllunni um stund og m.a.
komizt að raun um að húri gat
flogið, en svo hefði henni ekki
verið gefinn meiri gaumur og
brátt hefðtf hún horfið þeim.
Bjalla þessi var appelsínugúl að
lit með svörtum röndum.
Þegar konan las Morgunfolaðið
á sunnudagsmorguninn, sagðist
hún þegar hafa séð, að þarna
hefði verið Colorado-bjalla. f
viðtalinu við Morgunblaðið í gær
kvöldi taldi hún útilokað að sér
hefði skjátlazt um þetta.
T/oo o
y*
'/?«
II
)öto .7.
V
UM nónbilið í gær var Grímsey.
austan stinningskaldi og
skýj að við suðurströndina.
Annars staðar var hægviðri.
Víða vestanlands og norð-
austan var lóttskýjað, en
skýjað á Húnaflóasvæðinu,
Skagafirði og austur fyrir
Hlýjast var þá 16 stig í
Haukatungu og 14 í Síðu-
múla og Reykjavík.
í dag mun vindur verða
hægur og gott veður víðast
á landinu.