Morgunblaðið - 15.08.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.08.1967, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1967 ► ► BÍLALEIGAN -FERÐ- Daggjald kr. 350,- og pr. km kr. 3,20. S/Afl 34406 SE NDUM íviagimOsar SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190 eftir lokun simi 40381 ” SÍH' 1-44-44 m/iiFiB/fí Hverfisgötn 103. Sími eftir tokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 1L Hagstætt leigugjald. Bensín innifalið < ieigugjaidl. Sími 14970 BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugaveg 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. HA.lt/KAH RAUOARÁRSTÍG 31 SfMI 22022 Flest til raflagna: Rafmagnsvörur Heimilstæki Útvarps- og sjónvarpstæki Suðurlandsbraut 12. Sími 81670 (næg bílastæði). GARÐASTRÆTl 2.3ÍMHC770 Hólið um Akureyri Undir þessari fyrirsögn er bréf frá Erni Snorrasyni, sem birtist hér á eftir: „Nýlega hef ég rennt arnar- augum mínum yfir tvær grein- ar um Akureyri í dagblöðum Reykjavíkur. Já, mikið var! Loks gátu þeir góðu menn séð er greinarnar rituðu, að bær- inn minn og allra hinraa er bæði fagur og ágætur, og ekki skemmir að fólk skuli búa í honum. En hvernig stendur á því, að þessar greinar eru skrifaðar nú? Mér finnst þær alveg tilgangslausar, svona löngu fyrir kosningar. Við er- um gleymnir hér eins og ann- ars staðar. Hin blöðin, sem eng ar greinar hafa birt um Akur- eyri, haga sér miklu skynsam- legar. Þau bíða. En eitt vil ég benda þessum greinahöfundum á. Þeir hafa gleymt einu, sem einkennir Akureyri, og er bænum til mik ils sóma; strætisvögnunum. Þeir hætta akstri sínum klukk- an níu á kvöldin og það er til mikillar fyrirmyndar. Þetta eru gamlir vagnar, sumir þeirva, en það gerir ekkert til. Þeir gömlu og reyndu reynast bezt. Svo hafa sumir vagnar okkar aðeins einar dyr, og það er kostur. Um hættutíma vagnanna á kvöldin er þetta tð segja: þó að Reykvíkingar vilji láta sína vagna rölta fram á nótt, þá kemur það okkur ekkert við. Þeir pína síraa vagna og reýna að ná úr þeim sem mestri vinnuorku, en það gerum við ekki, því að við vitum mæta- vel, að vagnar, eins og allt ann að hreyfanlegt, verður ein- hvern tíma að stanza til að hvílast, ekki sízt öldungar á fjórum hjólum, ellimóðir og útþrælkaðir bílar, sem fluttu Reykvíkinga á Þórskaffi fyrir 20 árum. En þessi skynsam- lega varúðarráðstöfun hefur mikla blessun og heilsubót í för með sér. Hér á Akureyri fara menn að hátta að ganga 10, sleppa öllu húllumhæi og vakna hressir að morgni. Ég hef alls engar fregnir af því, að í aðeins einum bæ af svip- aðri stærð og Akureyri, þá hætti strætisvagnar að ganga klukkan 9, en það er í afríska bænum Tottaratott í Ghana, en sá bær þykir bera af öllum bæjum i Afríku. Siðferðið er svo gott. Samkvæmt skýrslum S.Þ. eru þessir tveir bæir, Ak- ureyri og Tottaratott, lang- fremstir allra bæja í heimi að þessu leyti, og þessa hefðu fyrrnefndir greinarhöfundar mátt geta, en líklega hefur staðreynd þessi ekki blasað við, er þeir litu út um salarglugg- ann með penna í hendi. Um aldur vagnanna okkar er þetta að segja: Það er ó- sanngirni að heimta alltaf nýtt og nýtt. Það er þetta, sem er að setja þjóðina á hausinn. Það á að nota það gamla, meðan unnt er, t.d. á að nota bíla, meðan þeir geta hreyfzt, og það gera okkar strætisvagnar oftast. Heyrt hef ég, að bif- reiðaeftirlitsmenn hafi verið eitthvað tregir að gefa vögn- um þessum skoðunarvottorð, en því trúi ég tæpast. Þessir sömu menn létu mig hafa bilpróf fyrir nokkrum árum og hafa aðeins einu sinni átalið mig fyrir að aka án ljóss I myrkri. Nei, slíkir öðlingar, hafa áreiðanlega ekki verið neitt illvígir. Verið gæti, að þeir hefðu skipt sér eitthvað af strætisvagni á þremur hjólum, en ég held nú, að hjólin séu venjulega nógu mörg. Um einar dyr tr þetta að segja: Dyr eru dýrar. Heill veggur er miklu ódýrari. Þetta vita allir húsbyggjend- ur. Einhverjir verða að spara á landi hér. Aldrei hef ég þurft nema einar dyr til þess að komast út og inn. Mér finnst heldur ekkert óskemmtilegt að fara jafn- snemma út um þær sömu þröngu dyr og ung og fögur stúlka er að fara inn um. Við karlmenn hér á Akureyri kjósum langhelzt vagna með einum dyrum á. Lionsklúbb- urinn „Einnadyramenn",, en ég er formaður í honum, hef- ur eindregið farið þess á leit, að dyrum vagnanna verði ekki fjölgað. Hvernig því máli lýkur, vitum við ekki, en úr því að nú á að fara að víkja „konservatívt“, það er að segja til hægri, þá erum við einna hræddastir við nýja bæjarstjórann okk- ar, sem ku vera framsóknar- maður og þar að auki ungur, en við ætlum senn að kalla hann á fund til okkar og ræða þetta mál. Vonandi fer hann ekkert að skipta sér af strætisvagnagerðum né ferð- um. Að lokum skal þess getið, að þessir grobbarar hjá Loft- leiðum ættu að láta minna. Þeir láta svo sem sætanýt- ing sé mest hjá þeim. Ég skora á Sigurð Magnússon að koma norður og fara ásamt unglingum í strætisvagni akureyrskum á dansleik í Freyvangi. Þá myndi hann sjá með eigin augum, að til eru fleiri góð, vel rekin fyrir tæki, en hans ágæta félag. Þegar ritsmiðirnir tveir skrifa næst um Akureyri, þá finnst mér, að þeir ættu að láta þess getið, sem gert er og gert vel. Með þökk fyrir birtinguna. Orn Snorrason. ic Vífaval Skrifað er: „Kæri Velvakandi! I bókinni „Afmælisdagar“, sem Guðmundur Finnboga- son, prófessor, gaf út árið 1907, er þessi vísa: Ætti ég ekki, vífaval, von á þínum fundum, leiðin eftir Langadal löng þér þætti’ á stundum. Er hún þar eignuð Árna Böðvarssyni, (1713 — 1777). Ekki efast ég um, að Guð- mundur Finnbogason hafi vitað, hver höfundur vísunn- ar var, þegar hann gaf þessa gullfallegu bók út fyrir sex- tíu árum. — Þóra Kristinsdóttir“. ★ Aths.: Það skal tekið fram, að bréfið frá „M“, sem birt- ist í þessum dálkum sl. laug- ardag, var ekki frá einum ritstjóra blaðsins, heldur var þar um aðsent bréf að ræða. Einkaritari Einkaritari óskast til starfa hálfan daginn eða eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að vera vön meðferð og frágangi verzlunarskjala, almennum skrifstofustörfum og geta skrifað þýzk og íslenzkt bréf eftir segulbandi. Tilboð með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist afgr. blaðs- ins fyrir 20. ágúst, merkt: „2601.“ Fasteignasalan, Garðastræti 17 Símar 24647 og 15221 Til sölu við Rauðalæk 2ja herb. rúmgóð og vönd- uð íbúð á 3ju hæð. Teppi á stofu. Svalir. íbúðin er laus strax. Árni Guðjónsson, hrl., Þorsteinn Geirsson hdl., Helgi Ólafsson sölust. — Kvöldsími 40647. Námskeið í hestamennsku Námsskeið í hestamennsku að Bala í Garðahreppi. Síðasta námskeiðið er að byrja þessa viku. Kolbrún Kristjánsdóttir, kennir. Upplýsingar 51639 og 37962. Prófarkalesari Mánaðarlegt íréttatímarit óskar að ráða nú þegar prófarkalesara með góða þekkingu á íslenzkri tungu og málfræði. Hér gæti verið um að ræða hentugt aukastarf fyrir kennara, eða eldri mann, sem hefði nokkuð frjálsan tíma til starfsins. Til- boð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir n.k. föstudagskvöld merkt: „Prófarkalestur — auka- starf.“ H. BENEDl KTS SON. H F. Sudurlandsbraut 4 Sími 38300 p.1 Vff/ J /f 3-^ V '<> 1 Ukv c

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.