Morgunblaðið - 15.08.1967, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1967
5
Ríkisarfinn, herra Ásgeir Ás ;eirsson, Bjarni Benediktsson o fleiri við Snorralaug.
(Ljósm. Mbl. Ól.K.M.)
Sumarmót i
Gurðuhrepps
UM næstu helgi efna Garð-
hreppingar til sumarmóts öðru
sinni, en í fyrra fór hið fyrsta
fram við almennar vimsældir.
í þetta sinn munu þrjú félög
í Garðahreppi annast undirbún-
íng og framkvæmd mótsins, þ.e.
Skátafélagið Keilir, Æskulýðs-
félag Garðakirkju og Ung-
mennafélagið Stjarnan. Mót
þetta hefur þann tilgang að gefa
ungum sem eldri tækifseri til að
tjalda stutt frá heimifum sínum
og eiga saman ánægjulegar
stundir. Mótið fer fram við
Balastekk í Dysjalandi, en
hreppstjórinn Guðmann Magnús
son hefur góðfúslega lánað
landið til mótsins, en það er að
allra dómi mjög skemmtilegt og
fallegt og í miðri byggð. Dag-
skrá mótsins verður í aðalatrið-
um þesisi. Á föstudagskvöld er
fólki heimilt að tjalda á móts-
svæðinu kl. 8 e.h., en sjálft
mótið verður sett á laugardag
kl. 3 e.h. með fánahyllingu og
ávarpi séra Braga Friðrikssonar.
Síðan fer fram íþróttakeppni.
Keppt verður í handknattleik
stúlkna og knattspyrnu pilta og
víðavangshlaupi fyrir telpur 12
ára og yngri og 13 ára og eldri
og drengi 11 ára og yngri, 11—
12 ára og 13—15 ára. Keppend-
ur eru beðnir að tilkynna þátt-
töku sína í hlaupinu við rás-
mark. Um kvöldið kl. 8 verða
fánar dregnir niður, en kl. 9
hefst varðeldur með söng og
ýmsum skemmtiatriðum undir
stjórn skáta. Einar Halldórsson, þaðan verður gengið til kirkju
oddviti mun þá einnig flytja og tekið þátt í guðsþjónustu, en
ávarp. Að lokum verður svo æskufólk mun aðstoða við hana
flugeldasýning. Á sunnudaginn og Hrefna Tynes, varaskáta-
20. ágúst hefst dagskráin með nöfðmgi flytur ávarp. Kl. 1 e.h.
fánahyllingu kl. 8,30 f.h., en kl. verður efnt til leikja á móts-
10 f.h. safnast fólk saman við svæðinu með þátttöku yngri og
Samkomuhúsið í Garðaholti og Framhald á bls. 17
VERZLUN Verksmiðjunnar
Dúna hf. hefur verið opnað í
nýju og endurbættu húsnæði að
Auðbrekku 59 í Kópavogi. Verk-
| smiðjan var stofnsett í júní 1963
[ og var fyrst til húsa í 160 ferm.
: húsnæði að Súðavogi 7. f upp-
hafi var gert ráð fyrir að verk-
! smiðjan framleiddi eingöngu
! fjaðradýnur, en vegna byrjunar-
örðuleikag gat framleiðslan ekki
hafizt fyrr en í byrjun ársins
1964 og var því hafizt handa
við húsgagnabólstrun.
| Fyrirtækið var í fyrstu ein-
göngu framleiðslua'ðili fyrir hús-
I gagnaverzlanir, en í september
| 1964 opnaði það eigin verzlun
■ að Auðbrekku 59. Verzlunarrým
j ið var aðeins 100 fermetrar, en
; er nú 300 fermetrar. Á blaða-
; mannafundi i gær, sagði Óskar
1 Halldórsson framkvæmdastjóri
1 Dúna hf. að mjög brýn þörf
hefði verið orðin fyrir stækkun
á húsnæðinu, þar sem fram-
leiðslan og um leið salan eykst
með degi hverjum. Sigurður
Karlsson dekoratör, hefur arm-
ast skipulagningu nýja húsnæð-
isins, sem er mjög rúmgott og
smekklegt. Sagði Óskar i sam-
bandi við bi'eytinguna á verzl-
unarhúsnæðinu, hefði dýnuverk
smiðjan og bólsturgerðin verið
endurskipulögð með vinnuhag-
ræðingu fyrir augum, auk þess,
sem tillit var tekið til nýrra
framleiðsluhátta.
Ennfremur sagði Óskar að
verzluninni hefðu verið tryggð
umboð fyrir þekkt fyrirtæki er-
lendis m.a. M. Nissen og Friis í
Horsens í Danmörku, en Friis í
stærsti aðilinn i húsgagnafram-
leiðslu þar í landi. T.d. seldi
fyrirtækið á þriggja daga sýn-
ingu í Danmörku í maí sl. vör-
ur fyrir fjórar millj. danskra
króna.
Dúna hf. flytur húsgögnin
ekki tilbúin inn til landsins, held
ur aðeins grindurnar. Samsetn-
ing og bólstrun fer síðan fram á
verkstæði fyrirtæ|Vi=ins. Hefur
þetta í för með sér. að úrval
o v •'•nr ’n meira og
möguleikarnir fleiri. Fyrirtæk-
ið hefur eigin lager og í verzl-
unarhúsnæðinu er bólsturverk-
stæðið og dýnuverk-miðjan. en
ein aðalframleiðsla fyrirtækisins
er dýnuframleiðsl? sem er að
sögn Óskats miög f öibreytt og
sú bezta sem vöt er á.
Yderst
velklædt
-Inderst..!
«•<**» ■
Jocke
IMærfötin eru þekkt
um aiían Sieim
fyrir snið og gæði
H ERR4DEILD
POSTHUSSTRÆ.TI — LAUGAVEGI
\ ■WlÍlilllÍiK ' ' ii ...... I................
Voru fengsælir
við Haffjarðará
Ríkisarfinn og forsœtisráðherra
fengu fimm laxa hvor
HARAL.DUR ríkisarfi varð
fengsæll við Haffjarðará, setti
í tíu laxa og landaði fimm.!
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra landaði einnig fimm
löxum. Voru þeir að vonum
mjög ánægðir og þótti ferðin
hafa tekizt vel. Fyrr um daginn
höfðu þeir ásamt forseta ís-
lands, .Tóhanni Hafstein, dóms-
málaráðherra og fleirum komið
með varðskipinu Óðni frá
Reykjavík til Hvalfjarðar, þar
sem Haraldi ríkisarfa var sýnd-
ur hvalskurður. Fimmtíu og
tveggja feta langur búrhvalur
hafði verið geymdur í rúman
sólarhring til þess að af þessu
mætti verða, enda var daunn-
inn slíkur að fólk hélt vasaklút-
um eða treflum fyrir vitum sér.
Loftur Bjarnason tók á móti
þessum tignu gestum, bauð
þeim inn og leysti þá út með
gjöfum. Það var aðeins rigning
arúði meðan staðið var við í
Hvalfirði, en þegar lagt var af
stað að Reykholti var kornið
glaða sólskin. Hópur af börnum
beið gestanna í hlaðinu á Reyk-
holti og horfðu stóruim augum
á prinsinn, sem fór og skoðaði
Snorralaug og jarðhúsið við
hana. Og hann héfur áreiðan-
lega fengið að vita allt, sem
hann óskaði eftir að fá að vita
um staðinn, því í fylgd með
honum voru þeir séra Einar
Guðnason og prófessor Sigurður
Norðdal, og mun vart hafa
staðið á skýrum svörum hjá
þeim. Ríkisarfinn skoðaði
einnig kirkjuna og ritaði nafn
sitt í gestabók hennar, en þá
síðan kaffi hjá séra Einari.
Er staðið var up frá borðum
var haidið áf stað norður að Haf
fjarðará og fóru þeir þangað
Bjarni Benediktsson, ásamt
nokkrum fylgdarmönnum, en
forsetinn og aðrir gestir sneru
aftur til Reykjavíkur. Ríkis-
arfinn og forsætisráðherra komu
svo til Reykjavíkur í gær, eftir
að hs.fa heimsótt Akureyri og
skoðað Mývatnissveit. í dag
verður svo m.a. farið að Mógilsé
og í kvöld snæðir ríkisarfinn
kvöldverð í boði Bjarna Bene-
diktssonar, forsætisráðlherra.
Haraldur ríkisarfi og Sigurðu Norðdal, prófessor, við göng-
in, sem liggja að Snorralau
Dúna hf. í stærra og
endurbættu húsnæði