Morgunblaðið - 15.08.1967, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 19&t
17
- LOFTARASIR
Framlhald af bls. 1
um og öðrum löndum. Ýmsir
bandarískir þingmenn hafa lýst
yfir ánægju sinni, en aðrir
leggjast gegn þeim og segja, að
vart sé hægt að ná meiri árangri
með loftárásunum, en þegar
hefur náðst, nema með því að
ráðast á borgir í N-Vietnam.
Bandaríska stórbiaðið New
York Times sagði í dlag, að
Johnson hefði veitt herforingj-
um sínum í Vietnam heimild til
að senda flugvélar í árásarleið-
angra á ný skotmörk, sem áður
voru á bannflista Bandaríkja-
stjórnar. Segir blaðið, að forset-
inn hafi veitt þessa heimild
vegna kröfu þingsins, en í fyrri
viku krafðist Gerald. Ford, leið-
togi Repúblikana í fulltrúadeild
inmi þess, að hæfct yrði takimönk-
un loftárásanna, og fyrirhuguð
ítarlega rannsókn þinignefndar á
grundvelli takmarkanna og á
árangri loftáfásanna til þessa.
Blaðið segir, að þessar árásir
séu fyrstu merkin um útfærslu
styrjaldarinnar síðan í maí, er
gerðar voru árásir á skotmörk
innan borgartakmarka Hanoi og
Haiphong. Auk áðurnefndra
skotmarka segir blaðið, að af-
létt 'hafi verið banni við sprengju
árásum á ýmsar mikilvægar
samgönguleiðir og iðnaðarmið-
stöðvar á svæðinu umhverfis
Hanoi og Haiphong og járnbraut
arlínuna milli Kína og N-Viet-
nam.
Hershöfðinginn Maxvell Tayl
or og Clark Clifford, ráðgjafi
Johnsons forseta, sem nýlega
voru í könnunarferð í Vietnam
sögðu í sjónvarpsviðtali í Banda
ríkjunum í gær, að ólíklegt væri
að Kínverjar hefðust nokkuð að
þrátt fyrir að Bandarikjamenn
hefðu byrjað loftárásir á skot-
mörk svo nærri kínversku landa
mærunum. Öll skotmörkin væru
hernaðarlegs eðlis og bandarísk-
ir flugmenn hefðu ströng fyrir-
mæli um að virða lofthelgi Kína.
Útvarpið í N-Vietnam sagði í
gær, að 100 borgarar hefðu lát-
ið lífið í loftárásum Bandaríkja
manna í Hanoi á föstudag og
laugardag. Þá sagði útvarpið að
7 bandarískar flugvélar hefðu
verið skotnar niður. Herstjórn
Bandaríkjamanna sagði, að tvær
flugvélar hefðu verið skotnar
niður. Jafnframt þessum auknu
loffcárásum fréttist af dreifðum
átökum víða í Vietnam, en
hvergi var um stórvægilegar að-
gerðir að ræða. Stjórnin í Hanoi
segir, að hinar auknu loftárás-
ir Bandaríkjamanna séu mjög
alvarlegt skref í útvíkkun styrj-
aldarinnar og til þess ætlaðar að
brjóta niður siðferðis- og bar-
áttuþrek N-Vietnammanna. Seg-
ir stjórnin, að þessar aðgerðir
sýni hið ruddalega hugarfar
Bandaríkjamanna og fletti ofan
af tilgangi Johnsons Bandaríkja
forseta, er hann tali um frið og
friðarviðræður.
Westmoreland hershöfðingi,
yfirmaður herafla Bandaríkja-
man-na í Vietnam lýsti því yfir
í dag, að hernaðaraðgerðir
Bandaríkjamanna og banda-
manna þeirra í Vietnam sýndu
stöðugan og vaxandi árangur.
Þessi árangur væri ekki áber-
andi, en stöðugur og raunveru-
Hreinn Líndal held-
ur kirkjutónleika
HREINN Lindal, tenórsöngvari,
heldur kirkjutónleika á Akur-
eyri næstkomandi fimmtudag, á
Húsavík á föstudagskvöld og svo
í Keflavík nk. þriðjudagskvöid.
Organleikari meff honum verffur
Haukur Guðlaugsson. Hreinn
hefur veriff viff söngnám í Róm
undanfarin ár, en kemur yfir-
leitt heim einu sinni á ári og
hélt m. a. tónleika á Akranesi í
vetur.
Hreinn Líndal
,,ftg er búinn að vera sjö ár
á Italíu og útskrifaðist frá Tón-
listarháskólanum í Róm fyrir
þrem árum. Söngnáminu er nú
að mestu lokið, nema hvað mað-
ur lærir alltaf eitthva'ð nýtt og
meira eftir því sem tímar líða,
og hver konsert er í rauninni
nokkurs konar próf.“
„En þú ert ekki í neinum vand
ræðum með íslenzkuna, eftir sjö
ár á Ítalíu?“
„Nei, hamingjan sanna, þá
þætti mér illa farið. Það er að
vísu rétt, að ég tala aldrei ís-
lenzku þarna úti, það er enginn
til að tala hana við, en ég kem
alitaf í heimsókn hingað á sumr-
in, og svo fæ ég Morgunblaðið
sent út og les það alltaf upphátt,
bara svona til að heyra hljóm-
inn af málinu. Ég verð hinsveg-
ar að leggja mikla áherzlu á að
tala og syngja fullkomna itölsku.
Það er mikið af ungum söngvur-
um þarna, sem keppa um hvert
starf og ef útlendingar hafa ekki
nógu gott vald á málinu, eru
aðrir teknir framyfir."
„Þú ert ekkart kvíðinn fyrir
Akureyrarförinni?"
„Ég er alltaf dálítið spenntur
fyrir konserta, en ekki kvíðinn.
Mér þykir mjög vænt um að fá
tækifæri til að syngja íyrir ís-
lenzka áheyrendur og ég held að
tilhlökkunin til þess beri allan
óróleika ofurliði.“
„Hefur þú haldið marga kon-
serta í Róm?“
„Nokkra já, ég er svona að
byrja að fikra mig áfram, það
borgar sig ekki að fara of geist.
í júlí sl. var ég að undirbúa nokk
u'ð stóra söngferð til Líbanon,
Egyptalands og nágrannaland-
anna þar um kring. Undirbún-
ingi var satt að segja að ljúka
og ekkert eftir nema undirrita
samninginn, en þá skall styrjöld-
in á. Ég prísaði mig sælan að
vera ekki lagður af stað.“
„Hvað bíður þín svo þegar
þessari heimsókn lýkur?“
„Mér hefur t. d. boðizt að
syngja við óperuna í Róm, en |
veit ekki hvort ég nota tækifær- j
ið, að þessu sinni. Svo hefi ég !
undirritað samning um tvo kon- j
serta fyrir útvarpið í Róm. Get |
einnig komist að hjá Comfalone j
á næsta söngári. Comfalone var
stofnsett um 1800 og flytur kon- ,
serta bæði innanlands og utan,
og þetta er gott tækifæri fyrir
mig.“
„En ef við snúum okkur aftur
að Akureyrarferðinni, hvað syng
ur þú þar?“
„Ég syng bæði íslenzk og út-
lend lög, m. a. tvö eftir Pál ís-
ólfsson og svo eftir Christofer
Gluck, Verdi, Hándel, Schubert
og fleiri. Ég hlakka til konsert-
anna, bæði á Akureyri, Húsa-
vik og í Keflavík, og er sérstak- ;
lega feginn að hafa fengið Hauk
til að vera við orgelið.
legur. Hershöfðinginn sagði, að
her S-Vietnam væri í stöðugri
og góðri framför. Hann sagðist
verða var við stöðuga framsókn
og framfarir hvert sem hann
færi í Vietnam. Nýir vegir og
aðrar samgönguleiðir væru opn
aðar, sem hleyptu nýju lífi 1
viðskipta- og þjóðlífið í S-Viet-
nam. Hann sagði að skæruliðar
og N-Vietnammenn hefðu ekki
haft árangur sem erfiði, þrátt
fyrir miklar og dýrar hernaðar-
aðgerðir. Aðspurður hvers hann
vænti á næstu mánuðum, er
hann hefði fengið 50,000 manna
liðsauka, sagði Westmoreland,
að han vonaðist til að geta
tryggt áframhaldandi sigur og
velgengni og aukið mannfall hjá
fjandmönniunum, þar sem þeir
ráðast inn í S-Vietnam meðfram
vopnlausa svæðinu.
— Berlínarmúrinn
Framlhald af bls. 1
fullri vissu að hafa látið lífið
er þeir freistuðu að flýja til
V-Berlínar, en austan megin
múrsins lýstu borgaryfirvöld
yfir því einu sinni enn, að
múrinn hefði borið tilætlað-
an árangur með því, að hann
hefði tekið fyrir flótta vinnu-
afls frá A-Þýzkalandi.
Sendinefnd frá nýnasistafloWkn
um þýzka, með Adoif von
Thadden formann í broddi fylk-
inigar, lagði einnig blómsveig
vi'ð minnismerki skaimmt frá
Brandenbor'garhliðinu en þar
vonu þá fyrir ful’ltrúar málmiðn-
aðarmanna í V-Berlín og höfðu
ein.nig l'agt þar blómsveig
skörnmu áður. MótmSeltu iðnað-
armennirnir því, að nýnazistar
fengju að leggja sinn blóm-
sveig að minniismerkinu, en von
Thadden svaraði og sagði, að ó-
tiihlýðilegt væri að Þjóðverjar
berðust á slíkum degi.
Blöð í Vestur-Berlín kölluðu
Berlínarmúrinn mestu hindrun á
vagi friðar og vináttu austurs og
vesturs, en stærsta blað Austur-
Þýzkalands, „Neues Deutsdh-
land“, sagði að múrinn kæmi í
veg fyrir nýja styrjöld og bætti
aðstæður allar í A-Þýzkalandi
og hefði orðið grafskrift yfir
kröfur V-Þýzkaia'nds um að flá
að vera fulltrúar Þýzkalands
Þorvaldur Brynjólfsson
verkstjóti
HANN Þorvaldur á afmæli í
dag, ekki ber útlit hans þó vott
um, að þetta sé sextugsafmæli.
Éklki þar fyrir að sHkt sé neitt
einsdæmi nú á dögum, þegar
siextugir menn eru Mkastir því
sem fertúgir voru, þegar við
Þorvaldur vorum að alast upp.
Eimhversstaðar stendur skrif-
að, að al'lt sé fertugutm fært og
svo hygig ég vera með hann.
Ég ætla ekki að fara að rekja
æfiferil Þorvaldar, til þesis skort-
ir miig kunnugleika, enda var
hann hálf þrítugur að aldri, er
kynni okkar hófust. Það finnst
mér l'iggjia í augum uppi, að for-
eldralaus unglingur, sem kemur
í bæinn og hefur kjark og stað-
festu til að stunda iðnaðarnám
á þeim tima, er atvinnuleysi var
algengt fyrirbæri hj.á öllum al-
menning.i, h'lýtur að hafa fengið
í vöggugjöf þá kosti, er dugað
hatfa mönnum til farsældar á lítfis
leiðinni, enda reyndist svo með
hann. Að loknu námi réðist hann
til Landssmiðjunnar, er þá var
nýstofnuð oig starfaði þar sem
aðal eldsmiður. Um sbeið dvald
ist hann erllendis til að kynnast
nýjunigum í iðn sinni, en hóf
svo aftur starf í eldsmiðjunni
■ Sextugur
og starfaði þar um ár.abil. Man
ég glöggt leikni hans og útsjón-
arsemi við að leysa af hendi
hin ólíkustiu viðfangsefni í iðn-
inni, enda fór þar saman góð
kunnátta, handlagni og útsjón-
arsemi.
Seinna gerðist hann svo yfir-
maður efnisgeymslunnar, unz
hann tók við yíirverkstjórn járn-
smíðadeilda fyrirtækisins og hef-
ur hann gegnt því starfi síðan.
í þessu starfi hafa hinir góðu
eiginleikar hans, lipurmennska
og hæfileiki til að umgangast
fólk með ólíkustu vi'ðhorfum til
manna og málefna, komið honum
að góðu haldi. Þá hefur hann
innt af höndum mikið starí' í
prófnefnd járnsmíðagreina, en
hann er formaður þeirrar nefnd-
ar. Sömuleiðis starfaði hann mik-
ið fyrir Félag járniðnaðarmanna
og var formaður þess félags um
skeið. Þá hefur hann starfað í
ýmsum félagsskap öðrum, en eigi
skal það upptalfð hér.
Þorvaldur er maður glaður á
góðri stund og kann vel að koma
fyrir sig orði í ræðuformi í
mannfagnaði, enda munu margir
starfsfélagar hans og aðrir,
minnast heimsókna hans og
hlýrra orða á merkisdögum
þeirra og er ég einn af þeim.
Um leið og ég þakka honum
liðnar samverustundir, vil ég
óska honum áframhaldandi vel-
farnaðar á lífsbrautinni.
Ásgeir Guffmundsson.
- SUMARMÖT
Framhald af bls. 5
eldri, en mótinu verður slitið
kl. 4 síðdegis. Nánari upplýs-
ingar um mótið verða veittar
miðvikudags, fimmtudags- og
föstudagskvöld í barnaskólan-
um, sími 51656 milli kl. 8 og 10
e.h. Tjaldstæði kosta kr, 25,00
og prentuð dagskrá verður seld
á mótinu. Allir Garðhreppingar
og gestir þeirra eru velkomnir.
alls.
— Mótmæli
Fra.mhald af bls. 12
þeim baki og ganigi aftur í lið
með Mao og mönnum hains. —
Einnig er birt í blaðinu öðru
sinni yfirlýsing byltingarnefnd-
arinnar í Peking, þar sem kín-
verskum borgurum er bannað að
grípa til vopna.
Eiginkona Kínaforseta, Wang
Kuan mei, hefur haldið uppi
vörnum fyrir mann sinn í bréifi,
ssm hún hefur sent Rauðu varð-
liðunum, að því er japanskur
fréttamaður hermir frá Peking í
daig. Annar japanskur fréttamað-
ur sagði að Chen Yi, utanríkis-
ráðherra, hefði gagnrýn.t sjálfa.n
sig á fjöldafundi í Peking á
laugardag, þar sem mættir vonu
um 10.000 manss.
Affför aff sendiráðum Sovét-
ríkjanna og Mongólíu
Til átaka kom úti fyrir sendi-
ráði Sovétrikjanna í Peking í
dag og freistuðu Rauðir varðilið-
ar að komast inn í sendiráðið en
kínverskir hermenm vörnuðu
því og urðu varðLiðarnir að láta
við það sitja að kasta grjóti að
sendiráðinu og brjóta þar rúður.
Aðför Rauðu varðliðanna var í
mófcmælaskyni við hegðan áhafn
arinnar á sovézka skipinu
„Svirsk“, sem kyrrsett var í Da-
iren við Gula hafið, eins og áð-
ur hefur verið frá sagt. Einnig
bópuðust Rauðir varðliðar sam-
an úti fyrir sendiráði Mongóiíu
sjötta daginn í röð.
Mikill ofli
UNDANFARNA daga hafa bát
ar fengið miklnn afla af þorski
á Þistilsfirði, ecns og skýrt hefur
veriff frá í fréttum. Um 15 til 20
bátar frá Norffurlandshöfnum
hafa stundað þessar veiffar á
mjög litlu svæði skammt undan
landi. Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið hefur fengið hjá Sig-
urffi Sigurffssyni, Þórshöfn. Mun
aflamagnið þó ekki fyrst og
fremst byggjast á sérstökum
fiskigöngum, heldur hinu, aff
mjög smárið’nar nætur eru notaff
ar til veiffanna og ungviffinu
mokaff upp með þeim. Á mefffylgj
andi mynd sést hvernig gömul
síldamót er notuð viff þessar
vöiffar. (Ljósm. Sigurffur Sigurj
, ónsson).