Morgunblaðið - 15.08.1967, Side 18

Morgunblaðið - 15.08.1967, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. AGUST 1967 Þorgerður Jónsdóttir frá Hemru - Minning FÖSTUDAGINN 4. ágúst sl. and- aðisit merkiskonan Þorgerður Júnsdóttir, fyrrum húsfreyja í Vestri Garðsauka í Rangárvalla- sýslu. Með henni er horfin em af dugnaðarkonum aldamótakyn- slóðarinnar, sem lengi verður minnst af þeim, er kynntust t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, Sigurður Kjartansson, kaupmaður, Laugavegi 41, andaðist í Landakotsspítala 13. ágúst. Ástríður Jónsdóttir, börn og tengdabörn. t Faðir okkar, Sigurður Þórðarson frá Nautabúi, andaðist að heimili sínu, Mávahlíð 40 hinn 13. ágúst. Ingibjörg Sigurðardóttir, Sigfús Sigurðsson. t Móðir okkar og tengda- móðir Louise Thorarensen Laufásvegi 31, andaðist í Landakotsspítala-n- um 13. ágúst. Synir -og tengdadætur hinnar látnu. t Hjartkær eiginbona mín Margrét Th. Jónsdóttir Háagerði 61, lézt í Landsspítalanum 13. þessa mánaðar. Páll B. Oddsson og börn. t Tómas Einarsson verður jarðsunginn frá Þjóð- kirkjunni í Hafnarfirði, mið- vikudaginn 16. þesisa mánað- ar kl. 2 eftir hádegi. Fyrir hönd aðstandenda, Bjarni Snæbjörnsson. t Bróðir minn Gísli Hermann Erlendsson fæddur að Bakka í Dýrafirði verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 16. ágúst kl. 1,30. Blóm vinsam- legast afbeðin. Fyrir hönd aðstandenda. María Erlendsdóttir. henni. Þessi kynslóð, sem nú er að hverfa, var gædd mikiili hjartsýni og óbifandi trú á land- ið og þjóðina og átti með starfi sínu og trúmennsku ríkastan þátt í því, að skapa þann grund- völl, sem menning okkar byggir á í dag. Þorgerður var komin af merk- um bændaættum í Vestur-Skafta fellssýslu og bar svipmót ætt- arinnar, eins og myndin sýnir. Hún var fædd í Hrífunesi í Skaft ártungu þ. 12. desember 1878. Foreldrar hennar voru Hildur Vigfúsdóttir, hreppstjóra Bótólfs sonar á Flögu og maður hennar, Jón Einarsson, bónda í Hrífu- nesi Bjarnasonar. Þau Hrífunes- systkin voru mörg, en kunnast- ur bræðra Jóns var séra Bjarni, sem lengi var prestur í Þykkva- bæjarklaustursprestakalli og bjó að Mýrum í Álftaveri. Jón var í Hrífunesi á vegum föður síns, þar til er jörðin Hemra í sömu sveit losnaði úr ábúð árið 1879, er Runólfur Jónsson, sem þá bjö þar, brá búi og fluttist að Holti á Síðu, sem hann hafði keypt af Árna sýsluimanni Gíslasyni. Jón flutrti að Hemru, keypti jörðina og bjó þar blómlegu búi upp frá því til dauðadags, þ. 5. maí 1922. Hildur lifði mann sinn í nokkur ár. Þorgerður var elzt af 6 siystkin um er upp komust, en þau voru: Sigrún, sem lengi átti heirna á Skúmsstöðum í Landeyjum (d. 1958), Guðrún í Hemru (d. 1951), Jóhanna, ekkja Ein- ars Bergssonar á Mýrum, Þor- valdur, sem fluttist að Skúms- stöðum og bjó þar til dauða- dags 1963, Valdimar, kenn- ari og hreppstjóri í Hemru, fróð- leiksmaður og skáld gott, d. 1948. Jóhanna er nú ein á lífi þeirra systkina. Þorgerður var fermd í Ása- kirkju 28. apríl 1892. Hún ólst upp við sömu störf og kjör sem þá tíðkuðust í sveitum landsins. Búskapurinn í Hemru varð snemma umsvifamikill, ekki sízt vegna þess að á Jón bónda hlóð- ust margvísleg trúnaðarstörf. t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför föður okkar Kristins Jónssonar, Bjargi, Ólafsfirði. Börnin. t Þökkuim innilega auðisýnda samúð við andlát og jarðar- för eiginmanns míns Egils Sveinbjörnssonar, Svava Sölvadóttir, börn og tengdabörn. t Þöklkum auðsýnda samúð við andlát og útför stjúpföður okkar Signrðar Einarssonar, sem lézt að Hrafnistu 2. ágúst s.l. Sérstaklega viljum. við þakka stjórn og starfsfólki Hrafnistu fyrir þann 'góða vel vilja og umönnun sem hann varð aðnjótandi þar. Júlíana Mathiesen, Sólon Lárusson. Hann var hreppstjóri, oddviti, sýslunefndarmaður og auk þess í flestum þeim nefndum, sem til greina koma í sveirt. Hann var og í kjöri til Alþingis og vara- þingmaður um skeið. En Hildur kona hans var orðlögð fyrir dugnað og ráðdeild, svo að ekki kom að sök þó að maður henn- ar yrði oft að vera að heiman vegna opinberra starfa. Það sýn- ir mat ráðamanna á Jóni í Hemru, að hann var sæmdur heiðursmerki dannebrogsmanna, en sl'ík viðurkenning var sjald- gæf utan embættismannasitéttar- innar á þeim tíma. Eigi naut Þorgerður skóla- menntunar í æsku, enda var slíkt eki í tízku á uppvaxitarár- um hennar. Nokkurrar tilsagnar mun hún þó hafa notið hjá séra Bjarna, föðurbróður sínum, og tíma úr vetri dvaldizt hún í Kald aðarnesi, á heiniili Sigurðar Ólafssonar, sýslumanns, auk þess sem hún sótti saumanámskeið á Eyrarbakka. En þó að námistnn- inn væri ekki lengri, var Þor- gerður mjög vel menntuð kona og fróðleiksfús. Hún skrifaði ágæta rithönd og varð snemma önnutr hönd föður síns við skrift ir. Á uppvaxtarárum Þorgerðar í Hemru var margt merkra manna í Tungunni og samheldni meiri en víðá annars sitaðar. Frænd- fólk átti hún þar á flestum bæj um. Tunguprestar voru þá séra Brandur Tómasson og eftir hann séra Sveinn Eiríksson, er báðir sátu í Ásum. Björn í Svínadal og Jón Eiríksson í Hlíð, bræður séra Sveins í Ásum, Gísli í Gröf og fleiri, voru alkunnir og leið- andi í menningu og framförum. Þá var enn á lífi Sigríður Sveins dóttir í Hlíð, dóttir Sveins lækn is Pálssonar, fróð og minnug, segir Þorv. Thoroddsen í ferða- sögu sinni úr Vestur-Skaftafells sýslu, en hjá henni fékk hann ómetanlegar heimildir um ævi föður hennar. Sumt af því fólki, sem var samtíða Þorgerði á upp vaxtarárum hennar, varð seinna landsþekkt, svo sem þau Ásasystkini, Sigríður húsfreyja í Flögu og bræður hennaT, Páll menntaskólakennari og Gísli sýslumaður. Marga fleiri mætti nefna ef rúm væri til þess. Skaftártunga er fögur sveit og hlýleg. Hemra er svotil miðsveit is, í Tungufljótsdalnum, skammt fyrir vestan fljótið. Ekki er lands lag í Tungunni eins srtórbrotið og víða annars staðar í sýslunni, en allt er gróðri vafið upp á heiðabrúnir. Skógarkjarr er þar víða, og setur það enn meiri hlý leikablæ á landslagið. Fremur er skammt á milli bæja og gott um samgöngur víðast hvar innan sveitarinnar, jafnvel áður en brýr og vegir komu til sög- unnar. f þessu umhverfi ólst Þorgerð- ur upp, ásamt systkinum sínum. Hún elskaði sveitina sína og hélt órjúfandi tryggð við hana, þótt það ætti fyrir henni að liggja að dveljast í fjarlægð meiri hluta ævinnar. Árið 1907 urðu umskipti á hög um Þorgerðar. Þá flufctizt hún úr foreldrahúsum og giftist Einari Einarssyni bónda í Vestri-Garðs auka í Hvolhreppi. Einar var þá ekkjumaður — hafði misst konu sína árið 1905. Þorgerður gekk þremur börnum Einárs í móður stað. Þau voru Sighvaitur,' sem andaðist á barnsaldri, Sigurður bóndi á Hólavatni í Austur-Land eyjum, kvæntur Elínu Ingvars- dófctur, og Sigríður, húsfreyja í Reykjavík, gift Brynjólfi Erlings syni. Yngsta barn Einars af fyrra hjónabandi, Guðríður, ólst upp hjá móðurforeldrum sínum og er búsett í Osló. Heimilið í Vestri-Garðsauka var stórt og umsvif mikil, enda var Einar hreppstjóri sveitarinn ar og gegndi auk þess mörgum öðrum opinberum störfum. Heim ilisfólkið var margt, oft um og yfir 20 manns að sumrinu og gest kvæmt mjög, þar sem bærinn stóð í þjóðbraut, einkum áður en brú var sefct á Þverá og ekki var ferðast öðruvísi en á hest- um. Bú þeirra Einars mun hafa verið mjög blómlegt á mæli- kvarða þess tíma, enda þurfti mikils við. Húsfreyjan í Vestri-Garðsauka varð snemma kunn fyrir rausn og hjálpsemi við skylda jafnt sem vandalausa, og voru þau hjón samhent í því sem öðru. Þorgerður tók að sér tvö syst- kin á barnsaldri og ól þau upp, og auk þess voru þar oft börn og unglingar til dvalar um lengri eða skemmri tírna. Einnig fengu gamlar konur athvarf á ævikvöldinu hjá hjónunum í Garðsauka og undu hag sínum vel. Ein þessara einsitæðinga kom þar við á langri og dapur- legri ferð, til þess að fá sér hress ingu áður en hún færi lengra en svo lauk þeirri „skyndiheim- sókn“, að gesturinn varð um kyrrt í Garðsauka það sem eftir var ævinnar. Þeir sem nú eru ungir og lifa við öryggi nútíma- þjóðfélags munu vart geta gert sér í hugarlund, hvilíkit þjóð- þrifa- og mannúðarstarf hér var af hendi leyst, meðan sjáltf þjóð- félagsskipanin var ólíkt harðýðg islegri en nú er. En Þorgerður í Garðsauka vann verk sín í kyrrþey og var lítið fyrir að láta bera á þeim út í frá. Hún ávann sér skjótt mikl ar vinsældir í hinu nýja um- hverfi, enda var hún trygglynd, skapföst og fáskiptin um ann- arra hagi. Hún mun aldrei hatfa gert nokkrúm manni vísvitandi rangt til. Jafnvægi skapsmun- anna var slíkt, að henni sást varla bregða, nema þá helzt ef henni var sagt eitthvað miður gott um náungann að órannsök- uðu máli, en þá átti hún það til að svara þannig, að málið var fljótt tekið út af dagskrá. Ég held, að ekkert óheilt hafi verið í fari hennar. Á þeim árum sem Þorgerður áfcti heima í Vestri-Garðsauka, var Guðmundur Guðfinnsson, héraðslæknir á Stórólfshvoli. Hann var víðkunur fyrir lækn- isstörf sín og fólk leitaði til hans úr fjarlægum héruðum til þess að fá bót meina sinna. Voru Skaftfellingar þar fjölmennir. Guðmundur var afbragðs skurð- læknir og framkvæmdi ofit hol- skurði á heimili sínu og stundum hjá hjónunum í Vestri-Garðs- auka, en þau tóku oft sllíka sjúkl- inga til sín, meðan þeir voru að ná sér eftir aðgerðir. Engum efa er það bundið, að það hefur flýtt fyrir bata margra sjúkling- anna að eiga athvarf á þessu heimili. Á þetta fyrst og fremst við þá er komu að austan, eftir langa og erfiða ferð yfir ár og sanida Skaftafellssýslu. Þorgerð- ur hélt ævilangri tryggð við æskustöðvar sínar og taldi hvorki eftir sér tíma né fyrir- höfn við að greiða fyrir sveit- ungum sínum. Alkunugt var, með hvílíkum snyrtibrag þau hjón stunduðu búskapinn; heimilið bar vott um smekk húsmóðurinnar, svo sem trjágarðurinn heima við bæinn, sem hún annaðist um og jók og prýddi. Þorgerði í Garðsauka féll aldrei verk úr hendi, en þráfct fyrir miklar annir fékk hún þó tóm til að sinna öðrum hugðar- efnum, en eitt þeirra var lest- ur góðra bóka. Hún var mjög bókhneigð og féll bezt við rit uim sögu og þjóðhætti fyrri tíma, enda þótt hún fylgdist vel með nútímanum. Hún var minnug á afcburði fyrri tíma og hafði hlot- ið lifandi frásagnargátfu í vöggu gjöf. Trúhneigð var Þorgerður að eðlisfari og efaðist. aldrei um grundvallarsannindi kristindóms ins, þótt hún flíkaði lítt trú sinni. Þorgerður missti mann sinn árið 1939 eftir rúmlega þriggja áratuga samibúð. Þau eignuðust tvö börn, Jón bónda í Garðs- auka, kvæntan Sóleyju Magnús- dóttur frá Suðureyri, og Kristínu, konu Ragnars Jónsson- ar, skrifstofustjóra í Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins. Hann er ættaður frá Bjólu-hjáleigu í Holtum, bróðir Ingólfs ráðherra. Eftir lát manns síns rak Þor- gerður búskapinn í nokkur ár, unz hún fluttizt að Hellu til dóttur sinnar og tengdasonar, en þá var Ragnar starfsmaður við Kaupfélagið Þór. Frá Hellu flutt uzt þau austur í Vík í Mýrdal árið 1951, er Ragnar tók að sér framkvæmdastjórn hins nýstofn aða Verzlunarfélags Vestur- Skaftfellinga. Þar áttu þau heim ili í áratug. Var Þorgerður nú komin í nágrenni vi ðæskustöðv- arnar og endurnýjaði tengslin við frændur og forna vini. Barnabörnin elskuðu hana og dáðu, enda var umhyggja henn- ar fyrir þeim óþreytandi alia tíð. Eins og það varð hamingja hennar að una ævikvöldinu á heimili þeirra, svo var það og gæfa þeirra að mega njóta ná- vistar hennar á barns- og ung- lingsárum. Þorgerður varð þeirrar gæfu aðnjótandi að halda fullum sál- arkröftum fram á síðustu stund. Ég, sem þessar línur rita, kynnt- ist henni ekki að ráði fyrr en hún var komin hingað til Reykjavíkur upp úr 1960, en ég m/un ætíð minnast þess, hve Framihald á bls. 20. Ég þakka öllum sem glöddu mig á sjötugsafmæli mínu 25, júlí síðastliðinn. Guð bilessi ykfcur öliL Ingveldur Eyjólfsdóttir, Hvammi, Eyjafjöllum. Hjartans þafckir til allra hinna fjölmöngu vdna minna nær og fjær sem heiðnuðu mig með heimsóknum, gjötf- um ag sfceytum á 60 ára af- mæli mínu. Guð blessi yktour öll. Kristinn Sigmundsson. Þökkum þeim sem mundu mér afmælisdaginn 14. júlí. Oddur J. Tómasson, málar amieis tari. Hjartanlega þakka ég börnum mínum, fcengdabörn- um og öðrum ættingjum og vinum sem heimsóttu mig og glöddu með gjöfum, blómum og skeytum á 70 ára afmæli mínu 5. júilí síðaistliðinn, og gerðu mér daginn óglieyman- legan. Guð blessi ykfcur öll. Guðmundur Magnússon, Ketflavífc.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.