Morgunblaðið - 15.08.1967, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. AGUST 1967
islendingar skoruöu tvö af mörkum Breta
sem sigruðu 3-0 í leiðinlegum og tilþrifalitlum leik
MARKALÁNIÐ lék ekki við ís-
lendinga í landsleiknum á móti
Englendingum i gær, því að í
stað þess að skora hjá mótherj-
anum, sendu þeir knöttinn tví-
vegis í eigið mark, en hið þriðja
skoruðu Englendingarnir upp á
eigin spýtur. Leikurinn var
anars einhver leiðinlegasti og
þófkenndansti landsleikur, sem
sést hefur á Laugardalsvelli.
Englendingarnir voru tvímæla
laust sterkari aðilinn og áttu sig
urinn fyllilega skilið, en knatt-
spyrna sú sem þeir léku var
heldur hvimleið og brezkri knatt
spyrnu til lítils sóma. Var fram
koma þeirra á leikvellinum ekki
upp á marga fiska auk þess sem
þeir voru ákaflega grófir í leik
sínum. Síðustu 30 mánúturnar
má segja að þeir hafi leikið með
það eitt fyrir augum að tefja og
fá ekki á sig mörk, og setti það
óneitanlega svip á heildaryfir-
bragð leiksins.
Ekki verður sagt, að íslenzka
liðið hafi átt sérstakan leik —
leikmennirnir náðu aldrei al-
mennilega saman og mistök
bæði í vörn og sókn voru alltof
tíð. Tvö mörk Bretanna komu
t.d. upp úr slæmum varnarmis
tökum, og verður að skriifa þau
bæði á reikning Þórðar Jónsson-
ar. Anton og Jón voru burðar-
ásar íslenzku varnarinnar og
áttu báðir ágætan leik. Guðni
Jónsson hefur oft verið frískari
og sömu sögu er að segja um Ey-
leif. Lítið fór fyrir framherjun-
um þremur, Hermanni, Kára og
Birni Lárussyni (sem varð
reyndar að yfirgefa völlinn í síð
ari hálfleik vegna meiðsla) og
hinn fyrrnefndi sást t.d. varla í
síðari hálfleik. Á hinn bóginn
kom Guðni Kjartansson manni
mjög á óvart — var sívinnandi
og barðist vel. Var han að mín-
um dómi bezti maður ísl. liðs-
ins.
Gangur leiksins
Fyrstu 21. mínútur leiksins
voru heldur tíðindalitlar — bæði
liðin sóttu á víxl, en strax var
þó greinilegt að Englendingarn-
ir voru sterkari aðilinn.
En á 18. mínútu sækja íslend-
ingar og Hermann vippaði knett
inum laglega yfir til Kára, en
Englendingum tókst að bjarga
á síðustu stundu. Á 20. mínútu
er Hermann aftur á ferðinni og
sendir laglega yfir til Eyleifs,
sem er óvaldaður inn í vítateig,
en Swanel markvörður bjargaði
laglega. Á 37. mánútu sóttu ís-
lendingar enn og nú var það
Guðni Jónsson sem sendi knöít
inn vel fyrir markið, og Kári
sótti að Swanel markverði, sem
bjargaði naumlega í horn.
Upp úr hornspyrnunni náðu
Englendingar knettinum og sóttu
upp vinstri vallarhelming íslend-
inga og þaðan kom skot af löngu
færi. Sigurður hafði knöttinn, en
Þórður Jónsson hugðist sparka
frá marki, en hitti ekki knöttinn,
svo að hann breytti stefnu og
fór í hægra horn íslenzka marks-
ins. Sigurður var úr jafnvægi og
náði ekki knettinum. Mjög slysa-
legt mark.
Englendingar höfðu sótt meira
í hálfleiknum, en á hinn bóginn
höfðu tækifæri íslendinga verið
öllu hættulegri, eins og sést á
upptalningunni hér á undan. En
á 43 mínútu átti Gamblin, sem
var tvímælalaust bezti maður
brezka liðsins, hörku skot að
marki, sem Sigurður varði
snilldarlega. Lauk hálfleiknum
því 1:0 fyrir Breta.
Síðari hálfleikur 2:0
Síðari hálfleikur var mun dauf
ari og ver leikinn en sá fyrri af
báðum aðilum. Fyrstu 25 mínút-
urnar skiptust liðin á upphlaup-
um — Englendingar voru þá
heldur meira í sókn. En á 28.
mínútu kemur annað mark Eng-
lendinga, og var þar að verki
Haider, hægri útherji. Hann fékk
knöttinn á vítateigslínu, lék á
einn íslenzkan varnarleikrnann
og sendi knöttinn í bláhornið.
Ekki verður hér dæmt um það
hvort Sigurður hefði átt að ná
þessu markskoti, en hann virtist
vera heldur seinn niður.
Eftir þetta mark færðist. mikið
þóf í leikinn, enda virtust Bretar
leggja áherzlu á að tefja leik-
inn og fá ekki á sig mörk. Léku
þeir oft langtímum saman rétt
fyrir utan sinn eigin vítateig, og
virtust hafa lítinn áhuga á að
sækja á íslenzka markið. En á
37. mínútu gera þeir eitt af sín-
TÝR - ÞÓR 6-1 i
bíkarkeppninni
SL. fimmbudag léku Vestmanna-
eyjaliðin Týr og Þór í bikar-
keppni KSií. Lauk leiknum með
yfirburðlasigri Týs, 6:1. Næsti
leikur Týs mun verða við ísfirð-
inga, og átti að vsrða um helg-
ina. Varð að fresta leiknum
viegna óhagstæðis flugveðurs í
Eyjum.
um fáu upphlaupum, og berjast
Þórður Jónsson og Haider um
knöttinn á vítateigshorninu. Fyr-
ir mistök missir Þórður Haider
inn fyrir sig, og kemst hann upp
að endamörkum alveg við ís-
lenzka markið, þar sem hann
sendir fasta sendingu fyrir mark-
ið. Knötturinn hrekkur í Jón
Stefánsson og þaðan inn í mark-
ið. Eftir þetta gerðist fátt eitt
markvert, og lauk leiknum því
me'ð sigri Englands 3:0. — B.v.
- IÞROTTIR
Framlhald af bls. 27
ekki eins snarpur af sér eins og
áður.
í sleggjukastinu sigraði Jón H.
Magnússon, ÍR, en tókst ekki að
bæta met Þórðar B., sem virðist
ætla að verða honum erfiður
þröskuldur. Kastaði Jón 52,70
metra, Þórður B. varð annar með
51,05 metra, sem er hans bezti
árangur í sumar og annar bezti
árangur íslendings í ár. Þriðji
Swanel markvörðar Englendinra sýndi mjög góðan leik. Hér
/landsamar hann knöttinn í eitt skipti af mörgum.
,-V
.Eyleifur fær knöttinn inn i vítateig Bretanna, en Swanel markvörður bjargar vel með úthlaupi.
Mnrkmoður-
inn skornði
ÁRLEGA fer fram í Englandi
leikur milli sigurvegaranna
í deildakeppninni og sigur-
veraganna í bikarkeppninni.
Fer leikur þessi venjulega
fram viku áður en keppnis-
tímabilið hefst hverju sinni.
Þessi leikur fór að þessu
sinni fram sl. laugardag og
mættist að þessu sinni Man-
chester United (sigurvegarar
í deildakeppninni) og Tott-
enham (bikarmeistarar).
Leikurinn fór fram í Man-
chester og endaði með jafn-
tefli 3:3.
Leikurinn var afar spenn-
andi og vel leikinn. Totten-
ham hafði yfirhöndina í byrj
un og Jimmy Robertson skor-
aði fyrir Tottenham snemma
í fyrri hálfleik. Tottenham
komst í 2:0 með marki, sem
skorað var á mjög óvenjuleg-
an hátt. Jennings, markvörð-
ur Tottenham, spyrnti knett-
inum frá eigin marki og und-
an nokkrum vindi. Knöttur-
inn kom niður rétt fyrir utan
vítateig Manchester U. og
þar kom markvörður Man-
chester U., Alex Stepney,
náði ekki til knattarins, sem
hoppaði yfir markvörðinn og
inn í markið.
Bobby Charlton skoraði 2
mörk fyrir Manchester U. á
sömu mínútu og í hálfleik var
staðan 2:2.
Frank Saul tryggði Totten-
ham forystu í síðari hálfleik,
en Denis Law jafnaði fyrir
Manchester U.
var Þórsteinn Löve með 49,90
metra.
í 100 metra hlaupi sveina sigr-
a’ði Helgi Már Haraldsson, ÍR,
á 12,1 sek. Annar varð Elías
Sveinsson, ÍR, á 12,2 sek., og
þirðji Friðrik Þór Óskarsson, ÍR,
á 12,3 sek. Allt eru þetta mjög
efnilegir hlauparar og má sjá
það að þeir náðu jafngóðum ár-
angri og drengirnir, en í 100
metra hlaupi drengja sigraði
Guðmundur Ólafsson, ÍR, á 12,1
sek., annar varð Snorri Ásgeirs-
son, ÍR, á 12,3 sek. og þriðji
Hróðmar Helgason, Á, á 12,5 sek.
í 100 metra hlaupi kvenna
sigraði Bergþóra Jónsdóttir, ÍR,
á 13,5 sek., eftir harða keppni
við Önnu Jóhannsdóttur, ÍR,
sem hljóp á sama tíma. Bergþóra
sigraði einnig í hástökki, stökk
1,35 metra, en Ingunn Vilhjálms-
dóttir, Fríða Proppé og Anna Jó-
hannsdóttir stukku einnig allar
þá hæð. í 60 metra hlaupi
stúlkna yngri en 13 ára sigraði
Ragnhildur Jónsdóttir, ÍR, á 9,1
sek., og í 60 metra hlaupi pilta
yngri en 13 ára sigraði Ágúst
Böðvarsson, ÍR, á 9,1 sek., annar
varð Þorsteinn Kristjánsson, ÍR,
á 9,3 sek., og þriðji og fjórði
Gunnar og Friðgeir Hólm, er
báðir hlupu á 9,3 sek.
í kvennaboðhlaupinu sigraði
sveit ÍR á 56,4 sek., og í 1000
metra boðhlaupi karla sveit KR
á 2:02,8 mín. í sveitinni voru
Halldór Guðbjörnsson (100 m),
Ólafur Guðmundsson (200 m),
Þorsteinn Þorsteinsson (300 m)
og Valbjörn Þorláksson (400 m).
Veður til keppni var með af-
brigðum gott, hlýtt og nær logn.
stjL