Morgunblaðið - 15.08.1967, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.08.1967, Blaðsíða 27
MORGlJNBLAÐEÐ, ÞRHXHIDAGUR 15. ÁGÚST 1967 27 Afmœlismót F.R.Í.: IMokkrir erl. íþrótta- menn þátttakendur HELGINA 26.-27. ágúst nk. mun fara fram á Laugardals- vellinum frjálsíþróttamót með þáttöku nokkurra erlendra gesta og má búazt við skemmtilegri keppni, þvi út- lendingarnir hafa verið valdir til keppni í þeim grein um sem fslendingar hafa náð lengst á í sumar. Mót þetta verður afmaelismót F.R.Í. og fer fram í sambandi við ung- lingakeppni F.R.Í. F.R.Í. byrjaði á að bjóða til móts þessa nokkrum Pól- verjum, en þar sem ekkert svar kom frá þeim, var reikn að með að af þátttöku þeirra gæti ekki orðið. Var þá skrif- að til Noregs og Danmerkur og þeim boðið að senda kepp endu. Þágu bæði löndin boð- ið. Skömmu eftir að þátttaka þeirra var ákveðin kom svo jákvætt svar frá Pólverjum og munu þeir senda hingað 2 keppendur. Auk þessara mun svo sennilega einnig keppa einn Kanadamaður, sem er Kanadameistari í 3000 metra hindrunarhlaupi. Dönsku keppendurnir voru valdir til íslandsfararinnar að afloknu danska meistara- mótinu sem fór fram í Aarhus nú fyrir skömmu. Voru þeir Sven Breum frá Skovbakken og Preben Glue frá Aarhus valdir til þátttöku. Breum er danskur methafi í 1500 metra hlaupi og mun hann einnig taka þátt í 800 metra hlaupi. Preben Glue er danskur met- hafi í hástökki og hefur stokkið 2.08 m. Norðmennirn ir sem koma eru Björn B. Andersen, sem á norskt met í kúluvarpi, um 18,50 metra og millivegalengdarhlaupar- inn Terje Larsen, sem hlaup- ið hefur 800 metrana á um 1:50,0 mín. Meðal Pólverj- anna sem koma er millivega- lengdarhlauparinn Tkaczyk sem hlaupið hefur 1500 metr- ana á 3:41.9 í sumar og stangarstökkvarinn Wezek, er stokkið hefur um 4.90 m. í sumar. Frá leik Fram og Hauka um helgina. (Ljósm.: Krástinjn Bene dikt&son). Fram vann Hauka 15-9 Keppir úrslitaleik á móti FH eðo KR ÍSLANDSMÓTINU í hanknatt- leik utanhúss var haldið áfram á laugardag og sunnudag. — Á sunnudag fóru fram tveir leikir í meistaraflokki karla. í A-riðli kepptu KR og Víkingur og lauk Guðmundur búinn að bæta kúlu- varpsmetið um 1,09 metra í ár Eins og skýrt var frá í Mbl. á laugardag fór fram á Mela- vellinum á föstudagskvöld, frjáls íþróttamót í tilefni 60 ára afmæl- is ÍR. Hófst mótið með ræðu er Gunnar Sigurðsson formaður ÍR hélt, en síðan hófst keppni. Keppt var í 8 greinum karla, Guðmundur kastar 17,83 metra. þremur kvennagreinum og nokkr um greinum sveina og drengja. Guðmundur Hermannsson, KR, setti að þessu sinni 10. kúlu- varpsmet sitt á þessu ári, kastaði nú 17,83 metra og hefur bætt met Gunnars Husebys, frá 1950 um 1,09 metra, og sinn fyrri ár- angur um 1,50 metra. Slíkt er glæsilegt hjá manni sem nú er 42ja ára, og lofsvert fordæmi fyrir íslenzka frjálsíþróttamenn sem yfirleitt hætta alltof snemma keppni. Keppni um annað sætið í kúluvarpinu var harðari, en svo fór að lokum að Arnar Guð- mundsson bar sigurorð af ung- lingamethafanum Erlendi Valdi- marssyni. Kastaði Arnar 15,18 m, sem er hans bezti árangur í greininni, en Erlendur 14,57 Valbjörn þorláksson stökk léttilega og fallega yfir 4,40 m og virðist hann vera í góðu formi núna. Tilraunir hans við 4,51 metra voru allgóðar, sérstaklega ein. Það var eins og Valbjörn skorti a'ðeins örlítinn kraft til að fara hæðina, en ekki er ólík- legt að metið falli í sumar. Ann- ar í stangarstökkinu var Hreiðar Júlíusson, KR, sem nú er búinn að ná lagi á að láta stöngina sveifla sér, en tækni hans yfir ránni er nokkuð ábótavant. Jón Þ. Ólafsson stökk vel yfir 2,05 metra í hástökkinu og reyndi hann næst við 2,10 metra, — eða metjöfnun. Var Jón ekki langt frá því að fara þá hæð í fyrstu tilraun sinni. Valbjörn varð annar stökk 1,80 metra. Keppni í 800 metra hlaupi var skemmtileg, og þá einkum um önnur verðlaun. Þorsteinn var hinn öruggi sigurvegari og hljóp nú á sínum bezta tíma hérlehd- is 1:52,2 mín. Halldór Guðbjörns- son varð annar á 1:56,8 mín., sem er bezti tími hans í ár og Þórarinn Amórsson varð þriðji á 1:56,9 mín., sem er hans bezti tími. Fannst manni ótrúlega mik- ill tímamunur á þeim Halldóri og Þórarni þar sem þeir komu svo til jafnir í markið. Gunnar Snorrason, UBK, varð fjórði á 2:03,4 mín., sem er hans bezti tími, fimmti varð Sigurður Jóns- son, HSK á 2:03,8 mín., og sjötti Ólafur Þorsteinsson, KR, á 2:03,8 mín., en sá timi er nýtt sveina- met. Hefur Ólafi farið mjög fram í sumar og þar er efni á ferðinni sem mikið á eftir að verða úr, með áframhaldandi æfingum. Þorsteinn sigraði einnig létti- lega í 460 metra hlaupinu á 49,2 sek., Ólafur Guðmundsson varð annar á 51,0 sek. og Þórarinn Arnórsson, ÍR, þriðji á 52,1 sek. í 100 metra hlaupinu voru a'ð- eins tveir keppendur og sigraði Valbjörn Ólaf örugglega. Tími Valbjörns var 11,0 sek. og Ólafs 11,2 sek. Ólafur hefur æft frem- ur lítið að undanförnu og er Framihald af bls. 26 Valbjörn vinnur 100 metrana. þeim leik með jafntefli, 20:20, eftir að KR hafði haft yfir allan leikinn. Fengu þeir einnig gott tækifæri til að ná yfirhöndinni á nýjan leik, er tæp minúta var til leiksloka, en þá var dæmt vítakast á Víking, en KR-ingum mitókst að skora úr þvi. Tveir leikir eru nú eftir í A- riðli, milli Víkinga og ÍR og KR og Fram, fara þeir leikir fram á þriðjudagskvöldið. f B-riðli kepptu Framarar og Haukar og var þar um hreinan úrslitaleik að ræða. f þeim riðli voru aðeins þrjú lið og höfðu bæði Haukar og Fram áður unn- ið Val. Framllðið mætti nú til leiks án Gunnlaugs og Ingólfs Ósk- arssonar, en unnu eigi að síður góðan sigur, 15 mörk gegn 9. f hálfleik var staðan 6:5 fyrir Fram. Gylfi Jóhajinsson skoraði fyrsta mahk leiksins, eftir rúm- lega fimm mínútur. Þórarinn Ragnarsson jafnaði fyrir Hauka, en Sigur'bergur skoraði næsta mark úr Vitakasti og þar með tóku Fnamarar forystu s>em þeir héldu leikinn út. f- fyrri hálf- leik munaðli sjaldan meira en einu marki og reifcnuðu ftestir með að Haukarnir mundu jafna þann m>un í síðari hálfleik og betur, þár sem þeir voru áber- andi meira hvattir af áhorfend- um ag léku á sínum „heima- velli". Siigurbergur skoraði fyrsta mark aíðari hálfleikisins, en Stef- án jaflnaði stöðuna aftur í 7:6 með vel framkvsemdiu vítakasti. Gyltfi Hjálmarsson skioraði síðan 9. mark Fram og eftir það fóru Framarar að síga framúr, og lauk leiknum, sem áður segir með sigri þeirra, 15 mörkum gegn 9 og munu þeir leika úr- slitalieikinn, sennilega við FH. Möguleitoi er enn á að KR vinni A-riðilinn, en þeir hafa hingað til aðeiins tápað einu stigi — á rnóti Víkkng. Til þess að kama-st í úrsiit þurfa þeir því að vinna FH í leiknum á þriðjudag, en telj'a má heldur ósenniiegt að þau úrdlit verði. Sem sjá má af markatölunni í Hauka—Fram-leiknum var vörnin hij'á báðum liðum góð, svo og markvarzlan. Einkum á þetta við hjá Fram, ag minnist ég ekki að hafa séð vörn Fra-m j-afn vel skipuiagða og þétta. í siðari háif leik skoruðu Haukar aðeins fjög ur mörk, þar af 3 úr vítaköstum. Beztu menn í Liði Fram voru Gylfi Jóhannisson, sem skoraði flest mörk, eða 6 ag átti auk þess góðan ieik í vörninni. Sigur bergur átti og ágætan leik, og er stöðugt að fara fram. Þonsfeinn stóð sig með mikillá prýði í mark inu og varði hvað eftir annað Ljómandi failega. Hann þyrfti hinsvegar að venja sig af ýms- um breilum, sem fáir hafa gam- an a-f. I Haukaliðinu áttd Þóra-rinn Ragnarsson einna beztan lieik, en hann h-efur náð nokfcurri tækni rmeð boltann. Mattihias var trauist ur í vörnimni, en sfcemmdi nokk- uð fyrir Haukum með stoot- græðlgi sinni, sem þýðir ekfci þeg ar átt er við jafn sterka vörn og ’hjá Fram. Dómari leiksins var Ingvar Viktorsson og dæmdi hann allval. Þiagar hefur verið skrifað nokkuð um búninga leifcmanma, en svo er að sjá að þei-r taki þá Guffjón Jónsson lék sinn 200-asta leik á móti Haukum og fékk af því tilefni blóm- vönd frá félögum sínum. gagnrýni ekki ýkja nærri sér. Þannig spil-uðu t.d. Haukar sum- ir í æfi-ngabúningum sínum, sumir í æfingablússum og aðrir í æfingabuxum. Búningar Hauk- anna er hvítur, en æfiingabúning urinn rauður. Fer engan vaginn vel á sJíku ag virtust vera þrjú lið á vellinum. Þá virðist ma-nni og nauðsy-n á að ganga betur frá mörkunum á vellinum, en í ieik Hauka og Fram skeðii það að anna-ð mark- ið færðist til, og þegar mark- vörðurinn reyndi að laga það tófcst ekki til betur en svo að það féll ofan á hann. stj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.